Morgunblaðið - 13.01.1974, Qupperneq 39

Morgunblaðið - 13.01.1974, Qupperneq 39
MORGUNBLAÐIÐ, SUNNUDAGUR 13. JANUAR 1974 39 Morgunverður Steikt egg, gróft brauð, ljóst brauð m. osti og berjamauki, mjólk, te og kaffi, 1/2 appelsina. Mánudagur Heilagfiskisúpa Þriðjudagur Steikt hjörtu, hrátt salat, Gulrótarsúpa m. ostabrauði. Miðvikudagur Fiskrönd m tómatsósu, (sjá uppskrift) hrátt salat. Rauðgrautur m. mjólk. Fimmtudagur Steiktur fiskur m. lauk hrátt salat. Grænmetissjúpa ójöfnuð. Föstudagur Kjöt m. aspargus. (sjá upp- skrift) Ölbrauðssúpa. Laugardagur Fiskur m. karrý og hrísgrjónum, hrátt salat Skyrsúpa (sjá uppskrift) Sunnudagur Saxað bufflm. lauk. Eplakaka (sjá uppskrift) Fiskrönd 750 g fiskur 100 g hveiti 2egg 30 g smjör 2 dl mjólk salt, pipar. Saxaður fiskurinn er hrærð- ur með hveitinu, kryddinu og eggjunum. Mjólkin sett f smátt og smátt og hrært vel. Deigið er látið í smurt form (rönd) og soðið í vatni í 45 mfn. Hafa má tómatsósu eða karrýsósu með. Kjöt með aspargus 750 g kjöt 300 g aspargus 1 1 vatn 30 g smjörlíki 25 g hveiti Til að jafna með: 2 eggjarauður Sjóðið kjötið í fremur litlu vatni. Aspargusinn er hitaður yfir gufu og skorinn í ca. 2 cm bita. Soðið síjað og jafnað með smjörlíkinu, hveitinu og eggja- rauðunum. Saltað eftir smekk. Heitri sósunni er hellt yfir kjöt- ið og aspargusinn. Soðnar kart- öflur eru bornar með. í staðinn fyrir aspargusinn má nota ann- að kál, svo sem blómkál, hvít kál eða toppkál. Fiskur með karrý og hrísgrjón- um. 750 g fiskur 100 g smjör eða smjörlíki 100 g hrísgrjón salt Til uppbökunar: 25 g smjör 25 g hveiti 3 dlsoð salt, pipar, karrý. Fiskurinn er steiktur. Hrís- grjónin soðin á venjulegan hátt. Sósan er búin til úr hveiti, soði og smjöri. Krydduð eftir smekk. Skyrsúpa Með því að þynna 200 g af skyri með 1—Vá í af mjólk, krydda með sítrónusafa og rifn- um berki og sykra svo eftir smekk, er orðin til friskandi skyrsúpa, sem bragðast vel með litlum tvíbökum út f. Eplakaka 750 g epli 80 g sykur 1 dl vatn 40 g brauðmylsna 30 g smjör 2 dl rjómi, Eplin eru flysjuð, soðin í vatni og 60 g af sykrinum. Því, sem eftir er af sykrinuin, 20 g er, blandað saman við brauð- mynsluna, látið á pönnu og bak- að ljósbrúnt i smjöri. Kælt á smjörpappír, látið í skál. Brauð- mynsla látin á botninn síðan epli og brauðmylsna á víxl. Þeyttur rjómi er borinn með. Ýmislegt um álegg Álegg er nú notað á hverju heimili. Það er borið á morgun- verðarborð, hádegis- eða kvöld- verðarborð. Mjög algengt er og að nota það í alls konar nesti. Álegg er oft mikill hluti máltíðar, og er því áríðandi að velja holllar fæðutegundir i það og kaupa það ekki of dýru verði. Dýrt er að kaupa niðurskorið álegg. Ódýrara er að kaupa áleggspylsur f heilu lagi, svo framarlega sem beittur hnífur er til á heimilinu. En pylsur eru fremur snauðar af steinefnum og fjörefnum. Hollara álegg fæst með því að sjá til þess, að nokkur afgangur verði af mið- degisverðinum, sem nota mætti í álegg, enda er slíkt álegg ódýr- ara en það, sem selt er f búðum. Það er tímasparnaður að gera 1-2 tegundir af áleggi, á meðan miðdegisverðurinn er mat- reiddur. Frá miðdegisverðinum má nota bæði soðið og steikt kjöt, einnig fisk og enn fremur nýjar, soðnar kartöflur og grænmeti alls konar. Búið til salöt úr smærri afgöngum. Fljótlegt er að útbúa alls konar eggjarétti i álegg, t.d. harðsoðin egg, hrærð egg, eggjahlaup o.fl. Það er og auðvelt að útbúa álegg úr soðnum hrognum, stór- um steiktum fisk- eða kjötboll- um, síldarsalati og öðru. Þeim tíma, sem varið er til áleggs- gerðar, er vel varið. Brauðið sjálft er engu að sið- ur þýðingarmikið en áleggið. Heilhveitibrauð og rúgmjöl eru auðugust af B-fjörefnum, einn- ig er mikið af B-fjörefnum f hveitibrauði. Rétt er því að nota, sem mest af þessum brauðum daglega, sérstaklega, ef áleggið er ekki bætiefnarikt. Hér eru nokkrar ábendingar um álegg: Fjörefnaauðugt álegg Hráepli og vínber, skorin í sneiðar, tómatsneiðar á salatblaði bananasneiðar á salatblaði tómatsneiðar m. graslauk tómatar og eggjasneiðar hrá salöt hrá rifin gulrót agúrku-, tómat-, og kartöflu- sneiðar á salatblaði. gulrótarmauk egg og síld alls konar síld steikt þorskhrogn m sftrónu- sneiðum steikt lifur lifrakæfa ostur alls konar. Sumarbúslaðaiand tn sdlu Til sölu 5 hektarar (kjarrlendi) af sumarbústaðalandi um 1 '/2 klst. aksturfrá Rvk. Allar nánari upplýsingar á skrifstofunni. . Eignamiðlunin, Vonarstræti 1 2, Simarl 1928 — 24534 Slávarlóð á Arnarnesl Til sölu stór sjávarlóð á fallegum stað á Arnarnesi. Allar upplýsingar á skrifstofunni. Eignamiðlunin Vonarstræti 1 2, Simar 11928 — 24534 ÚTSALA Karlmannaföt. Stakir jakkar og stakar buxur. Mikill afsláttur, mikið úrval. Últíma, Kjörgarði. íbúð vlð Rauðalæk Til sölu or 5 herb. ibú8, um 130 ferm. IbúSin, sem er á 2. haa8, skiptist i 2 samliggjandi stofur. eldhús, búr, litla aevmslu, stért hol, hjónaherbergi,2 barnaherbergi og baðherbergi RúmgóSir skápar eru Í bjóna og barnaherbergjum svo og t holi. í kjallara er sér geymsla ásamt sameiginlegu þvottahúsi. Sérhití og tvennar svalir. Upplýsingar í sima 43741 og 26080. Verzlunarhúsnæðl 100—200 fermetra verzlunarhúsnæði óskast strax í 3 til 4 vikur. Upplýsingar í síma 22630 á morgun og þriðjudag frá kl 9 — 1 2. 1 ÍBÚÐ ÓSKAST 2ja herbergja íbúð óskast á leigu fyrir hjúkrunarkonu í Borgarspít- alanum Æskilegt að íbúðin sé í nágrenni spítalans. Upplýsingar gefnar i síma 81200/207 á skrifstofutíma. Reykjavík, 9. janúar 1974. Borgarspítalinn. Húsmæðraskóilnn, Laugalandi, Eyjafirðl 3. febrúar n.k. hefst 4ra mánaða hússtjórnarnámskeið og 2ja mánaða vefnaðarnámskeið. 1 . apríl hefst 2ja mánaða saumanámskeið. Innritun i skólanum, sími um Munkaþverá. Skólastjóri. MERCEDES RENZ 220 dlesel Til sölu Benz 220 D, árgerð 1970. Fluttur inn í maí 1 973. Góður bíll. Upplýsingar í síma 24680, sunnudag og mánudag milli kl. 1 5 og 20. NÁMSFLOKKARNIR í KOPAVOGI Innritun verður í Víghólaskóla (vesturenda) sunnudaginn 1 3. janúar og mánudaginn 14. janúarkl. 20—21.30. Egllsstaðlr Iðnaðar- eða skrifstofuhúsnæðl Um 260 ferm miðsvæðis í þorpinu til sölu. EIGNAHÚSIÐ, Lækjargötu 6a Símar 18322 18966. Afosreykolnasamstæða til sýnis og sölu I Fiskiðjuveri voru við Vesturgötu 1 1 —13. Réttur áskilinn til að taka hvaða tilboði sem er eða hafna öllum. Tilboð berist skrifstofu vorri fyrir föstudagskvöld 1 8. janúar. Bæjarútgerð HafnarfjarSar. Útsala Rrelðflrðlngahúð (ugpl) Verzlun sem er hætt rekstri selur mikið magn af vörum á ótrúlega lágu verði: Skíðabuxur kr 100 00 Vinnubuxur kr 100 00 Kvenpils, stutt og sið kr 1 00.00 Telpnasokkar kr. 100.00 Barnanáttföt kr. 250.00 Karlmannasokkarkr. 50.00 Unglingasokkar kr. 25.00 Fjölbreytt úrval af smávörum á börn og fullorðna Útsalan Breiðfirðingabúð, (uppi). vwv.'

x

Morgunblaðið

Direct Links

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.