Morgunblaðið - 18.01.1974, Page 5

Morgunblaðið - 18.01.1974, Page 5
Jóhannes Tómasson og Gunnar E. Finnbogason MORGUNBLAÐIÐ, FÖSTUDAGUR 18. JANÚAR 1974 5 „Pornó”- pestin ÞA VERÐUR aftur tekinn upp þráðurinn, þar sem frá var horfið siðast. Við tilfærum nokkur dæmi úr bókinni „Disse unge kristne og deres hykleri", sem út kom hjá Forlaget Perspektiv 1972. Janúarnótt eina 1969 er Dan- merkurbúar risu úr rekkju ráku þeir augun í nokkuð nýtt. Stór plaköt höfðu verið limd á rúður margra svokallaðra ,,porno-búða“. Plaköt sem mótmæltu klámfar- aldrinum þar i landi. 1 40 bæjum viðs vegar um landið og 70 búðum i Kaupmannahöfn hafði þessum spjöldum verið komið fyrir. Að þessu stóð hópur sem var nefndur i fjölmiðlum„Unge kristne". Þessi hópur á sér nokkuð merkilega sögu og hefur vakið ýmsa til umhugsunar um hvernig við ábendingum þeirra, lét hann til skarar skríða eins og getið var hér í upphafi. — „Unge kristne" hafa einnig gefið út blað og þau álíta það verkefni sitt að kalla á kristið fólk til andspyrnu við þau guðvana- öfl, sem vaða uppi oggrafa undan komandi kynslóð. „Ung tro“ heitir timaritið og þar segja þau m.a„ að það sé skylda þeirra að mótmæla og sporna gegn niður- rifsöflunum. Þau benda á Jóhannes skfrara, er stóð uppi í hárinu á Heródesi konungi, og þegar Gideon braut niður Baal altari til að mótmæla viður- kenndri hjáguðadýrkun í ísrael. Með þessum dæmum vilja þau sýna, að rétt sé að andmæla, þau komið sé i kristindómsmálum í Danmörku. Upphafið var að fulltrúar „Unge kristne" komu að máli við dómsmálaráðherrann, Knud Thestrup, og bentu á hvaða afleið- ingar það gæti haft, að gefa nokkuð eftir í sambandi við klám- iðnaðinn. Rök ráðherrans voru þau að svæfa mætti faraldurinn með því að allir yrðu leiðir á klámritum ef nógu mikið væri leyft af útgáfu þeirra. „Unge kristne" álitu það hins vegar skammsýni (sem þjakaði flesta stjórnmálamenn), að með rýmkun laga um útgáfu klámrita, sem er einungis ein grein klám- iðnaðarins, væri verið að rétta niðurifsöflun í landinu litlafingur og það myndi leiða af sér að þau tækju alla höndina. Þetta hefur nú komið í ljós. A þeim tíma er klámrit voru óleyfileg, var heldur ekki að finna klámsýningar, pornobúðir fundust ekki í Kaupmannahöfn og kvikmyndaiðnaðurinn og dag- blöð voru heldur ekki orðin svo gegnsýrð sem nú er. Þegar þessi hópur sá fram á að stjórnmálamenn daufheyrðust séu að benda á hið illa, niðurrifs- öflin i manninum, er ganga vilja í berhögg við boðGuðs. Þannig er málum komið í Dan- mörku. Fólk er farið að rísa gegn þeirri afkristnun og siðleysi sem þar ríkir. Skyldi nokkuð vera likt á með okkar þjóð komið? Ætli hugsunarháttur hér og þar sé svipaður? Ætli hér ríki t.d. einhver undanlátssemi varðandi kristindómsfræðslu í skólum og kristin áhrif i þjóðfélaginu? Heyrst hafa þær raddir að hafa skuli fleiri trúarbrögð með, svo menn geti valið. Og helzt setja öll trúarbrögð samsíða og gera ekkert úr sérstöðu kristindóms. Minna má aðeins á ályktun þings kennaranema í þessu sambandí. Þar er að visu ekki túlkaður vilji allra kennaranema, en e.t.v. þeirra, sem hafa hug á að ráða í framtfðinni. Gerum okkur grein fyrir því, hver skoðun okkar er, Ef við viljum fylgja boðum Krists, þá verðum við lika að kynna okkur þau og standa við það að hlýða þeim. Það skyldi þó aldrei vera, að þau séu ekki eins úrelt og margir vilja segja? 10% AFSLÁTTUR AF ÖLLUM OKKAR VÖRUM GILDIR FYRIR ALLAR OKKAR VORUR BÆÐI FATNAÐ 00 HLJÓMPLÖTUR DÖMUR ★ PELSAR ★ KÁPUR ★ JAKKAR ★ LEÐURJAKKAR ★ D0MUJAKKAF0T ★ KJÓLAR ★ MUSSUR ★ PILS ★ BLÚSSUR ★ VESTI ★ PEYSUR ★ BAGGY-BUXUR ÚR TERYLENE, FLAUELI 0G DENIM ★ NÆRFÖT, BOLIR HERRAR ★ FÖT M/VESTI ★ STAKIR JAKKAR ★ KULDAJAKKAR M/L0ÐFÖÐRI ★ LEÐURJAKKAR ★ PEYSUR ★ SKYRTUR ★ VESTI ★ BUXUR, FLAUEL, DENIM 0G TERYLENE ★ B0LIR ★ BINDI ★ BELTI ★ SLAUFUR MUHID 10% AFSLÁTTINN SEM SIENDUR ÚT ALUN JANÚAR

x

Morgunblaðið

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.