Morgunblaðið - 21.06.1974, Page 24
24
MORGUNBLAÐIÐ, FÖSTUDAGUR 21. JÚNI 1974
Þórný Björk Jakobsdóttir með
verkefnaspjaldið sitt. Hún
sagði, að sér þætti gaman f Um-
ferðarskólanum og það
skemmtilegasta væri brúðu-
„Gatan er enginn leikvöllur," söng Birna f brúðuleikhúsinu og krakkarnir f Umferðarskólanum voru
„Gatan er enginn
íeikvöllur”
ÞAÐ voru áhugasamir nem-
endur, sem sátu á skólabekkj-
unum f Langholtsskóla, þegar
blaðamaður Mbl. leit þar inn sl.
þriðjudag. Þarna voru börn á
aldrinum 5 og 6 ára komin til
að læra umferðarreglurnar, en
lögreglan og umferðarnefnd
Reykjavfkur f samvinnu við
Fræðsluskrifstofu Reykja-
vfkurborgar hafa á undanförn-
um árum efnt til umferðar-
fræðslu fyrir börn á þessum
aldri.
í ár hófst Umferðarskólinn
11. júni sl. og stendur hann
fram til mánaðamóta
júní—júlí. Kennslan fer fram í
flestum barnaskólum borg-
arinnar og á hvert barn þess
kost að mæta tvisvar, klukku-
stund í hvort skipti. Inn f
kennsluna er fléttað brúðuleik-
húsi, söng og kvikmyndasýn-
ingu auk þess sem börnin fá
verkefnaspjöld, sem þau vinna
úr heima. Að sögn Óskars Óla-
sonar yfirlögregluþjóns hefur
þátttaka í Umferðarskólanum
verið mjög góð og foreldrar
áhugasamir um að börnin læri
að varast þær hættur, sem leyn-
ast I umferðinni. Sagði Óskar,
að allt efni og kennslugögn
væru innlend og væri í ráði að
senda gögnin til Hafnarfjarðar,
Grindavíkur, í Kópavog, Garða-
hrepp og Mosfellssveit og á Sel-
foss, en lögreglan á þessum
stöðum hefur áformað að taka
upp umferðarfræðslu fyrir
yngstu vegfarendurna. Kenn-
arar Umferðarskólans eru frá
lögreglunni í Reykjavík, þeir
Baldvin Ottósson, Steinn Karls-
son og Gunnar Sigurðsson og
þeim til aðstoðar eru nokkrar
fóstrur undir stjórn Guðrúnar
Björgvinsdóttur, Gyðu Ragn-
arsdóttur og Olgu Guðmunds-
dóttur.
Litið inn í
U mfer ðar skólann
„Gult ljós þýðir viðbúinn,*
Mbl. Sv.Þ.).
sögðu börnin f einum kór, þegar spurt var um umferðarljósin. (Ljósm.
leikhúsið.
henni alveg sammála.
Aukum þingstyrk
SjálístæðisflokJföins
AUKUM þingstyrk Sjálfstæðis-
flokksins svo um munar 30. júní.
Sjálfstæðisflokkurinn jók mjög
fylgi sitt við síðustu bæjar- og
sveitarstjórnarkosningar. Hann
fékk rúm 50% og sýnir það glöggt
hve hraðvaxandi fylgi flokksins
er. Þess vegna er það von okkar
Sjálfstæðismanna, að við getum
stóraukið fylgi okkar 30. júní og
svo sannarlega ætti það ekki að
vera nein óskhyggja. Sjálfstæðis-
flokkurinn er stærsti og heil-
steyptasti flokkurinn á land-
inu og þess vegna hið leiðandi afl
í íslenskum stjórnmálum. Til
hans liggur straumur jafnt ungra
sem aldinna. Ég fullyrði að þegar
vá er fyrir dyrum þá fylkir fólkíð
sér um Sjálfstæðisflokkinn.
Já ég sagði, að vá væri fyrir
dyrum. Sannarlega er nú svo
komið, því að nú ríkir ótti um að
farið sé að nálgast hengiflugið
eins og 1958. Þá hafði vinstri
stjórn setið í 2 ár og þá var allt
komið í strand. Ekkert fram-
undan nema hengiflug. Og
nú höfum við vinstri stjórn. Hún
hefur setið í 2 og hálft ár, en
er nú óvirk eða ég kalla það
svo, þótt hún geti stjórnað
með tilskipunum. Slíkri stjórn
er ekki hægt að fylgja og þess
vegna verður að veita henni verð-
uga ráðningu 30. júnf og það
gerum við best með því að auka
þingstyrk Sjálfstæðisflokksins og
tryggjum um leið farsæla lausn
varnarmálanna.
Alþýðubandalagið telur sig vfst
heilsteyptan flokk en heilindin í
þeim flokk sáust best í maí. Þar er
sama sundurlyndið ef að er gáð.
Islenskir kjósendur inn til dala
og út við sjó: Fylkið ykkur um
D-listann 30. júnf. Þar finnið þið
fótfestu í íslenskum stjórnmálum.
Fólkið leitar til Sjálfstæðisflokks-
ins þegar vandræði steðja að.
Sýnið baráttuvilja 30. júni og
kjósið D-listann. D-listinn er listi
Sjálfstæðisflokksins um allt land.
Listi frjálsræðis og lýðræðis. Listi
ungra og aldinna. Fram til sigurs
30. júní. Heilir til starfa.
Ólafur Vigfússon,
Hávallagötu 17,
Reykjavík.
Páll V. Daníels-
son skrifar frá
Hafnarfirði
Að draga lokur
frá dyrum
Illt verk og löðurmannlegt þótti
það fyrr á tímum að njóta gest-
risni höfðingja f þeim tilgangi að
draga lokur frá dyrum, þegar fólk
var gengið til náða, svo að óvin-
irnir gætu komið að því óvörum
og varnarlitlu.
fslendingar unna landi sínu og
þjóð. Þeir vilja vernda sjálfstæði
hennar og frelsi. Og þeir eru sein-
ir til að trúa því, að nokkur sam-
landi sé svo lítilsigldur, að ekki sé
hægt að treysta honum til að setja
fullveldi lands síns öllu ofar.
En svo er ekki, því miður. Ofsa-
trú á einræðisstefnu kommún-
ismans fær fólk til að bregðast
þjóð sinni. Það hafa dæmin sann-
að. Þá helgar tilgangurinn með-
alið. I þjónkun sinni við heims-
kommúnismanns hikar slíkt fólk
ekki við að brjóta fjöregg sjálf-
stæðis sinnar eigin þjóðar.
I þessum tilgangi er ýmsum að-
ferðum beitt. Þar ber hæst að
talað er fjálglega um hlutleysi í
þeim tilgangi að fá land sitt til að
vera eitt á báti f varnarmálum. Er
óspart slegið á strengi þjóðar-
stolts í því sambandi. Þá er
reynt að telja fólki trú um, að
þess eigið land lúti ekki sömu
lögmálum og öll önnur og engum
detti í hug að ráðast á það og
seilast til áhrifa. Fleira mætti
nefna.
Megin hluti íslenzku þjóðarinn-
ar vill hafa varið land. Þar ræður
það raunsæi að ekkert gerist af
sjálfu sér. Þjóðin veit, að frelsi og
sjálfstæði þarf sínar varnir eigi
það ekki að glatast. Þess vegna
vill hún hvorki rjúfa varnar-
tengslin við vinveittar nágranna-
þjóðir sínar né hafa landið
varnarlaust.
Ein áróðursaðferð kommúnista
er sú, að núverandi varnarlið sé
þess ekki megnugt að verja landið
ef á það verði ráðizt. En eftir að
varnarliðið hefur verið sent burtu
þarf enga árás að gera. Lokur
hafa þá verið dregnar frá dyrum.
Þá er nóg, að ein þota fái lend-
ingarleyfi undir því yfirskini að
hún sé að skipta um áhöfn á
togurum. Út úr henni gæti komið
harðsvírað og vel vopnað herlið f
stað togarasjómanna. Og þá liði
ekki á löngu þar til lýðveldið ís-
land yrði eitt af ósjálfstæðum
leppríkjum kommúnismans. Og
mennirnir, sem fengu ýmsa nyt-
sama sakleysingja til aðstoðar við
að draga lokur frá dyrum, mundu
þá ná þvf markmiði sínu að setjast
í helztu valdastöður þjóðfélagsins
án þess að þurfa nokkurt fyigi í
kosningum.
Mörgum hefur reynzt, að
skammt væri milli frelsis og
ánauðar. Eitt víxlspor eða and-
varaleysi á verðinum hefur oft
kostað margra alda áþján og jafn-
vel að þjóðir hafi liðið undir lok.
Aukið fylgi Sjálfstæðisflokksins
er eina tryggingin gegn því, að
slíkt gerist á Islandi.
Páll V. Danfelsson.
lág i:i i i;
i: uad i.