Morgunblaðið - 23.08.1974, Side 2
2
MORGUNBLAÐIÐ, FÖSTUDAGUR 23. AGUST 1974
Alþýðubandalagið vill skatt-
kggja ferðamannagj aldey ri
1 umræðu I efri deild Alþingis f
gær, um viðnám gegn verðbólgu,
mótmælt’ Ragnar Arnalds, for-
maður Aiþýðubandalagsins, þvf
harðlega, að flokkur hans hefði
ekki bent á nýjar leiðir tif
skattheimtu og fjáröflunar fyrir
rfkissjóð, sem m.a. hefðu getað
mætt niðurgreiðslu á áformaðri
hækkun landbúnaðarafurða um
9,5%, sem hækkun á verðlags-
grundvelli landbúnaðarins leiddi
af sér.
Þvert á móti sagði þing-
maðurinn, að þeir Alþýðubanda-
lagsmenn hefðu verið óragir við
að benda á leiðir til nýrrar
skattheimtu í rfkissjóð. Sem
dæmi benti hann á það, að
Óli Hjaltesteð
læknir látinn
LATINN er f Reykjavfk Óli
Hjaltesteð, læknir eftir langvar-
andi veikindi.
Óli Hjaltesteð fæddist í Reykja-
vík árið 1909 og voru foreldrar
hans Georg Pétur B. Hjaltesteð
stjórnarráðsritari og kona hans
Sophia Dorothea Finsen. Hann
varð stúdent frá Menntaskólanum
í Reykjavík árið 1928 og lauk
kandídatsprófi í læknisfræði árið
1934. Doktorsprófi lauk Óli árið
1941 en á árunum 1934—1938
starfaði hann á ýmsum sjúkrahús-
um í Danmörku. Árið 1939 varð
Óli sérfræðingur í berklalækn-
ingum og læknir við Berklavarna-
stöð Reykjavíkur sama ár. Þá
varð hann yfirmaður berkla-
varnadeildar Heilsuverndarstöðv-
ar Reykjavíkur árið 1958 og síðan.
Öli Hjaltesteð lét félagsmál
lækna mikið til sfn taka, og átti
um margra ára skeið sæti í rit-
stjórn Læknablaðsins. Ritaði
hann um berkla og berklavarnir
bæði í innlend tímarit og erlend
fræðirit.
Fyrri kona Óla var Helga
Davíðsdóttir, sem hann missti
árið 1950. Síðari kona hans er
Katrín Ólafsdóttir og lifir hún
mann sinn.
Alþýðubandalagið hefði lagt til,
að söluskattur yrði lagður á ferða-
mannagjaldeyri. Þannig hefði
ríkissjóður fengið 500 hundruð
milljón viðbótartekjur á yfir-
standandi ári, ef söluskattur
hefði verið lagður allt árið á
gjaldeyri þeirra Islendinga, sem
leitað hefðu út fyrir
landsteinana.
Bensínskattur 17
kr. á hvern lítra
Frumvarp til laga um f járöflun
til vegagerðar var til 1. umræðu í
neðri deild Alþingis f gær. Frum-
varp þetta, sem fjármálaráðherra
flytur, gerir ráð fyrir þvf, að sér-
stakt innflutningsgjald skuli lagt
á bensfn, frá 1. sept. nk. og á
bjólbarða, frá nk. áramótum.
Bensfnskatturinn skal vera kr.
17,- hvurn Iftra og skattur af hjól-
börðum kr. 45,- af hvurju kg.
Þá gerir frumvarpið ráð fyrir
því, að greiddur verði árlegur
þungaskattur af bifreiðum, sem
nota annað eldsneytí en bensín,
frá og með nk. áramótum. Skal
skatturinn vera kr. 45.000,00 af
bifreiðum allt að 2000 kg. eigin
þunga og kr. 1550,- á hver full 100
kg umfram það.
Framangreindar tölur skulu
vera grunntaxti, sem ráðherra
hafi heimild til að hækka í réttu
hlutfalli við hækkun vísitölu
byggingarkostnaðar.
Til greiðslu kostnaðar sam-
kvæmt vegalögum skal auk þeirra
tekna, sem aflað er samkvæmt
ákvæðum þessara laga, vera ár-
legt framlag á fjárlögum. Þá skal,
eftir því sem ákveðið verður í
fjárlögum hverju sinni,
gefa út happdrættisskulda-
bréf í því skyni að afla fjár
til hringvegar um landið. Heim-
ilt skal að verðtryggja skuldabréf
þessi með þvf að binda endur-
greiðslu höfuðstóls vísitölu.
Halldór Sigurðsson, fjármála-
ráðherra, fylgdi frumvarpinu úr
hlaði. Gat hann þess m.a., að hér
væri á ferðinni endurflutt frum-
varp, lítið eitt breytt, sem hefði
dagað uppi á sl. þingi.
Magnús Torfi Ólafsson, sam-
gönguráðherra, sagði frumvarp
Framhald á bls. 18
Afsteypan, sem Þjóðminjasafnið hefur fengið að gjöf frá Fornminja-
safni Færeyja.
Gjöf Fornminjasafns Færeyja til Þjóðminjasafnsins:
Afsteypa af hellu úr
Kirkjubæjarkirkju
Þjóðminjasafninu hefur borizt
góð gjöf frá Fornminjasafni
Færeyja í tilefni 1100 ára
afmælis Islandsbyggðar. Arni
Thorsteinsson, fornminjavörður f
Færeyjum, afhenti Þjóðminja-
safninu gjöfina.
Hér er um að ræða afsteypu af
klébergshellu, sem er að finna f
Kirkjubæjarkirkju í Færeyjum,
en hellan mun vera frá þvf um
1300. Er hún ferhyrnd, 50—60 sm
á hvern veg, og sýnir hún kross-
festingu Krists.
Hellan í Kirkjubæjarkirkju er
fyrir hólfi I austurvegg kirkjunn-
ar, en í hólfinu eru varðveittir
ýmsir helgidómar kirkjunnar.
Þar er m.a. að finna sjö litla
böggla með beinum helgra
manna. Þar á meðal eru bein úr
Þorláki helga Skálholtsbiskupi og
Magnúsi órkneyjarjarli, auk
beina, sem sögð eru vera hluti
jarðneskra leifa heilagrar guðs-
móður, enda þótt ekki leggi marg-
ir trúnað á sannleiksgildi þeirra
heimilda. Hins vegar virðist flest
benda til þess, að heimildir um
bein Þorláks helga og Orkneyjar-
jarlsins séu marktækar, að þvf er
Arni Thorsteinsson sagði, er Mbl.
ræddi við hann, en hann var
staddur hér á landi í gær og í
Mikil mengun í Varmá
GERLARANNSÓKNIR voru á ár-
inu 1973 liður i efnarannsóknum
á vatnsvæði Hvítár og ölfusár,
sem fram hafa farið á vegum
Vatnamælinga og Rannsóknar-
stofu iðnaðarins, en dr. Sigurður
Pétursson annaðist gerlarann-
sóknirnar. I skýrslu hans kemur
m.a. fram, að Varmá við Hvera-
gerði er ákaflega menguð af gerl-
um. Þar segir:
Eins og töflurnar bera með sér,
þá hefur Varmá algera sérstöðu,
bæði vegn.\ mikils gerlafjölda og
mikils magns af cóligerlum af
sauruppruna, enda hitastig ár-
innar alltaf miklu hærra en í
hinum ánum. Verður að líta á
Varmá sem frárennsli af skolpi
frá Hveragerðí og er hún því ekki
tekin inn í meðaltöl gerlafjölda á
hinum stöðvunum í töflunum.
Þær niðurstöður, sem ráðnar
verða af töflunum um vatnasvæð-
ið Hvítá—ölfusá, eru þessar
helztar:
Minnst gerlamengun er í stöð-
inni við Efstadal í Brúará, enda
er hitastig vatnsins þar lægst.
Gerlamengun Brúarár er orðin
meiri við Dynjanda og nálgast þá
Stóru Laxá við Brú, en í Soginu er
mengunin minni. Miklu meiri
mengun en í hinum bergvatns-
ánum er i Fossá við Jaðar. Þar er
alltaf mikil mengun, bæði af gerl-
um almennt og cóligerlum af
sauruppruna. Þessi á er annars
fyrradag á heimleið frá Græn-
landi, þar sem hann tók þátt í
fundi fornleifafræðinga frá öll-
um Norðurlöndunum. Þór
Magnússon þjóðminjavörður tók
einnig þátt í þeim fundi, og verð-
ur nánar ereint frá honum síðar.
lítil og ómerkileg miðað við allt
vatnasvæðið, en hún virðist þó
hafa spillt vatninu í Hvítá við
Brúarhlöð þann 29. júní, en þá
var óvenjulega mikið af cóli-
gerlum af sauruppruna í Fossá og
Hvítá við Brúarhlöð. Sé þessum
degi sleppt, verður meðalcóli-
gerlafjöldi í Hvftá við Brúarhlöð
aðeins 10,3 pr. 100 rúmsm í stað
124, eða svipaður og í Tungufljóti
og f Þjórsá. Stöðvarnar í Hvítá
fyrir ofan Gullfoss voru aðeins
teknar með einu sinni og var þar
hverfandi lítil eða engin mengun
af cóligerlum. Ölfusá við Selfoss
er alltaf mikil mengun, og er
þetta mengaðasta jökulvatnið á
vatnasvæðinu.
Innbrot á
Djúpavogi
Eskifirði 22. ágúst.
INNBROT var framið um sl.
helgi f verzlun Kaupfélags
Berufjarðar á Djúpavogi og
tekið úr búðinni um 100
þúsund krónur f peningum
auk töluverðs af varningi.
Sýslumaður S-Múlasýslu,
Valtýr Guðmundsson, og yfir-
lögregluþjónninn, Jón Ölafs-
son, byrjuðu rannsókn málsins
um kl. 17 á mánudag. Málið
var ekki erfitt f rannsókn og
um kl. 20 sama dag var upplýst
að mestu leyti hverjir hefðu
framið verknaðinn. Voru
þarna að verki aðkomumenn
og skipverjar af Hafnarnesinu
SI-77, sem gert er út frá Djúpa-
vogi. Eftir þvf sem bezt er
vitað hefur þýfinu verið skilað
til kaupfélagsins.
— Ævar.
Ljósmyndarar
á námskeiði
UNDANFARIÐ hafa dvalizt hér á
landi um 100 norrænir félagar f
Norræna ijósmyndarasamband-
inu. Efnt var til námskeiðs og
Ijósmyndasýningar f Norræna
húsinu f samvinnu við Ljósmynd-
arafélag tslands. 1 gær voru fyrir-
lesarar á námskeiðinu feðgarnir
Al og Michael Gilbert frá Kanada
og fjölluðu um andlitsmyndatök-
ur. M.a. sýndu þeir ýmsar upp-
stillingar við brúðhjónamynda-
tökur og tók Ijósmyndari Morgun-
blaðsins, Ólafur K. Magnússon,
þessar myndir við það tækifæri:
A annarri sést hvar Kanada-
maðurinn er að stilla upp brúð-
hjónum fyrir myndatöku en á
hinni hvar norrænu ljósmynd-
ararnir fylgjast með af áhuga.