Morgunblaðið - 23.08.1974, Síða 16
16
MORGUNBLAÐIÐ, FÖSTUDAGUR 23. ÁGÚST 1974
Utgefandi hf. Árvakur, Reykjavík.
Framkvæmdastjóri Haraldur Sveinsson.
Ritstjórar Matthías Johannessen,
Eyjólfur Konráð Jónsson,
Styrmir Gunnarsson.
Ritstjórnarfulltrúi Þorbjörn Guðmundsson.
Fréttastjóri Bjórn Jóhannsson.
Auglýsingastjóri Árni Garðar Kristinsson.
Ritstjórn og afgreiðsla Aðalstræti 6, sími 10 1 00.
Auglýsingar Aðalstræti 6, sími 22 4 80.
Áskriftargjald 600,00 kr. á mánuði innanlands.
Í lausasolu 35,00 kr. eintakið.
dragast öllu lengur að
hefja endurreisnarstarfið.
Tap frystihúsanna fyrri
hluta þessa árs nam 500
milljónum króna og áætlað
er, að það muni nema 1500
milljónum á ársgrundvelli.
Af þessum ástæðum eru
mörg frystihús að stöðvast.
Öllum er ljóst, hvílík vá
stendur fyrir dyrum, þeg-
ar efnahagsringulreiðin og
óstjórnin hafa leitt til þess,
að þessi mikilvægu fram-
leiðslufyrirtæki standa
GENGISFELLING
VINSTRISTJÓRNAR
Eftir þriggja ára valda-
feril vinstri stjórnar
stendur þjóðarbúið á
heljarþröm. Sú ríkisstjórn,
sem senn tekur við völd-
um, þarf að glíma við stór-
kostlegasta hallarekstur og
mestu ringulreið í efna-
hagsmálum, sem um getur.
Þegar gjaldeyrisviðskipti
voru stöðvuð sl. miðviku-
dag hrökk gjaldeyrisvara-
sjóðurinn aðeins fyrir
tveggja vikna innflutningi,
en við eðlilegar aðstæður á
hann að geta staðið undir
þriggja til fjögurra
mánaða innflutningi. Þessi
alvarlega staðreynd sýnir
glöggt þann hrikalega
vanda, sem nú er fram-
undan.
Öngþveitið er það sama á
öllum sviðum. Yfirdráttar-
skuldir viðskiptabankanna
við Seðlabankann skipta
þúsundum milljóna króna.
Allir fjárfestingarlánasjóð-
ir eru á þrotum. Sama er að
segja um fjölmarga aðra
opinbera framkvæmda-
sjóði eins og t.d. vegasjóð.
Sést nú bezt, að fullyrð-
ingar Morgunblaðsins fyrir
kosningar um þessi efni
voru réttar í einu og öllu.
Aðstandendur vinstri
stjórnarinnar viðurkenna
nú þetta alvarlega ástand.
Þannig segir í forystugrein
Tímans sl. miðvikudag, að
ekkert annað sé framund-
an en atvinnuleysi og óða-
verðbólga, ef ekki verði
spyrnt við fótum. í ljós er
komið, að varnaðarorð
sjálfstæðismanna í þessum
efnum áttu við rök að
styðjast og nú má ekki
andspænis þvi að geta ekki
haldið áfram rekstri.
Hættuástandið hefur
ennfremur leitt til þess, að
erfitt er um vik að halda
viðskiptum á eðlilegum
grundvelli. í mörgum til-
vikum getur það haft hinar
alvarlegustu afleiðingar
fyrir atvinnustarfsemina.
Sú hefur t.d. þegar orðið
raunin á, að því er varðar
byggingariðnaðinn.
Loks er þess að geta, að
stöðvun á gjaldeyrissölu
bankanna þýðir í raun
réttri, að ferill vinstri
stjórnarinnar endar með
gengisfellingu. í viðræðum
vinstri flokkanna um
myndun nýrrar ríkis-
stjórnar var talið, að fella
þyrfti gengi krónunnar um
15 til 20%. Um þetta voru
allir vinstri flokkarnir
sammála. En gengið hefur
þegar á þessu ári sigið um
a.m.k. 18%. Þetta þýðir, að
efnahagsstefna vinstri
stjórnarinnar hefur leitt til
hart nær 40% gengisfell-
ingar frá áramótum. —
Enginn þarf því að fara í
grafgötur um, að endur-
reisnarstarfið verður
erfitt.
Erfiðleikar sveitarfélaga
r
Oðaverðbólgan, sem
leiddi af efnahags-
stefnu vinstri stjórnarinn-
ar, hefur ekki aðeins kippt
stoðunum undan atvinnu-
lífinu í landinu, hún hefur
einnig komið mjög hart
niður á öllum stærstu
sveitarfélögum landsins.
Tekjur sveitarfélaganna
eru miðaðar við atvinnu-
tekjur árið 1973. Launa-
kostnaður sveitarfélag-
anna hefur hins vegar
hækkað um rúmlega 45%
milli áranna 1973 og 1974
og á sama tíma hefur bygg-
ingarvísitala hækkað yfir
43%. Þetta eru m.a. ástæð-
urnar fyrir því, að öll
stærstu sveitarfélög lands-
ins eiga nú við gífurlega
rekstrarörðugleika að etja.
Upplýst hefur verið, að
sveitarfélögin skorti nú um
1.000 milljónir króna til
þess að endar nái saman á
þessu ári. Fyrirsjáanlegt
er, að rekstur Reykjavíkur-
borgar fer 600 til 700 millj.
kr. fram úr áætlun vegna
óðaverðbólgunnar. Helztu
fyrirtæki borgarinnar eiga
af sömu ástæðum einnig
við mikla rekstrarfjárerf-
iðleika að glíma. Ríkis-
stjórnin neitaði sameigin-
legri ósk sveitarfélaganna
um að leyfa hækkun á
álagningargrundvelli út-
svars úr 10 í 11%. Stjórn-
völd hafa því gjörsamlega
vanrækt að styðja við bak-
ið á sveitarfélögum í þess-
um miklu erfiðleikum.
Reykjavíkurborg hefur
mætt þessum aðstæðum
með sérstökum sparnaðar-
aðgerðum í rekstri og sam-
drætti í framkvæmdum, að
því er varðar verkefni, sem
ekki er þegar byrjað á.
Mögulegur samdráttur í
framkvæmdum hrekkur þó
rétt til þess að jafna metin,
þar sem kostnaður við þær
framkvæmdir, sem þegar
hafa verið unnar eða byrj-
að er á, hefur vegna verð-
bólgunnar farið langt fram
úr áætlun. Rekstrarerfið-
leikarnir eru þá enn óleyst-
ir þrátt fyrir sparnaðarað-
gerðir.
Ljóst er, að fjárhagslegt
sjálfstæði sveitarfélaganna
er í verulegri hættu ef ekk-
ert verður að gert. Eitt af
brýnustu verkefnum nýrr-
ar ríkisstjórnar verður því
að gera ráðstafanir til þess
að auðvelda sveitarfélög-
unum að komast yfir þessa
miklu fjárhagserfiðleika,
sem óðaverðbólgan hefur
komið þeim í.
V esturbakki
Jórdanárinnar
Eflir að komið er til MiðAustur-
landa, tekur það aðeins fáar klukku-
stundir að festa hugann við megin-
atriðin í deilumálum Araba og
ísraelsmanna. Ég var minntur á
þetta, þegar ég rakst á vin minn í
Damaskus, sem spurði mig á hvers-
dagslegan hátt, hvað ég héldí um
þróun mála á vesturbakka Jórdanár-
innar.
Ekki svo að skilja, að nokkur, sem
hefur áhuga á málinu, gleymi
vesturbakkanum, en fyrir nokkru
hvarf málið i skuggann vegna stjórn-
kænsku dr Henry Kissinger og
hávaðans af komu Nixons Banda-
ríkjaforseta, sem liktist helst atriði úr
kvikmyndinni Ben Húr með skot-
helda kádiljáka og öryggisverði á
hverju strái
Þögnin, sem fylgdi í kjölfarið,
knúði Araba til þess að velta alvar-
lega fyrir sér eigin hugmyndum um
vesturbakkann Sumir Palestínu-
Arabar spurðu hreinskilnislega hvort
þeir vildu kaupa hann aftur við því
verði, sem upp er sett: endanlegum
friði við ísraelsmenn. Árangur
Kíssingers er aðdáunarverður, en
ekki er búið að ganga frá öllum
atriðum, og hið mikilvægasta er,
hvað gera skuli við Palestínu-Arab
ana beggja vegna við Jórdan og I
Sýrlandi og Libanon.
Spurningunni um vesturbakkann
og yfirráð (sraelsmanna þar er alls
ekki hægt að svara einfaldlega með
hugsanlegum viðræðum israels-
manna og Husseins konungs eða
þríhliða samkomulagi sem
Palestínu-Arabar tækju þátt í Það er
t d almennt álitið, að Hussein kon-
ungur stjórni jórdönsku ríki, þar
sem íbúar eru ekki Palestínu-Arabar,
en aftur á móti séu þeir milljón
Palestínu-Arabar í landi hans 2/3
hlutar íbúanna, og þannig mætti
segja, að hann stjórni palestínsku
riki.
Fólkið, sem stökkt var á brott af
vesturbakkanum, er engan veginn
allt flóttamenn, sem draga fram lífið
í flóttamannabúðum. Þótt þeir hafi
að mestu leyti flutt yfir ána allt það,
sem þeir gátu borið sjálfir eða á
ösnum, hafa þeir i krafti gáfna sinna
og iðjusemi og stundum með
peningaaðstoð ættingja annarsstað-
ar i Arabiu, komið á fót viðskiptum
og fundið sér atvinnu og þannig lagt
fram sinn skerf til efnahagslífsins i
Jórdaníu.
Eftir
Tom Little
ÁHYGGJUEFNI
Hugmyndin um að stofna
palestínskt ríki á vesturbakkanum,
sem Israelsmenn ráða nú, sem er
aðaltillaga Egypta, Sýrlendinga og
hægfara arms Frelsishreyfingar
Palestínu, er áhyggjuefni því fólki,
sem hefur sest að á austurbakkan-
um. Ef ísraelsmenn tækju þrátt fyrir
allt upp á því að samþykkja stofnun
slíks ríkis sem hluta af heildar-
samningum milli Araba og fsraels-
manna, myndi Hussein konungur
fljótlega leyfa þeim að velja milli
þess að flytja sig yfir ána eða vera
áfram á austurbakkanum og teljast
þegnar í Jórdaníu.
Slíkt val væri erfitt. Frá til-
finningasjónarmiði séð myndu
flestir vilja snúa aftur til Palestinu,
en frá peningasjónarmiði myndi það
þýða umskipti i lífi þessa fólks, sem
þegar hefur orðið fyrir svo miklum
áföllum síðasta aldarfjórðunginn.
Fáir vilja kannast við það opinber-
lega, að þeir ætli að dveljast áfram í
Jórdaniu, þar sem slíkt stappaði
nærri föðurlandssvikum. En þó má
reikna með því, að margir muni gera
það
Hin mannlegu vandamál hafa
aukist með árunum. í sumum tilfell-
um myndi flutningur milli ár-
bakkanna sundra fjölskyldum í stað
þess að sameina þær. Ég þekki t d
fjölskyldu, þar sem þrjár
palestinskar systur hafa allar gifst
jórdönskum mönnum, þannig að
þær myndu verða eftir á austur-
bakkanum, ef foreldrar þeirra
flyttust yfir til vesturbakkans
Auk þess eru margir, sem ekki
gætu snúið aftur til fyrri heimila
sinna. Þetta á t.d. við um íbúa
hafnarborganna Haifa og Jaffa og
fleiri borga á strönd Miðjarðar-
hafsins, sem myndu tilheyra ísrael,
hver sem árangurinn yrði af friðartil-
raunum Kissingers. En þetta á einn-
ig við um þá mörgu, sem áttu lönd
og fasteignir á Jerúsalem-svæðinu,
þegar ísraelsmenn hertóku borgina
árið 1967.
Fjölskylda, sem átti land í útjaðri
Jerúsalem, hefur nú sett upp leigu-
bifreiðastöð, sem hefur aðsetur í
El-Ordon Intercontinental Hotel í
Amman. Ég fékk einn bræðranna til
þess að aka mér um borgina, og
hann sagði mér, að þau fái ekki
landið sitt aftur nema með því að
rífa niður stóra Israelska Ibúðar-
blokk, sem þar hefur verið byggð
„Ef við fáum nógar fébætur fyrir
landið okkar, býst ég við, að fjöl-
skyldan kaupi land annarsstaðar á
vesturbakkanum og snúi aftur,"
sagði hann. „En án peninga er það
ekki hægt. Við getum þó a.m.k.
dregið fram llfið hér "
Siðasta setningin er einkennandi.
Að því undanskildu, að ísraelsmenn
treystu yfirráð sín á vesturbakkanum
með fasteignakaupum, hefursvæðið
verið vanrækt fjárhagslega, og jafn-
vel fyrir sex-daga-strlðið var það svo
viðkvæmt gagnvart (srael, að Arabar
og jórdanska stjórnin voru treg til
fjárfestinga þar. Vesturbakkinn gæti
ekki einu sinni tekið við Palestínu-
foram
world features
Aröbum I flóttamannabúðir núna án
þess, að til kæmu geysilega há fram-
lög frá alþjóðlegum hjálparstofnun-
um
Framfarir á austurbakkanum eru
miklu örari en nokkurn grunaði fyrir
nokkrum árum, og til eru erlendir
efnahagssérfræðingar, sem telja, að
hinar stórtæku áætlanir Hassan
prins ætli að ná hinu ótrúlega tak-
marki sinu; að gera svæðið byggi-
legt fyrir 1982. Með þetta I huga
telja þeir, að báðir bakkar Jórdan
eigi að vera eitt ríki, svo að vestur-
bakkinn fái nokkurn aðlögunartíma
yrði einhvern timann komist að sam-
komulagi við ísraelsmenn.
Sjálfstætt palestlnskt riki myndi I
öllu falli verða háð Jórdaniu eða
(srael um fjárhagaafkomu Hvað
snertir hernaðarmál, myndi rikið
annaðhvort treysta á her Jórdaniu
eða beygja sig undir vald ísraels-
manna
Hernaðarstaða gæti orðið
afgerandi atriði i framtiðarstöðu
palestínsks rikis á vesturbakkanum
vegna hættu á borgaraskærum, jafn-
vel borgarastyrjöld, sem yrði fyrir
hendi um leið og útflytjendurnir
tækju að snúa heim. Palestinu-
Arabar eru eðlilega bitur og vonsvik-
in þjóð, og innan þjóðarinnar er
mikil óeining um framtiðarstefnu.
Sumir kjósa að búa undir stjórn
Husseins, aðrir hafa það sem tak-
mark að steypa Hussein af stóli:
sumir segja, að viðurkenna verði
tilveru ísraels, svo að friður náist,
aðrir vilja endurheimt allrar
Palestínu; sumir fela sig Múhameðs-
trúnni á vald, en aðrir sjá arabiska
Palestinu sem forysturiki
sósialistískrar byltingar, sem myndi
breiðast um öll Mið-Austurlönd.
Ef við þessar óliku skoðanir og
framtiðardrauma sumra leiðtoga
Palestinu-Araba bætist svo aukin
reynsla í skæruhernaði og aukið
vopnavald, blasir við hættan á
valdabaráttu meðal borgaranna.
Hvor yrði fyrri til að skerast i leikinn,
her Husseins Jórdaniukonungs eða
ísraelski herinn?
(K.Á þýddi)