Morgunblaðið - 11.10.1974, Síða 34
34 MORGUNBLAÐIÐ, FÖSTUDAGUR 11. OKTÓBER 1974
I ÍMTTAFBÍTTIIi MnBCIIBIBI AflSIHIS
Valsmenn sýndu
meistaratakta
gegn liði Hellas
Gfsli Blöndal skoraði 4 mörk gegn Hellas. Hér er eitt skot á leið í markið.
Ljósm. Mbl. R. Ax.
Gústaf sigraði í Danmörku
VALSMENN sýndu sannkallaða
meistaratakta gegn sænska liðinu
Hellas T Laugardalshöllinni I
fyrrakvöld. Lokatölurnar urðu
27:20 fyrir Val, og var það sfzt of
stór sigur. Eins og tölurnar gefa
til kynna var sóknarleikurinn lát-
inn sítja í fyrirrúmi, og hann var
oft frábær hjá báðum liðum.
Þetta var langbezti leikurinn T
heimsókn Svfanna til þessa. Það
athyglisverðasta við þennan sigur
Vals er, að ungir nýliðar áttu
stóran þátt f honum, stórefnilegir
piltar, sem Ifklega eiga eftir að ná
langt f fþróttinni. Bendir allt til
þess, að Valur verði á toppnum f
vetur eins og undanfarna vetur.
Fyrri hálfleikur jafn
Leikurinn hafði ekki staðið í
nema hálfa mínútu þegar boltinn
lá í marki Svfanna. Þar var að
verki ungur og stórefnilegur ný-
liði, Bjarni Guðmundsson. Svíar
skoruðu tvö næstu mörk og lengi
vel í fyrri hálfleik hélzt leikurinn
í jafnvægi. Valsmenn höfðu þó
yfirleitt frumkvæðið, en Svíarnir
jöfnuðu oftast metin, enda átti
Jón Breiðfjörð einn af sínum
slöku dögum í markinu. Það var
svo undir lok hálfleiksins, að
Valsmenn tóku kipp, skoruðu
þrjú mörk í röð og i hálfleik höfðu
þeir tveggja marka forystu, 12:10.
I byrjun seinni hálfleiks tókst
Svíunum að minnka muninn og
að lokum að jafna 14:14, þegar
liðnar voru tæpar 10 mínútur af
hálfleiknum.
Valsmenn taka sprett
En upp frá þessu fóru Vals-
menn heldur betur að spretta úr
spori. Þeir skora þrjú næstu
mörk, og smátt og smátt juku þeir
muninn enn meira, og lokatölurn-
ar urðu sem fyrr segir 27:20, yfir-
burðasigur. Undir lokin varð leik-
urinn hrein leikleysa, og virtust
bæði Iiðin samtaka í því, og ekki
létu dómararnir sitt eftir liggja.
Mörk Vals: Ólafur Jónsson 7,
Gísli Blöndal 4 (1 v), Gunnsteinn
Skúlason 4, Jón Karlsson 4 (1 v),
Bjarni Guðmundsson 3, Jóhannes
Stefánsson 3, Torfi Ásgeirsson og
Steindór Gunnarsson sitt hvort
markið.
Mörk Hellas: Mats Nilsson 7,
Fischerström 4, Dan Eriksson 3,
Johansson og Kahl 2 mörk hvor,
Leif Nilsson og Stenqvist eitt
mark hvor.
Liðin
Lið Vals lék á köflum skínandi
góðan handknattleik, sérstaklega
í sókninni í seinni hálfleik, þegar
liðið var að leggja grunninn að
þessum góða sigri. Hins vegar er
ekki að sama skapi hægt að hrósa
vörn og markvörzlu hjá Val í þess-
um leik. Sóknin á raunar að vera
aðalatriðið í svona vináttuleikj-
um, og víst er, að áhorfendur hafa
farið glaðir heim úr höllinni eftir
þennan leik. Ólafur Jónsson var
eins og svo oft áður bezti maður
Vals, og virðist sem óðast að ná
sér á strik. Þá sýndi Gunnsteinn
einnig mjög góðan leik, miklu
betri en sumir af núverandi
landsliðsmönnum hafa nokkru
sinni sýnt. Gfsli skoraði nokkur
falleg mörk, en meiðslin f hnján-
um há honum greinilega mjög.
Meðan hann var inná datt hrað-
inn mjög niður hjá Val. Ástæða er
til að nefna sérstaklega tvo nýliða
í Valsliðinu, þá Bjarna
Guðmundsson og Jóhannes
Stefánsson. Þessir ungu piltar
hafa sýnt það í haust, að mikils
má af þeim vænta. Kæmi mér t.d.
ekki á óvart, að Bjarni bankaði
fljótlega á dyr landsliðsins. Af
þremur markvörðum Vals stóð
Ólafur Benediktsson sig bezt, en
hann var inná síðustu 15 mínút-
urnar eða svo.
Lið Svíanna var eins og fyrri
daginn mjög léttleikandi og
skemmtilegt, en greinlegt er þó,
að dagar Hellas sem stórveldis í
handknattleik eru taldir. Bezti
maður liðsins var eins og áður
Mats Nilsson (nr. 7), geysilega
fljótur og skemmtilegur leikmað-
ur, sem hlýtur að komast í sænska
landsliðið innan tíðar. Annars
vekur það mikla athygli, að liðið
skuli fá á sig 27 mörk, því vörn
þess er margrómuð fyrir gæði. Er
synd að segja, að mikið hafi borið
á þeim varnargæðum í heimsókn-
inni hingað til lands.
Dómarar voru Jón Friðsteins-
son og Kristján Örn Ingibergsson.
Þeir dæmdu lengst af þokkalega,
en gerðu inn á milli slíkar
endemis firrur, að menn botnuðu
hvorki upp né niður.
SVO VIRÐIST sem hið glæsi-
lega kringlukastsafrek Erlends
Valdimarssonar hafi farið fyrir
ofan garð og neðan hjá þeim, sem
sjá um skráningu fþróttaafreka
og afrekatöflur. Þannig er afrek
Erlends ekki tekið með f afreka-
skrá þá, er birtist jafnan f hinu
þekkta og útbreidda frjálsfþrótta-
blaði, „Leicht Athletik", sem
gefið er út f Vestur-Þýzkalandi,
né f skrá „Sportsworld", sem
gefið er út f Englandi.
Þegar Erlendur setti met sitt
munu fréttamenn eríendra frétta-
stofnana hérlendis hafa sent út
fréttir af því, a.m.k. var sagt frá
því í Norðurlandadagblöðunum.
Hins vegar ætti það að vera sjálf-
sagt, að stjórn Frjálsíþróttasam-
bands Islands sæi til þess, að kom-
ið yrði á framfæri fréttum af
helztu afrekum fslendinga og
jafnvel að hún skrifaði sjálf til
viðkomandi blaða. Ætti það að
auðvelda ýmis samskipti, ef það
sæist svart á hvítu í viðkomandi
blöðum, að fslendingar eiga gjald-
genga frjálsíþróttamenn.
Þess má og geta, að i fyrra var
Erlendur ekki á skrá þýzka blaðs-
ins yfir beztu kringlukastsafrekin
GUSTAF Agnarsson sigraði f
þungavigtarflokki f Álaborgar-
bikarkeppninni f lyftingum, sem
fram fór um sfðustu helgi. í móti
þessu kepptu margir af beztu
lyftingamönnum Norðurlanda og
eitt Norðurlandamet leit þarna
dagsins Ijós, er Enno Magi frá
Svfþjóð lyfti 123 kg f snörun létt-
vigtar. Þá setti Preben Kreds tvö
dönsk met f milliþungavigt, lyfti
samtals 315 kg og bætti metið f
snörun um 2,5 kg, er hann lyfti
140 kg.
í heiminum það ár, en þar var
hann samt ofarlega á blaði.
Afrek Erlends 64,32 metrar er
níunda bezta kringlukastsafrekið
í Evrópu í ár og eftir því sem við
bezt vitum hafa aðeins tveir
Bandaríkjamenn og einn Suður-
Afríkubúi gert betur, þannig að
Erlendur er númer 12 á heims-
afrekaskránni.
Er það glæsilegt að komast svo
framarlega á skrá þessa, og hefur
það ekki gerzt í langan tíma að
íslendingur verði svo ofarlega:
Bezti kringlukastsafrekin í
Evrópu á þessu ári eru eftirtalin:
68,16 Rickard Bruch, Svíþjóð
67,18 Ludvik Danek, Tékkóslv. •
66,52 Pentti Kahma, Finnl.
65,64 Siegfried Pachale, A-
Þýzkal.
65,22 Viktor Pensikow, Sovétr.
64,94 Gunnar MUller, A-Þýzkal.
64,94 William Tancred, Bretl.
64,40 Markku Tuokko, Finnl.
64,32 Erlendur Valdimarsson, Isl.
64,26 Hein-Direck Neu, V-Þýzkal.
Bezta afrekið, sem Bandaríkja-
maður hefur náð í sumar er 68,08
metrar, John Powell og J. van
Reenen frá S-Afríku hafa kastað
68,04 metra.
Gústaf náði ágætum árangri í
þungavigtarflokknum, lyfti sam-
tals 305 kg, en ekki hafa borizt um
það fréttir hvernig sú þyngd
skiptist milli snörunar og jafn-
hendingar. Sigurvegarar í ein-
stökum þyngdarflokkum á mót-
inu urðu sem hér segir:
Fluguvigt:
Steen Andersen, Danmörku 107,5
kg-
Bantamvigt:
Yeikko Kontinen, Finnl. 195,0 kg.
Fjaðurvigt:
Peter Mogensen, Danmörku 180,0
Danska meistaraliðið Arhus
KFUM, liðið sem Bjarni Jónsson
lék með, vann stórsigur yfir
færeyska liðinu Kyndli í fyrri leik
liðanna f Evrópubikarkeppninni í
handknattleik, en leikið var í
Árósum á sunnudaginn. Urslitin
Klukkukeppni
Golfklúbburinn Keilir í Hafnar-
firði efnir til opins golfmóts um
næstu helgi. Er þarna um að ræða
svokallaða „Klukkukeppni"
Keilis. Hefst keppnin á Hval-
eyrarvellinum kl. 13.00 á laugar-
daginn. Leiknar verða 18 holur,
með forgjöf (mesta forgjöf 18).
Vilhelm Norðfjörð hefur gefið
þrenn glæsileg verðlaun til þess
að keppa um.
Léttþungavigt:
Enno Magi, Svfþjóð 262,5 kg.
Millivigt:
Frede Petersen, Danm. 242,5 kg.
Léttþungavigt:
Björn Hedin, Svíþj. 275,0 kg.
Milliþungavigt:
Preben Krebs, Danm. 315,0 kg.
Þungavigt:
Gústaf Agnarsson, Isl. 305,0 kg.
Yfirþungavigt:
Roland Svensson, Svíþjóð 327,5
kg.
urðu 34—13 fyrir Árósaliðið, eftir
14—6 í hálfleik. Flest mörk fyrir
Arhus skoraði Hans Jörgen
Tholstrup 9, Torben Hansen
skoraði 5, Stefen Holst 4, Bjarne
Larsen 4, Ole Christensen 4,
Karsten Sörensen 3, Jörgen
Vodsgárd 2 og Jan Have 1. Fyrir
Kyndil skoruðu: Hanus Joensen
5, Hilmar Joensen 3, Niels Matte-
stad 2, Sverre Jacobsen 2 og
Hendrik Rubeksen 1.
Leiðrétting
Sú villa kom fram i frásögn af
unglingalandsleik í gær, að
Magnús Bergs úr Val var nefndur
Magnús Bergsson. Leiðréttist
þetta hér með.
Erlendur með
þeim beztu en
er hvergi að
finna á skrá
Gústaf Agnarsson sigraði f Danmörku.
O
Arhus burstaði Kyndil