Morgunblaðið - 15.10.1974, Side 1
200. tbl. 61 árg.
ÞRIÐJUDAGUR 15. OKTÖBER 1974
Prentsmiðja Morgunblaðsins.
2000 hreinar
meyjar til
Astralíu
Melbourne, Ástralfu.
14. október. Reuter.
CLYDE Cameron verkalýðsmála-
ráðherra Ástralíu skýrði frá því i
dag, að 2000 hreinar meyjar frá
Kýpur væru væntanlegar til
Ástralíu á næstunni. Stúlkurnar
eru á aldrinum 12—20 ára og
flýðu heimili sín í átökunum á
Kýpur i júlí sl. Ráðherrann sagði:
„Astralia er talinn öruggur
dvalarstaður fyrir þær."
sagði Henry Kissinger í Kaíró
Peking:
Heiftarleg valdabarátta
q A camknmiilao'iA mil
Starfsævi Maos lokið?
október
Lðndon
AP—NTB.
BREZKA blaðið Daily Tele-
graph birti f dag stóra forsfðu-
frétt, þar sem segir, að Mao
Tse-tung leiðtogi kinverka
kommúnistaflokksins hafi
fengið alvarlegt hjartaáfall f sl.
mánuði, og að starfsævi hans sé
f raun lokið. Blaðið segir, að
fréttin um hjartaáfall Maos
hafi borizt til Vesturlanda með
vestrænum kaupsýslumönnum,
sem hafi hitt háttsetta
embættismenn á ferðalagi um
Kfna.
Þá hefur blaðið eftir þessum
heimildum, að heiftarleg bar-
átta hafi brotizt út i Kína í
kjölfar veikinda Maos og að
höfuðandstæðingarnir í þeirri
baráttu séu eiginkona Maos,
Chiang Shing og Chou En-lai
forsætisráðherra. Segir blaðið
að samkomulagið milli þeirra
tveggja hafi versnað til muna á
árinu. Það hafi ekki bætt stöðu
forsætisráðherrans, að hann
hefur tvivegis sjálfur fengið
hjartaáfall, hið fyrra f júni og
hið seinna i júlilok. Er Chou
ennþá i sjúkrahúsi til með-
ferðar, en hefur tekið á móti
gestum. Talið er óliklegt, að
hann geti á ný tekið við þeim
mikilvægu og erfiðu störfum,
sem hann hefur gegnt i stjórn
landsins.
Framhald á bls. 39
Framhald á bls. 39
kerfis. Hann sagði einnig að
stjórn sín, sem aðeins hefði
nauman meirihluta á þingi mundi
vinna ötullega að því að tryggja
traust, ábyrg og arðvænleg einka-
fyrirtæki. Wilson lýsti þvf yfir, að
hann mundi á morgun ræða sam-
eiginlega við fulltrúa verkalýðs-
félaganna og forustumenn brezka
iðnrekendasambandsins. Hann
sagði að ríkisstjórnin mundi beita
sér fyrir því að ráða bráða bót á
erfiðri lausafjárstöðu verzlunar-
og iðnfyrirtækja og gaf siðan
verkalýðsfélögunum óbeina við-
vörun, er hann sagði: „Það hefur
miðað nokkuð í rétta átt í efna-
hagsmálum á síðustu mánuðum,
en það er lífsnauðsynlegt, að við
stofnum bata þessum ekki i hættu
með ónauðsynlegum vinnudeil-
um, eða með þvf að hækka svo
verð á útflutningsvörum okkar,
að enginn hafi efni á að kaupa
þær. Efnahagur okkar þolir ekki,
að einhverjir valdahópar reyni að
ná meira en þeim ber af þvi, sem
fyrir hendi er. Þess vegna á eng-
inn nema þeir, sem ekki getað
hjálpað sér sjálfir, rétt á því að fá
stærri hlut af þjóðartekjunum en
hann leggur til með vinnu sinni
og kunnáttu. Þetta er enginn timi
fyrir menn að hugsa um að græða
peninga, það verður að vinna
fyrir þeim.“
Wilson sagði að ekki þýddi fyrir
Breta að gera sér vonir um bætta
Damaskus 14. október.
AP-Reuter.
ANWAR Sadat Egyptalandsfor-
seti fullvissaði f dag Henry Kiss-
inger utanrfkisráðherra Banda-
rfkjanna um, að hann mundi
beita sér fyrir þvf á toppfundi
Arabaleiðtoga, sem hefjast á f
Marokkó 26. þessa mánaðar, að fá
stuðning við gerð bráðabirgða-
samkomulags við Israel.
„Akveðin atriði benda til þess
að við höfum nálgazt takmarkið
um réttlátan og varanlegan frið f
löndunum fyrir botni Miðjarðar-
hafs“, sagði Kissinger við frétta-
menn að loknum fundi sfnum
með Sadat. Kissinger skýrði
einnig frá þvf, að hann mundi
snúa aftur til Miðausturlanda f
nóvember, að afloknum heim-
sóknum til Sovétrfkjanna og Ind-
lands.
1 dag birtist í þýzka vikuritinu
Der Spiegel viðtal við Sadat, þar
sem hann neitaði því eindregið,
að Arabar undirbyggju nýtt stríð
við Israela. „Það eru Israelar sem
tala um stríð“. Hann bætti því við,
að hann væri reiðubúinn til að
skrifa undir friðarsamning við
Israela, ef þeir drægju herlið sitt
á brott frá þeim svæðum, sem
þeir hernámu í 6 daga stríðinu
1967.
Kissinger sagði á sunnudag, að
Fanfani rcvnir
stjómarmyndun
Róm 14. október.
NTB-Reuter.
AMINTORE Fanfani, formaður
Kristilega demókrataflokksins á
Italfu lét f dag undan miklum
pólitfskum þrýstingi og féllst á að
reyna stjórnarmyndun. Fanfani
hefur fjórum sinnum gegnt emb-
ætti forsætisráðherra á sl. 15
árum, en stjórnmálafréttaritarar
telja afar litlar Ifkur á, að honum
takist að mynda stjórn nú, þar
sem ekkert hefur gerzt frá þvf að
sfðasta rfkisstjórn undir forsæti
Rumors féll.
Stjórnarkreppan nú er talin ein
hin erfiðasta frá lokum heims-
styrjaldarinnar. Giovanni Spagn-
olli, forseti ítölsku öldungadeild-
arinnar, reyndi á föstudag, laug-
Palestínu-
arabar til S.þ.
New York 14. október NTB.
ALLSHERJARÞING Sameinuðu
þjóðanna samþykkti seint í gær-
kvöldi með 105 atkvæðum gegn 9,
en 20 sátu hjá, að bjóða fulltrúum
frelsishreyfingar Palestínuaraba
að taka þátt f umræðum þingsins
um ástandið í Miðausturlöndum.
Þetta er í fyrsta skipti sem aðili
utan S.Þ. fær að taka þátt í um-
ræðum á allsherjarþinginu.
ardag og sunnudag að miðla
málum milli stjórnarflokkanna
fyrrverandi, miðflokkanna og
sósíalista, og fá þá til að leggja
Framhald á bls. 39
hann hefði náð samkomulagi við
leiðtoga ísraels um grundvallar-
reglur, sem hugsanlega yrði hægt
að byggja næsta þátt friðarvið-
ræðnanna á. Frá Israel fór Kiss-
inger til Saudi-Arabíu, þar sem
Feisal konungur lýsti því óvænt
yfir, að hann styddi tilraunir
Bandaríkjamanna til að lækka
olíuverð og lét einnig í ljós stuðn-
ing við friðarumleitanir Kiss-
ingers. Áður hafði Hussein
Jórdaníukonungur lýst yfir stuðn-
ingi sínum við þær umleitanir
Kissingers, með því skilyrði, að
brottflutningur herliðsins af
Sinaiskaga yrði tengdur samn-
ingaviðræðum Jórdana um
vestúrbakka árinnar Jórdan.
Kissinger fór frá Kaíró til
Damaskus, þar sem hann átti að
hitta Assad forseta í kvöld.
Að loknum fundi sínum með
Assad heldur Kissinger til Alsír,
en leiðtogar þessara tveggja landa
eru taldir tregir til að styðja áætl-
anir bandarfska utanríkisráðherr-
ans.
Bandarfskir embættismenn eru
sagðir bjartsýnir um árangur
þessarar ferðar Kissingers til
Miðausturlanda, en segja annars
að talsverð spenna sé ríkjandi.
Kissinger og helztu ráðgjafar
hans segja, að ekki verði hjá þvi
komizt í nánustu framtíð, að leið-
Framhald á bls. 39
Wilson og kona hans á kosningadaginn.
Obreytt lífskjör næstu
arm 1
London 14. október, Reuter.
NTB.
HAROLD Wilson forsætisráð-
herra Breta varaði 1 dag verka-
lýðsfélögin f Bretlandi við að gera
of miklar kröfur og lofaði jafn-
framt aðstoð við einkafyrirtæki f
ræðu, sem hann flutti f kvöld og
var útvarpað og sjónvarpað. Wil-
son skoraði á þjóðina að sýna ein-
ingu f baráttunni við efnahags-
vandann og sagði að enginn þyrfti
að gera sér vonir um bætt Iffskjör
næstu tvö árin að minnsta kosti.
Wilson lýsti þvf yfir, að Verka-
mannaflokkurinn mundi standa
við loforð sín um aukna þjónýt-
ingu, en sagði að slíkt yrði gert
innan ramma blandaðs efnahags-
Bretlandi
afkomu á næstu 2—3 árum. Hann
sagði einnig, að verðbólgan f
heiminum, næst á eftir stór-
hækkuðu olíuverði, væri mesti
vandinn, sem Bretar hefðu horfzt
í augu við frá stríðsárum. Bretar
yrðu að standa við sínar skuld-
bindingar erlendis, en þeir gætu
ekki vonazt til að losna við óhag-
stæðan viðskiptajöfnuð næstu tvö
árin.“ Sama gildir um aðrar þjóð-
ir, sem þurfa að flytja inn sína
olíu, en ef allar þjóðir reyndu að
lagfæra viðskiptajöfnuð sinn með
því að draga úr innflutningi,
mundi það hafa i för með sér
kreppu á borð við þá, sem gerð-
ist upp úr 1930. Wilson vísaði
kenningum um atvinnuleysi sem
vopn í baráttunni gegn verðbólgu
algerlega á bug. Slíkt mundi kosta
„Nálgumst takmarkið”