Morgunblaðið - 15.10.1974, Side 2
2
MORGUNBLAÐIÐ, ÞRIÐJUDAGUR 15. OKTÓBER 1974
Súðavík: — Fyrstu rollurn-
ar landleiðina úr Djúpinu
Súðavík 14. okt.
HEÐAN er allt ágætt að frétta. Bessi er að landa hér 75 tonnum f
dag, en það hefur verið tregt sfðustu vfkurnar. Þá er búið að slá
upp fyrir grunninum að nýrri læknamiðstöð hérna og svo er það
Djúpvegurinn nýi. Hvaða bfll sem er getur nú ekið í Djúpið eftir
nýja veginum, sem veldur algjörri byltingu í samgöngumálum
hjá okkur. Eina vandamálið, sem hægt er að nefna á leiðinni, er
áin f botni Hestfjarðar, hún getur verið svolftið djúp. Þá er nú í
fyrsta skipti verið að sækja fé háðan landleiðina f Djúpið, en f
aldaraðir hefur það verið gert sjóleiðina og upp á sfðkastið með
Djúpbátnum. Einhverjir bændur munu sækja sitt fé núna með
Djúpbátnum, en sá fyrsti fór landleiðina f dag.
— Sigurður.
Ólafsvík:
9 hrútar fengu heiðursverðlaun
Ólafsvík 14. okt.
HEILDARSVNING á hrútum í héraðinu var haldin f gær á
Hofsstöðum f Miklaholtshreppi, en vegna mæðiveikigirðingar-
innar hér f Snæfells- og Hnappadalssýslu varð að hafa sýninguna
f tvennu lagi. Hinn hlutinn fór fram að Söðulsholti.
Verðlaunaskjöldinn á sýningunni fékk veturgamall hrútur frá
Litla-Kambi í Breiðuvfk, en hann er ættaður úr Fróðárhreppi.
Sýndir voru 33 hrútar á Hofsstöðum og fengu 9 hrútar heiðurs-
verðlaun. Það er mikið fjör f þessii hjá rollukörlunum og miklar
vangaveltur þegar svona hátfðisdagar eru f f járhaldinu.
— Helgi og Hinrik.
Grundarfjörður:
Allir ánægðir með Haukabergið
Grundarfirði 14. okt.
NVSMlÐAÐ skip kom hingað s.l. laugardag frá skipasmfðastöð
Þorgeirs og Ellerts á Akranesi. Heitir skipið Haukaberg SH 20 og
er það eign Hjálmars Gunnarssonar útgerðarmanns f Grundar-
firði. öllum sem skoðað hafa skipið ber saman um að það sé mjög
glæsilegt og vandað á allan hátt og er Hjálmar mjög ánægður með
öll samskipti við skipasmfðastöðina á Akranesi. Haukabergið
mun halda á togveiðar innan skamms. Annars er fátt að frétta
héðan, en slátrun er f fullum gangi.
— Emil.
Húsavík:
726 Húsvíkingar á skólabekk
Húsavík 14. okt.
SKÓLARNIR hafa nú allir tekið til starfa. 1 barnaskólanum eru
375 nemendur, en skólastjóri er Sigurður Hallmarsson. I gagn-
fræðaskólanum eru 206 nemendur, en skólastjóri er Sigurjón
Jóhannesson. 1 tónlistarskólanum eru 115 nemendur; skólastjóri
er Steingrímur Sigfússon, og við þann skóla kenna tveir tékkn-
eskir tónsnillingar. 1 iðnskólanum eru 30 nemendur og skólastjóri
er Kristján Mikkelsen. Sú nýbreytni er nú tekin upp í öllum
skólunum, að ekki er kennt á laugardögum.
—Fréttaritari.
Ólafsvík:
Stíga á skottið til að fá tóninn
Ólafsvík 14. okt.
HÉÐAN er allt rólegt að frétta, það er þetta venjulega dudd við
frystihúsin og svoleiðis. Það hefur verið tregur afli mest af í
sumar, en glæddist heldur þegar dragnótin var tekin fram fyrir
skömmu. Það er þvi nóg að gera eins og er.
Þá er verið að setja niður þil utan á suðurgarðinn f höfninni, en
hann er út grjóti. Búið er að steypa Ólafsbrautina með sjónum og
niður á norðurgarðinn. Annars er enginn prakkaraskapur í
bænum, þótt menn hér séu að sjálfsögðu svoldið breyzkir eins og
önnur jarðarinnar börn, en þetta fer nú kannski að lagast, því
vonir standa til að senn lifni yfir félagslífinu, og víst er að
leikfélagið er farið að teygja úr sér.
Búið er að setja hér á stofn Tónlistarskóla og stofna Tónlistar-
félag. Hafa verið ráðnir tveir kennarar til skólans úr Reykjavík
og eiga þeir að kenna allt sem lýtur að tónlist og stíga á skottið, ef
ekki vill betur til að fá tóninn upp hjá fólki. 100 nemendur eru
skráðír í skólann, en upphafsmaður að stofnun hans er séra Árni
Bergur. Skólastjóri er Þorsteinn Hauksson.
— Hinrik og Helgi.
Hellissandsmál-
ið enn óupplýst
ENN hefur ekki tekizt að upp-
lýsa þjófnaðinn á Hellissandi
fyrir nokkru, þegar stolið var
388 þúsund krónum úr pen-
ingaskáp f kaupfélagsútibúinu
á staðnum. Rannsókn málsins
verður haldið áfram.
Mbl. ræddi í gær við Hannes
Thorarensen rannsóknarlög-
reglumann hjá Sakadómi
Reykjavíkur, en hann var ann-
ar tveggja lögreglumanna
þeirrar stofnunar sem kallaðir
voru á vettvang. Hannes sagði:
„Mjög ýtarleg rannsókn hefur
farið fram vegna þessa máls, en
án árangurs enn sem komið er.
En mig langar að það komi
fram, af gefnu tilefni, að í rann-
sókninni hefur ekkert það kom-
ið fram, sem bendir til, að
starfsmenn útibúsins hafði ver-
ið viðriðnir verknaðinn, þvert á
móti.“
Loftriffilskyttur á
ferð í Breiðholti
Skotið á fólk og glugga
LOFTRIFFILSKYTTUR hafa
verið á ferð f Breiðholtinu að
undanförnu. Á sunnudagskvöldið
var skotið fjórum skotum að hjón-
um með tvö börn, sem biðu eftir
strætisvagni f Æsufelli, og s.l.
föstudagskvöld var brotin rúða f
húsi víð Hjaltabakka. Ekki hefur
tekizt að ná þeim sem þessum
skotárásum stóðu, en það eru til-
mæli rannsóknarlögreglunnar, að
þeir sem einhverjar upplýsingar
geta gefið, hafi strax samband við
lögregluna.
Það var klukkan 22.30 á sunnu-
dagskvöldið að hjón með tvö lftil
börn biðu á strætisvagnabiðstöð
við Æsufell. Rétt í þann mund er
vagninn var að aka upp að stöð-
inni small fyrsta skotið i stöng
sem heldur uppi merki SVR.
Strax á eftir kom annað skotið og
lenti það í fæti mannsins, án þess
þó hann hlyti af teljandi meiðsl.
Þriðja skotið þaut framhjá fólk-
inu, og það fjórða fór yfir öxl
mannsins um leið og hann sté upp
f vagninn. Fór það í rúðuna fyrir
framan bílstjórann og mölbraut
hana. Leikur grunur á, að skotin
hafi komið frá stórri íbúðablokk
sem stendur við Æsufell, nokkru
frá biðstöðinni. Rannsóknarlög-
reglan hefur yfirheyrt nokkra
menn vegna málsins, en án árang-
urs enn sem komið er.
Þá barst rannsóknarlögregl-
unni í gær tilkynning um, að skot-
ið hefði verið í rúðu í íbúð við
Hjaltabakka. Gerðist þetta milli
klukkan 22—23 á föstudagskvöld.
Skotið hæfði tvöfaldan glugga og
brotnaði ytra glerið. Telur rann-
sóknarlögreglan þvi líklegt, að
um loftriffilskot hafi verið að
ræða, að öðrum kosti hefði allt
mölbrotnað. Enda þótt loftrifflar
séu mun hættuminni en venjuleg-
ir rifflar geta þeir valdið skaða og
meiðslum í ákveðnum tilvikum,
t.d. ef skotin hæfa augu eða aðra
viðkvæma staði. Því eru þetta
mjög varhugaverð vopn, sérstak-
lega í höndum unglinga, sem ekki
kunna með slíka gripi að fara.
Þingið fagnaði mjög fjölgun
skuttogara undanfarin fjögur ár,
er harmaði hin tíðu slys, sem orð-
ið hefðu um borð í skuttogurum.
Gerir sambandið kröfu til þess, að
markvisst verði unnið að þvi að
draga úr slysahættu á skipunum,
ekki sízt þeim, sem stafa af mann-
legum mistökum. Sérstök áskor-
un var um að ríkisvaldið selti lög
Framhald á bls. 39
Sjómannasambandsþing:
Sektir við vanrækslu
tilkynningarskyldu
UM HELCINA var haldið 9. þing
Sjómannasambands fslands. Jón
Sigurðsson, sem verið hefur for-
maður sambaodsins undanfarin
ár var endurkjörinn. Stjórnin,
sem kjörin var á þinginu hefur
skipt með sér verkum og var
Kristján Jónsson úi Hafnarfirði
kjörinn varaformaður, ritari Pét-
ur Sigurðsson frá Sjómannafélagi
Reykjavfkur, gjaldkeri Ársæll
Pálsson frá Hafnarfirði og með
stjórnendur Tryggvi Helgason frá
Akureyri og Hilmar Jónsson frá
Reykjavfk.
Þing Sjómannasambandsins tók
sérstaklega til meðferðar slysa- og
öryggismál og samþykkt var mjög
skelegg ályktun um skuttogara og
slys um borð í þeim. Þingið beindi
sérstaklega áskorun til Siglinga-
málstofnunar ríkisins um að
fylgzt yrði nánar með en hingað
til stöðugleika fiskiskipa, sem
smíðuð væru innanlands. Þá
þakkaði þingið ágæt störf Slysa-
varnafélags Islands og sjóslysa-
nefndar til þess að auka öryggi
íslenzkra sjómanna.,
Vestur-þýzkt
verksmiðju-
skip halastýft
Varðskip klippti á báða togvíra
vestur-þýzka togarans Koblenz
BX 692 laust fyrir kl. 16 s.l.
sunnudag, þar sem togarinn var
að veiðum 7 mflur innan fisk-
veiðimarkanna út af Deild við
ísafjarðardjúp. Koblenz, sem er
verksmiðjutogari með skutdrátt,
hélt í suðvesturátt út frá landinu
eftir að klippt hafði verið á togvfr-
ana. Þokusúld var á miðunum á
þessum tíma.
Jónás Guðmundsson
sýndi í Danmörku
JÚNAS Guðmundsson rithöfund-
ur og listmálari er nýkominn til
lancþsins frá Danmörku, en þar
hélt hann málverkasýningu i boði
Horne Höjskole og listráðsins I
Hirtshals. Sýningin stóð frá 27.
september til 6. október og varð
fjölsótt. Alls voru 50 verk á sýn-
ingunni, flest vatnslitamyndir, en
6 olíumálverk. Seldust 13 verk á
sýningunni.
Horne Höjskole er þekkt stofn-
un i Danmörku og hefur gengizt
fyrir fjölda listsýninga og býður
til sfn listamönnum hvaðanæva
að, ýmist til dvalar eða til sýn-
inga. Jónas er fyrsti íslenzki mál-
arinn sem þarna sýnir, en ástæða
þess að skólinn vildi sýna íslenzka
myndlist að þessu sinni var m.a.
sú, að fjöldi islenzkra fiskiskipa
landar nú síld á Jótlandi og sér-
stök tengsl hafa því myndazt milli
Norður-Jótlands og Islands.
Komu margir íslenzkir sjómenn á
sýninguna.
Þá flutti Jónas tvo fyrirlestra á
vegum þeirra aðila, sem stóðu að
sýningunni. Fjölluðu þeir um Is-
land og stöðu þess f nútfmanum.
Var annar fyrirlesturinn fluttur í
háskólanum, en hinn fyrir
forustumenn í viðskiptalífi og
iðnaði f Hirtshals.
Við smelltum
þessari mynd af
Jóhönnu á Elli-
heimilinu Grund i
gær. Hún var þá
búin að pakka
niður mestu fyrir
heimferðina og
kvaðst mikið
spennt að komast
heim. Hún
sagðist vera f
góðum félags-
skap á Grund. en
um fram allt ætl-
aði hún heim og
það söng f henni
af óþreyju. Ljós-
mynd Mbl. a.j.
96 ára og aftur
heim til Eyja
Fyrsti Hvatarfundur-
inn á vetrinum
Sjálfstæðiskvennafélagið Hvöt
heldur sinn fyrsta fund á vetrin-
um í Átthagasal Sögu f kvöld,
þriðjudag kl. 20.30.
Ræðumaður er Ragnhildur
Helgadóttir, alþingismaður, og
talar um stjórnmálaviðhorfið.
Nefnist erindi hennar Ur
stjórnarandstöðu f stjórnarstuðn-
ing.
Þá verða lagðar fram tillögur að
Iagabreytingum félagsins. Á eftir
verða kaffiveitingar.
I flugvél í fyrsta sinn
JÓHANNA Jónsdóttir, 96 ára
gömul kona úr Vestmannaeyjum,
snýr aftur heim til Eyja í dag, en
hún kom til Reykjavfkur f fyrsta
sinn á gosmorguninn með bát,
sem var dreginn vélvana til Þor-
lákshafnar og f Reykjavfk hefur
hún sfðan verið á Elliheimilinu
Grund f góðu yfirlæti. En f dag fer
hún f fyrsta skipti f flugvál, ef
veður leyfir, og þá aftur heim til
Eyja. Hún var 94 ára gömul þegar
hún varð að flýja Eyjar með löndum
sfnum og ávallt sfðan hefur hún
verið ákveðin f að fara aftur. Við
röbbuðum stuttlega við Jóhönnu i
gær, en hún er feikna hress, létt f
lund og spennt að komast heim
aftur. Jóhanna er fædd 24. ágúst
1878.
„Ætli ég fari ekki á morgun, ef
það verður gott veður. Er ekki kalt
núna'7
„Nei, það er milt haustveður".
„Já, það leggst bara vel í mig. Ég
sé það út um gluggann hjá mér að
skýjaslóðarnir eru að rofna. Já, já,
já, þetta er ágætt, hvað þýðir
annað".
„Þú komst til fástalandsins með
bát gosnóttina".
„Já, með öðrum af elliheimilinu
heima. Mér fannst ágætt að koma
með bátnum, en það var nú eitthvað
að honum, blessuðum. Ég var alltaf
ákveðin í því að fara aftur heim, ég á
svo marga kunningja þar og mig
langar svo skelfing mikið aftur heim
til Eyja. Ekki það að það fari ekki vel
um mig, langur vegur frá, en ég var
ákveðin frá þvi ég kom f bæinn að
fara heim aftur".
„Þú kippir þér ekkert upp við að
fljúga á þessum aldri"?
Framhald á bls. 39