Morgunblaðið - 15.10.1974, Qupperneq 7
MORGUNBLAÐIÐ, ÞRIÐJUDAGUR 15. OKTÖBER 1974
7
CHEVROLET 1924—1974. Þessi segir 50 ára sögu. Hann er á bílasafni á vegum General Motors f Danmörku.
Chevroletinn er sem sagt samsettur úr ýmsum hlutum frá s.l. 50 árum.
Hvernig er hægt
að spara bensínið ?
EF þú heldur að bíllinn
þinn eyðiofmiklu bens
íni, ættirðu að líta á
þessar línur. Þær geta
hugsanlega sparað þér
nokkrar krónur. —
Margir aka til og frá
vinnu í dýrum og fínum
bílum. Og þó að þeir
séu misjafnlega dýrir og
fínir eru víst flestir farnir
að hugsa alvarlega um
rekstrarkostnað bíla
sinna, sérlega þá
bensínkostnaðinn. Séu
eknir 20 þúsund kíló-
metrar á ári á bíl, sem
eyðir 10 1/100 km,
kostar það kr. 98.000 á
ári, eða rúmlega 8 þús.
kr. á mánuði (miðað við
bensínverð 49 kr. lítri)
einungis í bensín-
kostnað. Hér eru nokkur
atriði, sem vert er að
hafa í huga til að draga
úr bensíneyðslunni.
1. Ökumaðurinn, þú
sjálfur. Ein helzta ástæðan
fyrir of mikilli bensíneyðslu
bíla liggur oft hjá ökumann-
inum sjálfum. Sparnaðar-
akstur er mjúkur og ná-
kvæmlega úthugsaður akst-
ur. Sparnaðarakstur er akstur
með léttu ástigi á bensíngjöf-
ina — ekki er gott að aka á
klossum, ímyndaðu þér, að
þú sért með linsoðið egg á
milli bensíngjafarinnar og
fótarins.
2. Ræsing. Nú erum við
tilbúin að ræsa bílinn. Aðeins
skyldi nota nauðsynlegt inn-
sog (og þar hafa bílarnir með
handstýrðu innsogi kost fram
yfir þá með sjálfvirkt) og aka
af stað um leið og vélin
gengur hikstalaust. Kyrr-
stöðu upphitun, sömuleiðis
lausagangur, kostar dýra
dropa og bezt er fyrir vélina,
að hún sé hituð upp í akstri.
3. Viðbragð og gírskipt-
ingar. Menn skyldu forðast
að aka af stað eins og í
kappakstri. Ef bensíngjöfin er
stigin í botn, gleypir vélin í
sig bensínið. Viðbragðið á að
vera mjúklegt og ástig á
bensíngjöfina laust. Þá er
mikilvægt að nota gfrana
rétt. Þar skyldi maður fylgja
leiðbeiningabæklingi við-
komandi bíls eða nota þessa
þumalfingursreglu: Skipta í
2. gír á 20 km/klst hraða, í
3. gír á 40 km/klst og í
fjórða á 60 km/ klst.
4. Hraðinn. Bensíneyðsl-
an eykst með hraðanum. En
hún er jafnframt minnst, ef
hraðinn er sem jafnastur. Þá
er mikilvægt að horfa langt
fram fyrirsig, sérlega í mikilli
umferð í borg og bæjum, svo
maður þurfi sem minnst að
minnka og auka hraðann á
víxl. Þannig sparar maður
bæði að bremsa og gefa inn
en það kostar hvort tveggja
bæði tíma og peninga. Burt-
séð frá þessu er auðvitað
mjög misjafnt, hvað bílar
eyða miklu bensíni og hve-
nær þeir eyða minnst.
Þau atriði, sem nú eru
talin, snúa að ökumanninum
einvörðungu, en hér skal
einnig minnzt lítillega á
nokkur atriði, sem snerta bíl-
inn. — Almenn stilling vélar-
innar hefur langmesta þýð-
ingu í sambandi við sparn-
aðarakstur. f rafkerfinu eru
það platínurnar, bilið milli
þeirra og tímasetning neist-
ans, ásamt kertunum, sem
mestu máli skiptir að í góðu
lagi sé. í bensínkerfinu þarf
að fylgjast með bensindæl-
unni, filternum í henni og
e.t.v. er nauðsynlegt að
Ökumaðurinn og eggið
Hraðinn
Réttur þrýstingur í dekkjum.
hreinsa blöndunginn og stilla
hann. Kælikerfið verður að
vera í lagi. Óþétt útblásturs-
kerfi eykur einnig bensín-
eyðsluna. Ef bremsuklossar
strjúkast við eða handbrems-
an er ekki alveg niðri verður
bíllinn þyngri og eyðir
þannig meira. Loks er ráðlegt
að mæla þrýstinginn í
dekkjunum u.þ.b. á hálfs-
mánaðar fresti. Athuga ber
að dekkin séu köld þegar
þrýstingurinn er mældur.
Þýtt, stytt og nokkuð
breytt úr dönsku bílablaði
(Motor). b|
íbúð til leigu 6 herb. ibúð i Kópavogi, laus til leigu til 1. júlí 1 975. Sigurður Helgason Þinghólsbraut 53 Simi 42390. Brotamálmar Kaupi allan brotamálm langhæsta verði. Staðgreiðsal. NÓATÚN 27, Sími 25891.
Suðurnes til sölu eldra ibúðarhús ásamt fisk- húsi og útihúsum i Garðahreppi. Má seljast i tvennu lagi. Fasteignasalan Hafnargötu 37, Keflavik simi 1420. Gerum tilboð i jarðvegsvinnu svo sem grunna, skurðgröft, lóðir, bilastæði og akstur með efni. Reynið viðskiptin. Upplýsingar i síma 41526 á kvöldin.
Hálfir grísaskrokkar Nýslátraðir grisaskrokkar, skorið, hakkað og merkt eftir óskum kaup- anda. 488 kr. kg. Kjotmiðstöðin Laugalæk, sími 35020. Mikið af handavinnu svo sem javi teppi klukkustrengja- járn og prjónagarn i mörgum lit- um, og gerðum. Tekið upp dag- lega. Hof.
Hálfir nautaskrokkar úrvals nautakjöt í hálfum skrokk- • um tilbúið i frystikistuna. 397 kr. kg. Kjötmiðstöðin, sími 35020. TsmnRcrniDnR 7| mRRKHO VÐBR
Hjónaklubbur Garðahrepps
Dansleikur verður haldinn að Garðaholti
laugard. 19 okt. og hefst kl. 9 e.h.
Miðapantanir í síma 42777, 42869 og
428 1 6, fyrir fimmtudagskvöld.
Komum snemma komum kát.
stjórnin.
Oskum eftir að kaupa
lyftara sem lyftir 1 500 kg.
Bikeiðar & Landbúnaðarvélar hf
lÍHklðN ÁMuUnd 14 . Vykjnft . SW WH
Iðja, félag
verksmiðjufólks
Iðjufélagar, enn eru nokkrir aðgöngumiðar
óseldir að afmaelishófi félagsins sem haldið
verður að Hótel Loftleiðum, föstudaginn 18.
þ.m.
Miðasala og borðpantanir á skrifstofu félagsins
daglega frá kl. 9 til 6. Félagsstjórnin.
Bólstrarar —
Húsgagnaverzlanir
Hið vinsæla leðurlíki komið aftur á lager í miklu
litaúrvali.
Heildsölubirgðir.
Davíö S. Jónsson & Co. hf.,
Sími 24-333.
SSTRATFORD
ENSKIJ
PENINGASKÁPAR
þjófheldir — eldtraustir
heimsþekkt —
viðurkennd framleiðsla.
E. TH. MATHIESEN H.F.
STRANDGÖTU 4, HAFNARFIRÐI — SÍMI 51919