Morgunblaðið - 15.10.1974, Blaðsíða 10
10
MORGUNBLAÐIÐ. ÞRIÐJUDAGUR 15. OKTÓBER 1974
I deiglunni
Þingsályktunartillaga þessi var
lögö fram I þingbyrjun haustið
1970. Síðar varð þetta eitt helsta
kosningamál Alþýðubanda-
lagsins. Svo mikið var lagt upp úr
máli þessu, að i ársbyrjun 1971
kröfðust þingmenn Alþýðubanda-
lagsins, að útvarpsumræður færu
fram um þingsályktunartillög-
una. Þessar umræður fóru fram i
marsmánuði það ár. Magnús
Kjartansson lét þá mörg orð falla
um aðgerðarleysi þáverandi ríkis-
stjórnar i þessum efnum. Þar
setti hann fram þá „skilyrðis-
lausu kröfu, að fullkomin hreinsi-
tæki“ yrðu sett upp á áburðar-
verksmiðjuna I Gufunesi. Um ál-
verksmiðjuna sagði hann, að
„ótvírætt væri, að íslendingar
gætu krafist þess“, að hún setti
upp hreinsitæki. „En fyrirmælin
eru ókomin enn,“ bætti hann við.
Nokkrum mánuðum síðar tók
hann við ráðherraembætti og Iét
full þrjú ár líða án þess að gefa
þau fyrirmæli, sem viðreisnar-
stjórnin átti að gefa með því að
draga eitt pennastrik.
Ekki bólar
á pennastrikinu
Á ýmsu hefur þó gengið varð-
andi stjórnmálalega hlið þessa
máls. Samkvæmt lögum um eitur-
efni og hættuleg efni, sem sett
voru árið 1968 bar heilbrigðisráð-
herra að setja reglugerð um fram-
kvæmd þeirra laga. Þessi reglu-
gerð var sett 15. júní 1972. Þar er
kveðið á um, að starfræksla verk-
smiðja og iðjuvera sé háð leyfi
heilbrigðisráðuneytisins, ef hætta
er talin á að þau valdi mengun. I
10. grein þessarar reglugerðar er
kveðið á um að binda megi leyfi
til verksmiðjurekstrar þvf skil-
yrði, að komið verði upp hreins-
unar- eða varnarbúnaði. Á fundi,
sem Magnús Kjartansson hélt
með blaðamönnum af þessu til-
efni sagði hann, að fyrst með setn-
ingu þessarar reglugerðar væri
möguleiki á að fyrirskipa álverk-
smiðjunni í Straumsvík að setja
upp hreinsitæki.
Á þessu stigi málsins hafði þó
engin ákvörðun verið tekin af
hálfu ráðuneytisins, er mælti
fyrir um uppsetningu hreinsi-
tækja á álverksmiðjuna. Á nefnd-
um blaðamannafundi greindi ráð-
herrann hins vegar frá því, að Jón
Þórðarson hefði þá um skeið
unnið að tilraunum um nýja gerð
hreinsitækja fyrir álverksmiðj-
una og hefði iðnaðarráðuneytið
veitt honum nokkra aðstoð við
það starf.
Að tveimur
árum liðnum
Næst gerist það I máli þessu, að
Islenska álfélagið ritar heil-
Lítt
stoða
orðin
góð,
ef____
ekki
er____
meira
hátt. Flestir íslenskir stjórnmála-
menn eru að einhverju leyti
undir þessa sök seldir, þó að þeir
komist ekki með tærnar, þar sem
Magnús Kjartansson og Lúðvík
Jósepsson hafa hælana.
Til þess að varpa ljósi á þessa
fullyrðingu er hentugt að taka
afskipti Magnúsar Kjartanssonar
af hreinsitækjum við álverksmiðj-
una i Straumsvík. Þetta mál er
gott til skýringar fyrir þær sakir,
að hnútum hefur þar verið kastað
af meira afli en í mörgum öðrum
ágreiningsefnum, og allir stjórn-
málaflokkar hafa i verki látið það
liggja meira og minna I salti.
Ámælisverð
vinnubrögð
I samningunum við Svissneska
álfélagið, sem gerðir voru 1966,
var tryggilega frá þvi gengið, að
Isal skyldi útbúa verksmiðjuna á
þann hátt, að samrýmdist islensk-
um lögum og reglum um öryggi í
atvinnurekstri, heilbrigði og
hreinlæti. Samkvænit þessu var
svo búið um hnútana, að verk-
smiðjan yrði háð eftirliti opin-
berra aðila um þessi efni. Með
þessu móti var tryggt, að islensk
stjórnvöld höfðu skýra heimild til
þess að krefjast þess, að sérstök
hreinsitæki yrðu sett upp við
verksmiðjuna.
Viðreisnarstjórnin lét á hinn
bóginn undir höfuð leggjast að
gera þær kröfur til álversins, að
það setti upp hreinsitæki i sam-
ræmi við ákvæðin í samningnum.
Þessi vinnubrögð var í sjálfu sér
rétt að gagnrýna. Magnús
Kjartansson gerði það tæpitungu-
laust. í flaumi gífuryrða hélt
hann því m.a. fram, að samkvæmt
álsamningnum svonefnda þyrfti
iðnaðarráðherra ekki að gera
annað og meira en draga eitt
pennastrik til þess að fyrirskipa
álverksmiðjunni að setja upp
hreinsitækin. Magnús Kjartans-
son gegndi síðan störfum iðnaðar-
og heilbrigðisráðherra f full þrjú
ár. Fyrst nfu dögum áður en hann
lét af ráðherradómi gaf hann hins
vegar út ákveðna fyrirskipun um,
að hreinsitækin skyldu sett upp.
Eftir öll stóru orðin var endanleg
ákvörðun í máli þessu fyrst tekin
eftir að vinstri stjórninni hafði
verið veitt lausn og hún setið sem
bráðabirgðastjórn í rúman einn
og hálfan mánuð.
Orðin tóm
Með bréfi Magnúsar Kjartans-
sonar, sem dagsett er 19. ágúst sl.
er álverksmiðjunni fyrirskipað að
setja upp hreinsitæki og veittur
sex mánaða frestur f því skyni. 1
bréfinu kemur fram, að ákvörðun
þessi sé tekin af þeim sökum, að
tilraunir með innlend hreinsitæki
hafi ekki borið þann árangur, sem
vænst hafi verið. Þegar þessi
ákvörðun var Ioks tekin hafði
Álverið í Straumsvík.
Magnús ekki aðeins verið ráð-
herra í rúm þrjú ár, heldur voru
Iiðin fjögur ár frá þvi, að hann
lagði fram tillögu til þingsálykt-
unar, þar sem þess var krafist, að
tafarlaust yrðu sett upp hreinsi-
tæki við álverksmiðjuna.
Magnús Kjartansson
Allt frá því að samningar voru
gerðir við Svissneska álfélagið
árið 1966 um að reisa álver í
Straumsvfk, hafa staðið deilur
um, hvort nauðsynlegt sé að setja
þar upp hreinsitæki til að koma f
veg fyrir mengun frá verksmiðj-
unni. Burtséð frá nauðsyn á
hreinsitækjum, varpa umræður
af þessu tagi skýru Ijósi á ein-
stæða þrætubókarlist íslenskra
stjórnmálamanna. Þær eru ágætt
dæmi um það, hvernig gffur-
yrði stjórnarandstöðuþingmanns
verða marklaus, þegar hann er
allt f einu kominn f ráðherrastól
og ber ábyrgð á framkvæmdinni.
Trúðarnir
Stjórnmálamenn láta gjarnan
stór orð falla þegar þeir höggva
hver f annars garð í hita stjórn-
málabaráttunnar. Stjórnmála-
starfsemin er komin í þann far-
veg, að vænlegast virðist vera til
árangurs fyrir stjórnmálamenn-
ina að leika trúða fyrir framan
landsfólkið. Magnús Kjartansson
er einn þeirra, sem náð hefur
góðum árangri í þessari leiklist.
Þegar bornar eru saman orð-
ræður hans á ritstjórastóli Þjóð-
viljans við athafnir á ráðherra-
stóli, afhjúpast þessi leikaraskap-
ur á einkar skýran og einfaldan
Föstudagur 13. september 1974 —39. árg. 174. tbl.
Hreinsitœkin í Straumsvík:
íÁlverinii skipað
Isetja tækin upp
I dag birtis
Chile og f jal
lenda auðhri
> ágústmánuði ritaði heilbrigöisráöuneytið for-
arsmönnum ISAL bréf, þar sem fyrirskipuö var
.psetning hreinsitækja í verksmiöjunni innan árs.
.Uignús Kjartansson, þáverandi heilbrigðisráöherra,
ritaöi bréfiö, en hann haföi þegar á fyrstu mánuöum
instristjórnarinnar 1971 hafist handa um aö tryggja
aö hreinsun yröi framkvæmd á úrgangsefnum ál-
framleiöslunnar I Straumsvfk.
áframhaldandi starfsemi.
Hafnar voru viftræftur vift 1S-
AL um uppsetningu hreinsi-
tckja Fulltrúar Alusuisse
drógu gildi reglugerftarinnar i
efa f upphafi og álitu sig ekki
bundna af ákvæftum hennar
Gerftu þeir þaft á grundvelli
samningsins frá 1966 milli þá-
verandi rfkisstjórnarog Alu-
miftaft vift þær al
beitt var vift prófi
Aftalvandamálift
aft glima f Strau
opnu kerin. Þaft vai
atrifti af fjölda i
marg tilvitnuftum
vift Alusuisse, s<
undrun manna. F:
siftan er álverksm
Þjóðviljinn fagnar hálfum mánuði eftir að Magnús Kjartansson lét af
ráðherrastörfum.