Morgunblaðið - 15.10.1974, Síða 13
MORGUNBLAÐIÐ, ÞRIÐJUDAGUR 15. OKTÓBER 1974
13
sundurliðun launa í sérkjara-
samning sinn, svohljóðandi:
Við greiðslu launa til starfs-
manns á hann rétt á að fá
launaseðil merktan nafni hans.
A launaseðli skulu tilgreind
föst laun starfsmanns það tíma-
bil, sem greiðslan tekur 01,
fjöldi yfirvinnustunda og
sundurliðun einstakra tekna og
frádráttarliða, sem leiða til út-
greiddrar launaf járhæðar.
Þetta ákvæði gildir frá 1. júlí
1974 samkvæmt lögum nr.
46/1973. Nú þremur mánuðum
síðar hefur fjármálaráðuneytið
ekki ennþá staðið við þetta
ákvæði samningsins. Sam-
kvæmt upplýsingum launa-
deildar er verið að hanna nýja
launaseðla, sem þó munu ekki
komast í gagnið fyrr en í fyrsta
lagi um næstu áramót.
Af ofangreindu má ljóst vera,
að mikil óreiða rlkir í fjármála-
ráðuneytinu varðandi launa-
greiðslur. Þær milljónir króna,
sem starfsmenn ríkisins eiga
inni hjá ríkisféhirði, liggja þar
vaxtalausar og étast upp I verð-
bólgunni, en samkvæmt upp-
lýsingum launadeildar er ekki
lagaheimild fyrir greiðslu
dráttarvaxta af þessu fé.
Á sama tíma heimta ríkis-
stofnanir dráttarvexti, m.a. af
gjöldum sem menn geta ekki
greitt af því að þeir ná ekki út
launum slnum hjá ríkinu.
Kennarafélag Menntaskólans
við Hamrahlfð vill með þessari
grein vekja athygli á, hvernig
Konur hefja undirbún-
ing kvennaársins 1975
„Svokölluð „Kvennaárs-
nefnd“, sem stofnuð er að til-
hlutan Menningar og friðar-
samtaka íslenzkra kvenna hef-
ur ritað stjórn BSRB og Póst-
og símamálastjórninni bréf. I
bréfinu til BSRB, sem Mbl.
hefur borizt afrit af fer nefndin
fram á að efnt verði til ráð-
stefnu, þar sem könnuð verði
kjör kvenna, sem starfa hjá ríki
og bæ og ræddar verði leiðir,
sem leitt gætu til raunverulegs
launajafnréttis kvenna og
karla. I bréfinu segir að sam-
hljóða beiðni hafi verið send
ASÍ.
I bréfinu til Póst- og sfma-
málastjórnarinnar er farið
fram á það að gefin verði út
sérstök frímerki vegna
„kvennaársins 1975“ og er það
tillaga Kvennaársnefndarinnar
að merkin verði tvö og beri
myndir þeirra mæðgnanna Brf-
etar Bjarnhéðinsdóttur. Lauf-
eyjar Valdimarsdóttur. Segir í
bréfinu að þessar óskir hafi
verið lagðar fyrir menntamála-
ráðherra með ósk um að ráðu-
neytið geri þær að sfnum tillög-
um.
Frá kennarafélagi M.H.:
ÓREIÐA í FJÁR-
MÁLARÁÐIINEYTINU
Ljósastilling
nauðsynleg
Ljósin eru þau öryggistæki
bifreiðarinnar, sem mikil-
vægast er að séu f lagi yfir
skammdegistfmann. En það er
ekki nóg að hafa allar ljósaper-
ur virkar. Hitt er ekki sfður
mikilvægt, sem þvf miður
skortir oft á, að Ijósin séu rétt
stillt. Menn átta sig oft ekki á
þvf, að Ijósaperur, sem virðast f
fullkomnu lagi, geta verið svo
daufar, að þær gera ekki sitt
gagn. Fagmaður sér þetta strax
við Ijósaskoðun með þeim full-
komnu tækjum, sem hann
hefur yfir að ráða. Eftir að
Ijósaskoðun lýkur hinn 31.
október eiga þeir, sem þá hafa
enn ekki fært bifreiðar sfnar til
Ijósaskoðunar, á hættu að
lögreglan stöðvi þá og kref ji þá
um ljósaskoðunarvottorð.
Kjaradómur kvað upp dóm í
deilu um aðalkjarasamning
Bandalags háskólamanna
(BHM) ogfjármálaráðherra 15.
febrúar 1974. Fjármálaráð-
herra og Félag menntaskóla-
kennara (FM) gerðu sérkjara-
samning 15. maf 1974. Sam-
kvæmt lögum nr. 46/1973 gilda
sum ákvæði f dómi Kjaradóms
og sérkjarasamningi frá 1.
janúar 1974, en önnur frá 1. júlf
1974.
Þegar þetta er ritað, 11. októ-
ber 1974, hafa fjölmargir
menntaskólakennarar enn ekki
fengið allar launahækkanir,
sem tóku gildi 1. janúar 1974,
og ákvæði f sérkjarasamningi
FM um sundurliðun launa, sem
tók gildi 1. júlí 1974, hefur til
þessa verið hunsað f fjármála-
ráðuneytinu. Ymsar aðrar
launagreiðslur hafa dregist
fram yfir gjalddaga án þess að
nokkur skýring eða tilkynning
um væntanlegan greiðslutfma
bærist kennurum frá fjármála-
ráðuneytinu.
Sundurliðun launa á launa-
seðlum frá fjármálaráðu-
neytinu hefur lengi verið og er
enn svo ófullkomin, að flestir
menntaskólakennarar hafa
hingað til ekki getað fylgst með
hvernig laun þeirra væru
reiknuð út. Af þessari ástæðu
fékk FM sett ákvæði um
ein æðsta stofnun þjóðfélagsins
treður á rétti launþega og sýnir
þeim fullkomið tilli tsleysi.
Félagið væntir þess, að slík
vinnubrögð verði ekki liðin
framvegis í ríkisstofnunum.
Fyrir hönd Kennarafélags
Menntaskólans við Hamrahlfð
Guðrún Friðgeirsdóttir
formaður.
Leiðrétting
Nafn eins fermingarbarnsins
sem fermdist sl. sunnudag hjá
séra Jóhanni Hlfðar, misritaðist í
blaðinu. Var þar skrifað Kári
Guðmundsson Schram, en rétt er
það Kári Guðmundur Schram
Ftostaskjóli 5. Eru viðkomandi
beðnir velvirðingar.
TAK1Ð EFTIR!
Vegna sérstakra samninga viö
verksmiöjurnar fengum viö síö-
ustu sendingu af Bronco bifreið-
um á sérstöku veröi, sem ekki
anir verksmiðjanna, sem orðið
hafa á þessu ári.
Auk þess bjóöum viö hagstæö
greiðslukjör!
innifelur þær þrjár verðhækk-
Gangið frá Bronco kaupunum strax.