Morgunblaðið - 15.10.1974, Page 14
14 MORGUNBLAÐIÐ, ÞRIÐJUDAGUR 15. OKTÓBER 1974
Stálver H.F.
Eftirtaldir starfsmenn óskast: Járnsmiðir, raf-
suðumenn, aðstoðarmenn, og mann í sand-
blástur og málmhúðunarstöð að Funahöfða 1 7.
Símar 30540 og 33270.
Erlendur aðili
óskar eftir að taka tvær 2ja til 3ja herb. íbúðir
með húsgögnum á leigu strax.
Tilboð sendist Mbl. merkt: Erlendur 7424.
Traktorsgrafa
Ford 4550 árg. '74 til sölu með sanngjörnum
kjörum. Uppl. á skrifstofu Kristins Sigurjóns-
sonar hrl., Garðastræti 6. Viðtalstími milli kl.
4 — 6, sími 11185.
Til sölu
lína 46 bjóða úthald. Simrad astic og dýptar-
mælir. Rafalar 1 1 0V 51/2 kw og 1 1 kw. Dexil á
Lister — Blackstone.
Upplýsingar í síma 41452.
Susi
Riva
Það eru til ódýrari skór, en ódýrir skór geta líka
eyðilagt annars ágæta fætur.
S I O U X
verndar fæturna fyrir hverskonar aðkasti.
SKÓSALAN, Laugaveg 1.
Afklœðist þreytunni og streitunni
HEILSURÆKTIN
Ljósm.Öl. K. M.
Við opnun gjörgæzludeildar — Ólafur
Ólafsson landlæknir, Guðjón Sigurbjörns-
son, yfirlæknir.Matthfas Bjarnason heil-
brigðisráðherra og Páll Sigurðsson ráðu-
neytisstjóri f heilbrigðisráðuneytinu.
Gjörgæzludeild
opnuð 1 Landspítalanum
S.L. FÖSTUDAG var tekin'
í notkun gjörgæzludeild í
Landspítalanum. Deildin
er búin fullkomnum tækj-
um, sem sýna stöðugt
hvernig líðan sjúklinga er
háttað, auk þess sem þar
eru hjálpartæki til öndun-
ar.
í gjörgæzludeildinni er
rúm fyrir 12 sjúklinga, en
auk þess er þar einangrað1
herbergi fyrir nýrnasjúkl-
ing, sem þarfnast bráðrar
meðferðar.
Deildin er til húsa á annarri
hæð gömlu spítalabyggingarinn-
ar, og hafa verið gerðar miklar
endurbætur á húsnæðinu. Þar var
áður handlæknisdeild, en þegar
leki gerði það að verkum fyrir
nokkrum árum, að húsnæðið varð
ónothæft, var ákveðið að gera við
Árg Tegund Verð.
74 Comet 895
74 Capri 1600 780
74 Bronco 890
74 Fiat 127 430
73 Bronco V—8 885
73 Datsun 100 A 495
73 Fiat 128 410
71 Opel Station 720
72 Comet G.T. 680
72 Comet 675
72 Ford Pinto 750
72 Cortina XL 500
72 Fiat 125 P 340
71 Wagoneer 695
71 Escort Sendib. 220
71 Moskw. sendib. 85
71 Plymouth Duster 630
71 Cortina 1 300 330
71 Volkswagen 1300 235
71 Volksw. 1200 180
71 Volvo 144 650
70 Vauxhall Ventura 385
70 Volksw. Variant 370
68 Taunus 15M 220
69 Ford 1 7M Station 295
71 Volksw. 1302 L.S. 270
73 Morris Mascot 370
FORD
FORD HUSINU
SVEINN
EGILSSON HF
SKEIFUNN117 SÍMI 85100
það með það fyrir augum, að
starfrækja þar í framtíðinni full-
komna gjörgæzludeild.
Árið 1972 hófust svo fram-
kvæmdir, en undirbúningur hafði
þá staðið í tvöár. Sænskur læknir,
Göran Haglund, var fenginn til
ráðuneytis um skipulagningu, en
hann annaðist jafnframt þjálfun
hjúkrunarkvenna við gjörgæzlu.
Heildarkostnaður við fram-
kvæmdirnar nemur um 15
milljónum króna, en auk þess
hafa tæki og áhöld verið keypt
fyrir 7 milljónir.
Viðstaddir opnun deildarinnar
á föstudaginn voru heilbrigðisráð-
herra, landlæknir og fleiri forvfg-
ismenn heilbrigðismála. Læknar
deildarinnar eru þeir Guðjón Sig-
urbjörnsson, sem er settur yfir-
læknir gjörgæzlu- og svæfinga-
deildar, og Valdemar Hansen. Yf-
irhjúkrunarkona er Laufey Aðal-
steinsdóttir, en auk þeirra starfa
10 manns í deildinni. Mun hafa
gengið vel að fá hjúkrunarkonur
til starfa þar, en hörgull er á
sjúkraliðum.
1 ræðu Georgs Lúðvíkssonar,
framkvæmdastjóra ríkisspítal-
anna, við opnunina kom m.a.
fram, að áætlað er, að starfslið
deildarinnar sé mun fjölmennara,
eða 6 læknar, 12 hjúkrunarkonur
og 6 starfsmenn aðrir.
Matthias Bjarnason heilbrigðis-
ráðherra, flutti starfsfólki árnað-
aróskir og þakkaði þeim, sem
unnið hafa að undirbúningi allan
atbeina. Hann sagði ennfremur,
að þótt aðbúnaði á Landspítalan-
um væri enn í mörgu ábótavant,
væri ástandið þó sfðra mjög víða
úti á landi.
í ræðu hans kom einnig fram,
að vandinn væri sá að halda
áfram uppbyggingu þrátt fyrir
þann efnahagsvanda, sem við
væri að etja, og þar væru verkefni
á sviði heilbrigðismála einna
brýnust.
2 hestar til sölu
af góðu kyni 3ja og 4ra vetra.
Ennfremur 3ja vetra hryssa og
sumargamalt folald. Tilboð sendist
afgr. Mbl. fyrir 20. okt. merkt:
„hestar af mjög góðu kyni —
8532".
GLÆSIBÆ SIMI 85655
Landsmálafélagið
Vörður
heldur ALMENNAN FUND í Atthagasaln-
um á Hótel Sögu miðvikudaginn 16/10
kl. 8:30. Ræðumaður Gunnar Thoroddsen
Kosið í kjörnefnd.
Vörður, samband sjálfstæðisfélaganna í Reykjavík.