Morgunblaðið - 15.10.1974, Síða 17
Þriðjudagur 15. oktöber 8 síður
Körfuknattleikslandsleikirnir:
A-Þýzkaland -ísland 1-1
Ævintýrið íMagdeburg
Sjá bls. 20. - 21.
sfðan tap
ÍSLAND vann öruggan sigur í
fyrri landsleiknum við Ira í
körfuknattleiknum, en sá leikur
var leikinn á laugardag. ísland
sigraði með 74 stigum gegn 64
stigum íra, og var það minni sigur
en leit út fyrir lengst af. ísland
hafði nefnilega 20 stiga forskot
nokkrum mínútum fyrir leikslok,
en afar slakur iokakafli liðsins
færði írum möguleika á að lag-
færa stöðuna þótt sigur ísl. liðsins
væri aldrei í neinni hættu. ísl.
liðið: Kolbeinn Pálsson'KR, Kol-
beinn Kristinsson, IR, Jón
Sigurðsson, Ármanni, llilmar
Viktorsson, KR, Bjarni Gunnar,
IS, Simon Ölafsson, Ármanni,
Agnar Friðriksson IR, Birgir
Jakobsson, ÍR, Þröstur
Guðmundsson, KR og Torfi
Magnússon, Vai.
FYRRIHÁLFLEIKUR
Jón Sigurðsson skoraði fyrstu
körfu leiksins, en Fitzmond jafn-
aði strax fyrir Ira. Island komst í
5:2 með stigum frá Agnari og Kol-
beini Pálssyni, en Fitzmond og
Gowan komu írum yfir með tveim
körfum 6:5. Birgir Jakobsson
skorar með langskoti 7:6 fyrir
tsland, en Gowan kemur Irum
strax yfir á ný með einni körfu
8:7. — Þegar hér var komið sögu
voru 7 mín. liðnar af leiknum, og
þá var eins og ísl. liðið færi fyrst
almennilega í gang. Hver boltinn
af öðrum var hirtur af Irum í
sókn þeirra, og hraðaupphlaupin,
sem eru sterkasta vopn Isl. liðs-
ins, gengu nokkrum sinnum
skemmtilega upp. Island skoraði
10 stig í röð, þar af Jón Sigurðs-
son 6 stig en hann átti þarna afar
skemmtilegan leikkafla. Irar
skora þrjú stig, en síðan kom ann-
ar kafli ísl. liðsins, sem gaf önnur
10 stig I röð, og var því staðan
orðin allgóð eða 27:11, og greini-
legt hvor aðilinn var sterkari.
Talsvert jafnvægi var i leiknum
það sem eftir var hálfleiksins,
sem endaði með 12 stigum Islandi
fhag, 37:25.
SEINNI HALFLEIKUR
Irarnir byrjuðu betur og
minnkuðu muninn i 7 stig 32:39,
en Agnar Friðriksson fann nú
loksins fjölina sfna og skoraði
næstu 6 stig í röð og lagaði stöð-
una talsvert. Upp úr þessu fór að
verða ljóst hvert stefndi, leikur-
inn gat ekki farið á annan veg en
að ísland sigraði, og tveimur mín.
fyrir leikslok leit út fyrir einn
stærsta sigur Islands í landsleik,
því þá var 20 stiga munur, 72:52.
En afar slakur lokakafli leiksins
hjá ísl. liðinu gerði það að verk-
um, að Irar náðu að bjarga andlit-
inu þvf þeir minnkuðu muninn í
10 stig og 74:64 urðu lokatölur
leiksins.
LIÐIN
Því verður ekki neitað, að þrátt
fyrir þennan sigur getur ísl. liðið
mun meira en það sýndi í þessum
leik. Að vísu voru margir góðir
kaflar hjá liðinu, en þeir kaflar,
sem komu yfir liðið af og til og þá
sérstaklega lokamínúturnar, eiga
alls ekki að sjást hjá landsliði. Þá
ætluðu einstaklingar í liðinu sér
um of oft á tíðum, og oftast endaði
það með þvf, að Irar náðu bolt-
anum af viðkomandi leikmanni
og skiluðu honum sfðan i körfu
Islands. — Bestu menn Islands f
þessum leik voru þeir Birgir
Jakobsson og Jón Sigurðsson.
Birgir spilaði sérstaklega sterkan
varnarleik, og tók atvinnumann-
inn Fitzmond þannig úr umferð,
að hann sást varla í leiknum. Það
er engum blöðum um það að
fletta, að Birgir er sterkasti
varnarmaður í fsl. körfuknattleik
f dag. Jón Sigurðsson átti sérstak-
lega góða kafla í þessum leik, og
hann getur gert hluti, sem eru
ekki á allra færi. En Jón má dálit-
ið gæta sín, hann virðist dálítið
villtur leikmaður, og á það til að
reyna að gera hluti, sem hann
ræður ekki alveg við. En í heild-
ina var þetta mjög góður leikur
hjá honum. Símon Ólafsson var
betri miðherji liðsins í leiknum,
og gerði margt laglega, en Bjarni
Gunnar var langt frá sínu besta
og lék sinn lélegasta landsleik til
þessa. Agnar var lengi vel mjög
óheppinn með skot sín, en fór í
gang er á leið.
Irska liðið er mjög jafnt lið. Það
eru ekki miklar stjörnur í liðinu,
helst þeir Connor og Fitzmond, en
sá síðarnefndi var eins og barn í
höndunum á Birgi Jakobssyni
þegar Birgir gætti hans. Liðið
varð fyrir því óláni fljótlega í
leiknum að missa aðalmiðherja
sinn útaf, og þurfti hann að fara á
slysavarðstofuna til að láta sauma
saman skurð á augnabrún. Þá var
greinilegt, að liðið var óheppið
með skot sin, þeir hittu jafnvel
ekki úr auðveldustu tækifærum,
en þetta lagaðist hjá þeim er á
leið.
STIGAHÆSTIR: Island: Jón
Sigurðsson 22, Agnar Friðriksson
14, Birgir Jakobsson 10.
Irland: Fitzmond 14, Connory 11,
Cronolly og Furlong 8 hvor.
Kolbeinn Pálsson lék þarna sinn
35. landsleik, og er þar með kom-
inn með flesta landsleiki Islend-
inga í körfuknattleik.
IRLAND sigraði tsland I sfðari
körfuknattleikslandsleiknum um
helgina. Eftir stóran fyrri sigur
Islands var almennt búist við fsl.
sigri f sfðari Ieiknum, og fáir
hefðu trúað, að trarnir myndu
geta snúið dæminu við. En trarn-
ir sjálfir voru greinilega á allt
annarri skoðun, og strax I upp-
hafi leiksins var Ijóst, að þeir
ætluðu að selja sig dýrt. Annar
eins djöfulgangur f varnarleik er
ekki á boðstólnum á hverjum
degi, og þær voru ófáar fsl. send-
ingarnar, sem þeir fiskuðu og
sneru sfðan vörn I sókn. Þar við
bættist, að fsl. liðið virtist aidrei
finna sig almennilega í fyrri hálf-
leiknum I sóknarleiknum. Og
ekki má gleyma þátt hins frska
'Wj&T.
Barátta undir körfunní I leiknum á laugardaginn.
‘ 'ri ■
- ■
Jón Sigurðsson kominn f færi við körfuna, eftir hraðaupphlaup
- <■&■ v
. Ípgj| '
dómara, Sean Traysy. Hann var
sfflautandi skref á fsl. ieikmenn-
ina, oftast nær algjörlega að
ástæðulausu, en frarnir þurftu
ekki að óttast það svo mjög. Sam-
kvæmt þessu tóku trar þvf Ifka
forustuna f leiknum strax f sfnar
hendur, 10:2 eftir 5 mfn. leik,
sfðan 15:5, 28:13 um miðjan hálf-
leikinn og 12 stig höfðu þeir f
forskot f hálfleik, 33:21. Afar lág
stigatala hjá fsl. liðinu.
Hinsvegar hófu Islendingar
síðari hálfleikinn á sama hátt og
Irar höfðu leikið þann fyrri. Með
grenjandi látum í vörninni,
hraðaupphlaupum, sem voru sum
hver útfærð á mjög skemmtilegan
hátt, tókst isl. liðinu að jafna leik-
inn eftir aðeins 3 mín., 35:35.
Irarnir sigu síðan fram úr á ný
komust 6 stig yfir en aftur jafnaði
fsl. liðið, 52:52. írarnir komust
yfir á ný og staðan var 65:60 fyrir
þá þegar 3. min voru til leiksloka.
Island minnkaði muninníeitt stig
með 4 næstu stigum og allt var á
suðupunkti. Þegar 50 sek. voru
eftir var staðan 71:66 fyrir Ira, en
13 sek. fyrir leikslok voru Is-
lendingar búnir að minnka mun-
inn í eitt stig, 71:70. Irsku leik-
mennirnir reyndu nú það eitt að
tefja leikinn sem mest þeir máttu
og var atgangur harður við körfu
þeirra. Þeim tókst þó að halda
boltanum og létu ísl. liðið bara
brjóta á sér. Þeir fengu siðan
vítaskot um leið og leiktíminn
rann út og skoruðu þá úr öðru
skotinu. Lokatölur þessa leiks
urðu því 70:72 fyrir Ira og þeir
fögnuðu mikið enda þetta þeirra
fyrsti landsleikjasigur yfir þjóð
utan Bretlands en eftir honum
höfðu þeir beðið lengi að eigin
sögn.
Agnar Friðriksson var stiga-
hæstur fsl. leikmannanna með 18
stig, Jón Sigurðsson með 15 stig
og Símon Ólafsson með 12 stig.
DANIR NAÐU JAFNTEFLI
Danmörk náði jafntefli, 0—0,
við Rúmenfu f leik liðanna f
Evrópubikarkeppni landsliða f
knattspyrnu, sem fram fór f
Idrætsparken f Kaupmannahöfn
að viðstöddum 15.700 áhorfend-
um á sunnudaginn. Komu þessi
úrslit töluvert á óvart, þar sem
vitað er, að Rúmenar eiga mjög
sterku og góðu liði á að skipa. Lið
Dananna var hins vegar að mestu
skipað sömu leikmönnunum og
voru f iiðinu, sem lék við tslend-
inga f Álaborg á dögunum.
Danir sóttu mun meira til að
byrja með, en markvörður Rúm-
ena, Raducanu, varði þá af miklu
öryggi. Þegar á leikinn leið náðu
svo Rúmenarnir betri tökum á
leiknum og sóttu nær stanzlaust.
Voru það einkum þeir Lucescu og
Nunweiler, sem komu dönsku
vörninni hvað eftir annað í mik-
inn vanda. Töluverð harka hljóp í
leikinn undir lokin, og þótti
leikurinn þá fremur slakur og
lítið um opin tækifæri.
Staðan f 4. riðli er nú þessi:
Spánn 1 1 0 0 2—1 2
Rúmenfa 10 10 0—0 1
Danmörk 2 0 11 1—2 1
Skotland 0 0 0 0 0—0 0
Þá léku Danir og Rúmenar
einnig landsleik 23 ára og yngri
og fór leikur sá fram í Búkarest.
Leikurinn var liður f Evrópu-
bikarkeppni 23 ára og yngri og
lauk honum með stórsigri Rúmen-
anna, 6—2, eftir að staðan hafði
verið 3—2 i hálfleik. Fyrir Rúm-
eníu skoruðu: Ion Multescu á 26.,
37. og 72. mín., Natase, Georgescu
og Crisan, en fyrir Dani skoruðú
Kolding og Aabling. Áhorfendur
voru um 8000.