Morgunblaðið - 15.10.1974, Blaðsíða 18
18
MORGUNBLAÐIÐ, ÞRIÐJUDAGUR 15. OKTÓBER 1974
Liverpool náði Ipswich
ENSKU bikarmeistararnir, Liver-
pool, hafa nú unnið upp það
þriggja stiga forskot, sem Ips-
wich Town náði um tfma f 1.
deildar keppninni, og eru nú lið
þessi jöfn að stigum f 1. sætinu,
með 17 stig. Everton náði svo
þriðja sætinu f deildinni er liðið
gerði jafntefli við Sheffield
United á laugardaginn. Eru það
einmitt þessi þrjú lið: Liverpool,
Ipswich Town og Everton, sem að
margra áliti munu berjast um
enska meistaratitilinn f ár.
Umferðin á laugardaginn bauð
ekki upp á mörg verulega óvænt
úrslit. Helzt var það sigur
Birmingham City yfir Luton
Town á útivelli, en svo virðist sem
Luton muni eiga erfitt uppdráttar
í 1. deildar keppninni í vetur, en
liðið kom upp úr 2. deild í fyrra
ásamt með Middlesbrough og
Carlisle United. Enn eru svo hin
frægu lið Arsenal og Tottenham
Hotspur á botninum í 1. deildinni,
en Arsenal náði einu stigi í leik
Ian Callaghan — skoraði stðr-
glæsilegt mark f leik Liverpool og
Middlesbrough.
sfnum á laugardaginn, meðan
Tottenham tapaði enn einu sinni.
IPSWICH — LEEDS 0-0
Ipswich sótti til muna meira í
þessum leik og skall oft hurð
nærri hælum við mark Leeds.
Aldrei þó eins og þegar 4 mfnútur
voru til leiksloka, en þá átti Kevin
Beattie hörkuskot innan á stöng
Leeds-marksins, en heppnin var
ekki með, og knötturinn hrökk
aftur út á völlinn. Leeds þótti
leika mjög góðan varnarleik að
þessu sinni og lék greinilega upp
á það að ná öðru stiginu. Ahorf-
endur að leiknum voru 29.815.
NEWCASTLE — STOKE 2-2
38.558 áhorfendur fylgdust með
skemmtilegri viðureign New-
castle og Stoke^en bæði liðin hafa
byrjað þetta keppnistímabil með
ágætum. Heimaliðið náði forystu
þegar á 5. mínútu er Glan Keeley
skoraði, en Stoke-liðið barðist
ákaft til þess að jafna og það tókst
á 2. mfnútu er Colin Salmons
skallaði knöttinn glæsilega í mark
Newcastle. Eftir mark þetta jafn-
aðist leikurinn aftur, en á 32. mín-
útu náði Newcastle mjög vel
skipulagðri sókn, sem lauk með
því, að knötturinn var sendur fyr-
ir markið, og þar stökk John
Tudor upp og skallaði í markið.
Stóð þannig 2-1 fyrir heimaliðið í
hálfleik en á 66. mínútu jafnaði
John Mahoney fyrir Stoke með
glæsilegu skoti af um 25 metra
færi. Fór knötturinn I stöng og
inn, án þess að markvörður New-
castle ætti minnstu möguleika á
að verja.
SHEFFIELD UNITED — EVER-
TON 2-2
Upphafsmínúturnar í þessum
leik sótti Everton án afláts og
komst þá mark heimaliðsins oft-
sinnis í verulega hættu. En þeir
Sheffield menn sneru síðan dæm-
inu við og léku vörn Everton oft
afar grátt í fyrri hálfleiknum og
skoruðu þá tvö mörk. Fyrra mark-
ið gerði Bill Dearden á 13. mín-
útu, en það var Alan Woodward,
sem átti mestan heiðurinn af
markinu. Seinna markið kom á
27. mínútu og var það Woodward,
sem skoraði það. 1 seinni hálfleik
lék Everton-liðið gullfallega
knattspyrnu, þar sem knötturinn
gekk frá manni til manns, af mikl-
um hraða og því tókst að jafna.
Fyrra markið skoraði Mike Lyons
á 57. mínútu með vinstrifótar
skoti, en Mike Buckley skoraði
jöfnunarmarkið á 75. mínútu.
Áhorfendur voru 23.655.
WOLVES — CARLISLE 2-0
Ulafarnir léku þennan leik af
miklu öryggi og voru allt frá upp-
hafi betra liðið á vellinum. Fyrra
markið skoraði Peter Withe, sem
kom inn á sem varamaður á 25.
mínútu, en á 77. mínútu innsigl-
aði svo bakvörðurinn, Derek
Parkin, sigur Ulfanna með skoti
af um 25 metra færi. Ahorfendur
voru 18.918.
CHELSEA — TOTTENHAM 1-0
Þegar á 7. mínútu þessa leiks
var dæmd vítaspyrna á Totten-
ham, eftir að Mike England hafði
brugðið Tommy Baldwin inni 1
vítateig Tottenham. John Hollins
tók spyrnuna og skoraði örugg-
lega. Eftir þetta féll leikurinn
niður f algjöra meðalmennsku,
eða jafnvel niður fyrir hana og
virtust sérstaklega leikmenn Tott-
enhamliðsins áhugalitlir. Áhorf-
endur voru 32.660.
COVENTRV — WEST HAM
UNITED 1-1
Svo virðist sem mesti marka-
móðurinn sé nú runninn af leik-
mönnum West Ham, en á tímabili
á dögunum skoruðu þeir fjölda
marka í hverjum leik sfnum. Mik-
ið þóf var í þessum leik lengst af
og greiddist ekki úr því fyrr en á
71. mínútu er Ian Hutchinson
skoraði fyrir Coventry. Eftir
markið dró Coventry sig aftur og
freistaði þess að halda feng sín-
um, en á 77. mínútu jafnaði
Bobby Gould fyrir West Ham eft-
ir að hafa fengið knöttinn úr
Mike England — einn traustasti
ieikmaður Tottenhamsliðsins um
þessar mundir, en varð fyrir þvf
óhappi að fá dæmda á sig vfta-
spyrnu á laugardaginn.
þvögu við vítateigslínu. Ahorf-
endur voru 22.519.
BURNLEY — MANCHESTER
CITY 2-1
Heimavöllur Burnley var þétt-
skipaður er leikur þessi hófst, en
leikvangur félagsins er fremur
lítill. Gffurlegur hraði var í þess-
um leik frá upphafi ogtækifæri á
báða bóga. Fyrsta markið kom á
14. mínútu, en þá tókst Paul
Fletcher að brjótast gegnum vörn
Manchester City upp á sitt eins-
dæmi og skora við gífurleg fagn-
aðarlæti áhorfenda. A 38. mínútu
átti svo einn af varnarleikmönn-
um Burnley í baráttu við Dennis
Tueart inni í vítateig Burnley og
dæmdi dómarinn vítaspyrnu, sem
þótti víst fremur strangur dómur.
Tueart tók sjálfur spyrnuna og
skoraði. Stóð þannig 1-1 í hálfleik.
I seinni hálfleik sótti Burnley
heldur meira og í einni sókn liðs-
ins var hinum 19 ára miðverði
Manchester City, Jeff Clarke, það
á að spyrna knettinum í eigið
mark, .er hann ætlaði að hreinsa
frá, en hitti knöttinn illa. Reynd-
ist þetta klaufalega mark verða
sigurmark Burnley í leiknum, og
þar með missti Manchester City
þriðja sætið í deildinni. Ahorf-
endur voru 23.406.
ARSENAL — QUEENS PARK
RANGERS 2-2
Það var hinn gamalkunni leik-
maður, Brian Kidd, fyrrverandi
stjarna hjá Manchester United,
sem skoraði enn einu sinni fyrir
Arsenal, og færði liði sínu forystu
í leiknum gegn Queens Park
Rangers á 10. mínútu leiksins á
laugardaginn. Stóð þannig í hálf-
leik 1-0 fyrir Arsenal, en á sjö
mínútna kafla snerist dæmið við
og Q.P.R. gerði tvö mörk. Fyrra
markið kom eftir mikil varnar-
mistök hjá Arsenal, og var það
Stan Bowles, sem smeygði sér
milli leikmanna, sem voru að
senda knöttinn sin á milli og skor-
aði. Bowles gerði einnig annað
mark Q.P.R. og það úr vitaspyrnu,
sem dæmd var á hrindingu Peters
Storey er Bowles var kominn í
færi. Markvörður Q.P.R. bjargaði
svo tvívegis glæsilega skotum frá
Alan Ball, og virtist sigur liðsins
blasa við, er John Radford tók
málin í sínar hendur og skoraði
jöfnunarmark fyrir Arsenal á síð-
ustu stundu. Áhorfendur voru
29.690.
LIVERPOOL — MIDDLES-
BROUGH 2-0
Eigi færri en 52.590 áhorfendur
voru á Anfield Road, leikvangi
Liverpool, er leikur liðsins við
Middlesbrough hófst þar á laugar-
daginn, en slík tala áhorfenda er
óvenjulega há, meira segja á þess-
um velli. Stemmningin á áhorf-
endapöllunum var gffurlega mikil
allan leikinn, enda sótti Liverpool
nær stanzlaust og stöðug hætta
var við mark Middlesbrough, en
lið Jackie Charltons barðist þó af
miklum dugnaði, eins og það er
reyndar frægt fyrir að gera í
hverjum leik, og hvorki gekk né
rak þjá Liverpool fyrr en á 57.
mínútu, er Callagham skoraði
með glæsilegu skoti. Knötturinn
var sendur fyrir mark Middles-
brough og kastaði Callagham sér
niður og spyrnti að markinu
óverjandi skoti. Nokkru seinna
tryggði Liverpool sér sigurinn er
Keegan skoraði úr vítaspyrnu,
sem dæmd var einn af varnar-
mönnum Middlesbrough, sem
varð það á að handfjalla knöttinn
innan vítateigs.
LUTON — BIRMINGHAM 1-3
Þetta var sannarlega leikur
Trevor Francis.sem var gjörsam-
lega óstöðvandi fyrir vörn Luton
Town og skoraði hann sjálfur öll
þrjú mörk Birmingham. Auk
markanna átti Francis þrjú
dauðafæri í leiknum, sem hann
náði ekki að skora úr — öll eftir
að hann hafði einleikið í gegnum
vörn Luton
2. DEILD
Manchester United heldur
áfram sigurgöngu sinni i 2. deild-
inni, — vann á laugardaginn sig-
ur yfir Notts County i mjög jöfn-
um og hörðum leik. Var það
Sammy Mcllroy, sem skoraði
mark United á 17. mínútu. Nor-
wich er svo í öðru sæti eftir góðan
sigur yfir Notthingham Forest á
útivelli, 3-1. Er ekki ólíklegt, að
Norwich liðið endurheimti sæti
sitt í 1. deild 1 vetur. Er fremur
sjaldgæft, að liðum, sem falla úr
1. deiló, vegni eins vel í 2. deildar
keppninni eins og United og Nor-
wich hefur vegnað til þessa, og er
t.d. Southampton, sem margir
töldu bezt þessara þriggja liða,
aftarlega á merinni.
3. OG 4. DEILD
Blackburn hefur nú náð forystu
í 3. deild og er með 18 stig að
loknum 11 leikjum. Peterborough
er í öðru sæti með 17 stig eftir 12
Framhald á bls. 23.
1. DEILD
L Heima Uti Stig
IpswichTown 12 5 10 11—1 3 0 3 7—6 17
Liverpool 12 5 0 1 14—4 3 12 6—4 17
Everton 12 3 3 0 8—5 141 9—9 15
Manchester City 12 5 10 11—2 12 3 5—12 15
Derby County 12 4 2 0 13—6 0 4 2 6—9 14
Stoke City 12 3 3 0 11—5 2 13 7—10 14
Newcastle United 12 4 2 0 11—6 12 2 : 10—10 14
Sheffield United 12 4 2 0 10—5 12 3 8—4 14
Middlesborough 11 2 2 1 7—5 3 12 7—5 13
Wolverhampton
Wanderes 12 2 3 1 10—7 2 2 2 5—6 13
Burnley 12 3 0 3 12—11 3 12 10—10 13
West Ham United 12 3 12 16—9 12 3 7—12 11
Coventry City 12 1 4 1 8—9 2 13 6—10 11
Birmingham City 12 2 13 11—13 2 13 6—7 10
Carlisie United 12 2 13 3—3 213 6—7 10
Chelsea 12 1 2 3 4—9 222 8—10 10
Leeds United 11 3 11 9—3 024 5—11 9 ?
Queens Park Rangers 12 12 2 5—7 13 2 6—8 9
Leicester City 11 1 3 2 5—5 113 8—13 8
Luton Town 12 1 2 3 7—11 0 4 2 5—8 8
Arsenal 11 12 2 8—6 114 3—10 7
Tottenham Hotspur 11 2 0 4 8—9 10 4 5—10 6
2. DEILD
L Heima Uti Stig
Manchester United 12 5 1 0 14:3 4 1 1 7:4 20
Norwich City 12 5 1 0 11:2 1 4 1 5:7 17
Sunderland 113 2 0 10:2 3 2 1 9:4 16
Aston Villa 12 5 1 0 17:2 13 2 4:6 16
West Bromwich Albion 11 3 2 1 9:4 2 2 1 5:2 14
HuII City 13 4 1 0 6:3 0 2 5 7:21 14
York City 12 3 3 1 11:5 12 2 4:6 13
Fulham 12 3 1 2 12:4 13 2 2:4 12
Blackpool 12 3 2 1 9:4 1 2 3 5:7 12
Orient 12 2 3 1 5:4 1 3 2 3:8 12
Bristol City 10 2 3 0 6:1 1 2 2 2:4 11
Notthingham Forest 13 2 2 3 10:9 1 1 4 5;13 11
Notts County 12 2 4 0 7:5 0 3 3 3:10 11
Oxford United 11 3 0 2 6:7 1 3 2 4:8 11
Oldham Athletic 10 4 0 1 7:3 0 2 3 3:7 10
Millwall 13 4 1 1 11:5 0 1 5 2:13 10
Bristol Rovers 11 3 2 1 6:4 0 2 3 2:11 10
Portsmouth 12 1 3 1 6:6 1 2 4 6:13 9
Bolton Wanderes 10 3 1 1 7:2 0 1 4 2:9 8
Southampton 12 1 4 1 7:7 1 0 5 7:13 8
Sheffield Wednesday 12 0 3 3 5:9 1 2 3 4:6 7
Cardiff City 11 0 1 4 2:7 1 1 4 4:13 4
Knattspyrnuúrslit
1. DEILD ENGLANDI:
Arsenal — Queens Park 2:2
Burnley—Manch. City 2:1
Chelsea—Tottenham 1:0
Coventry — WestHamUtd. 1:1
Derby — Leicester 1:0
Ipswich — Leeds Utd. 0:0
Liverpool — Middlesbrough 2:0
Luton—Birmingham 1:3
Newcastle — Stoke 2:2
Sheffield Utd. — Everton 2:2
Wolves — Carlisle 2:0
2. DEILD ENGLANDI:
AstonVilla — Blackpool 1:0
Brístol C. — Sunderland 1:1
Cardiff — W.B.A. 0:2
Hull — Bolton 2:0
Manchester Utd. — Notts C. 1:0
Millwall — Southampton 4:0
Notthingham — Norwich 1:3
Orient — Oldham 3:1
Oxford — Sheffield Wed. 1:0
Portsmouth — Fulham 0:0
York — Bristol Rovers 3:0
ENGLAND 3. DEILD:
Bournemouth — Crystal
Palace 4:0
Bury — Charlton 2:1
Chesterfield — Blackburn 1:2
Giilinham — Hereford 2:3
Halifax—Swindon 0:0
Huddersfield — Brighton 1:0
Peterborough — Watford 1:0
PortVale — Plymouth 2:0
Preston — Colchester 0:2
Wrexham — Grimsby 2:3
SKOTLAND 1. DEILD:
Aberdeen — Ayr United 3:0
Airdrienonians — Clyde 0:3
Celtic — Arbroath 1:0
Dundee Utd. — Hearts 5:0
Dunfermline — Rangers 1:6
Hiberian — Motherwell 6:2
Kilmarnock — Dundee 1:1
Morton — St. Johnstone 1:1
Partick — Dumbarton 2:1
SKOTLAND 2. DEILD:
Alloa — Cowdenbeath 0:0
Berwick — Albion Rovers 2:0
Brechin—Meadowbank 0:1
Clydebank — Montrose 1:1
Falkirk — Queen
of the South 1:2
Aorfar—Stenhousemuir 0:3
Hamilton — East Stirling 3:4
St. Mirren—East Fife 0:3
Úrslit getrauna
Lelklr 12. okt. 1974 1
1 X 2
Arsenal - Q.P.R. *
Burnley - Manch. City .. l
Chelsea - Tottenham .. /
Coventry - West Ham . X
Derby - Lelcester /
Ipswich • Leeds X
Liverpool - Middlesbro /
Luton - Birmingham z
Newcastle - Stoke X
Sheft. Utd. - Everton . X
Wolves - Carlisle /'
Nott'm Forest - Norwich 2
Stranraer — Stirling Albion 1:2
V-ÞÝZKALAND
1. DEILD:
Eintracht Braunswick —
Hertha Berlín 2:1
Tennis Borussia — VFL
Bochum 2:0
Werder, Bremen —
Kickers Offenbach 3:6
FC Kaiserslautern —
Rot Weiss Essen 2:0
Schalke 04 — VFB Stuttgart 2:0
Mönchengladbach —
Bayern Munchen 1:2
Eintracht Frankfurt —
Fortuna 4:0
Wuppertaler SV — Köln 1:4
MSV Duisburg —
HamburgerSV 2:0