Morgunblaðið - 15.10.1974, Page 22
22
MORGUNBLAÐIÐ, ÞRIÐJUDAGUR 15. OKTÓBER 1974
Emerson Fittipaldi er hér á nsestum 300
km/klst hraða á McLaren bfl sfnum á beina
kaflanum á Dijon brautinni f Grand Prix
Frakklands I sumar. — Ljésm. Mbl. Br. H.
Brynjólfur
Helgason
skrifarum
KAPP-
AKSTUR
Emerson Fittipaldi heimsmeistari í annað sinn
Eins og þegar hefur komiö fram
í fréttum tókst Brasilíumannin-
um Emerson Fittipaldi að tryggja
sér heimsmeistaratitil ökumanna
í ár og er það f annað sinn sem
hann nær því marki, þó yfirburð-
ir hans í ár hafi ekki verið eins
miklir og þegar hann sigraði fyrir
tveimur árum. Fittipaldi sem er
27 ára gamall byrjaði að aka í
formúlu 1 fyrir Lotus á miðju ári
1970, eftir að hafa sýnt frábæra
aksturshæfni I Formúlu Ford og
Formúlu 3, en hann hafði komið
til Englands aðeins 18 mánuðum
fyrr. Fyrsta keppnin, sem hann
tók þátt í var Grand Prix Bret-
lands þar sem hann var áttundi.
Hann var fjórði f Grand Prix
keppni Þýskalands það ár, en
á Ítalíu ók hann útaf. En
Austurrfkismaðurinn Jochen
Rindt heitinn, fórst f æfingunum
fyrir þá keppni og fékk Fittipaldi
þá forystuhlutverkið hjá Lotus og
í næstu keppni, sem hann tók þátt
í, í Bandaríkjunum, vann hann
sinn fyrsta Grand Prix sigur. Að
vfsu var heppnin þar með honum
en FITTIPALDI var orðinn
þekktur. Árið 1971 var slæmt hjá
Lotus og Fittipaldi gekk ekki sér-
lega vel. Hann lenti í slysi I
Frakklandí er hann var þar á ferð
ásamt konu sinni Mariu Helenu
og var nokkurn tfma að ná sér.
Hann varð fimmti í keppninni um
heimsmeistaratitilinn það ár. En
svo fór að ganga betur. Hann
byrjaði á að sigra Formúlu 1
keppni, sem að vísu var ekki
liður i heimsmeistarakeppninni,
en það var forsmekkurinn af því
sem koma skyldi. Hann vann
fimm keppnir 1972 og varð heims-
meistari aðeins 25 ára gamall,
yngri en nokkur annar. Skotinn
Jackie Stewart varð þá annar.
1 fyrra, síðasta árið, sem Stew-
art ók, sýndi hann og sannaði
hversu gífulega leikinn ökumað-
ur hann er og sigraði f heims-
meistarakeppninni í þriðja sinn.
Eftir að Stewart hætti var búist
við að baráttan um titilinn yrði
aðallega milli Svíans Ronnie
Peterson, sem byrjaði að aka
fyrir Lotus í fyrra og Fittipaldis.
En Fittipaldi þótti sem meira
væri gert fyrir Peterson en sig
hjá Lotus og ákvað að skipta um
bfl. Það var McLaren sem fyrir
valinu varð. Margir spáðu að
þetta væri vitleysa hjá honum, en
hann hefur nú>sannað hið gagn-
stæða. Hann hefur raunar ekki
verið hraðskreiðasti ökumaður-
inn í ár á Texaco Marlboro
McLaren-Ford bfl sínum, en mjög
öruggur akstur og þrír sigrar haf a
nú sem sagt tryggt honum titilinn
sem besti kappakstursmaður
heims. Hraðskreiðustu ökumenn-
irnir voru hins vegar lengst af
þeir Ronnie Peterson á Lotus og
Austurrfkismaðurinn Niki Lauda
á hinum geysikraftmikla 12
strokka Ferrari. Peterson vann
þrjár keppnir, en Lauda tvær,
hann átti níu sinnum (í 15 keppn-
um) besta æfingatímann. Sviss-
lendingurinn Clay Regazzoni sem
einnig ekur Ferrari, var jafn
Fittipaldi að stigum fyrir sfðustu
keppnina nú, en bfll hans bilaði
eftir 55 hringi og Fittipaldi náði
4. sæti, sem dugði honum til
sigurs. Regazzoni sigraði aðeins
eina keppni í ár, en var oft mjög
framarlega. Suður-Afríkumaður
að nafni Jody Schekter tók sæti
Jackie Stewart hjá Tyrrell — og
átti möguleika á sigri f heims-
meistarakeppninni allt fram f síð-
ustu keppni en hann hefur ekið
mjög vel og sigrað tvær Grand
Prix keppnir.
Argentínumaðurinn Carlos
Reutemann hefur einnig sýnt og
sannað að hann er með hrað-
skreiðustu mönnum í Formúlu 1.
Hann var með besta æfingatím-
ann f Grand Prix Ameríku og hélt
forystunni alla keppnina og
sigraði þar með í þriðja sinn í ár.
Brasilíumaðurinn Carlos Pace,
sem hefur ekið heldur lélegum
bflum hingað til sýndi einnig
ágæti sitt og var annar á
Brabham-Ford bíl eins og Carlos
Reutemann. Pace, sem átti
þrftugsafmæli sunnudaginn 6.
okt. er keppnin fór fram ók hrað-
asta hringinn á Watkins Glen
brautinni, en Reutemann sigraði
á meðalhraðanum 191,705
km/klst. En það hvfldi skuggi yfir
sigurvegurunum því annað árið í
röð f Grand Prix Ameríku hafði
f arist ökumaður.
í fyrra fórst besti ökumaður
Frakka Francois Cevert, sem ók
ÞRÓTTMIKIÐ STARF UMFÍ
MORGUNBLAÐINU hefur ný-
lega borizt fréttatilkynning frá
Ungmennafélagi íslands, og kem-
ur fram f henni að starf á vegum
félagsins hefur verið mjög mikið
f sumar, og að nú er framundan
stórverkefni, þar sem er næsta
Landsmót Ungmennafélaganna
sem haldið verður á Akranesi
næsta sumar.
Fréttatilkynning UMFÍ fer hér
á eftir:
Annasömu sumri er nú lokið
hjá Ungmennafélagi Islands og
aðildarsamböndum þess. Undir-
búningur og framkvæmd hátfða-
halda héraðanna í tilefni af 11
hundruð ára afmæli Islands-
byggðar var á mörgum stöðum að
miklu leyti í höndum ungmenna-
félaganna, auk hinnar hefð-
bundnu sumarstarfsemi, svo sem
iþróttamóti, landgræðslu,
reksturs ungmennabúða og
íþróttaiðkana.
Sá þáttur starfseminnar sem
tengdur er samskiptum við aðrar
þjóðir hefur vaxið mjög á síðari
árum og á það bæði við um þátt-
töku okkar á námskeiðum, ung-
mennabúðum og íþróttaleg sam-
skipti. Þannig fóru nú í sumar á
vegum UMFÍ alls fimm hópar til
Norðurlandanna, og voru aflt frá
20 til 140 manns í hópunum. Auk
ferðalaga okkar félaga hefur
UMFÍ tekið aukinn þátt í heildar-
samtökum Ungmennafélaganna á
Norðurlöndum og hélt m.a. vef
heppnað fræðsluráðstefnu fyrir
unga bændur á s.l. vetri og voru
þar samankomnir ungir bændur
úr forustuliði ungmennafélag-
anna á Norðurlöndum.
Eins og önnur félagssamtök er
UMFÍ og aðildarfélög þess illa á
vegi stödd fjárhagslega vegna
mjög aukins tilkostnaðar við allan
rekstur, einkum kemur það mjög
hart niður á félögunum hvað
kostnaður við íþróttafeg sam-
skipti og ferðalög innanlands
hefur aukizt gífurlega.
UMFÍ hefur nú efnt til lands-
happdrættís til að afla hreyfing-
unni tekna og selja ungmenna-
félögin nú um land allt happ-
drættismiða, sem kosta 200.00 kr.
og hafa þau f sölulaun kr. 100,00
af hverjum miða, og er vonazt til
að þetta verði til að hjálpa félög-
um yfir erfiðasta hjallann á þessu
ári. og var því þá einkar vel tekið,
og vonum við að svo verði einnig
nú.
Fyrir dyrum er nú að skipu-
leggja vetrarstarfssemina víðs-
vegar um landið, og er mikill
hugur í félögunum að koma sem
sterkust til leiks á 15. landsmót
UMFI sem haldið verður á Akra-
nesi dagana 11. — 13. júlí næsta
sumar. Sambandsráðsfundur
UMFl verður haldinn f félags-
heimilinu Festi í Grindavfk
sunnudaginn 10. nóvember n.k.,
en þar mæta allir formenn
aðildarsambanda UMFÍ ásamt
starfsmönnum sambandanna og
bera saman bækur sfnar varðandi
liðið starfsár og leggja á ráðin um
áframhaldandi sókn ungmenna-
félaganna um land allt.
Á komandi vetri mun UMFl
eins og undanfarna vetur leggja
höfuðáherzlu á fræðslustarfssemi
og leiðtogaþjálfun, en þar er
stuðzt við námsefni Æskulýðsráðs
ríkisins og hefur það gefizt mjög
vel. Á s.l. tveimur vetrum hafa
námskeið þessi verið haldin vfðs-
vegar um landið og eru þau opin
öllum, enda sótt af fólki á öllum
aldri. Þessi námskeið fjalla um
félagsstörf almenn, ræðu-
mennsku, fundartækni, hlutverk
stjórnarmanna, fyrirkomulag
funda, skipulagsmál félagasam-
taka o.s.frv. Alls hafa sótt nám-
skeiðin á þessu tímabili á sjötta
hundrað manns.
Tyrrell. Nú var það 25 ára gamall
Austurríkismaður Helmut
Koinigg, sem ók þarna aðeins i
sinni annari Grand Prix keppni, á
Surtees Ford. Hann ók útaf eftir
tíu hringi. Keppnin var um 60
hringir.
Grand Prix keppnistímabilið í
ár hefur einkennst af gífurlega
harðri keppni þar sem enginn
einn ökumaður sýndi sannfær-
andi yfirburði yfir alla aðra. —
Enda fengust úrslitin ekki fyrr en
í síðustu keppninni. Mikill fjöldi
ökumanna hefur reynt hæfni
sína, en fljótt dottið úr og nýtt
vandamál hefur skapast með til-
komu nýrra bíltegunda því ekki
er rúm fyrir nema takmarkaðan
fjölda í hverri keppni, venjulega
um 25 bíla og ökumenn.
Ellefu efstu í heimsmeistara-
keppni ökumanna voru þessir:
1. Emerson Fittipaldi, Brasilíu,
Marlboro Texaco McLaren 55 stig
2. Clay Regazzoni, Sviss, Ferrari
52 stig
3. Jody Schekter, Suður-Afrfku,
Elf Tyrrell-Ford 45 stig
4. Niki Lauda, Austurrfki,
Ferrari 38 stig
5. Ronnie Peterson, Svfþjóð,
John Player Lotus 35 stig.
6. Carlos Reutemann, Argen-
tfnu, Brabham 32 stig
7. Denny Hulme, Nýja-Sjálandi,
Malboro Texaco McLaren 20 stig
8. James Hunt, Bretlandi,
Hesketh-Ford 15 stig
9. Patrick Depailler, Frakk-
landi, Elf Tyrrell-Ford 14 stig
10. Mike Hailwood, Bretlandi,
Yardley McLaren 12 stig, og
Jacky Ickx, Belgfu, John Player
Lotus 12 stig.
Sendum út fréttir
um met Erlends
— Við höfum jafnan lagt á það
áherzlu að senda út auglýsingar
um afrek íslenzkra frjálsfþrótta-
manna, sagði Örn Eiðsson, for-
maður FRÍ, f tilefni fróttar, sem
birtist f Mbl. f sfðustu viku, um að
afreks Erlends Valdimarssonar f
kringlukasti væri ekki getið á af-
rekaskrám tveggja þekktra
fþróttablaða. — Okkur berast t.d.
alltaf eyðublöð frá Evrópusam-
bandinu, sem við sendum út f lok
keppnistfmabilsins, sagði Öm.
Þá gat Öm þess, að hann hefði
jafnan samband við fréttamenn
helztu erlendu fréttastofnananna
hérlendis, þegar jslendingar næðu
góðum afrekum, og kvaðst hann
vita til þess, að komið hefði verið
á framfæri fréttum af meti Erlends
á þennan hátt. — Og þess má svo
geta, sagði Öm, — að ég skrifaði
bréf til „Leicht Athletik" skömmu
eftir að Erlendur setti metið, og
greindi frá þvf, auk þess sem ég
sendi upplýsingar um Erlend.
Vona ég. að afreks hans verði
getið þar f næsta blaði.
Hilmar
tekur
þjálfara-
málin
Hilmar Björnsson, fyrrverandi
landsliðsþjálfari í handknattleik
og núverandi þjálfari 1. deildar
liös Vals, hefur tekið að sér störf
á vegum Handknattleikssam-
bands tslands. Mun Hilmar eink-
um fjalla um þjálfunarmál sam-
bandsins og freista þess að koma
handknattleik i gang á ýmsum
stöðum úti á landi. Þá hefur Hilm-
ar einnig tekið að sér að semja
námsefni fyrir sambandið, sem
hugsað verður sem framhalds-
námsefni að loknum Grunnskóla
ISI.
Ililmar Björnsson hefur aflað sér
góðrar menntunar og reynslu sem
handknattleiksþjálfari og er þvf
mikill fengur fyrir HSl að fá
hann til starfa.