Morgunblaðið - 15.10.1974, Síða 26
26
MORGUNBLAÐIÐ, ÞRIÐJUDAGUR 15. OKTÓBER 1974
Hestamannafélagið
Hörður
Fræg hestakona frú Helen Porter frá Kaliforníu
heldur fyrirlestur og sýnir kvikmyndir um
tamningu og þjálfun amerískra tölthesta í
félagsheimilinu Flókvangi miðvikudagskvöldið
1 6. október kl. 9.
Fyrirlesturinn verður túlkaður og fyrirspurnum
svarað Hestamannafélagið
Hörður.
Auglýsing
um lögtaksúrskurð
í Rangárvallasýslu
( fógetarétti Rangárvallasýslu hefur verið úrskurðað, að lögtök fyrir
ógreiddum þinggjöldum og öllum öðrum opinberum gjöldum, sem
greiðast eiga til rikissjóðs og Tryggingastofnunar ríkisins, svo sem
söluskatt, bifreiðagjöldum, skipulagsgjöldum, öryggiseftirlitsgjöldum,
álögðum og gjaldföllnum á árinu 1 974, mega fara fram að 8 dögum
liðnum frá birtingu þessa úrskurðar að telja.
Sýslumaður Rangárvallasýslu, 9. október 1 974
Björn Fr. Björnsson.
YFIRFÆRSLUHEIM-
ILD NÁMSMANNA
EFTIRFARANDI ályktún var samþykkt
einróma á fjölmennum fundi Ósló-
deildar SÍNE, Mánudaginn 7. okt.
1974:
íslenzku gjaldeyrisbankarnir hafa á
undanförnum árum viðhaft þau furðu-
legu vinnubrögð við úthlutun gjald-
eyris til íslenzkra námsmanna erlendis
að miða yfirfærsluheimildir þeirra við
ákveðna upphæð I Islezkum krónum
án nokkurs sjálfvirks leiðréttingakerfis
viðgengisbreytingar.Nú hefur íslenzka
krónan yfirleitt vprið á niðurleið eins og
mönnum er kunnugt. Þetta hefur þvl
haft I för með sér að framfærslullfeyrir
námsmanna hefur stöðugt verið að
minnka, samtlmis sem gífurleg verð-
bólga hefur átt sér stað I flestum
löndum heims. Vissar leiðréttingar
hafa átt sér stað við gengisbreytingar,
en hins vegar hefur ástandið versnað
töluvert eftir að tekið var upp fljótandi
gengi íslenzku krónunnar og hún
stöðugt sigið niður á við
Lánasjóður íslenzkra námamanna
hafði fyrir síðustu gengisfellingu
áætlað framfærslukostnað námsmanna
I Noregi 361 þús. ísl. kr. á ári, eða um
1 700 n. kr. á mánuði.
Samkvæmt yfirfærsluheimild gjald-
eyrisbankanna fékk hver náms maður
yfirfært I gjaldeyri er samsvarandi 64
þús. fsl. kr. þriggja mánaðalega eða
256 þúsund kr. á ári. Námsmaður
fékk sem sé rúmlega 1 00 þúsund kr.
minna yfirfært en framfærslukostnað-
urinn er samkvæmt útreikningum
Lánasjóðsins. Yfirfærsluheimild bank-
anna var kominn niSur fyrir 1200
nkr. á mánuði eða minna en hún var
árið 1970. Það segir sig sjálft að á
þessu lifir enginn.
Við gerum okkur það Ijóst að skera
þarf niður gjaldeyriseyðslu þjóðar-
innar. Við teljum hins vegar að niður-
skurðarhnifnum þurfi að beita annars
staðar en á nauman framfærslulífeyri
íslenzkra námamanna erlendis.
Við getum undir engum kringum-
stæðum sætt okkur við annað en að
yfirfærsluheimild okkar sé I samræmi
við raunverulegan framfærslukostnað.
Verður það að teljast eðlileg og sjálf-
sögð krafa.
Af þessum ástæðum gerum við
kröfu til eftirfarandi:
1. Yfirfærsluheimild til námsmanna
erlendis verði miðuð við gjaldeyri við-
komandi lands, þ.e.a.s. upphæðin
verði fastákveðin í mynt þess lands þar
sem nám er stundað, og
2. Yfirfærsluheimildin fylgi ávallt út-
reikningum Lánasjóðs fsl. námsmanna
um framfærslukostnað f viðkomandi
landi á hverjum tíma.
Við skorum á stjórn SÍNE að fylgja
eftir þessum kröfum.
F.h. Oslódeildar SÍNE
Kristján E. Guðmundsson.
Hvöt
félag sjálfstæðiskvenna
Þær, Hvatarkonur sem enn hafa ekki greitt ársgjöld sín eru vinsam-
legast beðnar um að gera það nú þegar. Póstgíróseðlar voru sendir út
fyrir nokkru.
Stjórnin.
Aðalfundur
félags Sjálfstæðismanna í Háaleitishverfi verður
haldinn í Miðbæ v/Háaleitisbraut, þriðjudaginn
1 5. okt. n.k. kl. 20.30.
1. Venjuleg aðalfundarstörf.
2. Geir Hallgrimsson, forsætisráðherra ræðir
stjórnmálaviðhorfið.
Allt sjálfstæðisfólk velkomið.
Stjórnin.
Hvöt
félag sjálfstæðiskvenna
heldur fund í Átthagasal Hótel Sögu þriðjudag-
inn 1 5. október kl. 20,30.
Fundarefni:
Lagðar fram tillögur um lagabreytingar.
Ragnheiður Helgadóttir, alþingismaður talar um
stjórnmálaviðhorfið.
Sjálfstæðiskonur fjölmennið á fyrsta fund vetrar-
ins.
Stjórnin.
Reykjaneskjördæmi
Kjördæmisráð Sjálfstæðisflokks-
ins boðar formenn og varafor-
menn Sjálfstæðisfélaganna og
fulltrúa ráðanna í kjördæminu til
fundar ! Sjálfstæðishúsinu Kefla-
vik kl. 9 i kvöld.
Gestur fundarins er GUnnar
Helgason, formaður verkalýðs-
ráðs Sjálfstæðisflokksins. Al-
þingismennirnir, Matthias Á.
Mathiesen fjármálaráðherra,
Oddur Ólafsson, Ólafur G.
Einarsson og Axel Jónsson
mæta á fundinum.
Draumur
að rætast
Með fjárstuðningi og
mikilli sjálfboðavinnu er
nú langþráður draumur
að rætast. Aðeins er eftir
að steypa upp efstu hæð
nýja Sjálfstæðishússins.
Fjársöfnun stendur nú yfir i
hinum ýmsu hverfum borgar-
innar. Byggingarnefnd Sjálf-
stæðishúsins vonast eftir
áframhaldandi stuðningi frá
sjálfstæðisfólki.
Ath: Gíróreikningur
okkar er 18200
Ehm h
Ein n
ef tir..
SJALFB
vantar til starfa
A
udaö frá kl. 5
eftir JÓN Þ. ÞÓR
Fyrir skömmu var hér í þættin-
um fjallað um upphaf alþjóðlega
skákmótsins i Sochi við Svarta-
haf, en það var helgað minningu
Tchigorins, föður sovézka skák-
skólans. Úrslit mótsins liggja nú
fyrir og urðu þau sem hér segir:
1. Polugajevsky (Sovétr.) 11 v.,
2. — 3. Suetin (Sovétr.) og Espig
(A.-Þýzkal.) 9v., 4. — 6.
Smyslov, Holmoff og
Zvetskovsky (allir frá Sovétr.) 8.5
v„ 7. Svesnikov (Sovétr.) 8 v.,
8. — 9. Forintos (Ungv.l.) og
Jansa (Tékkósl.) 7,5 v.
Allir íslenzkir skákunnendur
munu minnast ungverska stór-
meistarans Forintos, sem tefldi á
Reykjavíkurskákmótinu á næstliðn-
um vetri. Forintos stóð sig að vísu
ekki jafnvel í Sochi, en engu að
slður vann hann marga góða sigra
og hér sjáum við eitt dæmi:
Hvitt: Forintos
Svart: Suetin
Kóngsindversk vörn
1. d4 — Rf6, 2. c4 — c5, 3. d5
— d6, 4. Rc3 — g6, 5. e4 —
Bg7, 6. Be2 — e6, 7. h3
(Hér hefur einnig verið reynt 7.
dxe6 — Bxe6, en eftir 8. Bf4 —
Db6, 9 Dd2 — 0—0, 10. Bxd6
— Hd8 hefur hvitur ekki mikið upp
úr krafsinu).
7. — 0—0, 8. Rf3 — He8, 9.
0—0 — Ra6. 10. Bg5
(Annar möguleiki er hér 10. Bf4
— exd5, 11. exd5, 11 exd5 —
Re4, 1 2. Rxe4 — Hxe4, 1 3. Bg5!
— Dc7, 1 4. Dd2 — Bd7, 1 5 Bd3
og hvítur stendur betur, Forintos
— Quinteros, Júgóslavía 1974).
10. — h6, 11. Be3 — exd5, 12.
exd5 — Bf5, 1 3. Rh4 — Bd7,
(Eða 13. — Rxd5, 14 Rxf5 —
Rxc3, 15. bxc3 — gxf5, 16. Bf3
og hvítur hefur góða stöðu fyrir
peðið)
14. Rf3 — Rc7, 1 5. Dd2 — Kh 7,
16. Bd3 — b5, 17. cxb5 —
Rcxd5,
(Skemmtilegur möguleiki var hér
17. — Hb8, 1 8. a4 — a6).
18. Rxd5 — Rxd5, 19. Bxg5 +
— hxg6, 20. Dxd5 — Bxb2?
(Betra var 20. — Be6, nú nær
hvítur hættulegri sókn).
21. Bxh6! — Df6,
(Eða 21. — Kxh6, 22. Dd2 + ).
22. Bg5 — De6. 23. Dd2! —
Bxa 1, 24. Hxa 1 — Bxb5, 25.
Bh4 — Kg8,
(Eða 25. — Dd7, 26. Bf6 með
hótuninni Rg5).
26. Dh6 — Df7, 27. Hdl
(Þar með er síðasti maðurinn
kominn með í sóknina). (
27. — Dg7. 28. Df4 — He6. 29.
Rg5 — Hf6, 30. Dg3 — Bc4
(Hvítur hótaði 31. Db3 + ).
31. Re4 — He6, 32. Hxd6 —
Hxd6,
(Auðvitað ekki 32. — Hxe4, 33.
Hxg6).
33. Dxd6 — Df7, 34. Rf6+ —
Kg7, 35. Rg4 — He8, 36. Bf6 +
— Kg8,
(Eftir 36. — Kh7 var svartur’
varnarlaus gegn 37. Bc3).
37. Bc3?
(í timahrakinu sést hvitum yfir
hinn einfalda leik Rh6 + , en það
kemur ekki að sök).
37. — De6, 38. Rf6+ — Kf7.
39. Rxe8 — Kxe8, 40. Db8 —
Kf7, 41. Dxa7 — Ke8, 42. a3 —
Dc6, 43. Dg7 og hvítur vann
örfáum leikjum síðar.
100 TONN
AF FISKI
Siglufirði mánudag.
I SlÐUSTU viku var landað hér
rúmlega 100 tonnum af fiski, afla
línubáta og dragnótabáta. Dagur
var aflahæstur línubátanna með
31 tonn, Tjaldur 27, Sæunn 12 og
Hjalti 14 tonn.
Dragnótabátarnir tveir voru
með 11 tonn hvor.
Fréttaritari.