Morgunblaðið - 15.10.1974, Qupperneq 29
MORGUNBLAÐIÐ, ÞRIÐJUDAGUR 15. OKTÓBER 1974
29
Torfi Ölafsson:
HLIÐ HELJAR SKULU EIGI
VERÐA HENNI YFIRSTERKARI
Sunnudaginn 6. október var
birtur í Morgunblaðinu, í dálkum
„Krossgatna" greinarkafli um
kristindóm í Austur-Evrópu, tek-
inn úr skólablaði MR. Þar segir
m.a.:
„Bibliur og önnur kristileg rit
eru algjör bannvara í Austur-
Evrópu og liggja refsingar við ef
þau finnast í fórum manna.“
Nú er það fjarri mér að vilja
bera í bætifláka fyrir fjandskap
þann sem kristinni kirkju hefur
verið og er enn sýndur í komm-
únistalöndunum, allt frá Október-
byltingunni í Rússlandi til þessa
dags, en eruð þið ekki, kærir
bræður, að mála fjandann ennþá
svartari en hann er I raun og veru
með þessari grallaralegu yfirlýs-
ingu? Eigum við ekki heldur að
hafa það sem sannara reynist I
þessu máli sem öðrum? Það er
nefnilega engan veginn réttmætt
að halda því fram um öll Austur-
Evrópuríkin að Biblían sé þar
bannvara því að aðstaða kristinn-
ar kirkju er mjög mismunandi I
þeim.
£g hef ekki komið til Póllands
en það ætti að vera öllu upplýstu
fólki ljóst að kirkjan ergeysisterk
í því landi og ég trúi því ekki fyrr
en ég fæ fyrir því óyggjandi
sannanir að Biblían sé bannvara
þar.
Til Sovétríkjanna hef ég komið
og veit að Bibh'an er ekki fáanleg
þar frekar en önnur kristileg rit,
en sovéskur borgari sagði mér að
Biblían hefði verið gefin út þar
kringum 1950. Hún seldist strax
upp og hefur ekki verið gefin út
síðan og mér var sagt að hún væri
í háu verði ef einhver vildi selja
hana. „Sagnir úr Biblíunni",
pólsk útgáfa, var þýdd á
rússnesku fyrir allmörgum árum
og seldist strax upp. Varð sú út-
gáfa til þess að Kfnverjar út-
húðuðu Sovétmönnum harkalega
fyrir að vera farnir að gefa út
trúarlegar bækur. Hinsvegar er
guðleysingjum heimilt að láta
prenta og gefa út áróðursrit sín
sem fáir munu þó nenna að lesa.
Til Þýska alþýðulýðveldisins
hef ég komið og í Austur-Berlín
kom ég í eina af þeim fáu bóka-
búðum sem hafa kristilegar bæk-
ur á boðstólum. Biblian fékkst
þar í þrem mismunandi útgáfum
og keypti ég eina þeirra, Lúters-
þýðingu, gefna út af
„Evangelische Haupt-Bibel-
gesellschaft zu Berlin", 2. útg.
1968. Austur-þýska sálmabók,
kaþólska, á ég líka, útgefna af
„St. Benno-Verlag“ f Leipzig
1971. Ég átti tal við afgreiðslu-
manninn sem seldi mér Biblfuna
og sagði hann mér að kristilegar
bækur væru gefnar út bæði í
Berlfn og Leipzig en hinsvegar
væru handritin að þeim ritskoðuð
vandlega áður en þau færu í
prentun og ef þar væri eitthvað
að finna sem yfirvöldin teldu ekki
samrýmast sósfalismanum yrði að
Vetrarstarfsemi
Húsmæðrafélags-
ins að hefjast
HUSMÆÐRAFÉLAG Reykjavík-
ur er nú að hefja vetrarstarfsemi
sína, en félagið hefur nú starfað f
nærfellt 40 ár. Fyrsti fundur
félagsins verður haldinn 21. okt
og verður þá kynnt glóðarsteik-
ing. Saumanámskeið hefst 24. okt.
Hinn árlegi basar félagsins verð-
ur 24. nóv. og hinn vinsæli jóla-
fundur verður í byrjun desember.
Einnig eru fyrirhuguð fleiri nám-
skeið á vegum félagsins. Félagið
hefur nýlega fest kaup á húseign
að Baldursgötu 9 og er það opið
hús á þriðjudögum og veittar all-
ar upplýsingar um starfsemina.
breyta því eða fella það niður.
Bæði kaþólskir og mótmælendur
fá að gefa þar út kristileg tímarit
og heitir það kaþólska „begegn-
ung“. Það flytur fréttir af lífi og
starfi kaþólsku kirkjunnar um
heim allan og ýmsar greinar um
kirkjuleg efni en sósfalisk viðhorf
eru leiðinlega áberandi í mörgum
þeirra. Til dæmis var sagt eitt-
hvað á þá leið í grein í tfmariti
þessu fyrir nokkru að í rauninni
gæti enginn verið sannkristinn og
kaþólskur nema hann væri um
leið sósfalisti!
Um Tékkóslóvakíu veit ég það
að eftir innrás Varsjárbandalags-
rfkjanna og þar af leiðandi
stjórnarskipti voru tökin á kirkj-
unni hert til mikilla muna og síð-
an hefur fjandskapur við hann
farið sfvaxandi í því landi. Þar er
t.d. bannað að framleiða kross-
mörk og helgimyndir.
I Júgóslavíu mun fjandskapur
yfirvaldanna í garð kirkjunnar
hafa farið vaxandi upp á síðkastið
en ekki er mér kunnugt um afdrif
kristilegra bókmennta þar eða í
þeim Austur-Evrópulöndum sem
hér eru ótalin.
En að lokum skal tekin hér með
fréttaklausa úr ágústhefti
„Katolsk informationstjanst"
sem gefið er út í Uppsölum. Þar
segir:
„Damianos, erkibiskup og æðsti
yfirmaður rétttrúnaðarkirkjunn-
ar f Albaníu, er nú látinn, 80 ára
að aldri. Hann lést í fangelsi.
'<aþólska fréttastofan KNA í
/estur-Þýskalandi telur að hann
hafi látist í nóvember á síðast-
liðnu ári, en fréttir frá Albaníu
þurfa langan tíma til að berast út
úr landinu og koma sjaldnast eft-
ir opinberum leiðum, ekki síst
þegar um er að ræða fréttir af
trúmálasviðinu. Daminanos
biskup hafði setið 6 ár í fangelsi
þegar hann dó.
Því var lýst yfir 1967 í Albaníu
að landið væri „fyrsta guðleysis-
ríki heimsins" og þá voru allar
trúarathafnir bannaðar að við-
lagðri dauðarefsingu. Allir bisk-
upar kaþólsku kirkjunnar og rétt-
trúnaðarkirkjunnar, svo og mikill
fjöldi presta, voru fangelsaðir.
Kaþólskur prestur, Stefan Kurti
að nafni, var tekinn af lffi 1972
fyrir að hafa skírt barn í vinnu-
búðum. — Um það bil helmingur
þjóðarinnar telst til Islam
(Múhameðstrúar) en einnig þeim
eru bannaðar allar trúarathafn-
Fyrrgreind ummæli úr skóla-
blaði MR gætu þvf komið heim við
ástandið í Albaníu en það er ekki
sanngjarnt að draga öll Austur-
Evrópuríkin f dilk með slfkum
trúmálaböðlum. Þrátt fyrir það er
engum blöðum um það að fletta
að ríkisstjórnir kommúnistaland-
anna allra vildu helst geta afmáð
kirkjuna með öllu í löndum sín-
um. En saga kirkjunnar sýnir að
það er ekki hægt. Hún hefur
alltaf styrkst við ofsóknir. Og
grjótpálar þeirrar hráslagalegu
lífsskoðunar sem kallast efnis-
hyggja hafa aldrei áttað sig á því
að ef kirkjan byggðist ekki á öðru
en mannasetningum og heila-
spuna þyrftu þeir ekki að hafa
neinar áhyggjur út af henni, hvað
þá heldur að hafa fyrir að ofsækja
hana, þvf þá mundi hún líða undir
lok á sfnum tíma. En sé hún til
orðin fyrir vilja Guðs, eins og við
kristnir menn trúum, er þýðingar-
laust að berjast gegn henni því þá
getur ekkert tortímt henni — hlið
heljar munu þá ekki verða henni
yfirsterkari.
Torfi Ólafsson.
Sjjggl
" iá/’f
5 * ***
Þessi mynd var tekin er reist hafði verið á Siglufirði fyrsta húsið, sem
húsaverksmiðjan Húseiningar hefur framleitt. Er það húsið, sem hinn
nýi bæjarstjðri Siglfirðinga ætlar að búa f við Fossveg. Húsið kostar
2,4 milljðnir kr. Það er teiknað af Hafliða Helgasyni og er um 109
ferm. Hafsteinn Ólafsson gerði vinnuteikningarnar og Ingólfur Arnar-
son raflagnir. Verksmiðja Húseiginga er svo vel vélum búin, að hún
getur smfðan eitt hús á dag miðað við 30—35 manna starfslið.
Framkvæmdastjóri Húseininga er Knútur Jónsson. Húseiningar er
hlutafélag með um 100 eigendum, sem allir eru búsettir á Siglufirði.
(Ljðsm. Steingrfmur)
Þessi mynd er tekin vestan við Reykjakot í ölfusi og gefur hún svolitla
mynd af þvf hvernig ökuglaðir menn rðta jarðveginum upp. Er Ieitt til
þess að vita að jafn fallegur staður og dalurinn þarna við Hveragerði
skuli leikinn svo grátt. — Ljósm.: Georg.
blákaldur
sannleikur um
ELCOLD f rystikistur
Það er ótrúlegt en satt. Við höfum ekki getað
útvegað Elcold frystikistur fyrr en nú, — þrátt fyrir
ítrekaðar tilraunir. Eftirspurnin hefur verið svo
gífurleg erlendis, enda eru gæði Elcold
og verð mjög hagstæð.
Til að byrja með bjóðum við þrjár stærðir:
220, 275 og 400 I. með Ijósi, lás og hraðfrystihólfi.
ÁLKLÆDDAR AÐ INNAN
DANFOSS FRYSTIKERFI
Komið og skoðið Elcold frystikisturnar.
Sannleikurinn er sá, að þær standast allan
samanburð.
W fícaicL
Gunnar Ásgeirsson hf.
Suðurlandsbraut 16 Reykjavík
simi 35 2 00
Glerárgötu 20 Akureyri