Morgunblaðið - 15.10.1974, Qupperneq 39
MORGUNBLAÐIÐ, ÞRIÐJUDAGUR 15. OKTÓBER 1974
39
Bílþjófurinn vildi
aðeins Austin Gipsy
Storkuefnamælir keyptur
til Blóðbankans í Rvík
UM HELGINA var Austin Gipsy
jcppa stolið f Hátúni f Reykjavfk.
Fannst bfllinn nokkru sfðar á
Njáisgötu. Þar höfðu þjófarnir
skilið við hann, þegar bensfn
þraut, en þess f stað tekið trausta-
taki annan jeppa, sömu gerðar, og
haidið á brott. Var undrun eig-
andans að vonum mikil, þegar
hann kom út og sá að bfliinn var
horfinn og f hans stað kominn
Vinsældir
Fords
minnka
Ne»v York, 14. október.
Reuter.
VINSÆLDIR Fords forseta hafa
minnkað um 21% síðan hann tók
við embætti og aðeins helmingur
Bandaríkjamanna er ánægður
með störf hans samkvæmt skoð-
anakönnun Gallups.
Vinsældir forseta hafa aldrei
minnkað eins mikið á eins
skömmum tíma samkvæmt fyrri
skoðanakönnunum Gallups.
Könnunin var gerð þremur
vikum eftir að Ford náðaði Nixon.
71% voru ánægðir með Ford
viku eftir að hann tók við
embætti, en 3% óánægðir. 50%
eru ánægðir með hann nú, 28%
óánægðir en 22% óákveðnir.
r
RKI vinningur
Skrifstofa Rauða krossins til-
kynnti f gær vinningsnúmerið f
landshappadrætti RKl. Vinning-
urinn sem er Bronco-jeppi með
viðtengdu hjólhýsi kom á miða
númer 38.978.
Lýst eftir vitnum
FIMMTUDAGINN 10. október,
milli klukkan 9 og 12, var ekið á
bifreiðina R 431, þar sem hún stóð
á bifreiðastæði Háskóla Islands á
mótum Vonarstrætis og Tjarnar-
götu. Bifreiðin semerVolvo Ama-
son, græn að lit, beyglaðist á
vinstri afturhurð í ákeyrslunni.
Þeir sem geta veitt upplýsingar í
máli þessu eru beðnir að snúa sér
til rannsóknarlögreglunnar.
Stolið úr hóteli
Á laugardagskvöldið var farið inn
í læst hótelherbergi í einu hótel-
anna í Reykjavík og stolið þaðan á
annað hundrað dönskum og 4—5
þúsund fslenzkum krónum frá er-
lendum ferðamanni. Náðist í
þrjótinn sama kvöld, og var hann
þá búinn að eyða hluta þýfisins á
skemmtistað í borginni. Maðurinn
hafði náð sér í lykil að herberginu
og komizt þannig inn f það. Hér er
um að ræða einn af svonefndum
„góðkunningjum lögreglunnar".
----- ♦ ♦ ♦ ----
— Hættan
Framhald af bls. 40
stöðurnar voru þær, að áhrifin
voru ákaflega staðbundin og sára-
Iftil, nema sprengjan lenti mitt í
stórri torfu. Almennt væri fiskur
þó svo dreifður að sprenging-
arnar ættu ekki að skaða neitt.
Jón sagði að sprengjurnar, sem
Bandarfkjamennirnir byðu nú,
væru minni sprengjur, sem hægt
væri að sprengja á ákveðnu dýpi
og væri ætlunin að varpa þeim í
sjóinn frá fiskibátunum, en fá
einhvern frá Landhelgisgæzlunni
til þess að vera með til aðstoðar.
Sagði Jón að nauðsynlegt væri að
kunnáttumenn væru með við
sprengingarnar, og þá ætti að
vera unnt að sprengja án þess að
spjöll væru unnin á fiskistofn-
unum í kring.
annar bfii sömu gerðar, en með
öðrum lit.
Þegar Mbl. hafði samband við
rannsóknarlögregluna f gær-
kvöldi, var ekki búið að finna
Gipsyjeppann, sem hvarf frá
Njálsgötunni. Hann er árgerð
1963, grágrænn að lit með hvftan
plasttopp. Hann ber einkennis-
stafina R-10411.
Ed Sullivan
látinn
New York, 14. október.
Reuter.
ED Sullivan sjónvarpsmaður og
dálkahöfundur iézt af krabba-
meini f gær, 73 ára að aldri.
Hann stjórnaði eigin þætti,
einum vínsælasta og elzta
skemmtiþætti bandarfska sjón-
varpsins, frá 1948 til 1971.
Suliivan skrifaði þátt um leik-
húsmál f New York Daily News
frá 1932.
Leiðrétting
I FRÉTT Morgunblaðsins fyrir
helgina af fyrirhugaðri útgáfu
forsetapeninga f tilefni þess að 30
ár eru liðin frá lýðveldisstofnun-
inni, misritaðist nafn málmiðju
þeirrar, sem að útgáfu pening-
anna stendur. Hún heitir Is-spor
en ekki ís-bor eins og sagði í
fréttinni. Biðst blaðið velvirð-
ingar á þessum mistökum.
— Peking
Framhald af bls. 1
Blaðið segir að Chiang hafi
umkringt mann sinn með
hópi róttækra flokksmanna og
að hún hafi komið f veg fyrir að
Chou gæti haldið áfram sínum
daglegu einkafundum með
Mao. Chiang, sem sjálf á sæti f
framkvæmdaráði flokksins,
getur gengið framhjá Chou í
fyrirskipunum til flokksdeild-
anna. Chiang, sem er yfir
mennta- og menningarmála-
deild flokksins hefur mikla
möguleika á að auka vinsældir
sínar hjá kfnversku þjóðinni og
þó einkum konum. Segir blaðið
að lokum, að enginn vafi leiki á
um, að Chiang sé að reyna að
ákveða eftirmann mannsins
sfns.
— Kissinger
Framhald af bls. 1
togar ríkjanna í Miðaustur-
löndum komi saman til að taka
grundvallarákvörðun f þróun
friðarviðræðnanna. Ferð Kiss-
ingers nú er sjötta ferð hans til
sáttaumleitana á þessu svæði.
— Fanfani
Framhald af bls. 1
innbyrðis deilumál til hliðar, svo
að hægt verði að vinna að lausn
hinna miklu efnahagsvandamála,
sem knýja á ítölsku þjóðina í dag.
Fregnir herma að Spagnolli hafi
ekkert orðið ágengt f þessum til-
raunum. Flestir stjórnmálamenn
eru sammála um að ný stjórn
sömu aðila og skipuðu sfðustu
stjórn, sé eina hugsanlega lausnin
á stjórnarkreppunni. Takizt ekki
að mynda slfka stjórn, verði að
boða til kosninga, og að kristilegir
demókratar muni fara með stjórn
landsins til bráðabirgða.
— Wilson
Framhald af bls. 1
framleiðslutap, sem þjóðin hefði
ekki efni á að þola.
Ræðu Wilson var vel tekið f
kvöld og sögð hógvær og hægfara,
enda reyndi hann að höfða til
allra stétta þjóðfélagsins.
A ARUNUM 1964 og 1965 bárust
Blóðbankanum minningargjafir
vegna andláts frú Sofffu Schev-
ing-Thorsteinsson, fædd Mathie-
sen, en hún lézt 7. janúar 1964.
Gefendur voru félagar f Lions-
klúbbnum Nirði, bekkjarsystkini
frú Sofffu í Fiensborgarskóla og
Menntaskólanum f Reykjavík og
starfsfólk hjá Dvergi h f. f
Hafnarfirði, Að ósk gefenda var
framlag þeirra notað til tækja-
kaupa.
Sjálfvirkur storkuefnamælir
hefur nú verið keyptur fyrir
minningargjafirnar og kom hann
til landsins fyrir nokkrum mán-
uðum. Blóðbankanum er þetta
tæki mikilsvert og gerir kleift að
— 96 ára
Framhald af bls. 2
„Nei, nei, ég fer á elliheimilið nýja
heima I Eyjum Já, ég er vlst 96 ára,
já, þaðeraldur þetta, aldurá mann-
eskjunni, en maður dröslast þetta
áfram, ekki dugir annað. Ég vona
bara að það verði gott veður, þvi ég
er spennt að sjá, hvernig er útlits
heima. Annars stekk ég nú ekki, en
ég er á fótum, það er furða bara '.
„Hefur þú flogið áður"?
„Nei, aldrei og ég kom til Reykja-
vikur i fyrsta skipti í gosinu. Ég hef
skoðað Reykjavík og llzt ágætlega á
hana, maður má til að lltast vel á
allt, það er satt það þýðir ekkert að
vera að væla, þetta dröslast allt". —
a j
— Háhyrningur
Framhald af bls. 3
leg fljótlega frá S-Ameríku. Þá þarf
einnig að bera sérstakt lyf í augu
hvalsins og blásturholu hans, þegar
hann er tekinn til flutnings."
Grandiere gat þess einnig, að
stofnanir þær sem hann ynni fyrir
hefðu til afnota sérstaka þotu, sem
búin væri sérstaklega til slikra flutn-
inga á fönguðum hvölum og dýrum
og einnig ættu þaer sérstakan bát til
þessara hluta, sem væntanlega yrði
þá sendur hingað næsta ár, ef ekki
tækist að handsama háhyrning nú.
Gat hann þess ennfremur til
gamans, að háhyrningur sá sem
fyrir væri á Marineland, æti 20 kiló
af síld á hverjum degi. „Hins vegar
gæti ég ímyndað mér að á svæðinu
við Suðausturland séu nú um
600—1000 hvalir og geta menn
þá reiknað sjálfir hversu mikil dag-
neyzla þeirra er á þessum slóðum."
— Sektir
Framhald af bls. 2
um tilkynningaskyldu, þar sem
skilyrðislaust yrði beitt sektar-
ákvæðum gegn þeim, sem trassa
að tilkynna sig. Þingið samþykkti
ennfremur mjög ftarlega ályktun
um öryggisbúnað opinna báta og
hinna minni báta og ennfremur
um verðtryggingu lifeyrissjóðs
sjómanna.
Þingið undirstrikaði, aðdrengir
og unglingar, sem ynnu við
þjónustustörf á skipum, yrðu ekki
hlunnfarnir í Iaunum, og haldi
þeir réttindum til þeirra og ann-
arra kjarabóta, þar á meðal
vinnutímalengdar og annarra
fríðinda, sem samningsbundin
eru. Fól þingið öllum aðildar-
félögum sínum að leggja ríka
áherzlu á þetta.
vinna af meiri nákvæmni að rann-
sóknum á storkuefnaþáttum og
vinnslu storkuefna.
Þótt landsmenn leggi mikið af
mörkum til heilbrigðisþjónustu
vantar sffellt fé fyrir stóru og
smáu, sem nauðsynlegt er til að
bæta starfsemina. Ýmsar
stofnanir heilbrigðisþjón-
ustunnar hafa notið gjafmildi ein-
staklinga, félaga og klúbba og
hefur það gert mögulegt að
hefjast handa við ýms viðfangs-
efni í þágu sjúkra miklu fyrr en
ella.
Blóðbankinn er gefendum mjög
þakklátur fyrir rausnarlegt fram-
lag þeirra til minningar um frú
Sofffu Scheving-Thorsteinsson.
— Hagbarður
Framhald af bls. 40
áreksturinn varð og þar til menn-
irnir voru komnir í björgunarbát-
inn, og nokkrum mfnútum síðar
sáu þeir Hagbarð sökkva í djúpið.
Fylkir náði að miða björgunar-
bátinn út og eftir tvær klukku-
stundir fann hann bátinn, en
þokusúld var á. Skipverjar voru
þá nokkuð blautir og kaldir, en
Fylkir kom með þá hingað
snemma í morgun og voru sjópróf
f dag. Ekki er vitað á hvað Hag-
barður rakst, en mögulegt er að
það hafi annaðhvort verið reka-
drumbur eða hvalur.
— Elias.
— Rockefeller
Framhald af bls. 38
hann bæri fulla ábyrgð á útgáfu
bókar um andstæðing sinn í rfkis-
stjórakosningunum í New York
1970, Arthur Godlberg fyrrver-
andi hæstaréttardómara og ráð-
herra í stjórn Kennedys forseta,
og játaði að bókin væri niðrandi.
Hún er eftir dálkahöfundinn
Viktor Lasky og nú hefur komið f
ljós að bróðir Rockefellers,
Lauranca, kostaði útgáfu hennar.
Þetta kveðst Rockefeller ekki
hafa vitað fyrr en nú. Hann segir
að hann hefði lagzt gegn útgáf-
unni ef hann hefði vitað þetta.
Slíkar baráttuaðferðir væru
ósamrýmanlegar þeim reglum
sem hann hefði sett sér i stjórn-
málabaráttunni.
--------♦-♦-♦---
— Nóbelsnefndin
Framhald af bls. 38
Kajima sagði, að dr. Henry Kiss-
inger utanríkisráðherra hefði í
fyrstu verið fús að semja með-
mæli meðSato, en sfðan neitað að
gera það eftir að hann var utan-
ríkisráðherra í september f fyrra.
Meðmæli bárust hins vegar frá
dr. Arnold Tonybee.
— Frjáls
álagning
Framhald af bls. 3
verðlagsákvæðin stæðu I vegi fyrir þró-
un íslenzkrar verzlunar og því fagnaði
hann þvt samkomulagi, sem stæði t
stjórnarsáttmála núverandi ríkisstjórn-
ar, um að núverandi fyrirkomulag skuli
endurskoðað Slfkt væri llka nauðsyn-
legt, þar sem það væri 30 ára gamalt
og fyrir löngu gengið sér til húðar. Ef
heildverzlun ætti að geta orðið góð á
Islandi, þá þyrftu verzlanirnar að geta
legið með lager, en því miður væri það
svo á íslandi, að margar verzlanir gætu
ekki legið með neinn lager og verzl-
anirnar væru hættar að verzla með
vöru eins og t.d. skófatnað, rafmagns-
tæki, byggingavöru og fl., þar sem
álagningin væri svo lítil. í stað þess
flyttu kaupmennirnir vöruna inn sjálfir,
lltið væri yfirleitt pantað í einu og gerði
það vöruna dýrari en ella.
Hann sagði einnig, að Falck hefði
kannað verkaskiptingu verzlunarráðs-
ins og stórkaupmannafélagsins og
bent á ýmsar leiðir til bóta nú þegar.
— Minning
Þórarinn
Framhald af bls. 30
var sérs akt prúðmenni í allri
framkomu. íl?un var orðtraustur
maður, orðurn hans mátti hver
treysta. Hann var þeim tryggur,
er hann tók tryggð við. Þórarinn
Sigurðsson var grandvar maður í
allri framkomu. Hann naut
virðingar þeirra, er kynntust
honum. Ég hef hér að framan
leitazt við að lýsa því sem mestu
máli skiptir, störfum og umhverfi
er Þórarinn Sigurðsson starfaði
að. Þau orð, sem eru úr kvæði
Huldu, sem ég tileinka Þórarni,
eiga við það umhverfi, er honum
var kærast. Minning um góðan
dreng geymist mér í huga.
Sigurður Stefánsson
frá Stakkahlið.
— Minning
Valdemar
Framhald af bls. 31
hamingju mjög sjálfur með um-
hyggju sinni og alúð.
Árið 1947 giftist hann eftir-
lifandi konu sinni, Þóru Hall-
grímsdóttur. einkabarni hinna
velþekktu hjóna að Halldórs-
stöðum í Laxárdal. Við Halldórs-
staði batt Valdemar órofa tryggð
og átti þar marga ánægjustund
meðal vina. Hann hlúði þar jafn-
an að öllu og hélt f horfi eftir því
sem við var komið. Laxárdalurinn
var honum raunar allur kær og
ekki sízt áin fagra, sem veitti hon-
um marga ánægjustund.
Þeim Þóru og Valdemar varð
tveggja sona auðið og eru þeir
báðir velmenntir manndóms-
menn, Hallgrímur, verkstjóri við
Fiskiðjusamlag Húsavikur, giftur
Björgu Sigurðardóttur frá Vest-
mannaeyjum, og Halldór kennari
við Héraðsskólann að Laugum,
giftur Oddnýju Magnúsdóttur
handíðakennara úr Vopnafirði.
Eins og áður getur þá var Valde-
mar gæfusamur i fjölskyldulffi
sínu og ætla ég að ein hans mesta
gleði hafi verið að mega njóta
samvista við barnabörn sfn, þótt
stuttar væru.
Nú er við samferðamennirnir
lítum heim að Garðarsbraut 37,
verður okkur vafalaust efst í
huga gestrisni húsbóndans, sem
horfinn er. Gestrisni var honum í
blóð borin og fuilkomlega eðlis-
læg, ef svo má segja um nokkurn
mann, og allir nutu jafnt þeirrar
dyggðar hans, hvort heldur þá bar
að garði að nóttu eða degi. Ég sá
hann aldrei glaðari en þá hann
veitti gestum. Samkvæmismaður
var hann ágætur og manna glað-
astur á góðri stund, þótt hófsmað-
ur væri.
Enda þótt Valdemar sé horfinn
yfir landamæri lífs og dauða og
eigi þaðan ei afturkvæmt, þá veit
ég, að á Garðarsbraut 37 vakir
áfram andi hans, bæði hvað
gestrisni og annað snertir, enda
er hans svo bezt minnzt.
Valdemar var til moldar borinn
frá Húsavíkurkirkju hinn 7.
september s.l., að viðstöddu miklu
fjölmenni sem von var, því hann
var maður vinsæll og vinmargur.
Við sem þar vorum samankomin,
komum ábyggilega öll heilshugar
til að þakka honum dygga sam-
fylgd og til að votta konu hans,
Þóru Hallgrfmsdóttur, sonum,
tengdadætrum og barnabörnum
okkar dýpstu samúð.
Inn á eilífðarveginn fylgja
Valdemar Halldórssyni þakklæti,
harmur og heitar bænir sam-
ferðarmanna hans.
Vigfús B. Jónsson
Laxamýri.