Morgunblaðið - 24.10.1974, Side 1
36 SIÐUR
208. tbl. 61. árg.
FIMMTUDAGUR 24. OKTÓBER 1974
Prentsmiðja Morgunblaðsins.
MUnchen, 23. okt.
Reuter.
TALSMAÐUR List útgáfufyrir-
tækisins f Miinchen skýrði svo frá
f dag að ungverski rithöfundur-
inn Gyorgy Konrad hefði verið
handtekinn í Budapest. Hafði
talsmaðurinn eftir áreiðanlegum
heimildum þar í borg, að lögregla
hefði tekið hann höndum á heim-
ili hans f gær og gert u.yptæk
mörg af handritum hans. Sömu
heimildir hermdu að tveir aðrir
ungverskir menntamenn, þjóð-
félagsfræðingurinn Ivan Szelenyi
og ljóðskáldið Tamas Scentjoby,
hefðu einnig verið handtéknir
fyrir nokkrum dögum.
Fyrsta skáldsaga Konrads,
„Gesturinn", var harðlega gagn-
rýnd af málgagni ungverskra
sósfalista, Nepszabadsag, þegar
hún kom út árið 1969. Konrad er
nú 41 árs að aldri. List útgáfu-
fyrirtækið hefur gefið út rit hans
f Þýzkalandi.
Ruth tekur við
Washington, 23. okt.
REUTER — AP.
WILLIAM Saxbe, dómsmálaráð-
herra Bandarfkjanna, skipaði f
dag Henry Ruth í embætti sérlegs
saksóknara í Watergate-málinu f
stað Leons Jaworskys, sem sagði
þvf starfi lausu 12. október sl.
Ruth hefur verið aðstoðarsak-
sóknari í Watergatemálinu frá
því á miðju ári 1973, þegar sér-
stök skrifstofa var sett á laggirnar
til að fjalla um rannsókn þess.
Hann er því þar af leiðandi gjör-
kunnugur eftir að hafa starfað
bæði með Archibald Cox og
Jaworsky. Væntanlega verður
Ruth síðasti maðurinn sem þessu
embætti gegnir, því þegar Water-
gatemálinu lýkur verður embætt-
ið og skrifstofa þess lögð niður.
Er búizt við, að það verði innan
árs. Ruth tekur við starfinu þegar
á morgun.
SVO sem frá hefur verið skýrl
f fréttum rfkir hungursneyð I
Bangladesh. Eftir sumar enda
lausra hörmunga, storma og
flóða, hefur vfða orðið algei
uppskerubrestur og hundruf
þúsunda manna eiga f höggi
við hungurvofuna. Mynd þessi
var tekin í tjaldbúðum I
Dacca, höfuðborg landsins, ai
hungraðri móður með barr
sitt, er ber merki langvarandi
vannæringar. Landlausii
bændur hafa flykkzt til höfuð
borgarinnar með fjölskyldui
sfnar í leit að mat og þar reyn;
stjórnvöld að gera þeim ein
hverja úrlausn.
Kissinger í Moskvu:
Brezhnev sagður vilja
hitta Ford sem fyrst
Moskvu, 23. okt.
AP—Reuter.
DR. HENRY Kissinger, utanrfkisráðherra Banda-
rfkjanna, og Nancy kona hans, komu til Moskvu f
kvöld til fimm daga dvalar þar f borg og viðræðna
við sovézka ráðamenn. Andrei Gromyko, utanrfkis-
ráðherra Sovetrfkjanna tók á móti þeim á Vnukovo
flugvelli, þar sem Kissinger sagði við fréttamenn,
að hann vænti sér góðs af viðræðunum í Moskvu.
Skrif Tass- fréttastofunnar sovézku skömmu
fyrir komu Kissingers bentu til þess, að sögn
vestrænna fréttamanna, að Sovétmenn muni leggja
áherzlu á að sem fyrst verði komið á fundi þeirra
Leonids Brezhnevs, aðalritara sovézka
kommúnistaflokksins og Geralds Fords, forseta
Bandarfkjanna. Kissinger hefur hinsvegar það
aðalerindi að fá Rússa til frekari tilslakana f
sambandi við SALT-viðræðurnar f Genf, um tak-
mörkun kjarnorkuvopna, þar sem lftt eða ekki
hefur miðað um langt skeið.
Talið er ólíklegt, að Rússar gefi
nokkuð út á slíkt fyrr en þeir hafa
fullvissað sig um það — helzt
með leiðtogafundi — að Gerald
Ford hafi sömu afstöðu og fyrir-
rennari hans í forsetaembættinu
til samskipta Bandaríkjanna og
Sovétríkjanna.
Samkvæmt samkomulagi Nix-
ons og Brezhnevs, á sfðasta fundi
þeirra í Moskvu, átti Brezhnev að
koma til Bandaríkjanna næsta
Nýfundið belti rafmagmh laöinna
agna er umlykur segulsvið jarðar
Munchen, 23. okt. Reuter.
VESTUR-þýzkir vfsindamenn
hafa skýrt svo frá, að fundizt
hafi belti rafmagnshlaðinna
agna, sem fara umhverfis jörð-
ina — og megi vænta þess, að
það stuðli að auknum skilningi
á samverkan sólar og jarðar,
sem hefur úrslitaþýðingu fyrir
allt Iff á jörðunni.
1 tilkynningu um þetta mál
frá Max-Planck geimvfsinda-
stofnuninni f Miinchen segir,
að belti þetta hafi fundizt við
athuganir á upplýsingum frá
evrópska geimfarinu Helos 11.
en þvf var skotið á loft 31.
janúar árið 1972.
Þar segir og, að belti þetta sé
10—20 þúsund kflómetrar á
þykkt, að það sé f 100—200 þús-
und kflómetra fjarlægð frá
jörðu og um 50.000 kflómetra
frá Van Allen geislabeltinu.
Sömuieiðis að það umljúki að
mestu segulsvið jarðar.
Vfsindamaðurinn, sem beltið
uppgötvaði heitir dr. Helmut
Rosenbauer. Er haft eftir
starfsfélaga hans að þvf verði
gefið nafnið „Plasma kápan“.
Vfsindamenn við stofnunina
gera sér vonir um að upplýsing-
ar sem fengizt hafa frá Helos
11. varpi betra Ijósi en verið
hefur á uppruna Van Allen
geislabeltisins og norðurljósa.
sumar, en að Nixon föllnum frá
forsetaembættinu eru Rússar
sagðir hafa mikinn hug á að flýta
fundi sínum og forseta Bandaríkj-
anna sem mest. Getgátur eru uppi
um að þeir muni hittast í nóvem-
berlok, því þá er fyrirhugað að
Brezhnev fari til Mongólíu og
Ford til Japans og Suður-Kóreu.
Sagt er, að Brezhnev hafi stungið
upp á, að þeir hittist f Vladivos-
tock en frekar er talið koma til
greina að þeir hittist einhvers-
staðar á hafi úti, því að Ford muni
ekki eiga gott með að fara til
Vladivostock — það gæti móðgað
I Kínverja, þvi að borgin er í þeim
! hluta Sovétríkjanna, sem Kín-
verjar gera tilkall til.
A leið sinni til Moskvu hafði
Kissinger viðdvöl i Kaupmanna-
höfn, þar sem hann ræddi
stundarkorn við Ove Guldverg
utanríkisráðherra Dana, og sendi-
herra Bandarikjanna á Norðúr-
löndum. Þar varð eftir einn af
Papdopoulos
sendur í útlegð
- en Ioannides slapp
Aþenu, 23. okt. AP.
GEORGE Papadopoulos og fjórir
fyrrverandi félagar hans, sem
allir stóðu að herforingjabylting-
unni 1967, hafa verið handteknir
og sendir f útlegð til eyjar f Eyja-
Ungverskur
rithöfundur
handtekinn
hafi, sakaðir um samsæri gegn
núverandi stjórn Grikklands.
Hafa þeir þar með hlotið sömu
meðferð og þúsundir manna
hlutu af þeirra hendi á sfnum
tfma. Ekki hefur hinsvegar náðst
f herforingjann Dimitrios
Ioannides, yfirmann herlög-C
reglunnar fyrrverandi, sem stóð
fyrir þvf að velta Papadopoulosi
úr sessi í nóvember sl. og var
sagður hafa skipulagt byltinguna
gegn Makariosi erkibiskupi, for-
seta Kýpur, á sfnum tfma. Fimm
lögreglumenn komu heim til
Framhald á bls. 20
Sprenging
í Brooks
klúbbnum
í London
London, 23. okt. Reuter.
LÖGGÆZLA var mjög aukin f
helztu klúbbum f London f dag
eftir að sprengju var varpað inn
umgluggaf Brooksklúbbnum um
hádegisbilið með þeim afleiðing-
um að þrfr þjónar hlutu meiðsl
einn þeirra, sautján ára piltur,
svo alvarleg, að hann kann að
missa annan fótinn. Hinir sluppu
með minni háttar heiðsl. Brooks
klúbburinn er f hjarta Lundúna-
borgar, f smágötu út af St. James
stræti.
Handan götunnar, gegnt
klúbbnum, sat leiðtogi brezka
Ihaldsflokksins, Edward Heath,
að snæðingi á veitingahúsi og var
hann með fyrstu mönnum á vett-
vang. Hann sagði skemmdir hafa
orðið miklar í klúbbnum, sem er
með hinum elztu f London,
stofnaður árið 1764. Þar hafa
a.m.k. 12 brezkir forsætisráðherr-
ar verið meðlimir, en yfirleitt
Framhald á bls. 20
Cunhal senn
til Moskvu
Lissabon, 23. okt. Reuter.
INNAN skamms fer til Sovét-
rfkjanna f heimsókn portúgölsk
stjórnarnefnd undir forystu
Alvaros Cunhals, aðalritara
portúgalska kommúnistaflokks-
ins og ráðherra án stjórnardeild-
ar. Með honum verða auk annarra
yfirmaður flotans og upplýsinga-
málaráðherra landsins. Tilgangur
ferðarinnar er, að þvf er segir f
opinberri tilkynningu, að ræða
samvinnu á sviði efnahags-,
upplýsinga- og menningarmála.
Portúgal og Sovétríkin tóku
upp stjórnmálasamband fyrr á
þessu ári, eftir að herforingjarnir
veltu einræðisstjórn Caetanos í
apríl sl., og í dag fór til Moskvu
fyrsti sendiherra Portúgals í
Sovétríkjunum, Dar Mario Neves.
Sex ára dreng
rænt á Italíu
Milano, 23. okt. Reuter.
VOPNAÐIR, grfmuklæddir menn
rændu f dag sex ára syni auð-
manns f Milano, þegar drengur-
inn var á leið heim úr skóla. Er
þetta fjórða mannrán f
Lombardy-héraði f þessum mán-
uði.
Drengurinn sem rænt var heitir
Daniele og er sonur Albertos Ale-
fnagna, forstjóra og eiganda veit-
ingafyrirtækisins Alemagna, sem
er eitt hið stærsta si'nnar tegund-
ar á Italíu, rekur keðju matsölu-
staða meðfram þjóðvegum lands-
ins og selur út ýmiss konar veít-
ingar. Alberto Alemagna tók við
fyrirtækinu að föður sínum
látnum fyrir um það bil mánuði.
Drengurinn var í fylgd með bíl-
stjóra föður síns og áttu þeir
skammt ófarið heim, þegar
ræningjarnir réðust á þá og
slævðu meðvitund þeirra með et-
er, skildu bílstjórann síðan eftir,
Framhald á bls. 20
Framhald á bls. 20