Morgunblaðið - 24.10.1974, Page 20

Morgunblaðið - 24.10.1974, Page 20
20 MORGUNBLAÐIÐ FIMMTUDAGUR 24. OKTÓBER 1974 — Mál og málflutningur Framhald af bls. 19 Öxnafurðu, og kom þar hvorki til óþjóðrækni eða undir- lægjuháttur, heldur samspil hagsýni og hæversku, sem eg held raunar að einkenni Eng- lendinga meir en heimskuleg- ur þjóðrembingur. En þetta sannar svo sem ekki neitt, þótt eitt úæmi segi að vísu meira en runa af dæmalausum fullyrð- ingum. Það sem eg vildi hér spyrja höfundinn um er þetta: Hverskonar þjóðníðingar eru JCanadamenn að leyfa Kanada- mönnum að tala íslensku í Kanada? Eða er kanadíska — frönsk eða ensk — ef til vill ekki meðal tnerkra mála? Og vel á minnst, hvað í ósköpunum eiga Svisslendingar og Belgir að gera, svo maður tali nú ekki um Ind- verja? Veit höfundur viö hvaða aldur eða á hvaða þroskastigi börn hafa náð fótfestu I móðurmálinu? Hefir hann kynnt sér það Iitla sem vitað er um það hvernig börn læra móðurmálið? Hvaðan hefir hann vitneskju sína um áhrif tungumálanáms á málþroska barna, eða er ef til vill hér eins og víðar í grein hans engri vitneskju fyrir að fara? Og nú skal ekki spurt am fleira. „Allt tal um útskagamál og kot- ríki er skammarleg bábilja, sem skólunum væri sæmd að kveða niður,“ segir höfundur nálægt lokum greinar sinnar. Eg tek af heilum hug undir það sem eg þykist vita að höfundur eigi hér við, en hvað hann í rauninni hefir í huga er ekki svo ljóst sem skyldi. Honum hefir sem sé enn einu sinni láðst að gera grein fyrir því um hvað hann er að tala, gegn hverjum hann er að ráðast, hverja hann sakar um að niðra þjóð sinni og tungu meó slíku tali; hann gefur lesandanum ekki einu sinni ástæðu til að trúa því að nokkur maður iðki slíkt tal. Eg ætla að lokum að leyfa mér að bæta eftir getu úr þessari yfirsjón höfundar. Við skólana er hér að minni reynslu ekki að sakast; þeirra synd, ef nokkur er, er fremur á hinn bóginn. Ef ein- hverjir tala um íslensku og ísland sem útskagamál og kotrfki, þá eru það þeir sem skammast sín fyrir þjóðerni sitt og menningu og hylja vanmetakennd sína með sjálfslasti. En slíkir menn virðast mér einatt taka sér stöðu við hlið hinna — eða öllu heldur snúa bökum saman við þá — sem hylja veikleika sinn I trúnni á land og tungu með öfgum og barnalegri viðkvæmni; sem berjast gegn bá- biljum með bábiljum. Þar sem þannig er barist er engin mál- helgi, engin menningarhelgi. Aðalstöðvar SÞ lokaðar gestum Minning Guðbjörg Framhald af bls. 26 jafnan fylgja stóru heimili, var ætíð stund aflögu, okkur til handa. 1 stórum afkomendahóp voru amma og afi kjarninn, og margar eru þær stundir sem verða okkur ógleymanlegar. Allt til hins síðasta var heimilið hennar vettvangur, og henni mikils virði að fá að eyða ævi- kvöldinu með afa, á heimilinu sem þau höfðu haldið nú í nær 60 ár. Við og börnin okkar kveðjum ömmu með söknuði. Guð blessi minningu hennar. Afa sendum við okkar innileg- ustu samúðarkveðju og biðjum honum blessunar Guðs. Barnabörn. Sameinuðu þjóðunum, 23. okt. Reuter UPPLVST var af hálfu Samein- uðu þjóðanna f dag, að aðalstöðv- arnar yrðu lokaðar ferðamönnum og gestum öðrum I næsta mánuði meðan AHsherjarþingið fjallar um málefni Palestfnu-Araba. Jafnframt verður höfð náin sam- vinna milli lögregluliðs aðal- stöðvanna og lögreglunnar f New York um ýtarlegar varúðarráð- stafanir. Er búizt við óeirðum f sambandi við þessar umræður, m.a. vitað að samtök bandarfskra Gyðinga hafa á prjónunum áætl- anir um meiri háttar andófsað- gerðir úti fyrir aðalstöðvunum til að mótmæla þvf að fulltrúar frels- — Sprenging Framhald af bls. 1 sækja þangað stjórnmálamenn og erlendir sendimenn. Ekki er talið, að sprengingunni hafi verið beint gegn neinum sérstökum manni heldur óttast menn, að upp sé risinn hópur hryðjuverkamanna, er beini spjótum sínum gegn efri stéttum brezka þjóðfélags í heild. Til þessa hefur írskum öfgamönn- um verið kennt um þær sprengingar, sem oróið hafa í London og víðar í Bretlandi en ekki eru allir þar á einu máli. Þetta er í þriðja sinn á tveimur vikum, sem sprenging verður brezkum klúbbi, hinir tveir voru Victory-klúbburinn og klúbbur hers og flota. — Rússar Framhald af bls. 19 ógnað af kommúnistískum byltingarmönnum? Árekstrarnir sem bæði Brezhnev og Kissinger þykjast sjá að geti orðið hugsanleg af- leiðing kreppunnar á Vestur- löndum geta fengið þá til þess að knýja á takmörkun vígbún- aðar, en til eru aðrir í herbúð- um beggja sem munu telja þessa fyrirboða kröftugar rök- semdir fyrir því að magna víg- búnaðarkapphlaupið. — Varnarmálin Framhald af bls. 36 Hins vegar tel ég eðlilegt og raunar sjálfsagt, að málið verði rætt á Alþingi, ekki síst í sam- bandi við skýrslu utanríkisráð- herra. Lúðvík gengur í bókun sinni út frá tveimur forsendum, sem eru rangar. í fyrsta lagi fjall- ar samkomulagið ekki um endur- skoðun varnarsamningsins eins og Lúðvík segir, heldur um breyt- ingar á framkvæmd hans. Með stefnu nýrrar ríkisstjórnar og samkomulagi þessu er meira að segja afturkölluð ósk fyrri ríkis- stjórnar um endurskoðun. Sú ósk var raunar aldrei borin undir Alþingi. i öðru lagi er rangt hjá Lúðvík, að hér sé um endanlegt samkomulag' að ræða, því að stefnaþessarai ríkisstjórnar er, að fyrirkomulag varna sé í stöðugri endurskoðun. Breytt framkvæmd varna innan ramma varnarsamn- ingsins getur því ekki talist end- anlegt samkomulag. Góðu heilli er nú á ný, eftir stjórnarskiptin, tekin upp sú stefna í varnarmálum, sem varn- arsamningurinn grundvallast á og Sjálfstæóisflokkurinn hefur jafn- an aðhyllst. Er það og í samræmi við úrslit kosninganna í sumar.“ Kynningarkvöld Sérfræðingur kynnir Yardley-snyrtivörur og sýningar- stúlkur úr Karon-samtökunum sýna tízkufatnað frá verzl. Melkorka. Allir eru velkomnir í Snyrtivörudeildina Grímsbæ við Bústaðaveg í kvöld kl. 9. Snyrtivörudeildin Grímsbæ. ishreyfingar Araba — PLO — hafa fengið heimild til að taka þátt f umræðunum. Óstaðfestar fregnir herma að Yasser Arafat verði I forystu fyrir sendinefnd PLO og verða þá gerð- ar meiriháttar ráðstafanir til að vernda hann. Líklegt er, að um- ræðurnar á þinginu hefjist I kringum 7. nóvember og standi yfir í tfu daga. Að jafnaði koma tl aðalstöðva S.þ. í New York um 2000—2500 gestir á dag. Aðal- stöðvarnar hafa nokkrum sinnum áður verið lokaðar gestum, m.a. árið 1960, er margir heimskunnir og umdeildir pólitískir leiðtogar sóttu Allsherjarþingið, Manila, 23. okt. Reuter. EVGENI Vashiukov frá Sovét- rfkjunum varð sigurvegari á skákmótinu f Manila á Filippseyj- um. Annar varð Petrosjan, fyrr- um heimsmeistari, og þriðji Bent Larsen frá Danmörku. 7 seldu fyrir SJÖ síldveiðiskip seldu sild í Dan- mörku f gær, þar af seldi eitt afgangssíld frá deginum áður. Alls seldu skipin fyrir 14.8 millj. kr. og meðalverðið var kr. 34.70. Skipin sem seldu voru þessi; Höfrungur 3. AK fyrir 1.8 millj. kr., Albert GK fyrir 2.5 millj. kr„ Náttfari ÞH fyrir 2.8 millj. kr„ Svanur RE fyrir 2.9 millj. kr„ Gísli Árni RE fyrir 3.1 millj. kr„ Skarðsvik SH fyrir 1.5 millj. kr. og Helga 2. RE fyrir 62 þús. kr„ en það var síld frá því í fyrradag, en þá seldi skipið fyrir 3.6 millj. kr. — Papodopoulus Framhald af bls. 1 Ioannidesar f dögun f morgun til að handtaka hann, en þá var fugl- inn floginn. Þegar var hafin áköf leit að honum og yfirheyrslur meðal félaga í herlögreglunni, sem taldir eru honum vinveittir. Þeir, sem handteknir voru ásamt Papadopoulosi eru fyrrver- andi varaforsætisráðherrar hans tveir, Stylinos Patakos og Nicholas Makorezos, ennfremur Ioannis Ladas og Michael Roufogalis, fyrrverandi yfir- maður grísku leyniþjónustunnar. Papadopoulos hefur undanfarið verið f stofufangelsi og hafði nýlega höfðað mál gegn yfir- manni lögreglusveitarinnar sem umkringdi heimili hans. Hélt Papadopoulos því fram, að það væri með öllu ólöglegt að halda honum föngnum á heimili hans og einangruðum, þar sem her- foringjastjórnin hefði sjálfviljug fengið núverandi stjórn völdin í hendur, — og hún numið úr gildi herlögin, sem áður voru við lýði. Mennirnir fimm voru sendir til eyjarinnar Kea, sem er sögð hinn ljúfasti staður að sumri til, en kaldur á vetrum. Þar er eitt gisti- hús. Utlegð þeirra fimmmenning- anna var byggð á lögum sem Papadopoulos sjálfursetti.Eftir að skýrt hafði verið frá handtöku mannanna var ýmsum merkjum stjórnartíðar þeirra safnað saman og þau brennd, til dæmis áróðurs bækur í þúsundatali og þar á meðal fimm binda ritverk Papadopoulosar „Ég trúi“, en það hafði mestmegnis að geyma til- vitnanir í ræður hans og kafla úr þeim. Síðdegis gaus upp sá orðrómur að herdeildir i norður- og mið- hluta Grikklands hygðust láta til skarar skríða gegn stjórninni í Aþenu, en í opinberri tilkynningu þar að lútandi sagði, að Evanghelos Averoff Tosistas landvarnarráðherra hefði haft samband við herforingja þar um slóðir og þeir fullvissað hann um, að þar væri ekkert óvenjulegt á seyði og ekkert, sem benti til yfir- vofandi stjórnarbyltingar. — Fisksalar Framhald af bls. 36 maí sem fisksalar hefðu tekið upp á því að fara að selja fiskinn á hærra verði en hámarksverð hefði sagt til um,fyrsthefði verðið verið nokkuð misjafnt, en sam- komulag hefði náðst um að selja hvert kg af ýsuflökum á kr. 150. Nú hefðu verðlagsyfirvöld loksins viðurkennt þetta verð, en þess bæri að gæta að í millitíðinni hefðu orðið fiskverðshækkanir. Þá reyndi Mbl. að ná tali af Jóni Abraham Ólafssyni verðlagsdóm- ara, en það tókst ekki. — Sex ára drengur Framhald af bls. 1 en fóru burt með drenginn í bif- reið. Alemagna hefur beint þeim til- mælum til ræningjanna, að vinna drengnum ekki mein. Ekki er vitað, hvað ræningjarnir ætlazt fyrir, þegar síðast fréttist hafði ekki komið fram krafa um lausnargjald. Innanríkisráðherra Italfu, Emilio Taviani, hefur fengið mál þetta í hendur yfirmanns rann- sóknarlögregiunnar Li Donni, en hin tíðu mannrán í landinu að undanförnu hafa vakið ugg og reiði. Frjálslyndi flokkurinn birti fyrir nokkrum dögum skýrslu, sem bendir til þess, að mannrán sé framið á Italíu fimmta hvern dag að meðaltali. — Þrír menn Framhald af bls. 2 smygl í stærri stil en fundurinn nú í Selfossi bendir til. Þá má geta þess, að í fyrradag var einn skipverja á Skógarfossi tekinn í Reykjavík, er hann var að smygla 56 flöskum af áfengi í land úr skipi sínu, þar af voru 11 flöskur af 96% spíra. — Ung stúlka Framhald af bls. 36 Hér fer á eftir frásögn AP- fréttastofunnar af þessu máli, sem Níels kvað hafa vakið tölu- verða athygli í Bretlandi: Sendiherra íslands í London greip inn i réttarhöld í London I gær og bauð aðlaðandi, ljóshærðri íslenzku stúlku hæli, en hún var sögð eiga á hættu að verða myrt eða rænt af flokki „hættulegra og grimmra" eiturlyfjasala í undir- heimum Lundúna. Stúlkan sem er 25 ára að aldri, átti yfir höfði sér sex mánaða fangelsisvist þar sem hún beið þess að mál hennar yrði tekið fyrir rétt, en hún er ákærð fyrir að hafa haft kókain undir hönd- um og ætla að selja kinverskt heróin. Hún var handtekin í júlí, og eru 11 sakborningar í málinu auk hennar. Neitaði dómarinn við réttar- höldin i Old Bailey, Charles Lawson, að láta stúlkuna lausa gegn tryggingu þar eð lögreglu- yfirvöld óttuðust um lif hennar. Málið var tekið upp að nýju í gær þegar sendiherra tslands í Lond- on, Níels P. Sigurðsson, lagði fram boð um að veita stúlkunni hæli hjá sendiráðinu. Eiríkur Benedikz sendiráðs- ritari, sagði dómaranum: „Ég hef rætt mál þessarar ungu konu við sendiherrann. Hann hefur beðið mig um að tilkynna, að yrði stúlk- an látin laus gegn tryggingu þá væru hann og kona hans reiðu- búin til að taka hana inn á heimili sitt í aóákveðinn tíma.“ Full- vissaði Eiríkur Benedikz Lawson dómara um að öryggisráðstafanir sendiráðsins væru traustar, og ákvað dómarinn þá að láta stúlk- una lausa gegn tvöfaldri tryggingu að upphæð 1000 pund með því skilyrði að hún haldi kyrru fyrir í sendiráðinu. Brian Riley leynilögreglu- foringi sagði I vitnisburði sínum að stúlkan ætti í „höggi við mjög hættulega menn. Það er ástæða til að ætla að þeir myndu ekki láta hana mæta við réttarhöldin óhindrað". — Kissinger Framhald af bls. 1 fréttamönnunum, sem áttu að fylgja Kissinger á ferð hans næstu vikurnar, Stræebe Talbott frá Time, sem fékk ekki vega- bréfsáritun til Sovétríkjanna. Talbott ritstýrði æviminningum Nikita Krúsjeffs og mun sú ástæð- an. Aðrir fréttamenn, sem ráðherr- anum fylgja, hafa sent Sovét- stjórninni mótmælaorðsendingu vegna þessa máls. — Bhutto Framhald af bls. 17 utanrfkisráðherra Banda- rfkjanna er væntanlegur til Pakistans f næstu viku — eftir að Bhutto hefur verið f Sovétrfkjunum og þeir báðir raunar — og er talið vfst að vopnasölubannið komi þá til umræðu. Haft er eftir góðum heim- ildum meðal vestrænna sendimanna, að Sovét- stjórnin hafi boðið Pakistan lán til vopnakaupa, sem nemur upphæð er svarar til 6 milljarða fslenzkra króna, en til tiltölulega skamms tfma og er talið að Bhutto muni reyna að fá hagstæðari lánakjör í Moskvuferð sinni. Að sögn opinberra tals- manna er þó megintilgangur ferðar Bhuttos að bæta sam- skiptin við Sovétrfkin — og á það er bent að hverskonar vopnasölusamningar milli Pakistans og Sovétrfkjanna verði illa séðir bæði af Kfn- verjum og Indverjum. — Kvennaár Framhald af bls. 3 ins í huga við efnisval hljóðvarps og sjónvarps og samskonar áskor- un hefur verið beint til leikhúsa. Skorað hefur verið á stjórn- málaflokkana að auka hlut kvenna I stjórnmálastarfi, ekki síst í ýmsum pólitískt kjörnum nefndum á erlendum og innlend- um vettvangi og kvenfélög stjórn- málaflokkanna hafa verið hvött til að undirbúa félaga sína sem best til slíkra starfa. Menntamálaráðuneytinu hafa verið sendar tillögur um fræðslu- starf i skólum með ýmsum hætti og að ritgerðasamkeppni verði háð i framhaldsskólum f sam- vinnu við Félag Sameinuðu þjóð- anna. Menntamálaráðuneytið hef- ur þegar óskað eftir tillögum frá kvennasamtökum um það hvernig þau telji æskilegt að kvennaárs- ins verði minnst á þeim vettvangi, sem heyrir undir starfssvið þess ráðuneytis. Fræðslumyndasafn ríkisins hef- ur verið hvatt til að hafa á boð- stólum gott myndaefni um stöðu kvenna í hinum ýmsu löndum. Dagblöðin hafa verið hvött til að birta greinar um stöðu kvenna. Þá verður flutt í Norðurlanda- ráði tillaga um farandsýningu um sögulega þróun stöðu kvenna á Norðurlöndum. Er það Ragnhild- ur Helgadóttir alþingismaður, sem hefur undirbúið flutning þeirrar tillögu, en hún á nú sæti í stjórnarnefnd Norðurlandaráðs. Af verkefnum, sem nefndirnar hafa lagt til að hin einstöku sam- tök tækju að sér má nefna: Kvenfélagasamband Islands undirbúi námshringaverkefni um stöðu kvenna í þróunarlöndunum til að senda út í héraðssamböndin. Kvenréttindafélag Islands vinni að því að konur f launþega- samtökunum taki meiri og virkari þátt f störfum stéttarfélaga sinna og vinni að þvf í samvinnu við kvenfélög stjórnmálaflokkanna, að samtimis fáist opna f öllum flokksmálgögnum þar sem fjallað verði um réttindmál kvenna. Kvenstúdentafélagið og Félag háskólakvenna undirbýr átta út- varpsfyrirlestra, sem haldnir verða á kvennaárinu. Starfshópur Rauðsokkahreyf- ingarinnar vill leggja sérstaka áherslu á aðgerðir, sem varpi ljósi á stöðu kvenna í þjóðfélaginu og þátt þeirra í atvinnulífinu, og að haft verði samstarf við launþega- samtök, sem konur eru aðilar að.“

x

Morgunblaðið

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.