Morgunblaðið - 24.10.1974, Side 21
MÖRÖÚNBLAÐIÐ FÍMMTÚDAGÚR 24. OKTÓBER 1974
21
Tónmenntasjóð-
ur kirkjunnar
SÍÐASTLIÐIÐ sumar var samin
og gefin út af menntamálaráðu-
neytinu skipulagsskrá fyrir Tón-
menntasjóð kirkjunnar. Sjóður-
inn er stofnaður með framlagi frá
menntamálaráðuneytinu að fjár-
hæð kr. 10.000,00.
I þennan sjóð renna 20% þeirra
gjalda, sem árlega verða innheimt
vegna opinbers flutnings bók-
menntaverka og tónverka við
guðsþjónustur og aðrar kirkjuleg-
ar athafnir.
Tilgangur þessa sjóðs er fyrst
og fremst sá að efla kirkjulega
tónlist og textagerð. í því skyni
skal verja úr sjóðnum fé til styrkt
ar höfundum fyrir að semja ein-
stök verk af eigin frumkvæði eða
eftir pöntunum sjóðsins. Úthlut-
un úr sjóðnum skal fara fram
einu sinni á ári. Úthluta má allri
innistæðu sjóðsins eins og hún er
á hverjum tíma, þó eigi stofnfé
hans, kr. 10.000,00.
— Ljós
á silfurlampa
Framhald af bls. 16
hann fleygði sér á grúfu þarna við
túngarðinn í Dalbæ og grét og bað
Guð um, að bréfið mætti finnast.
Þegar heim kom, var hann mjög
miður sín og sagði pabba, hvernig
komið var.
Seinna um daginn kom maður
til föður okkar, frændi hans, er
Bjarni hét. Þeir töluðu, um ýmis-
legt eins og gengur, þar á meðal
veðrið, þetta ofsarok. — Þá segir
"Bjarni: ,,Það kom dálitið skrýtið
fyrir mig í morgun. Eg var að
svipast eftir kindum niður i Hóla-
mýri. Stormurinn var svo sterkur,
að varla var stætt. Ég sneri mér
snögglega upp í vindinn og lenti
þá fjúkandi blaðsnepill á brjósti
mér. Ösjálfrátt smellti ég hend-
inni á þetta blað, er þetta þá ekki
óopnað sendibréf til Helga
Magnússonar í Miðfelli.“
Eins og hægt er að skilja, vakti
þetta mikla gleði allra.
Eitt sinn var langt að komið
tjaldfólk i Galtafelli við heyskap,
og heldur lélegur aðbúnaður í
tjaldinu.
Bjarni, bróðir Guðnýjar var þá
15 ára. Hann komst að því, að
gömul kona, sem var i tjaldinu,
var lasin. Hann fór um kvöldið út
í tjald með sængina sína og lánaði
henni. Hafði gamla konan oft
minnst á það síðar. — „Fagurt
mannlíf" eða „glansmynd"?
Að síðustu:
„Foreldrar okkar áminntu okk-
ur börnin að vera athugul og
varkár gagnvart öllu lífi, i hve
litlu gervi, sem það birtist, eða
hversu ósjálegt sem það sýndist.
— Stranglega var tekið fram, að
við mættum engu lífi granda,
nema það væri einhverra hluta
vegna óumflýjanlegt.“
Vera má, að lán heimilisins hafi
allmikið byggzt á þessari virðingu
fyrir lífi og tilfinningu.
Bæði hafa systkinin, Einar og
Guðný, sagt frá því, hvernig Ijós
trúarinnar var tendrað í Galta-
felli. Og þar logaði það skært á
lampa Guðs.
Ég óska höfundi Bernskudaga
til haningju með það að hafa skil-
ið eftir ljós á silfurlampa meðal
íslenzkra bókmennta. — Bók, sem
lýsir inn í liðinn tíma — og út á
veginn, sem vér göngum.
Rósa B. Blöndals.
MYNDAMÓTA
Adnlstræti 6 simi 25810
NY SENDING
TRAMPSSKÓR:
STÆRÐIR 35
STÆRÐIR 41
REIMUÐ TRAMPSSTÍGVÉL: STÆRÐIR 35
STÆRÐIR 41
ÓREIMUÐ TRAMPSSTÍGVÉL: STÆRÐIR 35
STÆRÐIR 41
40. VERÐ KR. 3.450 -
46. VERÐ KR. 3.550 -
- 40. VERÐ KR. 4.395.
- 46. VERÐ KR. 4.495.
40. VERÐ KR. 4.675,
46. VERÐ KR. 4.775,
Skóverzlun Þórðar Péturssonar,
Kirkjustræti 8 v/Austurvöll. Sími 14181.