Morgunblaðið - 05.11.1974, Síða 3
MORGUNBLAÐIÐ, ÞRIÐJUDAGUR 5. NÓVEMBER 1974
3
Aukið öryggi nýfæddra barna:
Lvonsmenn £ jefí igi 1 • • lor-
gæz lm tæ ki ti IV ök u-
deili da r I jandí spíl tab ms
Frá afhendingu gjörgæzlutækjanna: f.v. Georg Lúðvíksson framkvæmdastjóri
ríkisspítalanna, Matthías Bjarnason heilbrigðisráðherra, Gunnar Biering barna-
læknir fæðingardeildarinnar, Skúli Halldórsson formaður Baldurs og Páll
Sigurðsson ráðuneytisstjóri.
NtJ STENDUR fyrir dyrum
stækkun á fæðingardeild
Landspftalans. Viðbygging sú
sem risin er af grunni mun á
komandi árum gerbreyta
starfsháttum deildarinnar, þvf
að sjúkrarúmum fjölgar um
helming samhliða þvf sem öli
starfsaðstaða batnar til muna,
þannig að hægt verður að veita
sjúklingum deildarinnar, jafnt
fullorðnum sem börnum, full-
nægjandi þjónustu.
Helzt hlýtur að teljast til ný-
mæla varðandi þessa bættu að-
stöðu, að á þriðju hæð viðbygg-
ingarinnar verður deild fyrir
veik, nýfædd börn við hliðina á
fæðingarstofum. Hefur þessi
deild hlotið nafnið vökudeild.
Geta 14 börn verið þar samtim-
is, en deildin verður útbúin öll-
um tækjum, sem nauðsynleg
eru við gjörgæzlú á nýfæddum
börnum. Auk barna af fæðing-
ardeildinni sjálfri mun vöku-
deildin einnig taka á móti veik-
um börnum sem fæðast utan
hennar, bæði í Reykjavík og úti
á landsbyggðinni.
Til að auðvelda flutninga á
þessum börnum hefur deildin
eignazt fullkominn ferðahita-
kassa. Mun læknir eða sérhæfð
hjúkrunarkona þá sækja börn-
in þegar því verður við komið,
að öðrum kosti kemur slíkt tæki
ekki að fullum notum. Barna-
læknir ásamt sérhæfðu hjúkr-
unarliði annast börnin á vöku-
deild. . Vaktþjónusta verður
skipulögð af Barnaspítala
Hringsins, enda verður deildin
hluti af barnalæknaþjónustu
við Landspítalann.
Á vökudeildinni eru 3 sjúkra-
stofur. í tveim þeirra verða
samtals 8 hitakassar
(incubatorar), en i þriðju stof-
unni verða 6 vöggur fyrir börn,
sem ekki þurfa að vera i hita-
kössum.
Þá er á deildinni aðgerðar-
stofa. Þar verða tæki til lífgun-
ar og aðgerða, svo sem blóð-
skipta. Á aðgerðarstofunni
verður einnig aðstaða til
röntgenmyndatöku á börnum i
hitakössum.
Jafnframt verður á vökudeild
móttökuherbergi fyrir foreldra
sem koma til að heimsækja
börn sín og aðstaða til að kenna
mæðrum meðferð á börnunum,
áður en þau útskrifast af deild-
inni.
Með tilkomu göngudeildar
við fæðingardeildina skapast
góð aðstaða til eftirskoðunar á
börnum, sem legið hafa á vöku-
deild. Koma börnin til eftirlits,
þar tal þau eru fær um að ganga
inn í venjulegt ungbarnaeftirlit
hér í borginni og annars staðar.
Lyonsklúbburinn Baldur í
Reykjavík hefur fært vöku-
deildinni að gjöf gjörgæzlutæki
sem monitorar nefnast og voru
þeir formlega afhentir sl. laug-
ardag. Skúli Halldórsson for-
maður klúbbsins afhenti heil-
brigðisráðherra, Matthíasi
Bjarnasyni tækin en verðmæti
þeirra, þegar tollar hafa verið
gefnir eftir, er rúmlega ein
milljón króna.
Monitorar gegna stöðugt
stærra hlutverki við gjörgæzlu
á nýfæddum börnum. Hér er
um að ræða tæki, sem fylgjast
með öndun, hjartslætti og blóð-
þrýstingi hjá börnum og- súr-
efni i hitakössum. Tækin gefa
einnig frá sér hljóðmerki, ef
eitthvað fer úrskeiðis. Þá gefur
klúbburinn vökudeildinni
einnig hjarta- og heilarita og
hjarta- og heilasjá, hvort
tveggja mikilvæg tæki við gjör-
gæzlu nýfæddra barna.
Tækjagjöf Lyonsklúbbsins
Baldurs er annars nánar til-
tekið sem hér segir: 2 hjarta-
monitorar, 2 öndunarmonitor-
ar, 1 blóðþrýstimonitor, 1
súrefnismonitor, 4 súrefnis-
mælar, 1 hjarta- og heilariti og
1 hjarta- og heilasjá.
1 fréttatilkynningu Land-
spítalans í tilefni þessarar gjaf-
ar kemur einnig fram, að gert
er ráð fyrir að eftjr stækkun
húss fæðingardeildarinnar geti
hún annað um 2500 fæðingum á
ári. Hlutfallstala sjúkra barna á
deildinni er mjög há vegna þess
að þangað eru sendar konur af
öllu landinu með afbrigði eða
sjúkdóma á meðgöngutíma, en
undir slíkum kringumstæðum
má einnig búast við afbrigðileg-
um eða sjúkdómum hjá börnum
þessara kvenna.
Með tilkomu nýju viðbygg-
ingarinnar við fæðingardeild-
ina skapast stórbætt aðstaða
fyrir nýfæddu börnin, jafnt
heilbrigð sem sjúk. Við núver-
andi aðstæður verður
hjúkrunarlið deildarinnar að
hugsa jöfnum höndum um heil-
brigð og sjúk börn. Við stækk-
un deildarinnar verður skipu-
lagningu hagað þannig, að sjúk
börn verða algerlega aðskilin
frá heilbrigðum börnum.
Á sængurkvennagangi á 2.
hæð hússins verða barnastofur
fyrir rúmlega 50 heilbrigð
börn. Jafnframt verður á þess-
ari hæð stofa fyrir 4 börn, sem
vegna smithættu er nauðsyn-
legt að aðskilja frá öðrum börn-
um.
Með bættri starfsaðstöðu
skapast nú betri möguleikar á
að kenna ungum óreyndum
mæðrum meðferð á nýfæddum
börnum en tækifæri hefur ver-
ið til fram til þessa. Jafnframt
verður mæðrum gefið tækifæri
á að hafa börn sin hjá sér mik-
inn hluta sólarhringsins, ef þær
óska þess.
Þær söfnuðu alls 13 þúsund krónum: Heiða Helena Viðarsdóttir,
Svanhildur Guðlaugsdóttir, Kristrún Arinbjarnardóttir, Þórunn Arin-
bjarnardðttir og Guðrún Guðjónsdóttir. Litla systir hennar Heiðu fékk
að vera með á myndinni en hún heitir Karen.
Söfnuðu rúmum 23 þúsund
kr. í hjartabílssöfnunina
TVEIR barnahópar úr
Hafnarfirði litu inn til okk-
ar á ritstjórninni. Höfðu
báðir hóparnir nýlega hald-
ið hlutaveltu til að safna í
hjartabílssöfnunina, og
söfnuðu samtals rúmum 23
þúsund krónum. Börnin
eru öll úr Öldutúnsskóla og
sögðu að hlutavelturnar
hefðu gengið ofsavel.
.' -—
vl. <i
rsBfai —"1
Þau söfnuðu kr. 10.308,50 kr.: Kolbrún Þóra Þórðardóttir, Helga
Aðalbjörg Þórðardóttir, Jón Þ. Ólafsson og Halldór Halldórsson.
EFTA ráðherrar lýsa áhyggjum sínum
/
— vegna afstöðu EBE til samninganna við Island
ÓLAFUR Jóhannesson viðskipta-
ráðherra sat f fyrri viku ráðherra-
fund Friverzlunarbandalagsins f
Helsinki. Á fundi með frétta-
mönnum i gærmorgun sagði
hann, að í yfirlýsingu fundarins
hefðu ráðherrarnir lýst áhyggj-
um sfnum vegna þess, að samn-
ingar Islands og Efnahagsbanda-
lagsins um fiskafurðir hefðu ekki
gengið f gildi enn. Þá sagði við-
skiptaráðherra, að fjármálaráð-
herra Noregs hefði lýst yfir þvf á
fundinum, að Noregur myndi
taka mál þetta upp f viðræðu-
nefndinni við Efnahagsbanda-
lagið á fundi f desember n.k.
Viðskiptaráðherra sagðist hafa
getið þess á fundinum, að samn-
ingur tslands við Efnahagsbanda-
lagið um sölu á fiskafurðum hefði
ékki gengið í gildi enn, þar sem
samningar hefðu ekki tekist við
Vestur-Þjóðverja i landhelgisdeil-
unni. Hann lagði ennfremur
áherzlu á, að þetta ástand væri
ekki viðunandi fyrir okkur
Islendinga. Ólafur Jóhannesson
sagði, að þetta hefði fengið góðar
undirtektir á fundinum og sér-
staklega hefði það verið fjármála-
ráðherra Noregs, sem tekið hefði
málið upp og lagt áherslu á, að í
yfirlýsingu fundarins fælist já-
kvæð afstaða til málstaðar fslands
f máli þessu.
Ólafur Jóhannesson sagði, að
afstaða ráðherrafundarins væri
mjög athyglisverð, þar eð Frf-
verslunarbandalagið hefði ekki
haft nein afskipti af málinu fram
til þessa. Ráðherrann sagði enn-
fremur, að það væri mikill styrk-
ur að hafa fengið þessa yfirlýs-
ingu, þó að hún réði ekki úrslitum
um framgang málsins.
Þá vék ráðherrrann að því, að
Islendingar hefðu lýst yfir þvi, að
þeir tækju ekki þátt í samstarfi
Friverslunarbandalags ríkjanna
um olíumál. Ástæðan væri sú, að
við keyptum okkar olíu frá Sovét-
rikjunum, sem stæðu utan við
samtök oliuframleiðslurikjanna.
Þá sagði Ólafur-Jóhannesson, að
oliumálin væru okkar stóra
vandamál og ekki yrði um of
brýnt fyrir Islendingum að fara
sparlega með olíu.
Kurt Juuranto, aðalræðismaður tslands f Helsinki, tekur á móti Ólafi Jóhannessyni viðskiptaráðherra og
Þórhalli Asgeirssyni ráðuneytisstjóra við komuna til Helsinki, þar sem þeir sátu ráðherrafund
Frfverslunarbandalagsins.