Morgunblaðið - 05.11.1974, Page 37
MORGUNBLAÐIÐ, ÞRIÐJUDAGUR 5. NÓVEMBER 1974
37
J
Evelyn
Anthony:
S
LAUNMORÐINGINN
Jóhanna v
Krístjönsdöttir
þýddi /
40
hún var með Huntley. En það
skipti hana engu máli lengur. Það
eina sem skipti hana einhverju
var að fá Huntley Cameron til að
giftast sér. Það var ekki aðeins af
græðgi, hann var gjöfull fyrir.
Hún átti nóg fyrir sig að leggja til
að lifa þægilegu lífi. En að giftast
Huntley yrði hreinlega réttlæting
á allri tilveru hennar. Sjáum til,
þetta tókst henni Dallas litlu. Sá
draumur var svo unaðslegur að
hún lokaði augunum sem í
leiðslu. Hún var að ganga frá for-
síðum dagblaðana með fyrirsögn-
inni „Huntley Cameron giftist
söngkonu" þegarbjallan hringdi.
Hún fann ekki til neinnar auð-
mýkingar lengur, hún tók því eins
og hverju öðru sem fylgdi stöðu
hennar, að hann hringdi á hana,
þegar hann þarfnaðist hennar—
eins og þjónustustúlku. Hún opn-
aði dyrnar og lagði af stað til
einkaíbúðar Huntley Camerons.
Sjö þúsund mílur I burtu velti
Souha sér órólega í svefninum.
Það var farið að daga og hún
hafði legið andvaka mest alla
nóttina og hugsað um Keller, og
öðru hverju hafði hún grátið
sáran. Hann hafði nú verið í
burtu í meira en tvær vikur og
hún hafði ekkert heyrt frá hon-
um. I hverri viku komu pen-
ingarnir frá bankanum, hún
keypti það sem hún þurfti nauð-
synlega af matvælum, hitt geymdi
hún og ætlaði að afhenda honum,
þegar hann kæmi aftur. Hún var
ófáanleg til að hugsa til þess, að
kannski kæmi hann aldrei aftur,
jafnvel þessa nótt þegar hún bylti
sér grátandi í fletinu, gat hún
ekki sætt sig við það.
Fyrst eftir hann fór hafði hún
haft nóg að gera. Hún hafði gert
hreint í herberginu og síðan hafði
hún keypt efni í síðan náttslopp
handa honum og saumað það.
Hún vissi að hann yrði hrifinn því
að hún hafði séð slíkan slopp í
gluggum á dýrum verzlunum og
varð hugsað til þess að sennilega
hefði hann aldrei átt verulega
fallegan slopp.
Nú hafði hún lokið við að
sauma sloppinn og hann hékk á
stólbakinu og beið eftir honum.
Henni fannst fróun í að horfa á
sloppinn, einhvern veginn varð
Bruno henni nálægari við það.
Hún umlaði órólega í svefnin-
um, en samt svaf hún það fast að
hún heyrði ekki þruskið við dyrn-
ar. Maðurinn hafði komið upp
tröppurnar og læðst eins og kött-
ur sem eltir fugl, hann hreyfði sig
mjúklega og hljóðlaust, dökkur
skuggi í skjóli nætur. Hann hafði
fengið fimmtíu sterlingspund og
honum hafði verið lofað að hann
fengi önnur fimmtíu, ef hann
ynni verk sitt vel. Hann hélt á
reipinu i hendinni og hafði til-
búna lykkjuna til að smeygja um
háls stúlkunnar og herða aó.
Hann hafði fengið fyrirmæli að
koma henni fyrir á þennan hátt.
Auk þess hafði honum verió sagt
að hann mætti stela því sem hann
lysti. Morðið yrði talið ránmorð.
Fyrir framan dyrnar nam hann
staðar og lagði við hlustirnar.
Síðustu tvo dagana hafði hann
gefið húsinu gætur og fylgzt með
ferðum stúlkunnar, svo að hann
vissi að hún bjó ein. En þó var
ekki loku fyrir það skotið, að ein-
hver væri á ferli. Hann lagði
eyrað að dyrunum og hlustaði.
Hann heyrði ekkert hljóð. Ef hún
væri ein gæti hann lokið þessu af
á fáeinum mínútum og verið kom-
inn út aftur eftir örstutta stund.
Ef einhver annar var í herberg-
inu hjá henni varð hann að koma
aftur næstu nótt og athuga, hvort
hún væri ein.
Hann sneri húninum, en hurðin
var læst að innan. Keller hafði
sagt henni að læsa að sér á nótt-
unni. Souha hafði aldrei sofið
fyrir læstum dyrum fyrr, en
vegna þess að hann hafði beðið
hana að læsa hafði hún gert það.
Maðurinn beitti meira átaki, en
það dugði ekki til. Það var læst.
Hann sótbölvaði fórnardýrinu á
arabisku og sá að hann varð að
grípa til annarra ráða. Það var
afleitt og gerði verkið áhættusam-
ara. Senn færi að birta af degi,
hann gat ekki dvalið öllu lengur.
Maðurinn læddist aftur niður
þrepin. Hann fann til sultar,
þegar hann andaði að sér svölu
morgunloftinu og hann átti
klukkustundar gang fyrir hönd-
um heim i fátæklega hreysið, þar
sem hann og fjölskylda hans
bjuggu. Hann var reiður og úfinn
í skapi af vonbrigðum. Ef allt
hefði gengið samkvæmt áætlun
hefði stúlkan nú átt að vera liðið
lík. Hann ákvað að koma aftur
seinna um daginn og læðast inn
meðan hún færi út að verzla.
Hann gæti áreiðanlega fundið
einhvern felustað og komið henni
að óvörum þegar hún kæmi heim
aftur...
Dallas sat í kjöltu Huntleys,
þegar barið var að dyrunum.
Huntley var í ljómandi skapi og
hann var ekkert að flýta sér.
Hann lét sér vel líka atlot hennár
og teygði sig öðru hverju eftir
viskíglasi og fékk sér sopa. Þá var
barið. Ðallas trúði varla eigin
eyrum. Sama máli gegndi um
Huntley. Það var miðnætti og
enginn hefði að öllu venjulegu átt
að dirfast að trufla hann hér og
nú, án þess að hringja til hans í
innanhússsímanum fyrst. Hann
ýtti henni af kné sér.
— Gáðu hver þetta er.
Dallas sór í hljóði að væri þetta
einhver af þjónunum, þá skyldi
hún fá Huntley til að reka hann á
stundinni — ég skal kenna þeim
að koma ekki askvaðandi, þegar
allt er að fara í fullan gang ...
— Fyrirgefðu að ég trufla,
Dallas. Ég verð að fá að tala við
frænda minn.
Hún varð svo hissa að sjá Eliza-
bethu standa á þröskuldinum að
hún reyndi ekki að skella hurð-
inni á nefið á henni.
VELVAKAIMDI
Velvakandi svarar I síma 10-100
kl. 1 0.30 — 11.30, frá mánudegi
til föstudags.
0 Misnotkun
útvarpsþátta
„Embættismaður" skrifar:
„Kæri Velvakandi!
Ekki er annað að sjá og heyra
en að Utvarpsráð hafi forherzt í
þvf að framfylgja „menningar-
pólitík" fyrrverandi rfkisstjórnar,
eftir að þjóðin hafði kveðið upp
dóm sinn yfir henni í vor. For-
maður Utvarpsráðs lýsti yfir þvf á
sínum tíma, að framfylgja ætti
„menningarpólitfk ríkisstjórn-
arinnar", en fáa mun þá hafa
grunað, að hann ætti við það, að
slíkt ætti að gera út yfir gröf og
dauða, eins og nú hefur komið í
Ijós. Pólitísk innræting í útvarp-
inu hefur sfzt minnkað upp á sið-
kastið, fremur aukizt.
Nefna má sem dæmi þátt, sem
einhver Einar Örn Stefánsson sá
um miðvikudagskvöidið 23. októ-
ber (eftir seinni fréttir), en hann
var ekkert nema pólitísk áróðurs-
þvæla, að vísu svo þrautleiðinleg,
að varla hafa margir enzt til að
hlusta til enda. Einnig var í þætt-
inum leikin plata með lipurlegu
lagi en lélegum leirburðartexta,
þar sem að dónahætti var veitzt
að áberandi mönnum í íslenzku
þjóðlifi, látnum og lifandi, á
einkar ósmekklegan hátt.
Viku síðar var svo frumraun
einhvers nýs þáttar, sem ætlaður
er unglingum, og má ætla, að
margir hafi beðið eftir honum
með eftirvæntingu. En, því miður
féllu forráðamenn þessa þáttar á
fyrsta prófi sínu frammi fyrir al-
þjóð. Þeir gátu ekki stillt sig um
að hreyta pólitfskum skætingi í
hlustendur i lok þáttar síns og
spila dónaplötuna, sem fyrr er
minnzt á. Þar með brugðust þeir
trausti annarra á þeim og þætt-
inum. Héðan af verður fólk að
taka þættinum með varúð. Þó
stjórnendur þáttarins taki sig á,
eru þeir þegar búnir að spilla
fyrir þættinum, og verður áreið-
anlega erfitt fyrir þá að vinna
trúnað útvarpshlustenda að nýju.
Ég segi að nýju, af því ég þykist
þess viss, að hlustendur hafi
verið allir af vilja gerðir til þess
að taka bessum þætti vef í byrjun
og láta sér sjást yfir ýmiss konar
missmíði í upphafinu.
Það er vitað, að frambjóðendur
svokallaðra marx-lenfnista og
annað frammáfólk í röðum komm-
únistfskra sértrúarsafnaða hefur
annazt barnaefni f útvarpinu og
gerir að nokkru leyti enn, en póli-
tisk innræting um fjölmiðla er
mikilvægt trúaratriði í kenn-
ingum þessa fófks. Frægar eru
korterspredikanirnar, sem full-
trúar samtaka á borð við „Menn-
ingar og friðarsamtök kvenna“ og
,,marx-lenínista“ flytja annað
veifið í þættinum „Spurt og
svarað" undir því yfirskini, að
verið sé að svara spurningum um
starfsemi þessara og annarra
álíka fjörutíu manna hópa, og nú
er fullyrt af kunnugum, að búið
sé að ákveða, að kommúnistar fái
að sjá um listkynningu útvarpsins
í vetur í fjórum þar til gerðum
þáttum (myndlistarþætti, bók-
menntaþætti, tónlistarþætti og
leikhúsþætti). Væntanlega leið-
réttir einhver starfsmaður Ríkis-
útvarpsins okkar þetta, sé þetta
ekki rétt. — En þvf miður mun
þetta vera rétt.
Eigum við, sem borgum afnota-
gjöldin, virkilega að láta bjóða
okkur þetta til lengdar?
I dálkum Velvakanda og víðar
hafa stundum komið fram tillög-
ur um það, að hér verði stofnað
félag útvarps- og sjónvarpsneyt-
enda. Ég held, að löngu sé kominn
tími til slíkrar félagsstofnunar
hér á landi eins og f öðrum lönd-
um, og að aðeins sé beðið eftir
hópi framtakssamra manna, sem
hrindir þessu i framkvæmd. Hér
er enn ríkisrekstur á sjónvarpi og
útvarpi, og það nær engri átt, að
fámennur hópur einsýnna, póli-
tískra áhugamanna valsi með pen-
ingana okkar og skammti okkur
hina andlegu fæðuna."
0 Ambögur
Guðmundur Guðmundsson
skrifar:
„Velvakandi minn!
Halldór Kristjánsson á Kirkju-
bóli skrifaði þarfa áminningu í
Tímann um dagiiKi, þar sem hann
veik meðal annars að því, að orðið
„kind“ væri að útrýma ánni úr
íslenzku máli. Hann minntist líka
á þá furðulegu áráttu blaðamanna
og fleiri, að vilja helzt kalla kýr
skammaryrðinu beljur. Ég sá í
blaði frétt um, að kálfum hefði
verið slátrað, og síðan hefðu „dýr-
in“ verið grafin. tslendingur með
óbrenglað málskyn hefði aldrei
notað orðið ,,dýr“ þarna. Hann
hefði sagt ,,skepnur“ eða bara
„kálfar".
Annars ætlaði ég aðeins að
minnast á tvennt, sem alltof oft
heyrist f útvarpi og sjónvarpi og
sést í blöðum og virðist vera að
festast f málinu. Það eru orðasam-
böndin „að koma inn á eitthvað"
og „að koma til með að“, sem bæði
eru alveg óhæf. Ég náði báðum í
einni setningu um daginn. Maður,
sem annars vandar mál sitt, sagði:
„Þá ætla ég að koma inn á það, að
innan fárra ára kemur grunn-
skólalöggjöfin til með að“ . . .
gera hitt og þetta, sem ég skrifaði
ekki hjá mér. Fyrst ég náði báð-
um ambögunum f einu, gat ég
ekki stillt mig um að skrifa þér í
þeirri veiku von, að einhverjir
þeirra, sem oft koma fram á
„opinberum Vettvangi" taki eftir
þessari ábendingu. Hvort tveggja
er ættað úr dönsku og hvorugt
hægt að nota í islenzku, þó ekki
væri nema vegna flatneskjunnar,
sem hæfir ekki reisn íslenzk-
unnar.“
# Skemmdarstarf
unnið á
sögulegu merki
„Einn á Grfmsstaðaholt-
inu“ skrifar:
„Suður á Melum stendur hús.
Það þótti einu sinni stórt og
fagurt og veglegt, en þykir vfst nú
smátt og fjótt og rislítið. Alla vega
er virðingin fyrir þvf rokin út í
veður og vind hjá núverandi hús-
ráðendum. Hér á ég við gamla
húsið, sem eldri Reykvíkingar en
ég er segja mér, að hafi áður verið
loftskeytastöð og veðurstofa, en
nú er mér sagt, að félagsfræði-
deild háskólans sé þar til húsa.
Þegar ég man fyrst eftir þessu
húsi var það hvítt. Mesta athygli
við húsið vakti það, að yfir dyrum
var gamla fálkaskjaldarmerkið,
sem ísland hafði, þegar húsið var
reist. Það var blátt með hvítum
fálka, en yfir var gullkóróna.
Nú hefur húsið verið málað að
utan (kannski að innan líka?)
með sérstaklega ósmekklegu,
rauðu litarafbrigði. Mér er sagt,
að nemendur hafi sjálfir málað
húsið og ráðið litnum. Látum það
nú vera, en af hverju þurftu þeir
endilega að klína rauðu málning-
unni sinni yfir allt skjaldarmerk-
ið?
Hér er ekki aðeins um það að
ræða, að sögulegt merki sé
skemmt. (Ég efast um, að gamla
fáfkaskjaldamerkið sé lengur
annars'staðar við lýði á opinberri
byggingu). Hér er líka gengið i
þjónustu ljótleikans, því að húsið
er allt mun svipminna, nánast
orðið ljótt, við þessa breytingu.
Hvar eru nú Torfusamtökin?
Séu einhverjir eftir f deildinni,
bið ég þá vinsamlegast um að
reyna að fá upprunalegan lit á
skjaldarmerkið og helzt á húsið
allt Ein áGrfmsstaðaholtinu." |
Óskila hestur
Rauðskjóttur hestur, fullorðinn
er í óskilum i Lundarreykjardals-
hreppi. Mark ógreinilegt. Sneið-
rifað aftan, fjöður framan hægra,
sneiðrifað aftan vinstra. Hestur-
inn verður seldur um miðjan
þennan mánuð ef eigandinn
finnst ekki. Upplýsingar hjá
hreppstjóra.
VÉLA-TENGI
eZ-Wellenkuppluny
Conax Planox Vulkan
Doppelflex Hadeflex.
STURLAUGUR
JÓIMSSON
& CO.
Vesturqötu 16,
Simi 13280.
SÉRVERSLUN
MEÐ
SVÍNAKJÖT
/
SÍLD & FISKUR
Bergstaðastraeti 37 sími 24447
Þrýstimælar
Hitamælar
STURLAUGUR
JÓIMSSON & CO
Vesturgötu 1 6,
sími 13280.
STIGAHLÍÐ 45-47 SÍMI 35645
folaldabuff
folaldagúllas
folaldahakk
folaldakarbonade
folaldabjúgu
saltað folaldakjöt
reykt folaldakjöt
Urvals kjötvörur alveg
eins og þér vilj/ð hafa
þær.