Morgunblaðið - 05.11.1974, Side 38
38
MORGUNBLAÐIÐ, ÞRIÐJUDAGUR 5. NÓVEMBER 1974
Hrakspár hjá
Hull-mönnum?
s ^ '' * s •*' ■*. \ ' ?\ m 1 ' u f »* v * J| j ^ , M Mfm j tó |* , * / , i’rm S ^
Ludek Pachman og Pavel Tigrid ræða við Heinz Winfried Sabais á fundi útlagahöfunda I Darmstadt, Vestur-Þýzkalandi um helgina. Gabriel Laub forseti samtaka útlagahöfunda
Frá Mike Smartt.
Hull í gær.
TVEIR þingmanna Huil segja að
með beiðni um fjárhagsaðstoð
máli brezkur fiskiðnaður skratt-
ann á vegginn áður en erfiðleikar
hans séu orðnir raunverulegir.
Samkvæmt spám sem hafa
verið sendar rfkisstjórninni er
gert ráð fyrir að tap brezku
togaraútgerðarinnar fram til
september á næsta ári verði tólf
milljónir punda.
Onassis
á spítala
New York 4. nóv. Reuter.
ARISTOTELES Onassis var I
dag lagður inn á sjúkrahús f
New York til rannsóknar, að
þvf er skýrt var frá I dag. Ekki
er vitað, hvort milljóna-
mæringurinn er sjúkur eða
hvort þetta er almenn
rannsókn. Ekki var tekið fram
að heldur hversu lengi hann
yrði á spítalanum.
Pravda gleðst
yfirfundi Fords
og Brezhnevs
Moskvu 4. nóv. AP.
MÁLGAGN sovézka komm-
únistaflokksins, Pravda, sagði
í grein um helgina, að væntan-
legur fundur þeirra Brezhnevs
flokksleiðtoga Sovétrfkjanna
og Fords Bandarfkjaforseta
væri mikilvægt skref fram á
við f samskiptum landanna
tveggja. Sagði f greininni, að
Sovétríkin væru staðráðin f að
ganga áfram götuna fram f
bættum samskiptum og von-
andi að Ford væri sama sinnis.
Ford og Brezhnev hittast f
borginni Vladivostok dagana
23. og 24. nóvember. Hafa þeir
ekki hitzt frá þvf Ford tók við
embætti Bandarfkjaforseta.
Bourguiba fékk
99,98% atkvæða
Túnis 4. nóv. AP. Reuter.
HABIB Bourguiba forseti
Túnis fékk 99,98% greiddra
atkvæða í forsetakosningum í
landinu f gær. Hann var eini
frambjóðandinn, og byrjar nú
sitt fjórða kjörtímabil.
Stjórnarflokkurinn, Destour
sósíalistaf lokkurinn, bauð
einnig fram 112 menn — og
voru ekki aðrir i kjöri gegn
þeim.
Fyrsta verk hins nýkjörna
þings mun vera að skipa
Bourguiba forseta ævilangt.
Hann er nú 71 árs að aldri. Um
ein og hálf milljón manna voru
á kjörskrá.
Roderiques
handtekinn
Santiago4. nóv. NTB.
VINSTRISINNAÐI skæruliða-
foringinn Claudio Roderiquez
var handtekinn um helgina
eftir skotbardaga við hús
námumálaráðherra landsins.
Var sagt frá handtöku hans í!
dag. Roderiques hefur verið
mestur atkvæóamaður í hinum
svokallaða Byltingarher sem \
er bannaður. Þá hafa tveir-
fyrrverandi samstarfsmenn;
Allendes forseta verið leiddirí
fyrir rétt og ákærðir fyrir,
skattsvik.
Togararnir eru 309 og tapið á
hvern togara er áætlað tæp
400.000 pund að meðaltali. Þarna
er ekki reiknað með afskriftum
og vöxtum.
Vonazt er til að þessar tölur
sannfæri stjórnina um að þau lán
sem farið er fram á séu f raun og
veru nauðsynleg.
En James Johnson þingmaður
Hull West og formaður fiskimála-
nefndar Verkamannaflokksins
hefur lýst því yfir í Neðri málstof-
unni að fiskiðnaðurinn máli
skrattann á vegginn.
Hann sagði að ef fiskiðnaðurinn
vildi rikisstyrki yrði hann aó
koma með tölur sem sýndu að
þeirra væri raunverulega þörf.
Síðan hefur John Prescott þing-
maður Hull East tekið undir orð
Johnsons. Hann segir að
fiskiðnaðurinn verði að sýna
reikninga sfna svo að f ljós komi
hvernig hann hafi staðið fjárhags-
lega á liðnum árum og hvað
iðnaðurinn hafi fengið mikið af
sköttum og almannafé.
Jafnframt hefur verið tilkynnt
að Fred Peart fiskimála- og mat-
vælaráðherra fari í heimsókn til
Hull á næstunni. Fullvíst er talið
að forsvarsmenn togaraútgerðar-
innar vilji ræða við Peart um þá
alvarlegu erfiðleika sem steðja að
útgerðinni.
Moskva 4. nóv. AP.
EIGINKONA sovézka sagn-
fræðingsins Valentin Moroz hefur
fengið leyfi til að heimsækja
mann sinn í fangelsið á morgun
til að reyna að telja hann ofan af
því að halda hungurverkfalli sínu
áfram, að þvi er Andrei Sakharov
skýrði frá í dag.
Seul 3. nóv.
Reuter. AP.
AÐ MINNSTA kosti 91 maóur lét
Iffið f miklum bruna f gistihúsi
og næturklúbbi f Seul á sunnu-
dagsmorguninn. 1 fyrstu var álit-
ið að milli sjötfu og áttatfu manns
hefðu brunnið inni, en sfðar kom
f ljós að mun fleiri höfðu dáið.
Óttast menn jafnvel, að ekki séu
öll kurl komin til grafar.
Eldurinn geisaði á tveim hæð-
um hótelsins, og greip um sig
mikil skelfing meðal þeirra sem
inni voru. Dyr byggingarinnar
voru læstar, og virðist það hafa
verið gert til að forráðamenn
gætu verið vissir um, að enginn
laumaðist út án þess að greiða
reikninga sfna, að því er lögreglu-
heimildir segja.
Á fimmtu hæð hússins voru
22 íbúðir og bjuggu í þeim um eitt
hundrað manns. Var þeim öllum
bjargað. Verzlanir sem eru á
neðstu hæð voru opnaðar í morg-
un eins og venjulega.
Þetta var annar hótelbruni i
Seui á mánuði, þar sem menn
hafa brunnið inni. Þann 17. októ-
ber létu 19 manns lifið í bruna f
Namsanhóteli.
Svo virðist sem eldurinn hafi
kviknað út frá sígarettu og
breiddist hann út á örskömmum
tíma. Um tvö hundruð manns
voru í næturklúbbnum og tókst að
bjarga 40 út um glugga, og rúm-
lega tuttugu aðrir gátu forðað sér
Elliheimili
Santiago, 1. nóvember. Reuter.
HEIMILI Salvadors Allende heit-
ins forseta hefur verið breytt f
elliheimili og það var opnað f dag.
Einkaskeyti til Mbl.
Darmstadt, 4. nóv. AP.
Gabriel Laub, tékkóslóvakfskur
blaðamaður og gagnrýnandi var
kjörinn forseti Samtaka útlægra
rithöfunda úr PEN-klúbbnum á
tveggja daga ársfundi samtak-
anna f Darmstadt f Vestur-Þýzka-
landi um helgina.
Laub starfar nú við Die Zeit,
áhrifamikið vikublað f Hamborg,
sjálfir. Nokkrir biðu bana, þegar
þeir stukku í æði út um gluggana.
Mannskæðasti bruni í Seul varð
á jóladag 1971, en þá létust 160
manns er Daiynakgah hótel brann
til grunna.
og tekur við af Kasimir Werner
frá Darmstadt 1. aprfl 1975.
Varaforsetar voru kjörnir
Gyula Borbandi, ungverskur rit-
höfundur og gagnrýnandi, nú bú-
settur f Múnchen, og Antonin
Krotochvil, tékkóslóvakfskt
skáld, sem býr lfka f útlegð f
Múnchen.
Eitt helzta umræðuefnið á
fundinum f Darmstadt voru of-
sóknir gegn rithöfundum í sósfal-
istalöngum.
Um þetta voru samþykktar
þrjár ályktanir:
1. PEN-samtök útlagahöfunda,
þýzkumælandi deild, veittu með
ánægju eftirtekt á árlegum fundi
í Darmstadt að ungversku rithöf-
undarnir og þjóðfélagsfræðing-
arnir Gyoroergy Konrad, Ivan
Szelenyi og Tamas Szentjoby end-
urheimtu frelsi sitt. En okkur
þykir leitt aó ungversk rikisstjórn
sem er talin frjálslynd fer að
dæmi Rússa og Tékka og leyfir
ekki gagnrýni innanlands og
neyðir þannig nafnkunna höf-
unda til þess að fara úr landi.
2. Utlagahöfundar búsettir i
þýzkumælandi löndum veittu því
eftirtekt með ugg á árlegum alls-
herjarfundi sfnum að ungverski
rithöfundurinn Zoltan Kallos,
sem búsettur er í Rúmeniu, hefur
verið í stofufangelsi síðan í júli á
þessu ári án þess að dómstóll hafi
dæmt hann. Hann var fluttur til
óþekkts ákvöróunarstaðar og meó
honum hurfu allar vísindabækur
hans, hljóðritanir og minnisblöð.
Allsherjarfundurinn felur stjórn-
inni að reyna að gera allt sem í
hennar valdi stendur í samvinnu
við Alþjóða PEN-klúbbinn i
London til þess að fá Zoltan Kall-
os leystan úr haldi.
Framhald á bls. 39
Rabin neitar
ollum samskipt-
um við Arafat
Bonn 4. nóv. Reuter. AP.
YITZAK Rabin forsætisráðherra
Israels sagði f viðtali við þýzka
blaðið Der Spiegel, sem kom út I
dag að lsraelar myndu aldrei
fallast á að komið yrði á fót hlut-
lausu rfki Palestfnumanna, og
vildi hann ekki útiloka að Isra-
elar myndu koma sér upp bústöð-
um á vestari bakka Jórdanár.
Hann sagði að samningaviðræður
við PLO-samtökin væru óhugs-
andi með öllu.
Kvaðst hann telja að vandamál
Palestínumanna væru málefni
sem Israelar og Jórdanir yrðu að
leysa og þriðja rikið milli þessara
tveggja myndi vera eins og tíma-
sprengja, sem ógnaði bæði Israel
og Jórdaníu. „Ef Arabarikin
halda til streitu þeirri ákvörðun
að tilnefna Yasser Arafat i stað
Husseins Jórdaniukonungs til að
vera aðili að samningaviðræðum
um eystri landamæri ísraels, þá
verður ekki meira um viðræður,“
bætti Rabin við.
Rabin sagði aó eftir aðskilnað
herja Israels og Egypta hefði
hann vonað að þokazt myndi í
samkomulagsátt, stig af stigi og
það væri fráleitt að taka hátíðlega
að „hryðjuverkasveitir Yassers
Arafats fengju að vera aðilar, því
að þær eyðileggja friðarhorfur í
stað þess að bæta þær,“ sagði
Rabin.
Hann sagði einnig að sú ákvörð-
un Sameinuðu þjóðanna að bjóða
Arafat til New York til að ávarpa
Atlsherjarþingið hefði veikt vonir
manna um frið í Miðausturlönd-
Anders
Lange
látinn
ANDERS Lange, stofnandi og
foringi flokks þess I Noregi, er
við hann er kenndur og barðist
fyrir því að skattar yrðu lækk-
aðir og dregið yrði úr opinber-
um afskiptum, er látinn,
sjötugur að aldri. Banamein
hans var hjartaslag.
Við sæti Langes i Stórþinginu
tekur varamaður hans, Carl I.
Hagen, sem sagði sig úr flokki
hans ásamt Kristoffer Almás,
þegar hann klofnaði í vor. Hag-
en tók þátt í stofnun nýs flokks,
Umbótaflokksins, og er nú
varaformaður hans. Hann er
forstjóri sykurfyrirtækisins
Tate & Lyle.
Þannig fær enn einn smá-
flokkurinn fulltrúa í Stórþing-
inu. Flokkur Anders Lange
hefur tvo þingmenn, Vinstri
flokkurinn tvo, Nýi þjóðar-
flokkurinn einn og Umbóta-
flokkurinn einn þingmann.
Lange stofnaði flokk sinn í
fyrra og var kjörinn á þing í
haustkosningunum . Flokkur-
inn hlaut 106.000 atkvæði.
Anders Lange var skógfræð-
ingur og eftir nokkurra ára
dvöl í Argentínu varð hann
aðalritari Föðurlandsfylkingar-
innar (1930—38), og átti þátt í
því að bola Vidkun Quisling
burtu úr samtökunum.
Hann dvaldist oft i fangelsi á
stríðsárunum. Hann stundaði
hundarækt eftir stríð og gaf út
óvenjulegt blað, Anders Langes
Avis“ frá 1962, og fékk oft á sig
meiðyrðamál.
Lange var ritari „Lands-
foreningen Noregs
Sjöforsvaar" 1938 til 9. apríl
1940. Hann var ritstjóri Hunda-
blaðsins 1948—53 og 1960—61.
91 fórst 1 hótel-
bruna í Seul
um.