Morgunblaðið - 10.11.1974, Page 1
48 SIÐUR
222. tbl. 61. árg.
SUNNUDAGUR 10. NÓVEMBER 1974
PrentsmiSja Morgunblaðsins.
Ford aíturkallar
skípan Gibsons
Washington, 9. nóv.
AP—REUTER
GERALD Ford, forseti Banda-
rfkjanna, hefur afturkallað
skipan Andrews Gibsons í em-
bætti orkumálastjóra Bandaríkj-
anna eftir að upp komst, að hann
hefði fengið meiri háttar fjár-
framlag frá olfuflutningafyrir-
tæki, þar sem hann starfaði.
Andrew Gibson, sem á sínum
tíma var skipstjóri á kaupskipum
flotans, var um 16 mánaða skeið
framkvæmdastjóri fyrirtækisins
Interstate Oil Transport
Company í Filadelfíu. Þegar hann
lét af störfum þar fyrir sex mán-
uðum samdi hann um milljón
dollara greiðslu frá fyrirtækinu.
Ford skipaði Gibson nýlega I
embætti orkumálastjóra i stað
Johns Sawhills, en öldungadeild
bandaríska þingsins átti eftir að
staðfesta skipunina. Þegar upp-
víst varð um fjárgreiðsluna þótti
einsýnt, að það yrði ekki gert.
Kissinger til Washington:
Skildi eftir leyni-
legar friðartillögur
Túnis, 9. nóv.
AP—REUTER
DR. HENRY Kissinger, utanríkis-
ráðherra Bandarfkjanna, hélt
heimleiðis til Washington f dag
frá Túnis, sem var sfðasti áfanga-
staðurinn f ferðalagi hans. Haft
er eftir góðum heimildum, að
hann hafi skilið eftir leynilegar
tiilögur um hvernig koma mætti á
friði milli Ísrael og Arabarfkj-
anna og kunni að fara aftur
þangað fyrir ársiok til frekari
umræðna um þær.
ferð sinni, m.a. hafi hann verið
þeirrar skoðunar, aó tekizt hafi að
koma í veg fyrir að ný átök hæf-
ust i bráð milli ísraela og Araba
vegna úrslita leiðtogafundar
Arabaríkjanna á dögunum, þar
sem samþykkt var, að Frelsissam-
tök Palestínu-Araba, PLO, yrðu
málsvari allra Palestínu-Araba —
og þeirra viðbragða Israela að
harðneita að semja við þá. Er
Kissingér sagður trúa því, aó
samningamöguleikar séu enn
fyrir hendi.
Talið er, að þrjár af tuttugu og sex milljónum Eþíópiu-
búa liði matar- og vatnsskort. Ástandið mun óvíða
verra en í Dagabur, 5000 manna bæ í eyðimerkurlandi
í Austur-Eþíópíu, þar sem þessi mynd var tekin fyrir
skömmu af móður og sveltandi syni hennar úti fyrir
kornvöruverzlun.
Haft er eftir bandariskum
embættismönnum, að Kissinger
hafi talið nokkurn árangur af
Tillaga Filippseyja á matvælaráðstefnu S.Þ,:
30 sjómenn
brunnu
til bana
Tókíó 9. nóv. Reuter.
TALIÐ er, að 30 manna áhöfn af
líberísku flutningaskipi hafi
brunnið til bana, eftir árekstur
við japanskt skip, sem var með
innanborðs farm af fljótandi gasi.
Skipin rákust á f Tókíóflóa
snemma í morgun og herma frétt-
ir, að tveir Japanar hafi látið lff-
ið, þriggja væri saknað og sex
hefðu slasazt.
Þegar áreksturinn varð kom
upp gífuriegur eldur f líberfska
skipinu og skömmu síðar einnig f
japanska skipinu. Björgunarað-
gerðir voru þegar hafnar og flest-
um af sfðarnefnda skipinu tókst
að komast í björgunarbáta, en
nokkru síðar varð mikil spreng-
ing í skipinu.
Heimilið var í
rúst eftir dvöl
Burtonshjóna
Californíu 9. nóv. AP.
HÖFÐAÐ hefur verið skaðabóta-
mál á hendur leikurunum
Elizabeth Taylor og Richard
Burton að upphæð 2.944 dollarar,
vegna skemmda, sem þau ollu á
húsi, sem þau bjuggu i meðan þau
voru við kvikmyndaleik i norður-
hluta Kaliforníu í febrúar og
marz s.l.
Húseigendurnir Robert og
Antonia Henning sögðu fyrir
rétti, að gólfteppi og dýnur hefðu
verið gersamlega eyðilögð og
rúmin brotin niður, þegar þau
ætluðu að flytjast aftur inn i hús-
ið.
Calley
sleppt
WILLIAM Calley, liðþjálfi,
sem er eini Bandarfkjamaður-
inn, sem hefur verið dæmdur
fyrir þátttöku f fjöldamorðum
Bandarfkjamanna á Vfetnöm-
um f My Lai, verður látinn
laus úr fangelsi f dag. Hann
hefur afplánað einn þriðja af
tfu ára fangelsisdómi sfnum.
Upphaflega var Calley
dæmdur f Iffstfðarfangelsi en
sfðar var dómnum breytt f 20
ár og f aprfl sl. styttur í tfu ár.
Fulltrúar verði lokaðir inni með
matarskamt Kenyabóndans
1 i •! 1 • i i sc • x j •• ar w
— þar til þeir komast að niðurstöðu þessi skammtur, skulum við bara
eta okkar eigin orð. Ég er sann-
færður um, að þá gengur starfið
hér mun hraðar," sagði ráðherr-
ann.
Áður hafði hann gagnrýnt harð-
Róm, 9. nóv. AP — Reuter '
UTANRÍKISRÁÐHERRA Fil-
ippseyja, Carlos Romulo, lagði
til f ræðu sinni á matvælaráð-
stefnu Sameinuðu þjóðanna f
gærkveldi, að fulltrúarnir 2000,
sem þar eru saman komnir, yrðu
lokaðir inni meðan þeir væru að
komast að niðurstöðu um nauð-
synlegar ráðstafanir gegn mat-
vælaskortinum f heiminum og
jafnframt skyldu þeir á degi
hverjum fá matarskammt, er
svaraði til daglegs skammts
bænda f Afrfku og Asfu. Gaf
Romulo upp matseðilinn, og tók
mið af dagskammti Kenyubónd-
ans: Köld hveitikaka og heitur
hafragrautur og kannski mjólkur-
glas með. „Ef okkur Ifkar ekki
Norðurlandaráðsfundur:
Hvatt til samviimu á sviði orkumála
Álaborg, 8. nóv.
Frá Birni Jóhannssyni.
SVERRIR Hermannsson, al-
þingismaóur, sagöi Morgunblað-
inu í dag, að orkumálin væru það
höfuðverkefni, sem norræn sam-
vinna ætti að beinast að. Sverrir
sagði, að það skipti miklu máli, að
Norðurlöndin kæmu fram sem
ein heild á alþjóðavettvangi á
sviði orkumála og það skipti
miklu máli, að þau hefðu sem
bezta samvinnu í þeim efnum.
Sverrir benti á, að innan
skamms framleiddu Norðmenn
yfir 50 milljónir tonna af oliu
árlega og um 40 milljónir tonna af
gasi, en Noregur notaði aðeins 13
milljónir tonna af oliu á ári til
eigin notkunar. Þess vegna væri
ljóst, að Noregur væri vel aflögu-
fær til hinna Norðurlandanna.
Reiknað væri með, aó Noregur
gæti framleitt 96 milljónir tonna
af olíu árið 1980 eða meira en
helming þess olíumagns, sem
reiknað er með, að Norðurlöndin
noti þá, eða 160 milljónir tonna.
Sverrir Hermannsson benti á,
hversu mikilvægt væri fyrir ís-
land að geta keypt olíuna frá
Noregi í staðinn fyrir að kaupa
hana frá Rússlandi. Sverrir sagði
i þvf sambandi, að Rússar reyndu
að nota aðstöðu sína sem selj-
endur í pólitískum tilgangi og
víldu þannig hafa áhrif á utan-
ríkisstefnu íslands. Þessa þving-
un losnuðu Islendingar við, ef
þeir gætu fengið sína olíu frá
Norðmönnum.
lega, að starf ráðstefnunnar
skyldi tafið um heilan dag með
pólitfsku þrefi um varaforseta-
embætti þar.
Aður höfðu komið fram tillögur
um að fulltrúar föstuðu einn dag
til að reyna hvernig væri að vera
ekki saddur og sömuleiðis, að
menn skyldu greiða sekt fyrir
hvert kg, sem þeir væru umfram
eðlilega þyngd.
Um 800 fulltrúar á ráðstefn-
unni ganga í dag á fund Páls páfa
VI og sagði Romulo í ræðu sinni
kjörið að taka sér til fyrirmyndar
þær aðferðir, sem páfastóll notaði
við páfakjör, þar sem kardinálar
væru lokaðir inni í þröngum söl-
um og matarskömmtum þeirra
haldið f lágmarki meðan þeir
væru að ákveða sig.
Til þessa virðist störfum ráð-
stefnunnar lítið hafa miðað. Full-
trúi Sovétríkjanna Nikolai
Rodiouov hélt ræðu í gær, sem
hafði verið beðið með eftirvænt-
ingu; bæði lék mönnum forvitni á
að heyra viðbrögð Rússa við
megintillögunni, sem fyrir ráð-
stefnunni liggur, þ.e. tillögum dr.
Henrys Kissingers, utanríkisráð-
herra Bandaríkjanna, svo og
hvaða tillögur þeir hefðu sjálfir
fram að færa. Rodionov hafði
hinsvegar engar sérstakar tillög-
ur og minntist ekki á tillögu
Kissingers, kvað Sovétmenn hins-
vegar reiðubúna til aðstoðar við
að stuðla að aukinni matvæla-
framleiðslu i vanþróuðu ríkjun-
um.
Hugmyndir Kissingers gengu
út á, að komið yrði upp einskonar
matvælabanka með það fyrir aug-
um að vinna gegn verðsveiflum
og hafa birgðir til taks í neyðartil-
fellum. Sovétmenn hafa í einka-
viðræðum sýnt þessu lítinn
áhuga, talið alla annmarka á því
að réttar upplýsingar fengjust um
kornbirgðir einstakra landa og
hafa óttazt að alþjóðasamtök mis-
notuðu aðstoð sína i eiginhags-
munaskyni. Sovétmenn eru sjálf-
ir tregir til að gefa upplýsingar
um matvælabirgðir sínar og eru
einkum'þess vegna ekki aðilar að
FAO.