Morgunblaðið - 10.11.1974, Side 7

Morgunblaðið - 10.11.1974, Side 7
MORGUNBLAÐIÐ, SUNNUDAGUR 10. NÓVEMBER 1974 7 STRAUMAR Allt þar til hann lézt fyrir um þremur árum var Igor Stravinsky hinn óumdeilan- legi meistari nútíma tónlist- ar. Hann ríkti sem kóngur 1 ríki sínu, virtur og dáöur af allri alþýóu tónlistarmanna og unnenda nútíma tónlistar, og svo altækur í áhrifum sín- um, að í obbanum af nýklass- ískri tónskáldun nú siöari hluta 20. aldar má á einhvern hátt sjá móta fyrir Stravinsky á bak við verkin. Þaö er því ekki aó furða, þó að Stravinsky skildi eftir sig töluvert tómarúm i tónlistar- heiminum, þegar hann féll frá. Svo albjört sem veldi hans var, gátu menn í fljótu bragði ekki komið auga á neinn þann mann, er fyllti skarðið, sem Stravinsky skildi eftir sig og stendur svo enn. Á hinn bóginn stóð i skugga meistarans þyrping mikilhæfra tónskálda, sem mönnum hefur orðið star- sýnna á nú en áður en meist- arinn hélt yfir landamærin miklu, og það hefur verið vinsæl dægradvöl gagnrýn- enda að flokka úr þessum hópi þá er næstir þykja standa meistaranafnbótinni. Nú síðast tók Christopher Ford, hinn kunni gagnrýn- andi brezka blaðsins The Guardian (sem hér var á listahátíð í sumar), sig til og stillti upp þeim sex tónskáld- um, er hann telur verðuga meistaratitilsins. Þessi tón- skáld eru Benjamin Britten, Hans Werner Henze, Olivier Messiaen, Dmitry Skjostokovich, Karlheinz Stoekhausen og Michael Tippett. Ford rökstyður þetta val sitt í itarlegu máli, segir deili á tónskáldunum, grein- ir frá helztu verkum hvers og eins og segir kost og löst á hverjum. Ekki er hér rúm til að glugga að neinu ráði í grein Fords en engu að síður skal stiklað á fáeinum atrið- um. Hann getur i upphafi hinna gífurlegu áhrifa Stravinsky á alla tónskáldun á þessari öld og aö þeirra gæti mjög hjá öllum fyrrgreindum tón- skáldun nema einu. Það er Shostokovich en Ford full- yrðir, að einnig hann hefði talið sér til tekna að hafa átt þess kost að kynnast verkum Stravinsky i heimalandi sínu meðan hann var þar að mót- ast sem tónskáld. Raunar heldur Ford því fram, að áhrifavald Stravinsky hafi orðið svo algjört, að verk hans séu eins konar forskrift fyrir allar síðari tíma tón- smíðar, líkt og á við um Schönberg eða öllu heldur lærisvein hans, Webern, er hafi fágað svo tæknibrögð og kenningar meistara síns, að jafnvel Stravinsky hafi talið það göldrum næst. Þetta eigi við enn þann dag í dag nema hvað nú upp á siðkastið hafi gægzt fram enn annar meiri- háttar áhrifavaldur — Mahl- er, sem greina megi að hafi umtalsverða þýðingu fyrir helftina af hinum sex út- völdu: Henze, Britten og Shostokovich. Um landa sinn Britten (fædd- ur 1913) segir Ford, að hann eigi frægð sina fyrst og fremst að þakka óperuverk- um, stórum og smáum og nefnir sem dæmi Billy Budd, Dauða í Feneyjum og Peter Grimes. Hann telur Britten byggja á fremur hefðbundn- um grundvelli i verkum sín- um — samhljómun — og það eigi eins við þegar Britten hefur spreytt sig á 12-tóna stiganum. Styrkur Brittens sé fólgin í geysilegu tækni- legu valdi á yrkisefnum sin- um en veikleiki hans liggi eftir BJÖRN VIGNI SIGURPÁLSSON einna helzt í vöntun á tilfinn- ingalegri vídd. Annar í röðinni er Henze (fæddur i Þýzkalandi 1926) og um hann segir Ford, að þegar árið 1968 — eftir fimm sinfóníur og sex meiriháttar óperur — hafi hann skipað sér á bekk með tónsnillingum hinnar þýzk-austurrísku tón- listarhefðar. Um það leyti hætti Heinze tönsmíðum af pólitískum ástæðum og frétt- ist af honum þar sem hann vann við að skera sykurreyr á Kúbu. Á síðasta ári stormaði hann þó hljómléikahallir Vesturlanda að nýju með tónaljóði sínu „Heliogabalus Imperator“, sem Ford telur geta gefið til kynna, að tón- skáldið sé tekið að endur- skoða afstöðu sína. Af öðrum tónsmíðum Henze tilgreinir Ford sérstaklega Annan píanókonsertinn, sem sé e.t.v. magnaðasta verk þeirra tegundar allt frá því að Brahms samdi annan píanó- konsert sinn. Að dómi Fords er styrkur Henze ekki sizt fólginn í því hversu ótrúlega frjór hann er og útsjónar- samur við endurlífgun gamalla forma. Aftur á móti sé hann hvað veikastur fyrir þegar kemur að því að hann þarf að greina á milli tak- marka og leióa í tónsmíðum sinum. Um Olivier Messiaen (fæddur í Frakklandi 1908) segir Ford, að sennilega hafi ekki komið fram á tónlistarsviðið sérkennilegri Frakki en hann frá þvi að Berlioz var uppi. Ford getur þess, að verk Messiaen séu gjarnan af trúarlegum toga og nefnir tryggð hans við orgelið í því sambandi. Frægð Messiaen byggist ekki sízt á viðamikl- um tónsmíðum svo sem „Turangalila“ — tíu þátta sinfónísk Kama Sutra með flóknu hljóðfalli og allt að þvi hollywoodskri laglínu, ef menn eru einhverju nær. Þekktasta hljómsveitarverk Messiaen telur Ford „Et Exzpecto Resurrectionem Mortuorum" og í því sam- bandi nefndi Ford einmitt, að meginstyrkur Messiaen liggi ekki sizt í því hversu eftirminnileg verk hans verði; „Et Exspecto“ gleym- ist ekki þeim er eitt sinn hafi á hlýtt. Veikleiki hans sé hins vegar tilhneiging til að ofgera hugmyndir sinar. Dmitry Shostokovich (fæddur í Rússlandi 1906) mun lifa í tónlistarsögunni fyrir sinfóniur sinar, að dómi Fords, en þær eru nú orðnar fimmtán. Einnig telur hann strengjakvartettana Shosto- kovich til tekna. Tvívegis hefur Shostokovich farið út af spori því, sem listaráð- endur Sovétrikjanna hafa markað listamönnum sínum, en í bæði skiptin hefur Shostokovich brugðið skjótt við og samið sínar „höfuð- lausnir" að fordæmi Egils. Hann hefur þá verið tekinn 1 sátt að nýju en erlendis hefur einatt verið hnýtt i þessar „höfuðlausnir" hans í ljósi þess hvernig þær eru til orðnar. Ford tekur aftur á móti upp hanzkann fyrir þessi verk og minnir á, að Fimmta sinfónían, er samin var sem „svar sovézks lista- manns við réttmætri gagn- rýni“, er víða erlendis talið meðal hans beztu verka. Ford telur líka, að styrkur Shosto- kovich sé ekki sizt i því fólg- inn hversu farsællega honum hefur tekizt að leysa einn höfuðvanda nútíma tón- skálda — að semja háalvar- leg og inntaksrík tónverk, sem njóti um leið hylli alls þorra tónlistarunnenda. Veikleiki hans sé aftur á móti tilhneiging til útjösk- unar á hugmyndum sinum og eitthvað muni hann skorta á sjáifsgagnrýni. Ford er lítt hrifinn af mannin- um Karlheinz Stockhausen (fæddur 1928), segist af gæzku sinni geta kallað hann „síðari tíma Wagner" og að erfitt sé að kyngja staðhæf- ingum Stockhausens um „heilaga köllun“ hér á jörðu. Ekki viil hann þó hafa það af Stockhausen að þar fari tón- skáld með meira en góðar meðalgáfur. Af verkum hans nefnir Ford „Gruppen“ sem fremur aðgengilegt verk og frábærlega samið á alla lund, enda hafi það vakið athygli Stravinsky á Stockhausen. Einnig getur Ford framlaga Stockhausens til elektrón- iskrar tónlistar og þá sérstak- lega „Gesangder Junglinge" sem sé e.t.v. fegursta verk þessa unga tjáningarmiðils fram á þennan dag. Styrkur Stockhausen er að mati Fords fólginn í óbifandi sjálfsöryggi hans og þeim eiginleika „aó komast í gegn- um ólíklegustu hluti betur en nokkur dirfðist að vona“. Veikleiki hans er auðvitað gegndarlaust sjálfsálit og hvimleið æsimennska. Val Fords á sir Michael Tipp- ett (fæddur 1905) er kannski hvað umdeilanlegast og ein- hverjir kynnu að saka hann um að hafa þar um of látið stjórnast af þjóðerniskennd. Greinilega kemur fram í skrifum Fords, að hann dáir mjög mannkosti Tippetts, hann er í stuttu máli algjör andstaða Stockhausens — en um leið „hugsjónamaður og takmarkalaus húmanisti“. Af verkum Tippetts nefnir Ford sérstaklega óperuna The Midsummer Marriage, er geymi hafsjó af ljóðrænni, uppgötvan, en einnig konsert fyrir hljómsveit og Aðra píanósónötu hans, sem Ford segir skyld að þema, og óper- una „The Knot Garden“, þar sem fram komi ást Tippetts á blúsnum og birti um leið hin miklu áhrif, er Tippett hafi orðið fyrir frá Beethoven. Sex meistarar Tilboð óskast í Toyota Special árg. 1 972 í úrvals- standi. Möguleiki að taka Cortinu NL '72 upp í, lítið keyrðan. Upplýsingar á matartímum í sima 8-35-64 næstu daga. M. Benz 250 1970 mjög fallegur bill, til sölu. Sam- komulag með greiðslu. 2ja—5 ára skuldabréf kemur til greina. Einnig skipti. Simi.,1 6289. Brotamálmur KauDÍ allan brotamálm lanqhæsta verði. Staðgreiðsla. NÖATUN27 sími 25891. Mustang '68 6 cyl sjálfskiptur. Einstaklega fal- legur sportbíll til sölu. Samkomu- lag með greiðslu. Skipti koma til greina. Sími 1 6289. Menntaskólakennara (móður með 5 ára son) vantar 2—3ja herbergja íbúð í Hlíðunum eða nágrenni til langs tima sem fyrst og helst fyrir áramót. Simi 2-67-6 1 eftir 6. Vélvirki óskar eftir vinnu, helst úti á landi. Tilboð merkt: vélvirki 964 sendist afgr. Mbl. Tilfærsla á sparifé 3% greiðist strax aukalega fyrir að leggja inn á ársbók i banka. Algjörri þagmælsku heitið. Nafn og simanúmer leggist inn á afgreiðslu Mbl. merkt: 8764. íbúð óskast Einhleypan mann vantar sem fyrst 1 til 2 herb. eldhús og bað. Uppl. í síma 86566 á daginn kl. 9 — 17. Veggmyndir Gunnhildur kóngamóðir, (Sofðu rótt) i góbelini og flosi. Ný sending klukkustrengjajárna og bjöllur. Hannyrðaverzlunin Erla, Snorrabraut. Ungur maður óskar eftir að komast i rafvirkjun. Hefur 2ja ára reynslu. Upplýsingar i sima 38341. 47 mismunandi tegundir af saumuðum klukku- strengjum, púðum, stólum, mynd- um, pianóbekkjum, skemmlum og á borð. Hannyrðaverzlunin Erla, Snorrabraut. íbúð óskast Ung hjón, hjúkrunarkona og smiður með eitt barn óska eftir íbúð. Reglusemi og góðri um- gengni heitið. Upplýsingar í síma 32712. Scout II '73. til sölu 6 strokka, beinskiptur, afl- stýri og hemlar. Skipti á ódýrari bil koma til greina. Uppl. i sima 92-6556. Keflavík 4ra—5 herb. ibúð óskast-i Kefla- vik. Góðri umgengni heitið. Upplýsingar i sima 2945. Falleg 4ra herbergja enda- íbúð með 5. herb. og sér snyrtingu i kjallara, til sölu og laus. Uppl. næstu daga i sima 13243 og 41 628. Herbergi óskast Herbergi með eldunaraðstöðu óskast i Reykjavik. Upplýsingar i sima 92-2945. Flosmyndir Margar tegundir m.a.: Þingvalla- mynd, Bær i Hrútafirði og sjó- mannamyndir. Erum alltaf með okkar vinsælu flosnámskeið (fyrir bæði grófu og finu nálina). Handavinnubúðin, Laugavegi 63. Akranes Vil taka 2ja—3ja herb. ibúð á leigu á Akranesi. Upplýsingar i sima 25236. Reykjavik. Höfum Gobelínteppið Gunnhildi kóngamóðir (Sofðu rótt) á þrem verðum. Seljum einnig stakt munstrið. Handavinnubúðin Laugavegi 63. Stúlka óskar eftir atvinnu sem fyrst vön vélabókhaldi og almennum skrif- stofustörfum. Margt kemur til greina. Upplýsingar i sima 28373 næstu daga. Úrval af jólavörum Sérlega ódýrar áteiknaðar myndir. Púðar og klukkustrengir. Tilvalið til jólagiafa. Handavinnubúðin, Laugavegi 63. Jeepster árg. '68 með V 6 vél., i mjög góðu ástandi er til sölu strax. Þeir sem hafa áhuga, geta leitað nánari uppl. i s. 36917 milli kl. 12 og 13 (i hádegi). Margir þjóðlegir klukkustrengir Islandsstrengur, Grettissögu- strengur, Reykjavíkurstrengur, Akureyrarstrengur, Hornafjarðar- strengur, Vestmannaeyjastrengur, baðstofustrengur, sjómanna- strengur, búningastrengur o.m.fl. Handavinnubúðin, Laugavegi 63. Mótatimbur einu sinni notað 1 "X5" til sölu. Uppl. i sima 26856 eftir 7 á kvöldin. Keflavík — Suðurnes Til sölu i Keflavik 5 herb. einbýlis- hús. Verð 4,8 millj. Bila- og fasteignaþjónusta I Suðurnesja, Hafnargötu 50. Simi 92-2925 Grindavík Til sölu fokhelt raðhús. Skipti koma til greina á íbúð á Suður- nesjum. Sérstök kjör. Bíla- og fasteignaþjónusta Suðurnesja. Simi 92-2925. Keflavík Til sölu 5 herb. fallegt raðhús i byggingu. Bila og fasteignaþjónusta Suðurnesja, Hafnargötu 50. Simi 92-2925. íbúð í Fossvogi 4ra—5 herb. 1 28 fm til sölu eða i skiptum fyrir sérh., raðh. eða ein- býlish. Tilb. sendist Mbl.fyrir 15.11. merkt: ,,8763 '. Prjónakonur takið eftir j Kaupum lopapeysur, allar gerðir I og stærðir fullorðinna. Hækkað verð. Móttaka 1—4. Unex, Aðalstræti 9.

x

Morgunblaðið

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.