Morgunblaðið - 10.11.1974, Qupperneq 14

Morgunblaðið - 10.11.1974, Qupperneq 14
14 MORGUNBLAÐIÐ, SUNNUDAGUR 10. NÓVEMBER 1974 Aðdáendur brezku popphljóm- sveitarinnar SLADE geta nú loks varpað öndinni léttar eftir erfitt tímabil mikillar óvissu um það, hvort hljómsveitin kæmi eða kæmi ekki hingað til lands. Nú er u.þ.b. ár síðan fyrst var rætt um að fá SLADE hingað til hljóm- leikahalds og hefur gengið á ýmsu. Ámundi umhoðsmaður Ámundason tryggði sér endan- lega samninginn um komu hljóm- sveitarinnar eftir samningsrof brezka umboðsfyrirtækisins í Nazareth-málinu sællar minn- ingar. Hljómleikarnir verða f LaugardalshöIIinni á þriðjudags- kvöldið n.k. og hefjast kl. 20.30. Þar munu SLADE, sem að margra dómi er ein hressilegasta rokk- hljómsveit f heimi, leika í hálfa aðra klukkustund. Hljómsveitin er væntanleg til landsins á morg- un ásamt 12 aðstoðar og tækni- mönnum. Farangur hljómsveit- arinnar vegur um 11 tonn og er þar innifalinn umfangsmikill ijósaútbúnaður eins og nú virðist tilheyra öllum meiri háttar popp- hljómleikum. Ekki eru aliir á einu máli um tónlistarflutning SLÁDE, en eitt er þó vfst, að hljómsveitin er nú ein þekktasta popphljómsveit veraldar og hafa þeir félagar einkum fengið lof fyrir hljóm- leika sína, sem þykja hressilegir og frumlegir enda er sviðsfram- koma þeirra með eindæmum. Nýjasta lag hljómsveitarinnar „FAR FAR AWAY“ er nú f fyrsta sæti brezka vinsældalistans, en lagið, sem hefur fengið lofsverða dóma gagnrýnenda, þykir um margt ólfkt og talsvert íburðar- meira en fyrri lög þeirra félaga. 1 tilefni af hljómleikunum þótti SLAGSÍÐUNNI rétt að kynna hljómsveitarmeðlimi lítil- lega og er þar stuðst við ummæli þeirra sjálfra, sem síðan hefur verið snarað lauslega yfir á móð- urmálið. JAMES WHILD LEA, BASSI: „Ég fæddist á bjórkrá f Wolver- hampton, en í þeirri borg bjó ég fyrstu fimm ár ævinnar. Þá fluttist fjölskyldan í lítið sveita- þorp á landsbyggðinni þar sem ég óx upp fram á unglingsár. Mér gekk fremur vel f skóla, sérstak- lega í öllu er laut að listum, eins og t.d. teikningu. Ég var nfu ára þegar móðir mfn spurði mig hvort ég vildi læra á hljóðfæri. 1 hennar ætt eru og voru margir atvinnuhljómlistarmenn t.d. var faðir hennar fiðluleikari. Eg valdi fiðluna og hóf nú æfingar af fullum krafti. Eg var mjög áhuga- samur og æfði mig alltaf í minnst klukkutfma á dag enda náði ég ágætum árangri á skömmum tíma. Áhugi minn sveigðist þó fljótlega að dægurlagatónlist og þegar ég var 15 ára var hugurinn allur bundinn við gítar og The Shadows, — fiðlan vék til hliðar. Eg var fljótur að ná tökum á gítarnum og gekk í hljómsveit, sem kölluð var „Nick and the Axemen". Allt snerist um þessa hljómsveit og öllu öðru var fórn- að. Þetta olli foreldrum mínum talsverðum vonbrigðum, einkum að ég skyldi hafa gefið fiðluna upp á bátinn. Um þetta leyti lék ég á bassa, en átti þó engin tæki sjálfur enda náðu The Axemen engum vinsældum. Þegar hljóm- sveitin „The N Betweens", sem var vinsælasta hljómsveitin í þessum landshluta, auglýsti eftir bassaleikara sótti ég um. 1 þá daga voru meðlimir hljómsveit- arinnar átrúnaðargoð mín og ég varð mjög undrandi og glaður þegar þeir buðu mér starfið. Þetta var f rauninni upphafið að SLAIIE . . . NEVILLE JOHN HOLDER, SÖNGVARI/GlTAR: „Fyrstu hugsanir mfnar um framtfðarvinnu og framavonir voru í sambandi við kennslustörf og ég var ákveðinn f að verða kennari. Mér gekk ágætlega f barna- og unglingaskóla, — tók öil tilskilin próf og fór f mennta- skóla. Fyrstu þrjú árin lagði ég hart að mér við námið og hafði mikinn áhuga á landafræði, jarð- fræði og líffræði. En sfðan dofn- aði áhuginn á náminu og ég fór að slæpast um með hljómsveitar- strákum. Eg komst sjálfur yfir gítar og fór að fylgjast með nokkrum hljómsveitum og þannig lærði ég að spila. Eftir að hafa unnið um skeið á skrifstofu gerðist ég átvinnu- hljóðfæraleikari með hljómsveit, sem hét „Steve Brett and the Maveriks“, en þar lék ég á gítar og söng. Um þetta leyti var hljóm- sveitin „The N Betweens" mjög vinsæl f Wolverhampton. I Þýzka- landi kynntist ég tveimur með- limum hljómsveitarinnar, þeim Don og Dave, og tveimur mán- uðum seinna, er ég hitti þá aftur f Wolverhampton, var ákveðið að ég gengi f hljómsveitina. Okkur gekk ekkert vel f fyrstu, þvf að gamlir aðdáendur hljómsveit- arinnar voru ekkert hrifnir af breytingunni. Allir sögðu, að hljómsveitin yrði búin að vera eftir sex mánuði. Við fórum til Bahamaeyja og urðum þar fyrir áhrifum frá amerfskri soultón- list og þau áhrif leiddu okkur á þá braut, sem við erum á f dag. DONALD GEORGE POWELL, TROMMUR: „Það var skátaforinginn minn, sem vakti fyrst áhuga minn á trommuleik. Mér var falið það starf að hreinsa og halda við Hreyta á Egilsstöðum: Geldur foli hló síðast svo um munaði Á bænum Miðhúsum við Egils- staði var Slagsíðan á röltinu fyrir skömmu og hitti þá óvænt I þoku- hrúgaldinu forkunnarfagra hryssu og mömmu hennar, sem bar sig vel eftir aldri Slagsíðan tók hryssuna tali og spurði tíðinda úr tlð hennar. t' i- Hreyta, en svo heitir hryssan, á sérstæða sögu að baki þótt ung sé að árum, en þær hafa heldur ekki alltaf, blessaðar, verið umfram unga aldurinn, til þess að eiga rósótta sögu og margur situr með syndir feðranna fram úr öllu. Hreyta er

x

Morgunblaðið

Direct Links

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.