Morgunblaðið - 10.11.1974, Side 26

Morgunblaðið - 10.11.1974, Side 26
26 MORGUNBLAÐIÐ, SUNNUDAGUR 10. NÖVEMBER 1974 Vélsetjari óskast Upplýsingar í Félagsprentsmiðjunni, Spítalastíg 1 0. Nemi óskast á sama stað. Verkamenn í byggingavinnu Vantar nokkra verkamenn í bygginga- vinnu. Mötuneyti á staðnum. Upplýsingar á daginn í síma 86431, og á kvöldin í síma 35478. Bifreiðastjóri með meirapróf vanur akstri á stórum bifreiðum óskar eftir atvinnu, hvort sem er á vöru- eða fólksflutningabifreið. Upplýsingar i sima 31287. Múrarameistari getur tekið að sér verk, helzt utan Reykja- víkur. Upplýsingar í síma 71195 kl. 1 —3 e.h. næstu daga. ______________________________ Staða leiklistarstjóra við Ríkisútvarpið er laus til umsóknar. Laun samkvæmt kjarasamningum opin- berra starfsmanna. Umsóknareyðublöð eru afhent í aðalskrif- stofu Ríkisútvarpsins, Skúlagötu 4, fimmtu hæð. Umsóknir ásamt upplýsingum um mennt- un og fyrri störf sendist útvarpsstjóra fyrir 1 0. desember n.k. Ríkisútvarpið. Staða tónlistarstjóra við Ríkisútvarpið er laus til umsóknar. Laun samkvæmt kjarasamningum opin- berra starfsmanna. Umsóknareyðublöð eru afhent í aðal- skrifstofu Ríkisútvarpsins, Skúlagötu 4, fimmtu hæð. Umsóknir ásamt upplýsingum um mennt- un og fyrri störf sendist útvarpsstjóra fyrir 10. desember n.k. Ríkisútvarpið. Norræni tækni- og iðnþróunarsjóðurinn Nordisk Industrifond — (Pohjoismainen Teollisuusrahasto) óskar að ráða starfsmann Með samningum milli Danmerkur, Finnlands, (slands, Noregs og Svíþjóðar var, frá og með 1. júlí 1 973, stofnaður sérstakur tækni- og iðnþróunarsjóður. Hlutverk sjóðsins er að efla tæknileg rannsóknar- og þróunarverkefni á sviði iðnaðar, sem hafa sameiginlega þýðingu fyrir tvær eða fleiri Norðurlanda- þjóðir. Starfsemi sjóðsins annast sérstök stjórn, sem heyrir undir Norrænu ráðherranefndina. Stjórn sjóðsins, sem hefur aðsetur í Stokkhólmi, þarf með haustinu að ráða starfsmann til að kanna aðsendar tillögur um verkefni sjóðsins. Hann þarf að eiga frumkvæði að samstarfs- verkefnum og fylgjast með þeim viðfangsefnum, sem sjóður- inn styrkir. Almennar kröfur um starfsmenntun eru, að um- sækjandi hafi próf frá tækniháskóla og reynslu á sviði iðnaðar- starfsemi I einhverri eftirtalinna greina: véltækni, raftækni eða framleiðslutækni. Miklar kröfur eru gerðar til samstarfshæfi- leika. Finnskukunnátta væri talinn kostur. Starfsmaðurinn mun þurfa að ferðast nokkuð í sambandi við starfið, eínkum milli Norðurlandanna. Umsóknir, ásamt kröfum um launakjör, sendist í síðasta lagi 10. október 1974 til Nordisk Industrifond, Box 5103, 102 43 Stockholm 5. Nánari upplýsingar veitir framkvæmdastjóri sjóðsins, Rut Bácklund-Larsson, sími 141450 eða 615267 í Stokkhólmi — eða Árni Snævarr, ráðuneytisstjóri, sími 2 5000, Reykja- vík, og Dr. Vilhjálmur Lúðviksson, sími 1 6299, Reykjavik. Kristinn Sveinsson. Atvinna í Borgarfirði Vetrarmaður óskast til skepnuhirðingar og annarra bústarfa. Röskur unglingur kemurtil greina. Upplýsingar hjá undirrituðum (simi um Siðumúla) eða í sima 19291 Reykjavik eftir kl. 7 á kvöldin. Magnús Sigurðsson, Gilsbakka. Skrifstofustúlka Heildverzlun óskar að ráða skrifstofu- stúlku. Góð vélritunar- og málakunnátta nauðsynleg. Umsóknir er tilgreini menntun og fyrri störf, sendist skrifstofu Félags íslenzkra stórkaupmanna, Tjarnargötu 14. Afgreiðslumaður Viljum ráða afgreiðslumann í verzlun okkar að Nýbýlavegi 8. Upplýsingar á staðnum. Bygginga vöru verz/un Kópavogs. Blikksmiðir Vantar blikksmiði og vana aðstoðarmenn. Einnig vanan mann á höggpressu. Breiðfjörðs blikksmiðja h. f., Sigtúni 7, sími 35557. Verkamenn óskum eftir verkamönnum. Mikil vinna. Frítt fæði. Upplýsingar í síma 33395 á kvöldin. Tölvari Óskað er eftir starfsmanni til starfa við tölvu, gagnameðferð í vélasal o.fl. Tungumálakunnátta og góð almenn menntun er nauðsynleg. Æskilegur aldur umsækjanda er 20—25 ár. Umsóknareyðublaða má vitja á skrifstofu vorri að Háaleitisbraut 9. Skýrsluvé/ar ríkisins og Reykjavíkurborgar. Verkamenn Verkamenn óskast í byggingavinnu að Höfðabakka 9. Upplýsingar í síma 83640 og á vinnu- stað. Stúlka óskast hálfan daginn. Brauðgerðin, Barmahlíð 8. Verkamenn óskast Sambandið óskar að ráða verkamenn í byggingarvinnu. Upplýsingar veitir starfsmannastjóri í síma 28200 og verkstjóri í síma 35751. Samband íslenzkra samvinnufé/aga. Sauðárkrókur atvinna Vegagerð ríkisins óskar að ráða mann með trésmíðaréttindi að áhaldahúsinu á Sauðárkróki. Umsóknir með upplýsingum um fyrri störf þurfa að berast fyrir 30. nóvember n.k. Vegagerð ríkisins, Sauðárkróki, Sími: 95-5290. Rafvirkjar Fyrirtæki okkar óskar að ráða mann á aldrinum 23—30 ára með rafvirkja- menntun til lagerstarfa sem fyrst. Þeir, sem áhuga hafa á starfi þessu, sendi eiginhandarumsókn með upplýsingum um aldur og fyrri störf fyrir 22. þ.m. í pósthólf 519. SMITH & NORLAND H/F Verkfræðingar — Innf/ytjendur Pósthólf 519 — Reykjavík.

x

Morgunblaðið

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.