Morgunblaðið - 10.11.1974, Blaðsíða 28

Morgunblaðið - 10.11.1974, Blaðsíða 28
28 MORGUNBLAÐIÐ, SUNNUDAGUR 10. NÖVEMBER 1974 konungurlnn, -- ég er beztur!« HÉR birtist síðari hluti greinar brezka blaðamannsins David King um Muhammed Ali, hinn nýja heimsmeistara í þungavigt. Greinin byggist á viðtöium við ættingja, vini, þjálfara og aðdáendur heimsmeistarans. Heldur hér áfram frásögn vinar hans og þjálfara, Fred Stoners. VENJULEGUR unglingur nú tíl dags vill verða stjarna strax. Hann vill ekki þjálfa sig, þvf að það kostar fðrnir. Clay hafði bæði vilja og þrautseigju til að ná leikni f hnefaieikum. Æfði stöð- ugt það sem þurfti að læra. Hann hefur það til að bera, sem þarf til að sigra Foreman. Foreman er ekki hnefaleikamaður, hann hef- ur engan hraða. Hann er satt að segja klaufi, en getur veitt mjög þung högg. Clay þarf að vera mjög vel fyrirkallaður. Ef hann æfir sig rétt þá getur hann sigrað. Hann verður að nota sinn gamla stfl. Ilann verður að vera á stöð- ugri hreyfingu þangað tii bjallan hringir f sfðasta sinn. Hann verð- ur að hafa allan hugann við efnið. Ef hann getur haldið veili f sex til átta lotur þá fer Foreman að þreytast í handleggjunum og þá getur Clay byrjað að þjarma að honum. Þegar um heimsmeistarakeppni er að ræða, þá mega úrslitin ekki vera of jafnteflisleg. Áskorand- irm verður að vinna greinilega. Þannig á það að vera, og ég er ekkert fyrir gömlu aðferðina. Ég held að það væri vitleysa hjá Clay að reyna að rota hann, hann á að halda keppninni gangandi í 15 lotur. Ég ætla ekki til Zaire. Mín er þörf hér til þess að veita öðrum unglingum möguleika á því að komast þangað sem Ciay hefur náð. Þar að auki hef ég horft á hann keppa og það breytir engu að nú er heimsmeistarakeppni. Fyrir fyrstu þrjá atvinnuleiki sína kom hann aftur hingað til að æfa sig. Síðan gekk hann í kaup- sýslumannasamtökin. Ég tel að þar hafi hann gert rétt. Án þeirra hefði hann ekki komist i heims- meistarakeppnina. Þeir notfærðu sér hann ekki. Vegna höfuðstóls- ins, sem þeir settu á stofn fyrir hann verður hann aldrei fátækur eins og Sugar Ray Robinson. Eða lítum á Joe Louis, þeir notuðu hann — reyttu af honum hvern eyri. Hann endaði félaus eftir að hafa unnið sér inn miiljónir. Clay er of skynsamur til að það geti komið fyrir. Hvað hernum viðvík- ur, þá sögðu þeir að hann væri heimskur — ég mundi gjarnar vilja vera heimskur á sama hátt. Þeir útilokuðu hann frá atvinnu sinni og tóku frá honum titilinn. Þeir sviptu hann jafnvel vega- bréfi sfnu svo hann gat ekki keppt í öðrum löndum. Þeir mis- beitu dómsvaldinu. Hvernig gátu þeir gert það? Aðeins vegna þess sem hann trúði í einlægni og vildi ekki svíkja. Hann lét sig ekki og dáðist að áræði hans. Hann hefði getað unnið sér inn milljónir á þessu tímabili. Þetta varð til þess að fólk missti af að sjá hann þegar var upp á sitt bezta. Ég held ekki að hann sé orðinn þreyttur, en árin skilja eftir sig sín spor. Ég held að eftir þessa keppni dragi hann sig í hlé hvort sem hann vinnur eða tapar. Hann mun leggja fé sitt i arðvænleg fyrirtæki og koma aftur hingað. Honum þykir mjög vænt um móð- ur sína og mun ekki vilja vera of lengi burtu frá henni. Þessi Joe Martin — hann er af öðru sauða- húsi. Þetta hlýtur að vera mjög slæmt land þegar lögreglumenn ganga alltaf með byssu, kylfu og þess háttar, enda eru hvergi framdir fleiri glæpir í heiminum en hér. UNGICLAY Bili Faversham: Ég sá hinn unga Clay fyrst keppa í Gullnu hönzkunum og þegar hann byrj- aði að vinna undankeppnir Olympíuleikanna þá varð ég mjög hrifinn. Það var kvöldverðarboð heima hjá mér og Pat Calhoun og ég vorum að spila bridge í sjón- varpsherberginu þegar fréttin barst um að Clay hefði unnið und- ankeppnirnar. Við Pat sögðum hvor við annan: „Ef strákurinn vinnur Olym- piuleikana þá getum við gert eitthvað í málinu.“ Hann vann, og þegar hann kom heim aft- ur þá var hann að drukkna i tilboðum. Ég gerði ráðstafanir til aó hitta Clay og fjölskyldu hans. Þau komu öll heim til min ásamt Albertu Jones, sem er góður lög- fræðingur. Við ræddum málin. Þau hlustuðu af athygli. Ég sagði að ég vildi ekki að einhver not- færði sér hann til þess að græða nokkra dollara og léti hann siðan sigla sinn sjó. Ég sagði að við skyldum taka hann að okkur smátt og smátt og peningar skiptu engu máli. Cassius og Alberta Jones skildu hvað ég var að segja. Heilmargir umboðsmenn hugsa ekkert um hagsmuni hnefaleikamanna sinna. Við stofnuðum samtök 11 kaupsýslumanna. Þeir voru allir milljónerar nema ég. Fjölskyldan samþykkti þetta af þvi að við vor- um réttir menn. Við sendum Cassius til Archie Moore til þrjálfunar, en eftir þrjár vikur sagði Archie: „Ég get ekkert gert fyrir hann því hann er svo þrár. Þið eruð að eyða fjármagni ykkar ina hafði hann hitt Malcolm X oft. Angie og ég urðum tortryggnir. Við vissum að Rudy var þegar orðinn Muhamm- eðstrúarmaður. Þegar verið var að vigta þá Liston fór Cassius að haga sér eins og brjál- aður maður og vildi fara að slást við Liston. Við þurftum þrfr að halda honum. Það var í ráði að hætta við keppnina vegna móður- sýki Clays, svo við sendum dr. Pacheco heim til hans seinna um daginn til að skoða hann. Cassius lá á gólfinu og var að horfa á sjónvarp ásamt krökkum úr nágrenninu. Pacheco sagði að hann væri rólegasti maður í allri borginni svo að keppnin var háð. Cassiusi tókst mjög vel upp gegn Liston. Hann var fyrsti keppinautur Listons sem var stærri en hann. Sonny var vanur að stara nióur á andstæðinga sína fyrir keppni til þess að hræða þá. Hann gat ekki gert það við Cassius, hann þurfti að líta upp. Sonny var sú tegund hnefaleika- manna, sem ekkert hefur á móti því að lúskra á andstæðingnum, en getur ekki tekið því að verða fyrir höggi. Hann var útkeyrður í sjöundu lotu og stóð ekki upp. Cassius var alltaf i skuld við okk- ur. Einu sinni, stuttu fyrir áríð- andi keppni sagði hann við mig: „Ég hef séð Cadillac sem ég vil eignast. Þió eigið nóg af pening- um, kaupið hann fyrir mig.“ Ég sagði: „Allt I lagi“, vegna þess að ég vildi ekki að hann færi til keppni í vondu skapi. Við af- greiddum bilinn sem óafturkræfa skuld. Cassius hlýtur að eiga heil- mikla peninga núna, en á hinn bóginn gæti einhver verið að mjólka hann. Þegar Clay var upp á sitt bezta hefði hann getað sigrað Joe Louis og Marciano, en hann keppti aldrei þegar hann var upp á sitt bezta. Kaupsýslumennirnir hættu að skipta sér af honum þegar hann vildi vera meðal sinna eigin manna, Múhammeðstrúarmanna. Margir kaupsýslumannanna voru að missa áhugann á honum um þetta leyti hvort sem var. Cassius hefði ekki getað komið betur fram. Hann sagði okkur upp með sex mánaða fyrirvara og þakkaði okkur opinberlega í hnefaleika- hringnum. Svo þetta endaði allt í vináttu. „ANDI ALIS“ Bundini Brown (félagi Alis): Ég hef verið með Ali frá byrjun. Við unnum keppnir saman. Ég er andi hans. Guð talar gegnum mig. Ég er Gyðingur en ekki Múhammeðstrúar, en það er sami Hvernig Muhammed Ali endurheimti titilinn í vitleysu." Eg sagði að það þyrfti að taka I lurginn á honum og lét senda hann til baka. Síðan sömd- um við við Angelo Dundee, sem þekkti Clay frá því er hann keppti í Louisville. Angie er klár náungi. Hann er sá bezti sem við hefðum getað fegnið. Enginn hefur mikil áhrif á Cassius nema Cassius. Eitt skipti var Angie aó tala við frétta- mann í íþróttahúsinu. Hann sagði: „Þú færð að sjá nýtt högg, sem Cassius er að þjálfa sig í.“ Cassius heyrði þetta eins og Angie hafði ætlast til, og fór aó æfa höggið af kappi og notaði það í næstu keppni sinni. Ef Angie hefði talað um það við hann sjálf- an þá hefði hann aldrei fengist til að nota það. Á þennan hátt var það hans eigin uppfinning. GEGN LISTON 1 febrúar 1964 létum við skrá hann til kepnni við Liston. Eng- inn vildi veðja á Clay, enginn trúði á hann. Rétt fyrir keppn- guðinn, og Ali trúir því. Angelo gæti ekki gert það sem ég geri og ég ekki það sem hann gerir, en ég get bætt miklu við. Fyrstu orðin sem Ali sagði við móður sína voru: „G.G.“, það þýð- ir guðs gjöf. Þessi pláneta er fyrir fólkið — þig, mig og hana. Þú setur fræ í magann og úr því verður líf. Guð er faðir minn og ég elska hann. Hann veit það. Þess vegna fer hann vel með mig. En hann er afbrýðisamur faðir. Ef þú elskar hann ekki, þá kemur hann ekki eins vel fram við þig og hann gerir við mig. Þetta veit ég og ég fékk ekki að ganga I skóla. Hugsaðu um orðið „wornan". Það inniheldur bæði orðin. Ég held að guð hefði getað verið kona. Þú ert sonur minn, þú hefur aðeins verið á þessari plánetu í 6000 ár. Maóurinn varð til I Afríku, allt líf kemur þaðan. Þetta eru klossarnir, sem Ali var í í fyrstu keppninni við Frazi- er. Þeir eru nr. 13 — það þarf

x

Morgunblaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.