Morgunblaðið - 21.12.1974, Blaðsíða 2

Morgunblaðið - 21.12.1974, Blaðsíða 2
2 MORGUNBLAÐIÐ, LAUGARDAGUR 21. DESEMBER 1974 Norðfirðingar í Reykjavík bjóða aðstoð Norðfirðingafélagiö í Reykjavík og nágrenni sendir öllum Norðfirðing- um dýpstu samúðarkveðj- ur vegna þeirra hörmulegu náttúruhamfara, sem átt hafa sér stað, um leið og félagið býður alla þá að- stoð, sem það getur í té látið. Norðfjörður: Flugumferð óæskileg Almannavarnaráð hefur beðið Mbl. að koma þeirri ósk á framfæri, að flugvél- um verði ekki flogið yfir Norðfjörð á næstunni vegna hættu á, að hljóð úr þeim framkalli enn fleiri snjóflóð. Þá er þess einnig óskað, að skip þeyti ekki flautur á firðinum, því tíðni þeirra er yfirleitt á því bili, að þau gætu fram- kallað snjóflóð. Flugvélar brenna á ELDUR kom upp í flug- I skýlinu voru tvær flug- skýlinu á ísafirði um vélar, Piper Colt, 2ja sæta, klukkan 22.30 í gærkvöldi. sem gjörónýttist og Piper Norðvestanátt eyk- ur hættu á snjóflóði UNDANFARIÐ hefur norð- vestanátt verið rfkjandi við Norðfjörð, en maður, sem kunnugur er þar um slóðir sagði Morgunbiaðinu að það væri ein- mitt í þannig átt, sem mest væri hættan á snjóflóði. Þetta stafaði af þvf að algengt væri að þá blæsi yfir fjallgarðinn á milli Mjóa- fjarðar og Norðfjarðar og að hengjur mynduðust yfir Norð- firði. A miðnætti í nótt var búið að snjóa stanzlaust í tvo sólarhringa í Neskaupstað. Um það leyti sem flóðið skall yfir var norðlæg átt, ekki var vitað nákvæmlega um veðurhæð, en á Dalatanga var hún 6 til 8 vindstig. Við heyrðum einnig þá skýringu á snjóflóðinu að þar sem veður hefði verið milt í haust hefði snjór fallið á þýða jörð. Hiti úr jarðveginum hefði brætt neðsta snjólagið, svoaðfannir í fjallshlíðum hefðu beinlínis misst festuna og runnið af stað. Mbl. bar þetta undir Pál Berg- þórsson veðurfræðing, en hann taldi þetta fremur ósennilega skýringu. Sagði Páll að haustið og fyrrihluti vetrar hefði ekki verið hlýrri en í meðallagi, en síðasta hálfa mánuðinn hefði verið frost. Jörð hefði því verið gaddfreðin þegar snjór fór að falla. Páll áleit þess vegna að snjóflóðin væru bein afleiðing hinnar miklu snjó- komu undanfarna daga. Veðurstofan sagði í gærkvöldi að veður færi versnandi fyrir austan og var spáð vaxandi norð- anátt með éljagangi og snjókomu. ísafirði Aztec, 6 sæta, sem skemmdist mikið af reyk. Einnig voru f skýlinu dráttarvél, tveir bfiar og jeppabifreið. Hin sfðast- nefnda gjöreyðilagðist. Slökkviliðið. á ísafirói brást skjótt við og þegar það kom á staðinn tók slökkvistarf skamman tíma. Alls leið um hálf klukkustund frá því er slökkviliðið fór af stað og unz eldurinn var slökktur, en um 7 km leið er á flug- völlinn. Hörður Guómundsson hjá Flugfélaginu Erni, er átti stærri vélina, sagði i viótali við Mbl. í gærkvöldi að upptök eldsins hefðu verið í vinnuskúr flug- umferðarstjórnarinnar, sem var inni í skýlinu. 3 meiriháttar snjóflóð síðustu 100 ár urðu 62 að bana ÞRJU meiríháttar snjóflóð hafa átt sér stað sfðustu 100 ár. Mestur var mannskaðinn f snjó- flóði, sem féll á Seyðisfjörð árið 1885 og fórust þá 24 menn. Féll flóðið úr Bjólfstindi og sópaði 14 fbúðarhúsum út f sjó. I þessum húsum bjuggu alls 85 maRns, og slösuðust margir þeirra meira og minna. Það var klukkan rúmlega 8 um morguninn hinn 18. febrúar að flóðið féll úr Bjólf- inum, sem er snarbratt fjall rétt ofan við kaupstaðinn, en gffurlegt fannfergi hafði verið þann vetur á Norður- og Aust- urlandi. t Öldinni sem leið er eftirfar- andi frásögn höfð eftir sjónar- votti, sem skrifaði frá Seyðis- firði: „Þegar atburðurinn skeði, voru menn ckki aimennt risnir úr rekkju. Um leið og snjóflóð- ið féll, dimmdi svo yfir, að sýni- legur munur varð á birtu f kaupstaðnum á eftir. Ég var með þeim fyrstu, sem komu þar að, og þvflfka sjón hef ég aldrei séð á ævi rninni." 14 fbúðarhús hafði flóðið hrif- ið með sér og ýmist gersamlega sópað þeim út f sjó eða fram f flæðarmál, þar sem þau lágu mölbrotin. Einnig var margvfs- legt brak úr fbúðarhúsum og fjölda útihúsa vfðs vegar á grundinni milli fjalls og fjöru. Var hryllilegt að koma þarna að. Ur öllum áttum heyrðust óp og vein þeirra sem fyrir snjó- flóðinu höfðu orðið. Margir voru særðir og slasaðir. Menn komu naktir hvaðanæfa, vaðandi gcgnum snjó og fs. Segir sjónarvotturinn enn- fremur að grafið hafi verið f húsarústunum dag eftir dag, þegar fært hefði verið fyrir ill- viðri, sem staðið hefði þá f 3 vikur með miklu fannfergi. Atta þeirra, sem fórust, voru börn. 20 FÓRUST 1 HNÍFSDAL Föstudaginn 18. febrúar árið 1910 skall snjóflóð yfir Hnffs- dalsþorp. Fórust 20 manns, en margir slösuðust og eignatjón varð mikið. Kom flóðið f kjöl- far látlausrar stórhrfðar, sem staðið hafði f um hálfan mánuð. Höfðu geysilegar hengjuT myndast f Búðarhyrnu, sem stendur yfir þorpinu. Það var stundarf jórðungi fyr- ir klukkan 9 að hengja f Búðar- hyrnu féll með miklum hvin og ægilegum hraða niður yfir þorpið og náði yfir nálega 150 faðma svæði. Sópaði flóðið burtu fbúðarhúsum og sjóbúð- um og flutti út f sjó. Enginn hafði svigrúm til að forða sér. Tvær heilar fjölskyldur fór- ust f flóðinu og ein ung telpa missti foreldra sfna og bróður. Skörð voru höggvin f aðrar f jöl- skyldur, og þrjú börn sem voru á gangi á leið f skóla biðu bana ásamt öldruðum manni, sem fylgdi þeim. Fjöldi manns vann við snjó- mokstur og margir komu fót- gangandi til hjálpar frá Isa- firði, þvf sjór var ófær. Tvö lfk fundust aldrei, en hinir 18 fengu eina gröf f kirkjugarðin- um á lsafirði. 18 LÉTU LlFlÐ VIÐ SIGLUFJÖRÐ Um klukkan fjögur aðfara- nótt laugardags 14. aprfl 1919 féll geysilegt snjóflóð úr Staðarhólsfjalli austan Siglu- fjarðar gegnt kaupstaðnum, en á brún fjallsins hafði hlaðist ógurleg hengja. Var flóðið um 1000 faðma breitt og fór með geysilegum hraða til sjávar yfir sfldarverksmiðju Evangers og bæinn á Neðri-Skútum og sóp- aði 7 húsum út f sjó. Snjórinn féll f sjó m'eð svo miklu afli að flóðbylgja tætti sundur bryggjur hinum megin fjarðar- ins og mölbraut nokkur timbur- hús. Fórust þar nfu manns. Svo mikill var fallhraði snjóskrið- unnar að loftþrýstingurinn einn sópaði burt 30 nótabátum, sem allir brotnuðu f spón. Um sama leyti féll snóflóð á bæinn Engidal f Siglufjarðar- dölum, þar sem allt heimilis- fólkið, sjö að tölu, týndi Iffi, og á bæina Vfk og Amá f Héðins- firði, þar sem tveir fórust.

x

Morgunblaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.