Morgunblaðið - 21.12.1974, Blaðsíða 32

Morgunblaðið - 21.12.1974, Blaðsíða 32
32 MORGUNBLAÐIÐ, LAUGARDAGUR 21. DESEMBER 1974 María Hróðmunds- dóttir Aalen - Minning F. 14. 11. 1902 D. 11. 12. 1974 Kveðja frá fóstursystur. „Hún mamma er dáin.“ Þegar fóstursonur minn bar mér þessa sorgarfregn var sem syrti að í herbergi mínu, þar sem ég ligg nú rúmföst og næstum ósjálfbjarga, orðin 86 ára gömul. Ég hef haft nægan tíma til þess að rifja upp endurminningar frá liðnum árum, og margt kemur í huga minn. Ég man þegar komið var með þessa litlu stúlku á heimili foreldra minna, Jóhönnu Jónsdóttur og Jörundar Jóhannessonar, að Ketilshliði á Alftanesi, þá aðeins 1 árs, og henni komið í fóstur hjá ökkur, en þá voru þar fyrir fleiri börn og þar á meðal hálfbróðir hennar, Engilbert. Þau systkinin ólust upp hjá okkur til fullorðinsára og kom það að mestu leyti i minn hlut að annast uppeldi hennar, þar sem ég var þá orðin 14 ára gömul og margt um manninn í litla bænum á Hliði. Það er margs að minnast og verður ekki allt rifjað upp hér, en ég geymi endurminningarnar í huga mér og mun rifja þær upp með sjálfri mér á kvöldi æfi minn- ar. Mig langaði aðeins til þess að færa Mægu minni þakklæti mitt fyrír ástúð hennar og það, að hún skildi eftirláta mér, elsta barnið sitt, sem ber nafn föður míns, til uppeldis, þar sem mér varð sjálfri ekki barna auðið. Ég veit að góður Guð tekur á móti Mæju minni i ríki sitt og munum við þar aftur hittast fóstursysturnar og vera saman í landinu eilífa. Ég harma það að geta ekki fylgt henni til grafar, en hugur minn er hjá þeim Alberti, börnunum tengdabörnunum og barnabörnunum og sendi ég ykkur öllum mínar innilegustu samúðarkveðjur og bið góðan Guð að blessa ykkur öll. „Á hendur fel þú honum“ — sálmurinn, sem hún mamma söng svo oft fyrir okkur börnin sín í litlu baðstofunni á Hliði, mun hljóma yfir líkbörum Mæju minn- ar, og hún mun taka á móti henrii með þann sálm á vörum í landinu eilífa. Guð blessi minningu hennar. Margrét Jörundsdóttir. Þegar dauðann ber að höndum hjá þeim sem er manni kær þá eru orð svo innihaldslaus og túlka svo lítið miðað við þá sorg sem fyllir hjarta manns. Fáeinar línur segja ósköp litið um alla þá hlýju ástúð og um- hyggju sem maður var umvafinn I návist Maríu Hrómundsdóttur. Þó að okkar kynni hafi ekki spannað mörg ár er hugur minn fullur af góðum endurminningum og þakk- læti fyrir þá umhyggju sem hún sýndi mér og minu heimili, sér- staklega litla Baldvin Albert sem nú missir ömmu sína aðeins 6 mánaða gamall. Aldrei gleymi ég þegar hún sagði; þá orðin mjög sjúk: „Ég ætla að lifa það að sjá barnið ykkar.“ Og Guð gaf henni þann frest. En einhvern veginn trúðum vió því að henni myndi batna eitt- hvað,þessa 4 daga sem hún var á Borgarspitalanum hresstist hún svo ótrúlega mikið og var svo glöð og kát. María Hrómundsdóttir Aalen fæddist 14. nóv. 1902 að Breiða- bólstað. á Álftanesi og var 72 ára er hún lézt. 72 ár eru kannski ekki langur hluti af mannkyns- sögunni en ef þau eru notuð fyrst og fremst til að hlúa að og hjálpa öðrum þá verður miklu áorkað á þeim tima. Líf hennar var ekki alltaf dans á rósum, en alltaf gat hún staðið upprétt og búið manni sinum og börnum gott heimili, allt lék í höndum hennar hvort sem voru hannyrðir eða önnur störf á heimilinu. Þeir tímar sem hún var að koma upp börnunum sinum 6 voru erfiðir tímar og ekki alltaf úr miklu að moða en þau María og Albert hjálpuðust að og þetta gekk allt. Eftirlifandi manni sínum Al- bert B. Aalen giftist María 18. 4. 1942 og hafa þau því verið gift í 32 ár og var umhyggja þeirra hvors fyrir öðru til fyrirmyndar. Á Albert nú um sárt að binda og vona ég að góður Guð gefi honum styrk til að halda áfram með stuðningi barna sinna, því að síð- ustu orð Maríu þegar hún fór á sjúkrahúsið við börnin sin voru: „Verið þið góð við hann pabba ykkar.“ Svona var hún, hugsaði ekki um sjálfa sig, heldur fyrst og fremst um aðra. Ef eitthvað bjátaði á á minu heimili hringdi hún oft á dag til að spyrja hvort hún gæti hjálpað og gaf góð ráð. Hennar skarð verður aldrei fyllt, en við verðum að sætta okkur við það sem lífið færir okkur þó að það sé ekki alltaf það sem okkur finnst best. Við þökk- um henni allt og biðjum góðan Guð að launa henni allt sem hún var okkur. I.K. Helgi Asgeirsson — Minningarorð Helgi hafa fengizt við tónsmíðar, en fór dult með. Við, kona mín og ég, komum í Borgarnes um 1930. Nýkomin á þesnnan stað (Borgarnes) áttum við því láni að fanga að eignast vináttu þessara ágætu hjóna, Helga og Svövu. Entist sú góða kynning meðan þau lifðu. Helgi lézt að heimili dóttur sinnar 13. des. s.l. — Við munum ávallt geyma í þakklátum huga minningu þessara góðu hjóna, alla þeirra velvild og ástúð í okk- ar garð. Ásgeir Þ. Ölafsson. SVAR MITT EFTIR BILLY GRAHAM Einu sinni heyrði ég yður segja: „Ég ámargavini meðal skemmtikrafta." Og stundum sé ég yður 1 skemmtiþáttum sjónvarpsins. Fólkið 1 skemmtanaiðnaðinum lifir hvorki f hreinleika, réttlæti eða guðhræðslu né afneitar girndum heimsins. Hin fjölmörgu hjónabönd þessa fólks staðfesta þetta. Ein af þeim er Debbie Reynolds. Þér voruð einu sinni gestur á heimili hennar. Hún er fráskilin. Billy, eruð þér lélegur leíkari? Bibllan segir: „Vinátta við heiminn er fjand- skapur gegn Guði“ (Jakobsbréf 4,4). Þér hafið óvart hrósað mér, þó að ég eigi það ekki skilið. Þér hafið borið á mig sömu sakir og Drottinn varð að þola af hálfu faríseanna: „Hví etur meist- ari yðar með tollheimtumönnum og syndurum?“ Nei, ég er ekki lélegur leikari. Konan mín og vinir mínir segja, að enginn maður hafi eins litla leikara- hæfileika og ég, og ég held, að þau hafi rétt fyrir sér. Það er aðeins eitt, sem fyrir mér vakir, þegar ég kem fram í skemmtiþáttum og sit stöku sinnum veizlu í Hollywood, og það er að heiðra og vegsama hann, sem hefur kallað mig að vera predikari og boðið mér að flytja fagnaðarerindið öllum þeim, sem á vegi mínum verða. Þér dragið alla í sama dilkinn: „Fólkið í skemmtanaiðnaðinum lifir hvorki í hreinleika, réttlæti eða guðhræðslu“. Þetta eru ósmekkleg ummæli. Ég þekki margt kristið fólk i þessarastétt manna, fólk eins og Roy og Dale Rogers, Cliff Riehard og Dick VanDyke. Það er hrópleg ósann- girni að skipa öllu Hollywood-fólki í flokk fráskil inna og óþokka. Einstigið milli Hafnar- fjarðar og Reykjavíkur Athugasemd við grein Gísla Sigurðssonar í Mbl. 10. þ.m. 1 grein sinni bendir G.S. rétti- lega á, að fráleitt væri að leggja Minning: Karl Guðmundsson i Helgi Ásgeirsson fæddist 23. nóv. 1893 að Knarrarnesi á Mýr- um. Foreldrar hans voru hjónin Ásgeir Bjarnason í Knarrarnesi og Ragnheiður Helgadóttir frá Vogi. — Helgi ólst upp hjá for- eldrum sínum í Knarrarnesi en fór ungur til náms í hinn almenna Menntaskóla í Reykjavik, en lauk þar ekki námi. 1921 gekk Helgi að eiga frænd- konu sína Svövu Jónsdóttur frá Álftanesi. Hófu þau hjónin bú- skap á ökrum á Mýrum og bjuggu þar í nokkur ár. Síðar fluttust þau Helgi og Svava til Borgarness og rak Helgi þar verzlun um skeið ásamt öðrum störfum. 1939 flutt- ust þau Helgi og Svava til Reykja- vikur og stundaði Helgi þar skrif- stofustörf meðan honum entist heilsa. Þau Helgi og Svava eignuðust eina dóttur barna, Ragnheiði Ásu. Ragnheiður er gift Árna Waag. Helgi Asgeirsson var glæsilegur maður, rifur meðalmaður á vöxt, mjög þrekinn um herðar, fríður sýnum, þrekmenni og karlmenni að burðum. Helgi var fjölhæfur gáfumaður. Hann hafði mikið yndi af tónlist, lék á píanó og orgel, undi hann sér timum sam- an við hljóðfærið. Nokkuð mun dag er til moldar borinn kær vinur. Okkur skilur þá að fjar- lægðin og gröfin. En þá vináttu, sem milli okkar hefur myndast gegnum árin, fær ekkert rofið, ekki einu sinni dauðinn. Ég trúi því statt og stöðugt, að við eigum eftir að hittast aftur hinum megin og jafnvel ganga þá suður Laufás- veginn sem áður fyrr. En tómt er nú eftir að hann er farinn, því að það eru menn eins og hann, sem gefa manni trú á lífið, svona sterkir og heilsteyptir menn, sem aldrei bregðast i raun. Svo margoft hefur hann staðið við hlið mér í erfiðleikum, og ég vildi að ég gæti gefið aðeins örlítið upp í það i staðinn. Ég er áreiðanlega ekki einn um að syrgja hann og sakna, þvi að vafalaust hafa ótal- margir aðrir fengið að kynnast mannkærleika hans, en jafnframt einbeitni einurð og hreinskilni. Minningarnar leita á, ljúfar, angurblíðar minningar. Yfir þeim öllum er ljómi. Þær eru mér allar heilagar, minningar um þann besta vin, sem nokkur getur eign- ast. Ég ætla ekki að rekja æviferil hans, sem ekki var alltaf dans á rósum. Þetta er aðeins örlitil kveðja frá vini til vinar, en þó ekki kveðja, vegna þess ég finn, að hann er ekki farinn svo langt. Hann biður eftir okkur hinum og heldur starfinu áfram hinum megin, óþrjótandi, ósigrandi. Ég hið guðina að vaka yfir hon- um og gefa honum styrk og einnig börnunum hans og konunni hans, Dísu, og föður og systkinum og öllum öðrum, sem sakna hans. Sundsvall, 6. desember 1974. Björgvin M. Oskarsson. + Þakka hjartanlega auðsýnda samúð og vinarhug þeirra er styrktu okkur t Faðir okkar, fósturfaðir og bróðir við fráfall og minningarathöfn eiginmanns mlns. FRIÐMAR SÆDAL GUÐMUNDAR GÍSLASONAR, MARKÚSSON Aðalstræti 15, ísafirði. sem andaðist 8 des. verður jarð- Sérstakar þakkir færi ég útgerðarfélaginu Hrönn h.f., útgerðarmanni sunginn I Fossvogskirkju mánu- þess, skipstjóra og skipsfélögum öllum daginn 23. des kl. 13.30. Fyrir hönd barna okkar, móður hins látna og systkina. Friðmar M. Friðmarsson Tryggvi S. Friðmarsson Ragna Sólberg. Ragnhild ísaksen Ingibjörg Benjamlnsdóttir. Afmælis- og minningar- greinar ATHYGLI skal vakin á þvf, að afmælis- og minningargreínar verða að berasi blaðinu með góðum fyrirvara. Þannig verður grein, sem birtast á í miðvikudagsblaði, að berast f sfðasta iagi fyrir hádegi á mánudag og hliðstætt með greinar aðra daga. Greinar mega ekki vera í sendibréfs- formi eða bundnu máli. Þær þurfa að vera véiritaðar og mcð góðu linubili. fjármuni í gerð Reykjanesbrautar" áður en ráðist yrði í verulegar endurbætur á Hafnarfjarðarvegi, ef Reykjanesbraut létti ekki nema um 18% umferðar af Hafn- arfjarðarvegi. Að visu kemur stærðargráðan 18% fram í viðtali Margrétar Bjarnason við undirritaðan í Morgunblaðinu 17. nóv. s.l., en er þó I miðri umræðu um óformlega breytingartillögu Garðahrepps við tillögur svæðisskipulags- nefndar um legu hins nýja vegar og á einungis við dreifingu um- ferðar miðað við breytingartillög- una. Breytingartillögu Garða- hrepps var hafnað einmitl á þess- um grundvelli. Sé hins vegar miðað við tillögur svæðisskipulagsnefndar er áætlað að um 40% umferðar Hafnar- fjarðarvegar flytjist á hina nýju Reykjanesbraut, þegar hún hefur verið tengd milli Breiðholts og Hafnarfjarðar og væntanlega enn meiri hluti, þegar byggð Garða- hrepps og einkum Hafnarfjarðar þróast lengra til austurs eins og fyrirhugað er. Fyrirsögn greinar G.S. bendir ótvirætt á kjarna málsins. Meðan Hafnarfjarðarvegurinn er eina tengingin milli fjölmennra byggða er öryggi vegakerfisins geysilega ábótavant og raunar óþolandi. Þess vegna hefur verið lagt til að leggja eina akbraut Reykjanesbrautar, áður en hafist erhandaum endanlega gerð Hafn- arf jarðarvegar, þótt æskilegt væri að sjálfsögðu, að fjármagn fengist til hvorutveggja samtímis. Reykjavík, 11.12.74 Sigf. Ö. Sigfússon.

x

Morgunblaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.