Morgunblaðið - 21.12.1974, Blaðsíða 26
MORGUNBLAÐIÐ, LAUGARDAGUR 21. DESEMBER 1974
Uthlutun viðbótarritlauna:
42 höfundar hlutu
285 þúsund hver
(JTHLUTUNARNEFND viðbótar-
ritlauna hefur lokið störfum, en
menntamálaráðherra skipaði
nefndina hinn 21. nóvember síð-
astliðinn f samræmi við reglur
um viðhótarritlaun frá 11. nóvem-
ber. Nefndin auglýsti eftir upp-
lýsingum frá höfundum um rit-
verk útgefin eða flutt 1973 og
bárust henni 98 umsóknir. Nefnd-
in hefur nú veitt 42 aðilum við-
bótarritlaun og nemur f járveiting
til hvers þeirra 285 þúsund krón-
um, en greiðsla fjárins hefst eftir
áramótin.
I úthlutunarnefndinni áttu sæti
Rannveig G. Ágústsdóttir B.A. og
Bergur Guðnason lögfræðingur,
tilnefnd af Rithöfundasambandi
Islands, og Þorleifur Hauksson
cand. mag. tilnefndur af kennur-
um í íslenzkum bókmenntum við
Háskóla tslands, og var hann jafn-
framt formaður nefndarinnar.
Hér fer á eftir skrá yfir þá höf-
unda, sem viðbótarritlaun hlutu:
Viðbótarritlaun 1974.
Armann Kr. Einarsson, Baldur
Óskarsson, Birgir Sigurðsson,
Björn Th. Björnsson, Björn Þ.
Guðmundsson, Björn Magnússon,
Björn Teitsson, Einar Bragi, Elín-
borg Lárusdóttir, Guðbergur
Bergsson, Guðjón Sveinsson, Guð-
mundur G. Hagalín, Gunnar
Benediktsson, Gunnar Gunnars-
— Grófu 9 ára son
sinn úr snjóflóði
Framhald af bls. 48
að grafa nær allt féð upp —
aðeins vantaði um 9 kindur. Um
70 kindur grófust lifandi úr fönn-
inni af 130, sem flóðið féll á.
Aðein? ein kind var særð, en
annað fé, sem úr rústunum kom
var dautt. Ofan á fjárhúsinu var
lítil hlaða og hefur heyið úr þvf
fokið út um allar trissur. Hefur
bóndinn á Selstöðum, Kristján
Eyjólfsson, orðið fyrir miklum
skakkaföllum af völdum snjó-
flóðsins, en Svandfs húsfreyja
kvað þau hafa önnur fjárhús rétt
fyrir innan í firðinum og sagði
hún að reynt yrði að hýsa féð úr
ónýtu fjárhúsunum þar. Einnig
myndu þau losa hesthúsið og hýsa
þar fé. Morgunblaðið spurði Svan-
dísi, hvort snjóflóð hefði nokkurn
tíma áður fallið á þessum stað.
Hún svaraði:
„Nei, ég hefi aldrei heyrt talað
um að snjóflóð hafi fallið á þess-
um stað, en hins vegar hér dálftið
utar hefur oft komið snjóflóð.
Faðir minn, sem er látinn, hafði
áður átt heima hér í 78 ár og hafði
hann aldrei heyrt talað um snjó-
flóð hér og sögðu það honum
gamlir menn.“
Strax og fréttist af snjóflóðinu
á Selstöðum kom slysavarnadeild-
in á Seyðisfirði til Selstaða á
tveimur bátum og bændur af
næsta bæ komu einnig. Voru því
margir, sem unnu að mokstri á
Selstöðum í gær, en gjörsamlega
ófært er þangað vegna snjóa nú.
Sfðastliðna viku hefur verið
stanzlaus snjókoma á Seyðisfirði
og hefur snjóað geysilega mikið.
Ofan við Selstaði er allbrött hlíð
og hafði safnazt f hlíðina mikið
snjómagn, sem svo hljóp fram f
gær.
— Bókmenntir
Framhald af bls. 10
kvæmni, þá er hann lýsir hinum
ýmist bitru eða ljúfsáru minning-
um hins einförula tryggðatrölis á
siglingunni yfir flóann, en marg-
ur lesandi mun vissulega njóta
þess að fylgja gamla manninum á
hans hinztu siglingu og setja sér
hann fyrir sjónir, þá er hann legg-
ur leið sína upp á Álfhól til móts
við æskuást sína og hin slynga
sláttumann.
Hafi svo skáldið og útgefandinn
þökk fyrir þessa eftirminnilegu
hók
son, Gunnar Gunnarsson,
blaðam., Gunnar M. Magnúss,
Hannes Pétursson, Hrafn Gunn-
laugsson, Indriði G. Þorsteinsson,
Ingimar Erlendur Sigurðsson, Jó-
hann Hjálmarsson, Jón Gunnars-
son, Jón Óskar, Jónas Guðmunds-
son, Jökuil Jakobsson, Kári
Tryggvason, Kristján frá Djúpa-
læk, Lýður Björnsson, Magnús
Þór Jónssorí, Njörður P. Njarðvfk,
Oddur Björnsson, Ólafur H. Sím-
onarson, Óskar Clausen, Sigurður
Guðjónsson, Stefán Júlfusson,
Steinar J. Lúðvíksso.i, Thor Vil-
hjálmsson, Yngvi Jóhannesson,
Þóra Vigfúsdóttir v/Kristins E.
Andréssonar, Þorgeir Þorgeirs-
son, Þóroddur Guðmundsson.
Þingdeildar-
fundum lauk
1 GÆR lauk sfðustu fundum þing-
deilda fyrir áramót. Efri deild
afgreiddi sem lög frá Alþingi
frumvarp um lögsagnarumdæmi
Hafnarfjarðar, sem gerir ráð fyr-
ir eiiftilli stækkun þess. Neðri
deild afgreiddi sem Iög frá Al-
þingi frumvarp um Hótel- og veit-
ingaskóla Islands.
Deildarforsetar, Þorvaldur
Garðar Kristjánsson og Ragnhild-
ur Helgadóttir, þökkuðu þing-
mönnum og starfsliði Alþingis
samstarf á Ifðandi ári og árnuðu
þeim gleðilegra jóla og velfarnað-
ar á nýju ári.
Fundir voru f sameinuðu þingi
f gærkveldi og voru þar m.a. fjár-
lög ársins 1975 á dagskrá.
„Auður á Heiði”
— ný skáldsaga eftir
Ingibjörgu
Sigurðardóttur
KOMIN er út ný skáldsaga eftir
Ingibjörgu Sigurðardóttur, „Auð-
ur á Heiði". Er það 17. bók höf-
undar.
Sögunni er skipt í marga kafla
og eru kaflaheitin sem hér segir:
Þá skein sól í heiði á Heiði, Skýja-
far, Dregur upp bliku, Syrtir í
lofti, Skammvinn skýjarof, Syrtir
í lofti á ný, Uggvænlegar horfur,
örþrifaráð, A bersvæði, Flutt bú-
ferlum, Braggaævi, Heimsókn frá
Heiði, Glataði sonurinn, Heim-
koman, Friður, Um sumarsól-
stöður og Sól skfn f heiði á Heiði.
Sagan er 128 bls. að stærð.
Utgefandi er Bókaforlag Odds
Björnssonar.
Þessi mynd er úr miðstöð Almannavarna f iögreglustöðinni I Reykjavfk, og þar sjást t.v.: Guðjón
Petersen, sem stjórnaði aðgerðum Almannavarnaráðs, Guðrún Valdimarsdóttir og Guðrún Gfsladóttir
(Ljósm. Ól.K.M.)
— Umfangsmikið björgunarstarf
Framhald af bls. 48
um kl. 12.30 í nótt. Áttu þessir
menn að hvfla örþreytt björg-
unarsveitarlið heimamanna, sem
hafa verið að störfum í allan dag.
Irafoss var f Neskaupstað, þegar
snjóflóðið féll, og fór til
Reyðarfjarðar til að sækja ýtur
og gröfur þar, en aðeins eitt
moksturstæki var tiltækt í Nes-
kaupstað eftir að snjóflóðið féll.
Eimskipafélag Islands bauð fram
fleiri skip sfn til hjálparstarfsins
og kom það sér mjög vel, þar eð
sjóleiðin var ein fær til Neskaup-
Ölívuvopnahlé í
Suður-Líbanon
Beirut, Tel Aviv,
20. desember — AP.
ISRAELSSTJÓRN og Palestínu-
skæruliðar hafa gert með sér
„ólfvuvopnahlé" f Suður-Lfbanon
til þess að leyfa bændum þar að
vinna að uppskeru sinni, að þvf er
dagblöö f Bcirut sögðu f dag og
fsraelska herstjórnin staðfesti
sfðdegis. Hafa Israelar gefið
óformlegt samþykki um að gera
ekki sprengju- eða skotárásir á
bændur f hlfðum Hermonfjalls,
en svæði það gengur undir nafn-
inu Fatahland eftir stærsta
skæruliðaflokki Frelsishreyfing
ar Yasir Arafats, AI Fatah. Varir
vopnahlé þetta á meðan bændur
eru að skera upp, — svo framar-
lega sem skæruliðarnir á þessu
svæði hefja engin hermdarverk.
Hafa skæruliðarnir samþykkt
að draga sig í hlé og fara frá
ólívulundunum á meðan uppsker-
an stendur yfir. Herma dagblöð í
Líbanon, að ríkisstjórnin í Beirut
hafi átt frumkvæði að þessu sam-
komulagi vegna þess að bændur á
þessum slóðum eigi á hættu að
missa algerlega Iffsviðurværi sitt
vegna undangenginna átaka og
hermdarverkastríðs Israela og
skæruliða í Fatahlandi.
staðar. Þannig var Lagarfoss á
Fáskrúðsfirði og fór þaðan í gær-
kvöldi með björgunarmenn áleið-
is til Norðfjarðar. Selfoss var á
Akureyri og fór þaðan rétt fyrir
miðnætti með 3 dieselrafstöðvar
— tvær 20 kw. og eina 100 kw., en
mikill rafmagnsskortur er innar-
lega í Norðfirði. Skipið er
væntanlegt til Neskaupstaðar í
dag. Það mun einnig taka frystar
fiskafurðir úr frystihúsinu í Nes-
kaupstað og flytja á hafnir suð-
vestanlands, þar eð allar frysti-
vélar hússins eru ónýtar.
Varðskipið Ægir var statt út af
suðurströndinni, þegar atburður-
inn gerðist, og var því þegar
stefnt til Neskaupstaóar. Um borð
I varðskipinu eru súrefnisbirgðir,
en fyrirsjáanlegt var að súrefnis-
birgðir sjúkrahússins dygðu ekki
nema fram undir morgun. Ægir
var væntanlegur til Neskaupstað-
ar um kl. 10 I morgun. Súrefnis-
birgðir voru til í Irafossi, en skip-
ið var væntanlegt aftur til Nes-
kaupstaðar í morgun.
Tveir læknar eru starfandi í
sjúkrahúsinu í Neskaupstað, en
þriðji læknirinn var væntanlegur
þeim til aðstoðar með vb. Sæberg
I nótt.
Aukin strandgæzla við
Færeyjar og Grænland
EIDEN Muller, fréttaritari
norska sjávarútvegsblaðsins
„Fiskeren“ í Færeyjum, segir I
grein f hlaðinu 9. des. s.l., að á
næstu árum standi til að herða
mjög landhelgisgæzluna við
Færeyjar og Grænland.
Ástæðurnar á bak við þessa
ákvörðun dönsku stjórnarinnar
eru í fyrsta lagi þörf fyrir að veita
færeyskum og grænlertzkum
fiskimönnum aukna vernd gegn
áreitni erlendra togara og í öðru
lagi nauðsyn þess að hert sé á
eftirliti með ferðum óviðkomandi
skipa, sem gera sér orðið tíðari
ferðir inn á flóa og firði i þessum
löndum. Vegna ferða ókunns kaf-
báts innan grænlenzkrar land-
helgi fyrir skömmu, þurftu dönsk
stjórnvöld að senda herskip á
vettvang.
I frétt sinni segir Eiden Muller,
að s.l. tvö ár hafi sovézki flotinn
aukið mjög umsvif sín i Norður-
Atlantshafi, og jafnan hafizt stór
sovézk flotadeild við á hafsvæð-
um, er liggja ekki fjarri Færeyj-
um og Islandi. Af og til verða
Færeyingar varir við ókunna kaf-
báta inni á fjörðum og sundum i
Færeyjum.
Hafþór Jönsson f kortaherbergi Almannavarna