Morgunblaðið - 21.12.1974, Blaðsíða 7
MORGUNBLAÐIÐ, LAUGARDAGUR 21. DESEMBER 1974
Jólin í
Betlehem og Nazaret
Talsmaður ferðamálaráðu-
neytisins í ísrael hefur skýrt
frá þv! að búizt sé við um 40
þúsund erlendum ferða-
mönnum til Landsins helga
um jólin, en kaupmenn í
fæðingarborg Jesús eru ekki
bjartsýnir á að þessi ferða-
mannastraumur reynist þeim
mikil tekjulind.
„Viðskiptin voru mjög léleg
! fyrra . . . það komu svo fáir
ferðamenn til Betlehem,"
sagði eigandi minjagripa-
verzlunar við Jötutorg, við
kirkjuna, sem markar fæð-
ingarstað Krists.
Að sögn ferðamálaráðu-
neytisins komu 40.800
erlendir ferðamenn til ísraels
í desember í fyrra þrátt fyrir
spennuna, sem ríkti í landinu
eftir októberstríðið. Aðeins
örfáir þeirra tóku sér ferð til
Betlehem um jólin.
Að sögn talsmanns ráðu-
neytisins komu 11 þúsund
erlendir ferðamenn til ísraels
fyrstu tíu daga desember í
ár, El Al flugfélagið hefur selt
12 þúsund farmiða til lands-
ins i jólavikunni, og um 1 5
þúsund ferðamenn eru vænt-
anlegir milli jóla og áramóta.
Fjögur þúsund gestir eru
væntanlegir með skemmti-
ferðaskipum um jólin, og bú-
izt er við að fjöldi manns
komi til landsins yfir Allenby-
brúna frá Jórdaníu, að sögn
ráðuneytisins.
,,Það er óhætt að fullyrða
fyrirfram að meirihluti ferða-
mannanna verður kristið
fólk, ekki Gyðingar," sagði
talsmaðurinn. Gyðingar hafa
nýlokið við að halda upp á
Hanukka-hátið sína, sem
stendur í átta daga.
,,Við vonum að fleiri heim-
sæki Betlehem í ár en í
fyrra," sagði talsmaður ara-
bísku yfirvaldanna þar.
í Nazaret, þar sem Kristur
ólst upp, hafa fulltrúar
kaþólsku kirkjunnar ákveðið
að jólamessan, sem venju-
lega hefur hafizt á miðnætti á
aðfangadagskvöld, hefjist að
þessu sinni klukkan niu um
kvöldið. Blaðið Jerusalem
Post hefur það eftir einum af
talsmönnum kaþólikka að
þessi ákvörðun hafi verið
tekin til að koma ! veg fyrir
næturhávaða og ólæti, sem
oft hafa fylgt miðnæturmess-
unni.
Segir blaðið að meðal
messugesta hafi venjulega
verið viss hópur hávaða-
samra unglinga, og sumir
þeirra drukknir. Með því að
flýta messuhaldinu, verði
komizt hjá drykkjulátum í
kirkjunum.
Nazaret á annars við mikla
efnahagsörðugleika að striða
um þessar mundir. Borgar-
búar eru um 38 þúsund, og
svo til allir Arabar. Borgar-
stjórinn sagði nýlega af sér
vegna stjórnmálaágreinings
innan borgarstjórnarinnar
eftir að kommúnistar fengu
kjörna 7 fulltrúa af 15. Varð
borgarstjórnin óstarfhæf, og
ákveðið að skipa sérstaka
utanflokkastjórn til að annast
borgarstjórnina um óákveð-
inn tíma. Borgarstjórinn
heitir Ali Haidar, og er að
sjálfsögðu Arabi.
Á tímum Krists var Nazaret
Gyðingaborg, og eftir að
ísraelar endurheimtu borgina
! styrjöldinni 1948 varð
Nazaret nokkurs konar óopin-
ber höfuðborg Araba ! ísrael.
Eru íbúarnir allir borgarar i
ísrael.
Fátt er það í Nazaret, sem
rekja má til daga Krists.
Borgin er aðeins nokkur
hundruð ára, en þar úir og
grúir af kirkjum og klaustr-
um. Faðir Peter Eichelberger
hefur búið ! Nazaret í 30 ár.
Hann er munkur, og fluttist
til borgarinnar frá Chicago.
Ekki er hann ýkja hrifinn af
Krists-dýrkuninni i sambandi
við borgina. ,,Hér er hús, sem
ferðamenn streyma að,
kallað „Hús Jósefs smiðs".
segir faðir Peter. „En húsið á
ekki við nein söguleg rök að
styðjast."
Haidar borgarstjóri er ekki
heldur alls kostar ánægður
með það hlutverk, sem
Nazaret gegnir í huga krist-
inna manna. Allar kirkjurnar
og klaustrin eru baggi á
borgarsjóðnum. „Kirkjurnar
eiga um þriðjung allra fast-
eigna í Nazaret," segir borg-
arstjórinn, „en þær borga
enga skatta. Tekjur borg-
arinnar nægja því engan
veginn fyrir útgjöldum, og
verður ísraelsstjórn því að
leggja fram um 240 milljónir
króna í ár til að endar nái
saman. Við eigum ! miklum
erfiðleikum. Okkur vantar til
dæmis um 200 skólastofur,
og vegakerfið er i molum.
Eina umferðargatan í Nazaret
er Vegur Páls páfa VI, og þar
ríkir alltaf algjört umferðar-
öngþveiti."
En þrátt fyrir efnahags-
örðugleika og stöðuga
styrjaldarhættu, sem u fur
minnkað ferðamannar
inn til ísraels um ai
30%, segir faðir Peter að
búast megi við þvi að kirkj-
urnar í Nazaret verði yfirfullar
á aðfangadagskvöld Segir
hann að ákveðið hafi verið að
gefa út aðgöngumiða að
sumum messunum svo borg-
arbúar fái aðgang að eigin
kirkjum.
Talið er að fáir ferðamenn heimsæki fæðingaborg Jesú ! ár
7
Chrysler New York 1973 Mjög glæsilegur bíll til sölu. Skipti koma til greina. Samkomulag með greiðslu. Sími 4321 2. Körfugerðin Ingólfsstræti 1 6 auglýsir: Barna- og brúðukörfur ásamt klæðningu i mörgum litum. Einnig teborð. Sími 12165.
Springdýnur Gerum við notaðar springdýnur. Skiptum um áklæði ef þess er óskað. Tilbúnar samdægurs. Opið til kl. 7 alla daga. K.M. Springdýn- ur, Helluhrauni 20, Hafnarfirði, sími 53044. Jólatré rauðgrenitré — sáldfri og sígræn eðalgrenitré — eðalgreni — blaðtuja — fjallafura og silkifura. Jólatréssalan Drápuhlið 1.
Innilegustu þakkir færi ég öllum þeim sem
glöddu mig með gjöfum og heillaóskum á
sextugsafmæli mínu þann 1 1. des. s.l.
Sérstaklega vil ég þakka meðlimum hljómsveit-
arinnar „Kjarnar" fyrir þeirra góða framlag.
Valdimar J. Auðunsson, frá Dalseli
Grenstanga, A-Landeyjum.
Eiginmenn —
Eiginmenn
Gjöfin sem gleður er
falleg grávara.
Feldskerinn,
Skólavörðustíg 18,
sími 10840.
fLONDON
DÖMUDEILD —
AUSTURSTRÆTI 14
Náttkjólar mikið úrval
Undirkjólar
Sloppar frotté
Sloppar vattstungnir
Tweedpils stutt og síð
London dömudeild
Austurstræti 14.
VALIÐ ER
VANDALAUST
AEG
RAFFIVEL
IEÐA BRAUÐRIST
BRÆÐURNIR ORMSSON %
LÁGMÚLA 9 SÍMI 38820