Morgunblaðið - 21.12.1974, Blaðsíða 5

Morgunblaðið - 21.12.1974, Blaðsíða 5
MORGUNBLAÐIÐ, LAUGARDAGUR 21. DESEMBER 1974 5 Lionsmenn styrkja hjálpar- sveit til bifreiðakaupa Ytri-Njarðvfk, 18. des. FORSVARSMENN Hjálparsveit- ar skáta í Ytri-Njarðvík buðu fréttamönnum að skoða nýja frambyggða GAZ-bifreið af rúss- neskum uppruna, sem sveitin hef- ir nýlega fest kaup á og lokið við að innrétta sem björgunar- og sjúkrabifreið. Lionsklúbbur Njarðvíkur veitti sveitinni 150.000 kr. styrk til kaupa á bif- reiðinni, en áður hafði klúbbur- inn gefið sveitinni talstöð í eldri bíl sveitarinnar. Samkvæmt upplýsingum Birgis Olsen, formanns hjálparsveitar- innar, var sveitin stofnuð 1968 og voru félagar þá 14, en eru nú 43. Hjálparsveitin skiptist í 3 deildir, þ.e. leitarflokk, kvennadeild og froskmannadeild. Hjálparsveitin hefir nú yfir að ráða tveimur frambyggðum tor- færubilum og getur flutt alls 9 sjúklinga. Meðal annars tækja- búnaðar sveitarinnar má nefna fullkomna fjarskiptastöð, sem getur þjónað öllum Suðurnesjum þegar um leit er að ræða. Það vakti furðu manna, að björgunar- sveitir verða að borga skatt til Póst- og símamálastjórnar af jafn sjálfsögðum tækjabúnaði og tal- stöðvar eru. Auk fjarskiptabúnaðar er björgunarstöð sveitarinnar búin fullkomnum almannavarnabún- aði, sem notaður yrði, ef til hóp- slysa kæmi á svæðinu. Aðstaða sveitarinnar til leitarstjórnar, birgðavörzlu og sjúkramóttöku er mjög góð. Hjálparsveitin nýtur nokkurs styrks frá Njarðvíkurhreppi til starfsemi sinnar, en að öðru leyti aflar hún fjár m.a. með flugelda- sölu fyrir hver áramót. Fæstir munu gera sér fulla grein fyrir hvílíkt starf og fórn- fýsi liggur að baki slfkri starf- semi. Samkvæmt upplýsingum Birgis Olsen þá hafa útköll leitar- flokka verið allt að 20 á ári og leitir staðið frá einum og upp í sex daga. Þegar þar við bætist að hjálparsveitarmenn fórna, auk þess 2—3 helgum á ári í æfingar auk ótal kvölda sem fara I ýmiss konar þjálfun, þá er augljóst, að félagsskapur eins og hjálparsveit- irnar, ekki aðeins f Njarðvfkum, heldur víðsvegar um landið, eiga skilið að borgararnir létti þeim starfið með nokkrum krónum, þegar til þeirra er leitað. Enginn veit hvenær hann sjálfur, eða hans nánustu þurfa á aðstoð hjáiparsveitar að halda. — BÞ. NYSKIPAÐUR sendiherra Júgóslavfu hr. Gojko Zarkovié afhenti forseta tslands trúnaðarbréf sitt 12. þ. mánaðar að viðstöddum við- skiptaráðherra Ólafi Jóhannessyni. Sfðdegis þá sendiherrann boð forsetahjónanna að Bessastöðum ásamt nokkrum fleiri gestum. Sendiherrann hefur aðsetur f Oslo. 15 manns leit- uðu skjóls í Fornahvammi AÐFARARNÓTT fimmtudagsins var gestkvæmt í Fornahvammi. Frá miðnætti og fram undir morg- un knúðu þar dyra 15 ferðalang- ar, sem ýmist tókst að brjótast þangað heim f ófærð og svartri skafhrfð, eða komu gangandi frá bílum sínum sem þeir höfðu orðið að yfirgefa vegna hríðarinnar, en þessa nótt var frostið þar efra 12 stig. A fimmtudaginn komust bíl- arnir nær allir af stað strax um' morguninn og gat fólkið þá haldið ferð sinni áfram ýmist norður yfir heiði eða suður á bóginn. Ný bók um Hönnu Maríu eftir Magneu frá Kleifum KOMIN er út fjórða bókin um Hönnu Marfu eftir Magneu frá Kleifum. Nefnist hún „Hanna Marfa og Viktor verða vinir“. Hanna Marfa á heima í Koti hjá afa sínum og ömmu. Á kápusíðu segir m.a. um efni sögunnar: Tví- burasystkinin Viktoría og Viktor úr Reykjavík dvelja ennþá sumar- langt f Koti og allir krakkarnir lenda í ýmsum ævintýrum og jafnvel mannraunum. Og nú skeð- ur það skrýtna, að Hanna Marfa og Viktor verða perluvinir, en það hefði ekki þótt trúlegt þegar þau kynntust fyrst. En allt er gott sem endar vel. Bókin er 153 bls. að stærð. Út- gefandi er Bókaforlag Odds Björnssonar. Pompidou á fund Kússa Útsölustaðir: Bjarni Halidórsson Seyðisfirði, Þórshamar, Stykkishólmi, Tónabúðin, Akureyri Hjólið, ísafirði, Verzl. Þórhöllu Sigurðardóttur, Þórshöfn. PIONEER SX-300 hljómgóður útvarpsmagnari, PL-10 plötuspilari og tveir CS-R100 hátalarar. VERÐ KR. 75.900.— Útsölustaðir: Eyjabær. Vestmannaeyjum, Eplið, Akranesi, Verzl. Elíasar Guðnasonar Eskifirði, Víkurbær, Keflavik Magnús Magnússon h.f ., Selfossi. í þessu setti eru eftirtalin tæki: SA-500A magnari með fjölda möguleika og er vel byggður með tilliti til endingar, PL-10 plötuspilari, einfaldur í smíðum en sérlega sterkbyggður spilari og tveir 20 watta CS — R100 hátalarar, sem hafa fengið góða dóma hljómtækjanotenda, sem meðal annars hafa sagt um þá að þeir séu meðal þeirra beztu í sínum flokki. VERÐIÐ Á FRAMANGREINDU SETTI ER AÐEINS KR. 66.900 - PIOIXIEER C-4500 sambyggt tæki með plötuspilara og magnara og tveir CS-R100 hátalarar. VERÐ KR. 69.800.-

x

Morgunblaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.