Morgunblaðið - 21.12.1974, Qupperneq 16
16
MORGUNBLAÐIÐ, LAUGARDAGUR 21. DESEMBER 1974
Það er hverjum safnara hug-
leikið, að fara höndum um safn
sít-t, stöku sinnum. Kemur þá
oft fyrir að maður sér suma
hluti í nýju ljósi. Þannig varð
mér ljóst sögulegt samhengi
þriggja seðla, er ég á i fórum
mínum.
Á myntsýningunni 1972
sýndi ég 2 seðla úr fyrstu út-
gáfu íslenzkra seðla. Voru það
fimm króna seðill nr. 13632
með undirskriftum Magnúsar
Stephensen og Eiríks Briem og
tíu króna seðill nr. 69555 með
undirskriftum Magnúsar
Stephensen og Kristjáns Jóns-
sonar. Seðla þessa eignaðist ég
fyrir nokkrum árum. Eru seðl-
ar frá þessarri útgáfu afar fá-
gætir og verðmætir ekki síst
vegna þess að undirskriftirnar
á þeim eru ekki prentaðar, eins
og síðar varð, heldur er hver
seðill undirritaður af viðkom-
andi landshöfðingja og banka-
stjóra eða gæzlumönnum
Landsbankans, með bleki og
penna. Þegar dr. Jóhannes Nor-
dal, Seðlabankastjóri sá seðl-
ana á Myntsýningunni, sagði
hann mér þá skemmtilegu sögu
að afgreiðsla lána hjá Lands-
bankanum, á fyrstu starfsárum
hans, hefði viljað dragast á
langinn, þrátt fyrir vilyrði
bankastjórnar um lán. Astæðan
fyrir seinagangi á afgreiðslu
lánanna hefði verið sú, að
Magnús Stephensen, þáverandi
landshöfðingi, sem áritaði með
eigin hendí hvern seðii, vand-
aði svo undirskrift sína, að það
tök töluverðan tima fyrir hann
að árita alla 5, 10 og 50 krónu
seðlana sem viókomandi lántak-
andi fékk svo í Landsbank-
anum. Það sést einnig á
myndum af seðlunum með
undirskrift Magnúsar, sem
fylgja þessarri grein, að hann
hefir vandað sig, en það leynir
sér ekki að undirskriftirnar eru
mismunandi. Einn seðil til við-
bótar úr þessarri útgáfu Lands-
sjóðs eignaðist ég svo á siðast-
liðnu árí. Erþaðseðill nr. 63558
með undirskriftum þeirra
Magnúsar Stephensen og
Tryggva Gunnarssonar.
Þegar ég var svo að skoða
þessa 3 ofangreindu seðla ný-
lega varð mér Ijóst hið sögulega
samhengi. Þeir Tryggvi
inn, svo snögg voru banka-
stjóraskiptin. — Það sama
kvöld var spilakvöld hjá
Tryggva. Var þar Sveinn
Björnsson, síðar forseti, sonur
Björns Jónssonar ráðherra, er
spilaði, eins og oft áóur, kotru
heima hjá Tryggva. Sveinn var
góður kunningi Tryggva Gunn-
arssonar. Ekki var þetta kvöld
minnst einu orði á atburði dags-
ins heldur spilamennskan látin
ráða.
Sunnudaginn 28. nóvember
1909 er svo boðað til mótmæla-
fundar á Lækjartorgi vegna
þessa máls. Varð þetta afar fjöl-
mennur fundur því milli 5 og 7
þúsund manns munu hafa mætt
á fundinn. íbúafjöldi Reykja-
víkur var þá 11.000. Að fund-
inum loknum hélt svo hópurinn
til Ráðherrabústaðarins við
Tjarnargötu, þar sem Björn
Jónsson ráðherra bjó. Ráðherr-
ann kom fram á svalir hússins
og reyndi að tala til mannfjöld-
ans, en fékk eigi hljóð fyrir
mannfjöldanum, sem kyrjaði
stöðugt „Niður með ráðherr-
ann“.
Það er af lyktum þessa máls
að segja að nú tóku vió tveir
bankastjórar, þeir Björn Krist-
jánsson og Björn Sigurðsson.
En á fyrsta opnunardegi Lands-
bankans i janúar 1910 var
Kristján Jónsson mættur fyrir
utan bankann. Nokkur mann-
fjöldi hafði safnast saman fyrir
utan bankann um morguninn,
er opnað var. Þar var m.a. Jón
Magnússon bæjarfógeti í full-
um skrúða. Fór Kristján inn i
bankann en kom út aftur að um
10 minútum liðnum, þar eð
honum hafði verið sagt i bank-
anum að hans starfi væri Iokið
þar. Fékk Kristján síðan fógeta-
úrskurð fyrir þvi, að hann
skyldi áfram vera gæzlumaður
Landsbankans, þar eð hann
væri skipaður af Alþingi og
hefði ráðhrra ekki haft vald til
að svipta hann starfinu.
Rannsóknarnefnd Lands-
bankans tók saman lista yfir
skuldara bankans. Gekk listinn
undir nafninu „Svarta bókin“.
Voru þar færó nöfn um 1100
manna, sem flokkaðir voru. 1
fyrsta flokki voru nöfn 740
manna, eignalausra, sveitar-
lima og gjaldþrota manna. 1
öðrum flokki 55, sem eitthvað
höfðu undir höndum. 1 þriðja
og fjórða flokki voru nöfn 280
bjargálna og 30 efnaðra manna.
Forvitnileg hefir mörgum sjálf-
sagt þótt „Svarta bókin", en
ekki trúi ég þvi hún hafi verið
vinsæl hjá almenningi.
Við samningu greinar þess-
arar hefi ég stuðst við bók
Kristjáns Albertssonar um
Hannes Hafstein III bindi og
bók Þorsteins Thorarensen „1
fótspor feðranna". Er þeim,
sem vilja lesa meira um þetta
mál bent á þessay bækur. Þor-
steinn Thorarensen kallar
þétta Landsbankamál „Eitt
stærsta og voðalegasta óhappa-
verk i íslenzkri stjórnmálasögu,
sem varð hámark allra póli-
tískra æsinga hér á landi lik-
lega fram að nóvember bardag-
anum ásíðari kreppuárunum".
Það liggur því óneitanlega
mikil saga bakvið þessa 3 seðla,
sem ég hef í safni mínu — og
sjálfsagt margar aðrar sögur.
Hús Landsbanka tslands 1899—1915.
Þrír seðlar úr safni
og Landsbankamálið 1909
Gunnarsson, Kristján Jónsson
og Eiríkur Briem voru ráða-
menn Landsbankans árið 1909,
er hið fræga Landsbankamál
bar sem hæst. Þar sem nú eru
rétt 65 ár síðan þetta varð vek
ég athygli á I grein þessarri, en
eins og áður hefir komið fram í
þáttum mínum um myntsöfnun
eru myntsöfnun og saga, Is-
iandssaga eða mannkynssagan
afar tengd.
Af þessum 3 mönnum er
Tryggvi Gunnarsson þekkt-
astur. Einhver merkasti fram-
kvæmdamaður, sem Island hef-
ir átt. Mynd af honum þekkja
allir þvi hún er á 100 króna
seðlinum, sem nú er í umferð.
Kristján Jónsson var, er saga
þessi gerist dómforseti, en
hann varð þriðji ráðherra ís-
lands, eftir þeim Hannesi Haf-
stein og Birni Jónssyni. Eiríkur
Briem var þingmaður og varð
prófessor við nýstofnaðan Há-
skólann 1911.
Það er líklega upphaf Lands-
bankamálsins, að Björn Jóns-
son leggur fæð á Tryggva
Gunnarsson, bankastjóra
Landsbankans, er Tryggvi
lánar prenturum fé svo þeir
geti keypt prentsmiójuna
Gutenberg árið 1904. Um leið
létu flestir prentarar af störf-
um hjá Isafoldarprentsmiðju,
en hana átti Björn Jónsson. Þar
var hans málgagn prentað og
prentsmiðjan var hans tekju-
lind. Hugsaði Björn Tryggva
lengi þegjandi þörfina, en er
hann var svo orðinn ráðherra
árið 1909 lætur hann til skarar
skríða. 1 apríl 1909 skipar
Björn Jónsson ráðherra þriggja
manna rannsóknarnefnd, er
rannsaka skyldi allan hag
Landsbankans, eða eins og ráð-
herra orðaði það — til að yfir-
líta hag og horfur bankans, en
ekki í neinum saknæmum til-
gangi. Liklega átti nefndin
aðeins að finna átyllu til að
hægt væri að víkja Tryggva
Gunnarssyni úr bankastjóra-
stöðunni. Nefndarskipunin olli
miklum óróa bæði hér á landi
og meðal erlendra viðskipta-
banka Landsbankans. Margir
drógu út fé sitt af ótta við að
bankinn lenti ígreiðsluvandræð
um. Erlendis var þetta athæfi
litið mjög rannsakandi augum.
Gat það verið að Landsbankinn,
undir stjórn Tryggva gamla
væri í vandræðum? Víst var
bankinn i vandræðum með pen-
inga. Á þessum árum voru
mestu uppgangstímar á Islandi.
Stórkostlegt átak var gert í
landbúnaði, togaraútgerðin er
að hasla sér völl og allt hagkerfi
landsins í meiri þenslu en áður
hafói þekkst. Tryggva vantaði
peninga til að lána öllum sem
um lán báðu. Er það ekki svo
enn í dag að bankastjórar vildu
hafa 10 eða 20 sinnum meira
ráðstöfunarfé til að geta af-
greitt fleiri lánabeiðnir?
Það næta sem gerist er að
Tryggva Gunnarssyni er sagt
upp bankastjórastöðunni, með
hálfs árs fyrirvara, frá næstu
áramótum. Enn starfaði rann-
sóknarnefndin, en í henni urðu
þó nokkur mannaskipti, því
ekki hefir Birni Jónssyni þótt
nógu hart fram gengið í rann-
sókninni. Með haustinu heimt-
ar ráðherra svo að bankastjórn-
in haldi daglega gjörðabók, og
sendi afrit hennar upp í
Stjórnarráð. Enn fremur fer
ráðherra fram á, að ekki aðeins
skuli getið um hverjum var
veitt lán i Landsbankanum,
heldur og hverjum var synjað
og þá hvers vegna! Var afrit
gjörðabókar svo sent daglega i
Stjórnarráðið i nokkrar vikur,
seint á árinu 1909, þó án upp-
lýsinga um lánasynjanir.
Hinn 22. nóvember 1909
eftir RAGNAR
BORG
Eirfkur Briem.
Kristján Jónsson.
springur svo bomban. Sendill
úr Stjórnarráðinu kemur niður
i Landsbanka með bréf til
Tryggva Gunnarssonar banka-
stjóra og þeirra Kristjáns Jóns-
sonar og Eiríks Briem gæzlu-
stjóra, þar sem þeim er sam-
stundis sagt upp störfum.
Tryggvi var með víxil í hend-
inni, sem hann var að afgreiða,
er landritari og Björn Krist-
jánsson, er tók við bankastjóra-
störfunum af Tryggva, voru
mættir og tilkynntu að banka-
stjórnin skyldi tafarlaust hafa
sig á brott og afhenda lyklavöld
bankans. Fékk Tryggvi ekki
tækifæri til að afgreiða víxil-
Tryggvi Gunnarsson.