Morgunblaðið - 21.12.1974, Qupperneq 35

Morgunblaðið - 21.12.1974, Qupperneq 35
MORGUNBLAÐIÐ, LAUGARDAGUR 21. DESEMBER 1974 35 meira virði að reynslu og lærdómi en orð fá lýst. Nú á þessari kveðjustund, er við nú kveðjumst að sinni, viljum við Þórunn þakka honum alla samfylgdina, fyrir allt traustið og öryggið sem hann gaf okkur, ekki síst á erfiðum tíma. Björgu konu hans vil ég einnig þakka fyrir allar stundirnar sem við Eggert unnurn saman á heim- ili þeirra. Hún var ávallt örv- andi og gleðigjafi. Hún taldi ekki eftir hinn langa vinnu- dag hans, þó að einkastundir þeirra yrðu færri i staðinn. Hún var einkar skilningsrík á mann sinn og allt hans starf, var styrkur hans og stoð og nú siðast i hans erfiðu veikindum. Hún vék ekki frá sjúkrabeði hans og gerði allt sem hún gat til að létta honum þjáningarnar. Styrk- ur hennar og ást komu þá skýrast i ljós. Við Þórunn sendum henni okk- ar hjartans bænir á þessari stundu, em von um að minningin um hinn góða dreng verði henni huggun og örvun á sorgarstund. Tengdaforeldrum, systkinum og öðrum ættingjum hans, sendum við okkar innilegustu samúðar- kveðjur. Nú hefir minn göði vinur og velgjörðamaður lagt upp i ferðina miklu á undan okkur hinum, sem eftir erum nú. Hann átti miklu starfi ólokið, er kallið kom. En því trúi ég og veit, að hann hafði verið kallaður til „meira að starfa Guðs um geim“. Sú fullvissa verð- ur okkur vinum hans mikil hugg- un, á meðan við bíðum sjálf eftir kallinu mikla. Að iokum vil ég kveðja minn kæra vin, á sama hátt og hann kvaddi sameiginlegan vin okkar fyrir nokkrum árum. Vinur Far þú f friði. FriðurGuðs þig biessi. Hafðu þökk fyrir allt og allt. Gekkst þú með guði, Guð þér nú fylgi. Hans dýrðarhnoss þú hljóta skalt. Friðrik Jörgensen. Þegar sá, sem þetta ritar, hóf nám við lagadeild Háskólans haustið 1941 ásamt ailmörgum skólabræðrum frá Menntaskólan- um í Reykjavík, settust við hlið okkar nokkrir ungir menn, braut- skráðir frá Menntaskólanum á Akureyri þá um vorið. Við sunnanmenn höfðum heyrt sitt- hvað lofsvert um Menntaskólann á Akureyri og þá liklega ekki sist um rómaða stjórn Sigurðar Guðmundssonar skólameistara þar á staðnum, en það má víst fullyrða, að enginn okkar átti von á, að þaðan kæmi jafn fjölmennt lið ágætra manna og raun varð á. Einn þeirra var Eggert Kristjánsson frá Dagverðareyri, sem nú er látinn. Þetta haust fyrir rúmum 30 árum hófust kynni okkar og vinátta sem hélst jafnan síðan. Eggert lauk lagaprófi vorið 1947 með hæstu einkunn þeirra 17 kandidata, sem þreyttu próf að því sinni. Hann stundaði fram- haldsnám í sjórétti og trygginga- rétti i London og varð siðar lög- giltur endurskoðandi og hæsta- rétarlögmaður. Um skeið veitti hann forstöðu fyrirtækjunum Desa h.f. og Vélum h.f., auk þess sem hann var aðstoðarfram- kvæmdastjöri Vélasölunnar h.f., en þessi fyrirtæki önnuðust m.a. kaup á fjölmörgum fiskiskipum frá Austur-Þýskalandi og Pól- landi. Þannig var starfsferill hans og er þó aðeins stiklað á stóru. En þessi upptalning segir vitanlega ekkert um manninn sjálfan. Eggert var maður hlédrægur að eðlisfari og honum var litt að skapi að trana sér fram. Hæfi- leikar hans, skarpskyggni og greind duldust þó engum, sem áttu við hann per- sónuleg kynni. Hann naut því sívaxandi álits sem end- urskoðandi og hæstaréttarlög- maður og auk þess var hann i æ ríkara mæli kvaddur til dóm- starfa sem meðdómandi í ýmsum málum, þar sem sérþekkingar hans þurfti við og í ríkisskatta- nefnd átti hann sæti frá 1972. öll þessi störf Eggerts einkenndust af kröfuharðri samviskusemi og þeim heiðarleika, sem hvorki gef- ur kost á undanslætti né mála- miðlun. Hvort sem hann sótti mál fyrir skjólstæðing sinn eða sat í dómarasæti var honum jafnan rikast í huga að upplýsa allar stað- reyndir máls svo unnt væri að leggja á það hlutlægan dóm. Eng- in fyrirhöfn var of mikil, þegar afla þurfti gagna, er kynnu að varpa nýju ljósi á málsatvik. 1 Hann flutti mál sitt af hógværð og háttvisi og þessir eiginleikar voru raunar einkenni hans og aðals- merki. Hann var gæddur svo ríkri rétt- lætiskennd, að honum hefði aldrei komið til hugar að kasta höndum til nokkurs máls, er hon- um var trúað fyrir, hversu smátt sem eitthvert einstakt atriði þess gat virst í augum annarra. Þeir, sem nutu vináttu hans og leið- sagnar, mátu hann líka því meira sem þeir kynntust honum betur. Ég heimsótti hann nokkrum sinn- um á sjúkrahúsið þar sem hann háði langa og stranga baráttu við ólæknandi sjúkdóm. Hugur hans var þá einatt bundinn við verk- efni, sem hann átti óleyst fyrir skjólstæðinga sína og vildi ljúka áður en það yrði um seinan. Með Eggert Kristjánssyni er fallinn í valinn einn mætasti lög- fræðingur þessa lands. Eftirlif- andi konu hans, Björgu Valgeirs- dóttur, og öðrum venslamönnum, sendi ég og fjölskylda mín samúðarkveðjur á þessari stundu sárrar reynslu. Sjálfur þykist ég þess fullviss, að nú þegar Eggert leggur mál sitt í þann dóm, sem allra bíður að lokum, verður hann dæmdur eftir þeim gögnum, sem hann hefur aflað á lifsferli sínum og þeim dómi þarf þessi góði maður áreiðanlega ekki að kvíða. Guðm. Vignir Jósefsson. Afram —og allfaf heim inn gegnum sundin blá. Guðirnir gefa þéim glpði sem landið sjá. Loks pftir langan dag leit ég þig, helga jörð. Seiddur um sólarlag sigli ég inn Eyjafjörð. ÞANNIG orti Davið Stefánsson frá Fagraskógi, um fjörðinn þeirra, sýslungi Eggerts Krist- jánssonar. Ég stanzaði við þetta ljóð þegar ég fór að hugsa um Eggert af því að ég veit hvað honum þótti vænt um fjörðinn sinn. Ég held að honum hafi þótt meira og meira vænt um hann eftir þvi sem árin liðu. Það eru ekki nema fáir dagar siðan við ræddum saman um Eyjafjörð, og hann sýndi mér gullfallegar myndir af æskuheimili sinu, Dag- verðareyri. Þar standa falleg hús i fögrum garði, verk foreldra hans, og þangað Ieitaði hugur hans oft I seinni tið. Eggert Kristjánsson fæddist á Akureyri 16. mars 1922 og lést á Borgarspitalanum hér í Reykja- vik 11. desember 1974. Hann kvaddi því þennan heim aðeins 52 ára gamall. Foreldrar hans voru hjónin Kristján kennari Sigurðsson bónda á Dagverðareyri Oddssonar bónda á sama stað Jónssonar og konu hans Rannveigar Jónsdóttur frá Syðra-Hóli, og Sesselja Eggertsdóttir bónda á Ytri- Tjörnum og Möðruvöllum í Hörgárdal Daviðssonar og konu hans Jóninu Kristjánsdóttur. Foreldrar Eggerts voru óvenju- lega vel gerðar manneskjur, hún nærgætin, fögur, vel gefin, hlý og myndarleg i besta lagi, en hann góður bóndi og áhugasamur um félagsmál. Hann sat m.a. lengi í hreppsnefnd Glæsibæjarhrepps, var i stjórn Kaupfélags Eyfirð- inga í mörg ár og einn af aðal hvatamönnum að stofnun Mjólkursamlags K.E.A. Formaður var hann í Búnaðarfélagi Glæsi- bæjarhrepps frá stofnun þess til dauðadags, og búskap stundaði hann á Dagverðareyri jafnframt því sem hann var kennari á Akur- eyri. Kristján var góður söng- maður, var m.a. einn af stofn- endum Karlakórsins Geysis á Akureyri og félagi i honum á þriðja áratug. Eggert var því af góðu fólki kominn i báðar ættir. Lif hans og lífsskoðun bar þvi glöggt vitni að hann var alinn upp á stóru myndarheimili i hópi margra mannvænlegra systkina, við hin fjölbreytilegustu störf heima á Dagverðareyri og við sildveiðar á sumrin eftir að hann fór að þroskast. Snemma hneigðist hugur hans til mennta, og fór hann því ungur í Menntaskólann á Akureyri og lauk þaðan stúd- entsprófi vorið 1941. Um haustið settist hann i Háskólann, las þar lög og lauk prófi 1947. Eggert gekk mjög vel í skóla, enda fram- úrskarandi vel gefinn og góður námsmaður. Eftir prófið fór hann að starfa hér í bæ á lögfræðiskrifstofu, en fór utan til London snemma árs 1949 og var þar við framhaldsnám i sjórétti og sjóvátryggingarétti í eitt og hálft ár. Eftir heimkomuna tók hann til við lögfræðistörf og endurskoðun, fyrst hjá Ragnari Ölafssyni hrl. og siðan á endurskoðunarskrifstofu Kolbeins Jóhannssonar & Co. Hann lauk prófi sem löggiltur endurskoðandi 1963, og hæsta- réttarlögmaður varð hann 1970. Auk lögfræði- og endurskoðun- arskrifstofu veitti Eggert Krist- jánsson fyrirtækinu Desa h.f. for- stöðu um skeið, en á þess vegum voru fluttir inn nokkrir tugir togara og báta frá A.-Þýzkalandi. Var það vandasamt starf eins og slík störf eru jafnan, en Eggert fórust þau vel úr hendi. Kynntist hann þá mörgum sjómönnum, út- gerðarmönnum og skipstjórum, sem lærðu að meta hann og báru til hans traust og hlýjan hug. Þá starfaði Eggert um nokkurra ára skeið í nánu sambandi við Véla- söluna h.f. og annaðist mörg og mikilvæg samningastörf fyrir hana, bæði við skipakaupendur hér á landi og við erlendar skipa- smiðjur I Noregi, Póllandi og Þýskalandi. Eggert tók mikinn þátt i félags- málum, var um skeið i stjórn Fé- lags löggiltra endurskoðenda og átti sæti í Lögmannafélagi Is- lands. Eggert var ágætur lögfræðing- ur og endurskoðandi. Hann var vandaður, samviskusamur og drengur góður i hvivetna. Þeim málum var borgið sem hann tók að sér, og fyrir marga sem erfitt áttu af ýmsum ástæðum vann hann vel og mikið. Eins og ljóst er af ofantöldu kom Eggert Kristjánsson víða við þótt starfsævi hans yrði ekki löng. Afkastageta hans var með ólík- indum, enda var hann vinnufær með ágætum og eftir hann liggur óhemjumikið starf. Hann var gæddur mjög góðrf greind og var því fljótur að átta sig á hinum flóknustu málum sem hann þurfti að takast á við. En ríkasti þátturinn i fari hans var frábær samviskusemi, og einnig hafði hann til að bera mjög næma og sterka réttlætistilfinningu, liklega meiri en aðrir menn sem ég hef þekkt. Ráð hans voru traust og réttlát og auðvelt eftir þeim að fara. Það var því ekki óeðlilegt þótt eftir honum væri sóst til dómarastarfa i hinum erfiðustu málum nú seinni árin. Og að öðrum ólöstuðum hefur ekki verið auðvelt að finna hæfari mann i Rikisskattanefnd, en þar hefur hann setið að undanförnu. Eggert Kristjánsson var vel meðalmaður á vöxt, frekar grarin- vaxinn, en samsvaraði sér vel. Hann var fríður sýnum, dökk- hærður, með liðað hár, augun fögur og svipurinn drengilegur. Hann var stilltur maður og prúður, geðgóður og hjartahlýr og mátti ekki aumt sjá. Höfðingi var hann heim að sækja, og við hann var gott aó blanda geði. Eggert Kristjánsson kvæntist 17. júlí 1954 Björgu Valgeirs- dóttur Björnssonar frv. hafnar- stjóra i Reykjavík. Við hjónin átt- um margar ánægjustundir að heimili þeirra Bjargar og Eggerts að Selvogsgrunni. Við Eggert vorum vinir í áratugi, og okkur Ingu var boðið i brúðkaup þeirra. Frá þeirri stundu hefur verið vin- átta á milli heimila okkar. 1 ótalin sumur höfum við ferðast saman á hestum um há- lendi lslands. Vart er til sú leið milli Norður- og Suðurlands að við höfum ekki kannað hana. Fjallaferð á gæðingum með tjöld og nesti var sumargleði okkar. Frá slíkum feróum eru í hugum okkar margar ógleymanlegar endurminningar. Sumar þeirra eru tengdar tjaldlífi, þegar við höfðum loksins ná áfangastað lúin og þreytt. Aðrar eru tengdar villu og óhöppum á Sprengisandi eða sandbleytu við Arnarfell hið mikla, eða þá er Inga tindi handa Björgu og Eggert blómvönd úr grösum fjallanna á brúðkaups- degi þeirra og færói þeim, en við vorum einmitt oft á fjöllum þann júlidag. En flestar endurminning- arnar eru tengdar náttúrufegurð, mismunandi fjallasýn sem hvergi er að finna nema i óbyggðum — og þá helst á ákveðnum tima sólarhingsins þegar sólin er að koma upp og varpar gulllitaðri slæðu yfir bláa fjallstinda eða á fannhvíta jökla. Slik sjón magnast í fegurð sinni ef örvilj- ugur gæðingur ber mann á kostum eftir götuslóðum, tifar við taum, tryggur mél og ber sig hátt, „Betra á dauðlegi heimurinn eigi“. 1 sumar leið fórum við nokkrir vinir i slíka ferð norðan úr Skaga- firði suður Kjöl. Eggert og Björg komu heim á föstudegi frá Pól- landi, en þar hafði Eggert verið í samningum um togarakaup. Þau flugu norður i Eyjafjörð og gistu á Dagverðareyri hjá Gunnari, bróður Eggerts, sem þar býr ásamt syni sinum Oddi. Næsta dag ók Oddur þeim hjónum vestur í Skagafjörð. Við riðum suður yfir Kiðaskarð í Stafsrétt. Veðrið var eins og best verður á kosið. Við stönsuóum aðeins hjá Sveini á Varmalæk um leið og við fórum um hlaðið. Sveinn var góður vinur okkar sem oft hefur fylgt okkur yfir fjöll. Leiðin rakti sig upp og vestur hlíðina. Hest- arnir rákust vel, og margir þeirra voru harðviljugir. Við vorum í sólskinsskapi. Afram var haldið á Hveravelli og i Hvitanes, og hægt og sigandi runnu hestarnir suður Kjöl, yfir Bláfellsháls, niður Tungur og Laugardai. Allt gekk sæmilega, og á tilsettum tíma náðum við suður. -o-o- Þannig endaði þessi sumarferð um fjöllin, og þannig enda allar ferðir — menn ná áfangastað. Eggert vinur minn átti erfitt siðasta áfangann i lifinu. En hann var stöðugt þann tima sem hann beið veikur hetja sem lærdóms- rikt var að þekkja. Vinskapur skilur eftir sig mis- munandi spor. Sum eru djúp og sterk, fáir fara á mis við þau. Önnur eru mild, og úr þeim grær vinátta, tryggð, og trúmennska. Gott eiga þeir sem skilja slik spor eftir í minningu manns .þá þeir kveðja. Eggert Kristjánsson lög- fræðingur er nú horfinn inn fyrir móðuna miklu, en vinir hans vita að þar er ljós sem lýsir góðum dreng í góða höfn. Björgu ekkju hans og ástvinum öllum votta ég samúð okkar. Hjalti Pálsson. Ég hitti Eggert Kristjánsson að- eins nokkrum sinnum þegar við sátum í verzlunardómi Reykjavik- ur. En eins og bezta handbragð leynir ekki meistaranum, birtist Eggert i vandvirkni sinni, sam- vizkusemi og alúð, er hann lagði við sérhvert dómstnál. Því kynntist ég Eggerti vel. Ósérhlifinn, staðfastur og af ör- uggri þekkingu leitaði hann réttr- ar niðurstöðu. Hann var mikill maður réttlætis og sanngirni, háttprúður og vin- gjarnlegur. Valmenni er fallið — fyrir- mynd stendur. Jóhann J. Olafsson. ÞEGAR minnst er Eggerts Krist- jánssonar er sár söknuður efst í huga, góður vinur og sambýlis- maður er horfinn, langt fyrir aldur fram. En samt hlýtur að fylgja með þakklæti fyrir að hafa fengið að vera samneytis við þennan góða dreng á þriðja ára- tug. Arfur hans frá æskustöðvunum og uppeidisáhrif foreldrahús- anna, þar sem hann ólst upp, að Dagverðareyri við Eyjafjörð dugði honum til að skilja eftir ómetanlegar minningar allt til hinztu stundar. Því miður hafði sá er þessar línur ritar ekki tæki- færi til að kynnast foreldrum Eggerts, en allt sem ég hef heyrt frá þeim sem samneyti áttu við þau staðfestir að ekki er undra- vert að sonur þeirra skildi eftir sig mikil og góð áhrif hjá þeim sem umgengust hann. Æskustöðvarnar að Dagverðar- eyri voru Eggerti alltaf mjög kærar, og það var einmitt þar sem kunningsskapur okkar breyttist í vináttu eitt sumar þegar ég var i síldarleit frá Melgerðismelum. Þá eyddum við saman nokkrum tíma á þessum stað sem honum var alla tíð svo kær, enda má segja að þar hafi hann þekkt hverja þúfu og sögu Dagverðareyrar þar sem for- feður hans höfðu búið mann fram af manni, þvi er það skiljanlegt að æskustöðvarnar voru Eggert ætíð ofarlega í huga, ekki sízt síðustu mánuðina. Ég og fjölskylda min áttum því láni að fagna að vera í sambýli við Eggert og Björgu konu hans frá því við byggðum að Selvogs- grunni 14 árið 1954. Allan þann tíma hefur aldrei orði hallað í okkar samskiptum og Eggert hefur ætíð verið sem faðir barna okkar, fylgst með áhugamálum þeirra og átt trúnað þcirra alla tíð. Frá þvf að við Eggert kynnt- umst hefur hann ávallt verið sá er var veitandi, ef svo má að orði komast, gefandi gott fordæmi um mannleg samskipti og hann sem kunni manna bezt að hafa „aðgát i nærveru sálar“ var jafnframt skilningsbeztur allra á það sem mannlegt var og tamdi sér að skoða málefnin frá öllum hliðum. Eggert var ekki hraustur maður en hann var hraustmenni og lagði mikla vinnu i að brjóta mál til mergjar, þrátt fyrir oft á tiðum slæma heilsu. Marga stund áttum við saman þar sem skipst var á skoðunum um óskyld efni en ekki rekur mig minni til að við höfurn rætt mikið trúmál. Hinsvegar finnst mér þegar horft er yfir farinn veg að Eggert hafi i allri sinni framkomu og með sinni miklu og þroskuðu siógæðisvitund, tileinkað sér það sem kristin kirkja hefur i boð- skap sinum þó ekki hafi hann staðið á torgum og haft um það mörg orð. Þvi er það vissa min að Eggerti sé búin vistarvera í þeirn undra- geim sem henn hefur verið til kallaður. Eg vil svo biðja guð að blessa Eggert og styrkja Björgu á þess- um erfiða tima. Karl Eiríksson. Dauóinn er öllum vis. Það er eina sporið í allri okkar framtíð, sem við vitum með fuilri vissu, að við eigum að stiga. Hér standa Sjá nœ»tu ] tíðu Ú

x

Morgunblaðið

Direct Links

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.