Morgunblaðið - 21.12.1974, Page 47
Ungur og óþekktur
Svíi meðal beztu
HINN 18 ára gamli Svfi Ingemar
Stenmark, hefur heldur betur
blandað sér f baráttuna meðal al-
Ali ver
titil sinn
HEIMSMEISTARINN í hnefa-
leikum þungavigtar, hinn stórorði
Cassius Clay eða Muhamed Ali,
hefur nú ákveðið að verja titil
sinn gegn Ron Lyle fljótlega á
næsta ári. Lyle er númer þrjú á
lista yfir beztu hnefaleikakappa í
þungavigt.
Þá var Ali á þriðjudaginn út-
nefndur „íþróttamaður ársins" af
bandarfska iþróttablaðinu „Sport
Illustrated“. Er Ali annar hnefa-
leikamaðurinn, sem verður þessa
heiðurs blaðsins aðnjótandi. Árið
1959 var Svíinn Ingemar Johan-
son kosinn „íþróttamaður ársins“
eftir að hann hafði unnið titilinn
af Floyd Patterson.
beztu skfðamanna f heimi. Svfinn
var Iftt þekktur áður en keppnin
hófst f Val d’isere fyrir nokkru.
Þar gerði hann sér lftið fyrir og
komst á verðlaunapall. Á þriðju-
daginn bætti hann svo annarri rós
f hnappagatið er hann sigraði f
stórsvigi f ítalska bænum
Madonna di Campligo. Stenmark
er nú f þriðja sæti f keppninni um
heimsbikarinn með 45 stig.
Aðeins þeir Franz Klammer og
Piero Gros hafa hlotið fleiri stig,
69 og 50.
Annar Norðurlandabúi, Norð-
maðurinn Erik Háker, hefur einn-
ig látið nokkuð að sér kveða i
vetur og er nú I sjötta sæti
í keppninni með 24 stig. Háker er
eini Norðmaðurinn, sem tekur
þátt í þessari keppni og hefur
hann ýmist æft með sænsku sveit-
inni eða þeirri austurrisku. Allt
eftir því hver hefur verið fús til
að hjálpa honum á hverjum tíma,
allar sterkustu sveitirnar hafa sér
til aðstoðar heilan hóp aðstoðar-
manna.
Nýkomið frá Pakistan
HANDHNÝTT
AUSTURLENSK
TEPPI
í mörgum munstrum:
Kákasus,
persrtesk og
hin vinsælu anatoria-bænateppi.
Lovísa Guðjónsdóttir Afzal,
Norðurbraut 15, Hafnarfirði,
simi 50155.
Jólagjöfin
til eiginkonunnar
Ingemar Stenmark sigri hrósandi !
að lokinni vel heppnaðri keppni.
Dregið hjá Fram
DREGIÐ HEFUR verið i happ-
drætti Körfuknattleiksdeildar
Fram. Vinningarnir sem eru
heimilistæki og íþróttabúnaður
féllu á nr. 2219 og 1551.
Jólablað
r
Iþróttablaðsins
OT ER komið jólablað Iþrótta-
blaðsins eða 5.—6. tölublað
Iþróttablaðsins í ár. Eins og vera
ber er jólasvipur á blaðinu og
forsíðuna skreytir galvaskur jóla-
sveinn að velja sér skíði, ef til vill
til að komast heim á ný að jóla-
haldi loknu.
Meðal efnis í blaðinu er viðtal
Atla Steinarssonar við þá Hauk
og örn Clausen, sem á sínum tíma
voru meðal fremstu íþróttamanna
f Evrópu. FH er að þessu sinni
félagið I sviðsljósinu I hinum vin-
sæla þætti blaðsins. Rætt er við
eiginkonur KR-inga, sem lagt
hafa mönnum sínum gott lið í
félagsstarfinu. Greinar eru um
spjótkastarahjónin Lusis og
Elviru og um skozka prestinn,
sem brá sér úr prestshempunni til
að vinna 400 metra hlaup á Ölym-
pfuleikum.
Ýmislegt annað efni er f blað-
inu sem að þessu sinni er 56 sfður
að stærð og prýtt mörgum mynd-
um.