Morgunblaðið - 21.12.1974, Qupperneq 48
3Drr@tmi>Mbib
RUCIVSII1CRR
^-»22480
Umfangsmiklar björgunarað-
gerðir Almannavarna
Engin ney ðaráætlun til fyrir Neskaup-
stað en björgunarstarf fór fljótt í gang
--
• á>- ■'VS'
«... **■ Jm,~
Athafluisva-ói Sfl.iarvinnslunnai t>r iia-st á invndinni. Frá luuyri:
SflUarvinnslan ásaml mj.ilhúsi. I hlfúinni fvrir ofan sjást lýsistankar.
Sá stærri er 1500 tonna lýstsgeyinir, si>m var tóimir. t-n snjúflóúiú har
liann uin> á hús sfldarvinnslunnar. I svarta tankinum voru um 500
lestir af svartolfu o« fór hann af slaó. Kitthvaó mun hafa l. kió úr
honum af olfu. Þar fvrir neúan <-r svo frystihús Samvinnuféla«s
útfieróarmanna <>S uppaf |»ví hió svo kallaða N'orra'tia hús, scm álti aó
veróa vcrhúó. Nokkru utar sóst hús moó risi, <>n |>aó barsl alvog nióiir
aó sjó im ó snjnflóóinu o« i þvf fórusl tva*r konur o« 2 hórn.
Snjóflóð á Seyðisfirði:
ára son sinn lir snjóflótii
ENGIN neyðaráætlun
vegna náttúruhamfara er
til fyrir Norðf jörð eða önn-
ur byggðarlög á Austfjörð-
um, en engu að sfður fðr
skipuiegt hjálparstarf
mjög snemma í gang og
náði til margra aðila f ýms-
um byggðarlögum. Al-
mannavarnanefndin f Nes-
kaupstað stjórnaði björg-
unarstarfinu heima fyrir,
en Almannavarnaráð rfkis-
ins samræmdi aðgerðir hér
í Reykjavík.
Fastalið Almannavarnaráðs er
fimm manns, en að auki eru þar
skráðir 27 hjálparliðar. I gær-
kvöldi var búið að kalla út hluta
þeirra og var þar vakt í alla nótt.
Almannavarnir ríkisins fengu
fréttir af snjóflóðunum svo að
segja strax, og kom þá Almanna-
varnaráð ríkisins þegar saman til
fundar í kjallara lögreglustöðvar-
innar. Almannavarnarnefnd Nes-
kaupstaðar setti einnig þegar í
stað upp stjórnstöð í símstöðvar-
húsinu í Neskaupstað undir
stjórn Böðvars Bragasonar bæjar-
fógeta, en samkvæmt lögum um
almannavarnir veita bæjarfóget-
ar og sýslumenn á hverjum stað
almannavarnanefndunum for-
stöðu. Alman-navarnaráð rfkisins
ber samkvæmt lögum að aðsfoða
sveitarfélögin og samræma að-
gerðir hjá mörgum sveitar-
félögum. Aðgerðum ráðsins í
Reykjavík stjórnaði Guðjón
Petersen.
í fyrstu var óttast aö um
amoníakmengun frá frystihúsinu
gæti orðið að ræða, sem torvelda
myndi björgunarstörf, og af þeim
sökum voru teknar til allar til-
tækar gasgrímur ásamt öðrum
hjálpargögnum og þeim komið
um borð f flugvél Landhelgisgæzl-
unnar SÝR í von um að hægt yrði
að fljúga yfir Neskaupstað og
varpa þeim niður á staðinn. Frá
þvf var þó horfið að undirlagi
almannavarnanefndarinnar í
Neskaupstað, sem taldi ekki
óhætt að fljúga yfir fjöröinn, þar
eð dynurinn frá flugvélarhreyfl-
unum kynni e.t.v. að valda meiri
snjóflóðum. Átti þá að reyna að
lenda með tækin á Egilsstöðum,
en þar reyndist ekki unnt að
lenda, þvi ekki var búið að ryðja
nógu langa flugbraut.
Þessu næst var hafizt handa um
að safna liði á næstu fjörðurn,
Eskifirði og Reyðarfirði. Sæberg
fór þannig frá Reyðarfirði seinni
hluta dags í gær með 50 manna
björgunarsveitarlið og var hann
væntanlegur til Neskaupstaðar
Framhald á bls. 26
Grófu9
SNJÓFLÓÐ féll á fjárhús og
hlöðu á bænum Selstöðum við
Seyðisfjörð um klukkan 10.30 f
gærmorgun. Bræður, Eyjðlfur og
Ómar Kristjánssynir, lentu fyrir
flððinu og barst Eyjólfur, sem er
23ja ára með flóðinu nær niður f
fjöru, en hann grðfst þð ekki f
það. Ómar, sem er 9 ára, var inni f
f járhúsunum, þegar flððið skall á
þvf og lokaðist þar inni og
klemmdist f spýtnabraki, er það
féll saman. Honum varð þó ekki
meint af og slapp ómeiddur.
Foreldrum Ómars, Svandfsi Jöns-
dóttur og Kristjáni Eyjðlfssyni,
tðkst að bjarga syni sfnum úr
rústum fjárhússins og voru þau
um hálfa klukkustund að grafa
hann upp.
Morgunblaðið ræddi f gær við
húsfreyjuna á Selstöðum, Svan-
dfsi Jðnsdðttur og lýsti hún at-
burðum með svofelldum orðum:
„Það var um hálfellefuleytið,
sem þeir Eyjólfur og Ómar fóru
út í fjárhúsin, sem eru hér um 20
metra utan við íbúðarhúsið, og
ætluðu að gefa fénu. Þegar þeir
komii að fjárhúsinu lét Eyjólfur
Ómar fara inn og átti hann að
sópa garðana. Sjálfur ætlaði
Eyjólfur að moka frá hurðunum,
svo að hægt yrði að hleypa
kindunum út í gjöfina, sem var
rétt neðan við. En þá heyrjr
Eyjólfur skyndilega hvell og það
skipti engum togum — hann fer
með snjóflóðinu nærri niður í
fjöruna, sem er hér fyrir neðan.
Eyjólfur datt og stóð upp aftur,
en grófst ekki í snjóinn. Við
horfðum á þetta héðan úr eld-
hússglugganum hjá mér, en þó
var það dimmt, að við sáum ekki
hvað gerðist. Þegar siðan birti,
sáum við að Eyjólfur var ein-
samall og húsin horfin, fjárhús og
hlaða jöfnuð við jörðu.
Við hjónin fórum strax út eftir
til þess að athuga, hvað orðið
hefði af Ómari. Við kölluðum og
heyrðum I honum niðri í rústun-
um. Gátum við grafið hann upp og
býst ég við að það hafi tekið okk-
ur um hálfa klukkustund, að ná
honum út um lítinn glugga, sem
var á stafni fjárhússins. Þegar
snjóflóðið skall á húsunum var
Ómar að sópa garðana og stóð í
garðahöfðinu, þegar hann datt
skyndilega á hliðina. Gat hann
ekki reist sig upp. Hann var ekki
klemmdur af snjónum, en hins
vegar þrengdi að honum spýtna-
brak úr húsunum. Hjá honum var
svartamyrkur og hann sá ekki
glætu, fyrr en við gátum brotið
gluggann. Meðan við vorum að
losa hann töluðum við við hann og
sagðist hann þá ekki finna til.
Hann meiddi sig ekki, en var eðli-
lega aumur á eftir.“
Svandis sagði að þau hjón hefðu
þurft að grafa um tvo metra, unz
þau komu að glugganum. Hún
sagði að hroðalegt væri nú um að
litast á bænum og að nú væri búið
Margar hendur til hjálpar
STRAX og fréttist af hinum hörmulegu atburðum á Neskaupstað
höfðu fjölmargir aðilar samband við Almannavarnanefndina í
Neskaupstað og miðstöð Almannavarna rfkisins og buðu fram
alla tiltæka aðstoð sfna.
Þannig bauð Eimskipafélag
tslands fram þrjú skip sfn, sem
voru ( nálægum höfnum — tra-
foss f Neskaupstað, Lagarfoss á
Fáskrúðsfirði og Selfoss á
Akureyri. Var það boð þegið, og
tóku öll skipin þátt f flutn-
ingum á tækjum, hjálpargögn-
um og mannskap til Neskaup-
staðar.
Magnús Magnússon, bæjar-
stjóri f Vestmannaeyjum, hafði
einnig samband við Almanna-
varnir, og bauð fram allar til-
tækar vélar, tæki og mannskap
f Eyjum, sem bærinn hefur
haft yfir að ráða frá því f Eyja-
gosinu.
Björgunarsveitin á Seyðis-
firði var ekki fyrr komin til
bæjarins eftir að hafa unnið
baki brotnu að þvf að bjarga 70
kindum út úr fjárhúsinu að
Selstöðum eftir snjóflóðin þar
en björgunarsveitarmönnum
barst fregnin um snjóflóðin f
Norðfirði. Þeir höfðu þegar
samhand við Neskaupstað og
buðust til að fara þangað til
hjálpar. Norðfirðingar þökk-
uðu boðið, en kváðust ekkí geta
þegið það, þar sem þeir töldu
óverjandi að hjörgunarsveitin
á Seyðisfirði yfirgæfi staðinn
vegna ðframhaldandi snjó-
flóðahættu þar um slóðir.
Þá hafði Sigurður M. Þor-
steinsson, formaður Flugbjörg-
unarsveitarinnar, samband við
Almannavarnir og bauð þeim
tæki f eigu sveitarinnar, sem
getur „hlustað" í snjó, þ.e.
greint hljóð undir snjóyfir-
borðinu.
Skuttogarinn Hvalbakur var f
höfn á Reyðarfirði og áhöfnin
öll komin f jólalcyfi hingað og
þangað um iandið, þar á meðal
skipstjðrinn sjálfur. Hann
hafði þó samband við Almanna-
varnir, benti á mann á Reyðar-
firði er gæti stjórnað skipinu
og kvað velkomið að nota það,
ef á þyrfti að halda.
Framhald á bls. 26