Morgunblaðið - 23.01.1975, Blaðsíða 12
12
MORGUNBLÁÐIÐ, FIMMTUDAGUR 23, JÁNUAR 1975
KemurLeonard
Cohen hingað í
nœsta mánuði?
Á tónlistarkvöldi hins nýstofn-
aða „Klúbbs 32“ I Sigtúni sl.
fimmtudagskvöld tilkynnti
einn af stjórnarmönnum
klúbbsins, Örn Petersen, að
unnið væri að þvf að fá Leonard
Cohen hingað til lands á næst-
unni til hljómleikahalds fyrir
félaga klúbbsins. Örn hélt til
Kaupmannahafnar fyrir
nokkrum dögum, m.a. til að
vinna frekar að þessu máli.
Slagsíðan sneri sér til annars
stjórnarmanns i Klúbbi 32,
Sigurjóns Sighvatssonar, og
spurði hann um málið. Sigurjón
sagði, að klúbburinn hefði ekki
undir höndum neinn samning
við umboðsmenn Cohens, en
hins vegar hefði Örn hitt um-
boðsmann Cohens ytra fyrir
nokkru og þá fengið loforð hans
fyrir því, að Cohen kæmi viö
hér á landi á leið sinni yfir
hafið og héldi eina hljómleika.
Einnig hefði danska umboðs-
skrifstofan Scandinavian
Booking Agency — SBA —
gefið Erni sams konar loforð af
sinni hálfu. Skrifstofan mun
hafa með að gera ráðningar
Cohens til hljómleikahalds á
Noróurlöndum. „Ég játa það, að
ég er dálítið vantrúaður á að
Cohen komi hingað,“ sagði Sig-
urjón. „Þegar um stórstjörnur
eins og Cohen er að ræóa, er ég
ekki sannfærður fyrr en
samningur um hljómleika-
haldið hefur verið undir-
ritaður, já, jafnvel ekki fyrr en
stjarnan stígur hér á land. En
kannski er þetta óþarfa svart-
sýni að þessu sinni. Örn hefur
loforð umboðsaðilanna fyrir
komu Cohens hingað og er ein-
Leonard Cohen
Hver er Leonard Cohen og
hvað hefur helzt gert hann að
stórstjörnu?
Fyrri spurningunni er ekki
erfitt að svara. Leonard Cohen
er kanadfskur, skáld, rithöf-
undur og söngvari. Hann hefur
gefið út nokkrar Ijóðabækur og
tvær skáldsögur og höfðu þessi
verk hans vakið mikla athygli,
sérstaklega í Norður-Amerfku,
áður en hann dró fram gftarinn
og hóf að syngja ljóð sfn við
eigin lög inn á plötur og á
hljómleikum. Þá sló hann f
gegn f Evrópu og hefur átt
geysilegu fylgi að fagna á þeim
slóðum undanfarin 6—7 ár,
ekki sfzt í Bretlandi. Lfta
Bretar á hann sem eina af stór-
stjörnum nútfmans.
Ekki er auðvelt að lýsa þeim
töfrum, sem Ijóð hans og lög
búa yfir og gert hafa hann að
stórstjörnu. Ljóðin eru fremur
dapurleg og dimm rödd hans og
lágur söngur fylla hlustandann
ljúfsárri tilfinningu, sem ill-
mögulegt er að lýsa — nema þá
helzt með orðum spekingsins:
„Hann er bara eins og ég veit
ekki hvað!“ Þó má segja, að
einhvers staðar í bakgrunni sé
Dauðinn á ferð með sitt lið og
návist hans fyllir ljóðin og
söngvarann jafnt trega sem ást
á lífinu, sársauka og trúarvissu
— þótt sú trú sé líklega öðru-
vfsi en við eigum að venjast.
Meðfylgjandi mynd af Cohen
prýddi hulstur fyrstu plötu
hans og var tekin af hrað-
myndasjálfsala!
Ljóðið um Suzanne er eitt
kunnasta verk hans og til
kynningar á Leonard Cohen
birtir Slagsíðan það nú.
mitt að garfa i þessu núna í
Kaupmannahöfn."
Ef af komu Leonards Cohen
verður, kemur hann hingað i
næsta mánuði og leikur á
einum hljómleikum. Umboðs-
menn hans tóku vel i þá ósk, að
Cohen tæki ekki mjög háa upp-
hæð fyrir hljómleikahaldið, en
í staðinn er haft í huga að
hljómleikarnir verði ekki í
mjög stórum sal og aðgangur
verði takmarkaður fyrst og
fremst við klúbbfélaga.
Slagsiðan spurði Sigurjón,
hvort von væri á einhverjum
öðrum listamönnum eða hljóm-
sveitum hingað tii lands á veg-
um klúbbsins og kvaó hann Örn
hafa athugað möguleika á að fá
hingað til lands dönsku hljóm-
sveitirnar Secret Oyster og
Gasolin og ensku hljómsveitina
Sailor. Kvaðst Sigurjón von-
góður um að þessar hljómsvéit-
ir kæmu til landsins í sumar.
Secret Oyster kom hingað
sumarið 1973 og lék þá m.a. í
Tónabæ við góðar undirtektir.
Sailor sendi fyrstu stóru plöt-
una frá sér nokkru fyrir jól og
hefur hún hlotið góða dóma
hljómplötugagnrýnenda hér-
lendis og selzt vel.
Klúbbur 32 hefur einnig á
stefnuskránni að halda
mánaðarlega skemmtanir, þar
sem flutt verði tónlist eða
önnur skemmtiatriði af lista-
mönnum, sem ekki eru daglega
í sviðsljósinu, t.d. á dansstöð-
um. Þannig hefur klúbburinn
þegar haldið tvær skemmtanir
og lék hljómsveitin Change á
þeirri fyrri, en Jakob Magnús-
son stjórnaði hljómsveit í
flutningi laga sinna á seinni
skemmtuninni.
Þá hefur klúbburinn einnig á
stefnuskránni að gangast fyrir
ódýrum hópferðum til útlanda
fyrir ungt fólk og hefur i þvi
sambandi átt viðræður við
ferðaskrifstofuna Sunnu. Sagði
Sigurjón, aó ætlunin væri að
skipuleggja þessar hópferðir
sérstaklega fyrir unga fólkið,
þannig að farið yrði til staða,
sem ætla mætti að ungt fólk
hefði sérstakan áhuga á, og
t.d. heimsóttir skemmtistaðir
ungs fólks en ekki endiiega
skemmtistaðir eins og þeir, sem
Islendingar flykkjast á i sólar-
löndunum.
Félagsmönnum klúbbsins
hefur fjölgað ört og eru þeir nú
orðnir a.m.k. 600.
Suzanne
Suzanne takes you down to her place near the river
You can hear the boats go by
You can spend the night beside her
And you know that she's half crazy
But that's why you want to be there
And she feeds you tea and oranges
That come all the way from China
And just when you mean to tell her
That you have no love to give her
Then she gets you on her wavelength
And she lets the river answer
Thatyou've always been her lover
And you want to travel with her
Andyou wanttotravel blind
And you know that she will trust you
För you've touched her perfect body with your mind.
And Jesus was a sailor
When he walked upon the water
And he spent a long time watching
From his lonely wooden tower
And when he knew for certain
Only drowning men could see him
He said "All men will be sailors then
Until the sea shall free them"
But he himself was broken
Long before the sky would open
Forsaken, almost human
He sank beneath your wisdom like a stone
And you want to travel with him
And you want to travel blind
And you think maybe you'll trust him
For he's touched your perfect body with his mind.
Now Suzanne takes your hand
And she leads you to the river
She is wearing rags and feathers
From Salvation Army counters
And the sun pours down like honey
On our lady of the harbour
And she shows you where to look
Among the garbage and the flowers
There are heroes in the seaweed
There are children in the morning
They are leaning outfor love
And they will lean that way forever
While Suzanne holdsthe mirror
And you want to travel with her
And you want to travel blind
And you know you can trust her
For she's touched your perfect body with her mind.
Stofnþel -
situr í fyrirrúmi
• ENN kynnir Slagsfðan
unga hljómsveit sem um
þessar mundir er að reyna að
vinna sér sess f fslenzka ball-
bransanum. Þetta er Stofnþel.
Það nafn kann þó að hljóma
kunnuglega f eyrum ýmissa.
Stofnþel var til í fyrra Iffi fyr-
ir nokkrum árum, en endur-
fæddist nú í haust, eða fyrir
um þremur mánuðum.
0 Aðeins einn liðsmaður
gamla Stofnþels er í hinu nýja,
og er það Kristmundur
(kokkur) Jónasson trommu-
leikari. Þeir félagar sögðu í
stuttu spjalli við Slagsfðuna að
Stofnþel væri fyrst og fremst
rokkhljómsveit. Þeir hafa ekki
mikið komið fram opinberlega
undanfarið, einkum leikið f
Kópavoginum, en tveir liðs-
mannanna eru einmitt úr
þeim merka bæ, og svo f Þórs-
café. „Það er anzi erfitt að
byrja í þessum bransa,“ sögðu
þeir. „Fyrsta vandamálið var
að fá æfingapláss og sfðan að
komast inn á markaðinn. En
núna er að byrja að lifna yfir
þessu.“
A myndinni eru liðsmenn
Stofnþels frá vinstri: Kristinn
Ingi Sigurjónsson bassaleikari,
Magnús Gíslason rótari og um-
boðsmaður, Kristmundur
trommuleikari, Tryggvi Júlíus
Hubner gitarleikari, Magnús
Finnur Jóhannsson gítar-
leikari og söngvari, og Sig-
urður Kr. Sigurðsson söngvari.
HKAiSNPWéMI