Morgunblaðið - 23.01.1975, Blaðsíða 32

Morgunblaðið - 23.01.1975, Blaðsíða 32
FIMMTUDAGUR 23. JANUAR 1975 Það gustaði hressilega í Reykjavik i gær, svo hressilega að mörgum þótti nóg um eins og reyndar viða á landinu. En það þýddi ekkert annað en reyna að bera sig vel og það gera kempurnar á meðfylgjandi mynd sem Sv. Þorm. tók í Austurstræti um miðjan dag. Þeir eru ekki að koma í mark úr 100 m hlaupi þessir tveir fremstu, heldur eru þeir á hversdagsgöngu í Austurstræti með gjóluroku í fang. Fárviðrið: Jámplötur rifnuðu kyrrstæð bifreið fauk MIKIÐ óveður af austnorðaustri gekk yfir Austfirði, Suðaustur- og Suðurland og fylgdi talsverð úr- koma mikilli veðurhæð um austanvert Suðurland og á Austurlandi. Samkvæmt upplýs- ingum Veðurstofu Islands varð hvassast undir GyjafjöIIum og á Hornafirði, en þar komst vind- hraði í 12 vindstig, svo og á Fagurhólsmýri. 1 Æðey komst vindhraði í 12 vindstig um klukk- an 15 í gærdag. Ekki höfðu í gær- kveldi borizt fréttir af neinum verulegum skemmdum. Páll Bergþórsson, veðurfræð- ingur sagði í viðtali við Mbl. í gær, að segja mætti að fárviðri hefði geisað á þessum stöðum, sem hér hafa verið upp taldir. Vindur hefði þó verið mjög breytilegur eftir staðháttum á hverjum stað. Vindhraði var heldur minni á Norðurlandi, þar sem hann komst í 10 vindstig hér og þar. Páll sagði, að í nótt værí búizt við því, að áttin snerist í norðaustur og myndi vindhraði þá að öllum líkindum aukast eitthvað um norðaustanvert landið og á Aust- fjörðum, en ákveðið sagði hann, að Veðrið færi ekki að ganga Biskupinn til Kantaraborgar BISKUP íslands, dr. Sigur- björn Einarsson, fór í morgun til Bretlands í boði hins ný- skipaða erkibiskups af Kant- araborg, dr. Donalds Coggan, til að vera viðstaddur er erki- biskupinn veróur formlega settur inn í embætti sitt í Dóm- kirkjunni i Kantaraborg á föstudaginn kemur og taka þátt í fleiri athöfnum af því tílefni. (Fréttatilk. frá Biskupsstofu 22. janúar). niður fyrr en liða tæki á daginn í dag og sagði hann, að jafnvel mætti búast við því að þetta veður héldist fram að hádegi í dag. Autanlands og allt vestur að Eyjafjöllum fylgdi mikill bylur þessu veðri, _svo að vart sá út úr augum. Norðanlands var mun hægara og t.d. var í gærmorgun aðeins 2 stiga vindur á Akureyri. Þó var þá á sama tíma 9 stiga vindur í Grímsey og 10 vindstig voru á Sandbúðum, sem eru beint upp af Eyjafirði. Mestur vindhraði var þar sem vindur stóó af f jöllum. Þannig var t.d. undir Eyjafjöllum. Þangað var ekki símasamband í gær, en óljósar fréttir höfðu þó borizt þaðan og fylgdi þeim, að fólk hefði vegna veðurs orðið að yfir- gefa einn bæ. Markús Jónsson fréttaritari Mbl. á Borgareyrum sagði t.d., að veður hefði verið þar eystra svo slæmt að hann hefði ekki treyst sér til þess að fara neitt frá. Þar var ofsaveður og snjóbylur, en Borgareyrar eru með vestustu bæjum undir Eyja- fjöllum. A Höfn í Hornafirði var veður heldur tekið að ganga niður síð- degis, en ofsaveður hafói verið um morguninn. Aflýsa varð jarðarför þar í gærmorgun og um miðjan dag varð árekstur á Höfn milli tveggja bíla og var aðal- ástæðan sú að ekki sást út úr augum fyrir blindbyl. Talsvert var um að þakjárn losnaði og fyki. 1 Hveragerði brotnuðu þrír raf- magnsstaurar fyrir framan barna- skólann og fór þá rafmagn af stór- um hluta þorpsins. Var ekki búizt við, aö rafmagn kæmi aftur í þennan hluta fyrr en nú í morg- un. Á þessu svæði er Kaupfélag Árnesinga og varð að flytja allar frystivörur úr húsinu og hljóp ísgerðin Kjörís undir bagga með Kaupféiaginu og tók við vör- unum. Alllöng bílalest festist á Öxna- dalsheiði i gærdag. Yta hafði farið fyrir lestinni, en svo óheppi- lega vildi til að hún varð oliulaus og var þá þegar sendur oliubíll frá Varmahlið í Skagafirði. Sá komst ekki lengra en í Blöndu- hlíð, þar sem hann festist. I gær kveldi voru menn að fara á snjó- bílum frá Akureyri bílunum til aðstoðar, en eingöngu mun hafa verið um vöruflutningabifreiðir að ræða. Ofsarok var i Vestmannaeyjum í gærdag og fuku járnplötur víða af húsum og mikill vikurbylur var vestur um kaupstaðinn. Övenju- miklir sviptivindar voru og í mestu byljunum komst veðurhæð í 14 vindstig. Átti fólk i erfið- leikum með að fóta sig á hálku í óveðrinu. Við lögreglustöðina í Hilmisgötu fauk fólksbíll, Cort- ina, um og hafnaði á þakinu. Framhald á bls. 18 Sjómannasamband tslands: Hvetur til verk- falla 10. febr. SAMNINGANEFND Sjómanna- sambands Islands hélt liðlega tveggja tfma langan fund f gær í Reykjavík og samþykkti eftirfar- andi samhljóða, en 12 menn eru í nefndinni: „Fundur samninganefndar sjó- manna vegna bátakjarasamning- anna haldinn 22. 1. 1975, beinir þeim tilmælum til aðildarfélaga Sjómannasambands Islands, sem sagt hafa upp viðkomandi samningum, að þau boði til vinnustöðvunar er taki gildi eigi sfðar en á miðnætti lO.febr. n.k. hafi samningar ekki tekizt fyrir þann tfma.“ Að sögn Jóns Sigurðssonar for- manns Sjómannasambandsins eru sjómenn á Norðurlandi, Vest- urlandi og Suðvesturlandi aðilar að Sjómannasambandinu, en ekki sjómenn á Vestfjörðum og Aust- fjörðum og Jón kvað sjómanna- félagið Jötun í Eyjum ekki vera komið í gang eftir gos. • Þau félög, sem eru í Sjómanna- sambandinu, kvað Jón vera: Sjó- mannafélag Eyjafjarðar, Verka- lýðsfélagið Vöku i Siglufirði, Verkamannafélagið Fram á Sauð- árkróki, verkalýðsfélögin á Hellissandi, Ólafsfirði, I Grundar- firði og Stykkishólmi, Verkalýðs- félag Akraness, Sjómannafélag Reykjavikur, Matsveinafélag Sjó- mannasambandsins, Sjómanna- félag Hafnarfjarðar, Vélstjóra- félag Suðurnesja og Sjómanna- félögin í Grindavik, Þorlákshöfn og á Eyrarbakka. „Blönduósmálið er ekki einn þúsundasti aðalvandamálsins” — segir sjávarútvegsráðherra, sem efast um að fiskiskipaflotinn geti gengið í vetur „ÞIÐ ERUÐ að leita frétta af þessum Blönduósbát og því máli,“ sagði Matthias Bjarnason sjávar- útvegsráðherra þegar við höfðum tal af honum í gærkvöldi, „en ég tel," hélt hann áfram, „að það vandamál sé ekki einu sinni einn þúsundasti af því vandamáli sem við eigum nú við að stríða og tekur hug okkar allan og tíma. Það er vandinn í sambandi við fiskverðið og það hvort fiskiskipa- flotinn getur yfirleitt gengið í vetur. Hins vegar i sambandi við Blönduósbátinn og rækjuveiðar hans þá tel ég, að báturinn sé brotlegur, því hann hefur verið sviptur veiðileyfi og það hefur hann ekki virt. Hann verður því vafalaust kærður, en ég hef bara ekki tíma til þess alveg á stund- inni að kanna það mál til hlítar.“ Binda skut- togarann við nærliggj- andi hús Súðavík 22. jan. SKUTTOGARINN Bessi land- aði hér f dag f þriðja sinn frá áramótum og f þetta skipti voru það 135 tonn af góðum fiski, stórþorski af Halamið- um. Frá áramótum hefur Bessi landað alls 345 tonnum og er þvf mikil vinna hér og gott hljóðf fólki. Nokkur vandkvæði hafa ver- ið á þvf að hemja togarann við bryggju, sérlega ef eitthvað hefur blásið eða hreyft sjó, því fjárveitingin til hafnargerðar- innar hérna var nú ekki meiri en svo að engir bryggjupollar eru á bryggjunni. Það er því tekið til þess ráðs, þegar Bessi kemur til hafnar, að binda skipið við hús, sem eru nær- liggjandi og oftast verður fyrir valinu olfuskúr, sem stendur þannig að hægt er undir þess- um kringumstæðum að nota hann sem bryggjupolla. Sigurður. Fjársöfnun til styrkt- ar konu Geirfinns □ -□ Sjá samtal við Guðnýju Sigurðar- dóttur, eiginkonu Geirfinns Einarssonar, á bls. 3. □ ---------------------------D HAFIN er almenn fjársöfnun til styrktar eiginkonu Geirfinns Einarssonar og börnum þeirra, en eins og mönnum er kunnugt hvarf Geirfinnur með dularfull- um hætti í Keflavík fyrir rúmum tveimur mánuðum. Hefur ekkert til hans spurzt þrátt fyrir mikla ieit og umfangsmikla rannsókn á hvarfi hans. Fjársöfnun þessi er hafin að frumkvæði sóknarprests- ins f Keflavík sr. Björns Jóns- sonar. A meðan ekki tekst að sanna hvort Geirfinnur er iífs eða iiðinn, stendur eiginkona hans, Guðný Sigurðardóttir uppi bóta- laus f allt að tvö ár. Þá eru kring- umstæður slfkar, að Guðný á erfitt með að hefja vinnu utan heimilis sfns, fyrst um sinn a.m.k. Hún stendur því illa að vígi fjár- hagslega og framundan eru m.a. erfiðar afborganir af íbúð, sem hún og Geirfinnur festu kaup á fyrir tveimur árum. Þær afborg- anir getur hún ekki greitt né framfleytt sér og börnum sínum án fjárhagsstuðnings samborgara sinna. Á bls. 3 i Mbl. i dag er hjálpar- beiðni frá sóknarprestinum í Keflavik, sr. Birni Jónssyni. Þar kemur fram, að Guðný stendur mjög höllum fæti fjárhagslega og raunar verr en Guðný vill sjálf vera láta í samtali sínu við Mbl. Beinir sr. Björn þeim tilmælum tii allra, sem vilja rétta henni og börnum hennar hjálparhönd í þeirra erfiðleikum, að þeir leggi fram einhvern skerf. Morgunblaðið hefur orðið við þeirri bón að taka á móti fjár- framlögum. Einnig mun Hjálpar- stofnun kirkjunnar taka við fram- lögum á gíróreikning 20.000. i Keflavík tekur Sparisjóðurinn við framlögum og sömuleiðis sr. Björn Jónsson, sóknarprestur.

x

Morgunblaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.