Morgunblaðið - 23.01.1975, Síða 17
MORGUNBLAÐIÐ, FIMMTUDAGUR 23. JANUAR 1975
17
HVERTEKUR
AFB
VIÐ
REZHNEV?
VESTRÆNIR sérfræðingar í
sovézkum málefnum segja að nú
sjáist þess þegar merki að hafið sé
einhvers konar pólitiskt laumu-
spil í Moskvu þar sem ekki sé
hægt að útiloka þann möguleika
að Leonid Brezhnev hrökkvi upp
af eða neyðist til að segja af sér
vegna veikinda en verði ef til vill
skipaður í heióursembætti — til
dæmis gerður að forseta.
Fréttirnar um veikindi
Brezhnevs eru mjög á reiki og
ekki vitað hve alvarleg þau eru og
þvi virðist það laumuspil, sem
bersýnilega er hafið í Moskvu,
vera undanfari harðrar valdabar-
áttu þar sem eigast muni við ráð-
settir og aldraðir valdamenn i
stjórnmálaráði kommúnista-
flokksins og yngri menn sem
standa þrepi lægra i valdastigan-
um.
Oft hefur líklegt verió talið að
eftirmaður Brezhnevs verði
Alexander Nikolaevich Shelepin,
fyrrverandi yfirmaður sovézku
leynilögreglunnar og núverandi
yfirmaður verkalýðshreyfingar-
innar.
Shelepin var siðasti yfirmaður
sovézku æskulýðshreyfingarinnar
Komsomol sem Stalin skipaði og
siðan 1967 hefur hann verið tal-
inn liklegasti eftirmaður
Brezhnevs úr hópi ,,yngri“ valda-
manna Sovétríkjanna.
En óvist er með öllu hvað
Shelepin hefur mikil völd og
áhrif i stjórnmálaráðinu og hvort
hann nýtur stuðnings hersins sem
Brezhnev hefur tekizt að hafa
taumhald á til þessa með stuðn-
ingi Andrei Grechkos marskálks.
Bæói Stalin og Krúsjeff völdu
sér eftirmenn en það hefur
Brezhnev ekki gert. Öfugt við
fyrirrennara sina hefur Brezhnev
einnig sætt sig við það að flokkur-
inn hefur aftur sölsað undir sig
mikil völd, sem voru tekin frá
honum, og þannig auðveldað
flokknum að ná öllum völdunum í
sinar hendur þegar hann hverfur
af sjónarsviðinu.
Enginn veit hvað gerist þegar
Brezhnev hverfur en iítil von
Suzlov
AN BOSWELL
o
virðist til þess að samskipti Sovét-
rikjanna og vestrænna ríkja batni
við það.
Kunnir sérfræóingar i sovézk-
um málefnum eins og Robert Con-
quest benda á að Brezhnev hafi
tekizt að tryggja Sovétrikjunum
allar nauðsynlegar viðskipta-
ívilnanir hjá vestrænum ríkis-
stjórnum án þess að þurfa að gera
verulegar tilslakanir á móti og
óliklegt sé að nokkur sá maður
sem taki við af Brezhnev breyti
þessu kerfi sem hann hefur byggt
upp.
En gera má ráð fyrir að
Shelepin tæki miklu harðari af-
stöðu gegn Kínverjum og svo gæti
farið að hann styddi kröfur her-
foringjanna um takmarkaðan
hernað á hinum umdeildu landa-
mærahéruðum einhvern tíma á
næstu tveimur árum.
Þar sem heita má að stjórn-
málaráðið sé eini stjórnmálavett-
vangurinn i Sovétríkjunum er
erfiðara en ella að meta ástandið i
Rússlandi. Svo vitnað sé i Con-
quest, sem hefur ferðazt mikið
um Sovétríkin og samið nokkrar
viðurkenndar bækur um sögu
Sovétríkjanna og sovézk stjórn-
mál:
„1 raun og veru eru stjórnmálin
i Moskvu i höndum manna sem
aðeins eru nokkrir tugir talsins og
þegar einn þeirra hverfur —
Brezhnev til dæmis — jafnast það
á við það að milljón atkvæði
hverfi i vestrænu riki.
Aðalatriðið er að hafa i huga í
sambandi við þá baráttu sem nú
er hafin um það hver eigi að fara
með völdin þegar Brezhnev hverf-
ur af sjónarsviðinu að ólíklegt er
að þeir sem bítast á um þau standi
við það sem þeir lofa þegar málið
er útkljáó."
Eins og sakir standa eru þrír
möguleikar fyrir hendi:
£ í fyrsta lagi að Æðsta ráðið —
sem yrði kallað saman i síðasta
lagi einni viku eftir að Brezhnev
yrði vikið úr stöðu flokksritara —
skipi einn hinna gömlu og ráð-
settu valdmanna eftirmanna hans
til bráðabirgða og að hann dragi
sig smátt og smátt i hlé á tveimur
árum og fái völdin í hendur yngri
manni. Beinast liggur við að ætla
að þessi maður yrði Mikhail
Suzlov, einn helzti hugsjónafræð
ingur flokksins og stjórnmála-
ráðsfulltrúi. Hann er 73 ára að
aldri.
0 1 öðru lagi að yngri maður, til
dæmis Shelepin eða Kiril
Mazurov (hann er sextugur og
hefur fengió mikla reynslu af að
Mazurov
stjórna öllum helztu stofnunum
ríkisbáknsins) verði strax skipað-
ur flokksritari eða í annað mjög
valdamikið embætti og noti
tfmann það sem eftir er ársins til
þess að losa sig við gömlu valda-
mennina og skipa stuðningsmenn
sina í þeirra stað.
0 I þriðja lagi getur herinn
skorizt í leikinn ef mikið fer úr
skorðum i valdabaráttunni, ein-
faldlega með því að afhenda
æðsta ráðinu lista með nöfnum
þeirra manna sem hann vill að fái
völdin, ekki aðeins nafn flokks-
ritarans heldur einnig nöfn allra
fulltrúa stjórnmálaráðsins.
Fyrir þessu eru fordæmi. I
Búlgaríu var nánast gerð
stjórnarbylting 1967 þegar herinn
umkringdi byggingu þar sem
valdaforystan sat á fundi og af-
henti henni slíkan lista með nöfn-
um manna sem hann vildi að vik-
ið yrði frá völdum og annarra
manna sem hann vildi að yrðu
skipaðir i þeirra stað.
En sovézki herinn þyrfti ekki
einu sinni að hóta valdbeitingu —
„herinn þyrfti aðeins að ganga á
fund ráðsins og afhenda lista sinn
og i því fælist sú hótun að ef ekki
yrði gengið að kröfunum mundi
herinn grípa til sinna ráða og
koma fram hefndum" eins og
Conquest segir.
Almennt er talið ólíklegt að
þetta geti gerzt, en í einræðisrikj-
um getur allt gerzt, jafnvel í Rúss-
landi vorra daga.
Flestir valdamestu manna
Sovétrikjanna — Brezhnev, Pod-
gorny, Kosygin og Kirilenko —
eru á áttræðisaldri, sumir aðeins
yngri, aðrir að nálgast áttrætt —
og á þeim sjást þreytumerki. Þeir
njóta minna trausts heima fyrir
en áður. Þeir hafa verið valtir i
sessi í nokkurn tima og ef einn
þeirra fellur — Brezhnev — gæti
hann hæglega tekið alla hina með
sér í fallinu.
Yngri valdamennirnir eru yfir-
leitt lítt kunnir á Vesturlöndum,
en ekki fer á milli mála að þeir
eru metnaðargjarnir. Yfirleitt er
ekkert vitað um afstöðu þeirra til
hinnar bættu sambúðar við vest-
ræn ríki.
Sennilega er Shelepin þeirra
kunnastur. Hann hefur orð fyrir
að vera harðlínumaður í innan-
landsmálum og sennilega mundi
hann beita andófsmenn í Sovét-
ríkjunum meiri hörku en þeim er
sýnd um þessar mundir og herða
á aganum í flokknum. Hann
mundi áreiðanlega ekki endur-
taka skopleg mistök sem nú-
verandi valdhöfum hefur orðið á
eins og þegar jarðýtum var beitt
til þess að ryðja burtu listaverk-
um.
I alþjóðamálum virðist afstaða
hans tvíræðari. Hann studdi þá
sem vildu íhlutun i styrjöld
Israelsmanna og Araba 1967, en
þótt undarlegt megi virðast er
þrálátur orðrómur á kreiki um að
hann hafi verið andvigur innrás-
inni í Tékkóslóvakíu.
Ef hann lætur utanríkismál til
sín taka er sennilegast að hann
léti til skarar skriða gegn Kín-
verjum í landamæradeilunni við
þá. Hann er harður i afstöðu sinni
til Kínverja og vel má vera að
hann yrði reiðubúinn að reyna að
treysta sig i sessi með því að skipa
hernum að ráðast til atlögu. Lik-
urnar á slíkum aðgerðum mundu
aukast ef hann væri við völd og
annað hvort Mao Tse-tung og
Chou En-lai létust.
En enginn þeirra manna sem
líklegt er að taki við völdunum af
Brezhnev — og enginn fulltrúi i
stjórnmálaráðinu ef út i það er
farið — hefur sýnt þess nokkur
merki að vilja auka frjálsræði
innanlands i vestrænum skiln-
ingi, jafnvel ekki eins mikið og
Gierek í Póllandi og Kadar i Ung-
verjalandi. Þeir koma kannski
ýmist fram i hlutverkum harð-
línumanna eða frjálslyndissinna
en allir trúa þeir á „helgan valda-
rétt“ flokksins.
Auk þess er þeim það öllum
sameiginlegt — stjórnmálaráðs-
fulltrúunum einnig — að þeir eru
fjandsamlegir í garð vestrænna
rikja.
En hvorki i London, Washing-
ton né öðrum vestrænum höfuð-
borgum er búizt við stórtækum
breytingum ef nýr maður eða nýir
menn taka við völdunum í
Moskvu. Ölíklegt er að nokkur
stórfelld stefnubreyting eigi sér
stað nema því aðeins að nýr valda-
maður reyni að móta hina nýju
stjórn i sinni mynd, riki sem ein-
valdur eða verði ráðríkur úr hófi
fram, en persónuleiki þeirra
valdamanna sem standa í næst-
fremstu röð, bendir ekki til þess
að það muni gerast.
Loks er sá möguleiki fyrir
hendi að flokkurinn ákveði að
skipa engan eftirmann Brezhnevs
og fresti þannig um stundarsakir
öllum ákvörðunum um val eftir-
mannsins. Ekkert ákvæði i lögum
flokksins kveður á um að flokkur-
inn verði að skipa eftirmann og á
árunum 1953 til 1954 gegndu fjór-
ir menn starfi flokksritara og
stjórnuðu i sameiningu, þar á
meðal Malenkov og Krúsjeff. En
ef þessi leið verður valin er hætta
á upplausn og umróti og ekkert
virðist unnið við að draga málið á
langinn.
En hvað sem gerist er víst að
þegar Brezhnev kveður tekur við
i Sovétrikjunum timabil harðra
innbyrðis ýfinga, flokksværinga
sem verða engum til góðs, hvorki
vestrænum ríkjum né venjuleg-
um rússneskum borgurum.
(Inter-Continental Features/
News Limited of Australia)
Shelepin