Morgunblaðið - 16.03.1975, Qupperneq 2
2
MORGUNBLAÐIÐ, SUNNUDAGUR 16. MARZ 1975
Hlutur olíu hverf-
andi í orkuvinnslu
Landsvirkiunnar
Arin 1972—73 var rennsli Sogs
og Þjórsár sem næst meðalrennsli
og árin tiltölulega góð vatnsár,
segir í nýútkominni skýrslu
Landsvirkjunar um þessi ár.
Skerðing á orkuframleiðslu
vegna ísa var Iftil 1972, en nokkur
i desemberkuldanum 1973.
Olíunotkun var nokkur 1972
vegna turnbrots við Hvítá og með
meira móti 1973 vegna rennslis-
truflana.
Raforkuframleiðsla til
almenningsþarfa jókst um 8.12%
á árinu 1972 og 9,23% á árinu
1973. Á árinu 1972 má segja að
þáttaskil hafi orðið i virkjunar-
íramkvæmdum Landsvirkjunar
því um mitt það ár lauk Lands-
virkjun síðari áfanga Búrfells-
virkjunar og voru þá teknar í
rekstur 5. og 6. vélasamstæða í
Búrfellsstöð. Jafnframt lauk
ISAL þá við síðari áfanga ál-
bræðslunnar í Straumsvik að afli
60 MW og á árinu 1973 var lokið
framkvæmdum Landsvirkjunar
við 1000 G1 miðlun í Þórisvatni.
Samkvæmt verksamningi við
verktaka er gert ráð fyrir að
fyrsta vélasamstæða Sigölduvirkj-
unar (50MW) verði tekin í rekst-
ur 15. júní 1976, önnur (50 MW)
15. sept. 1976 og þriðja (50 MW)
15. des. 1976.
Heildarorkuvinnsla Landsvirkj-
unar árin 1972 og 1973 var sam-
tals um 3465 GWh, en rafmagns-
vinnsla með olíu alls um 10,8
GWh og olíunotkun á kWh því
370 g. Olíunotkun í gasstöð og
gufustöð var á árinu 1972 1.641
tonn, en 1973 2338 tonn eða sam-
tals 3.979 tonn. Hlutur oliu i orku-
vinnslunni var því hverfandi.
Námskeið í hlaðaútgáfu
Fyrir forgöngu Sambands
ungra sjálfstæðismanna hefur
miðstjórn Sjálfstæðisflokksins
ákveðið að gangast fyrir nám-
skeiði í blaðaútgáfu. — Námskeið
þetta er einkum ætiað að-
standendum dreifbýlisblaðanna
svo og öllum þeim sem áhuga
hafa á að kynnast blaðaútgáfu. —
Námskeiðið verður haldið f
Reykjavfk dagana 5. og 6. apríl
n.k.
Dagskrá námskeiðsins verður í
stórum dráttum sem hér segir:
I. Dagur:
Fyrirlestrar.
1. Hver er tilgangurinn með
blaðaútgáfu á Islandi?
2. Hvernig verður blað til?
a) Fréttir
b) Greinar
c) Stjórnmálahlið blaðsins,
c. 1.) fyrir kosningar
c. 2.) milli kosninga
c. 3.) ritun stjórnmálagreina
c. 4.) tengsl blaðsins við þing-
menn viðkomandi kjördæma.
3. Aðbúnaður á ritstjórn smá-
blaðs. (leiðsögn í meðferð mynda-
véla, segulbanda, handbóka, rit-
véla, skjalasafna o.fl.).
4. Auglýsingar og auglýsinga-
söfnun.
5. Utlitsteiknun.
6. Rekstur blaðs sem fyrirtækis.
Síðan verður þátttakendum
skipt í hópa sem starfa sjálfstætt
að ýmsum verkefnum.
II. Dagur:
1. Störf hópanna rædd.
2. Val mynda við efni.
3. Utlitsteiknun á efni.
4. Prentun — prentunaraðferð-
ir kynntar — frágangur efnis til
prentsmiðju og almenn viðskipti
við prentsmiðjur. — Prófarka-
lestur.
5. Umræður og fyrirspurnir.
6. Heimsóknir i prentsmiðjur og
prentmyndagerð.
Með námskeiði þessu er stefnt
að því, að gera ritstjórum og öðr-
um aðstandendum hinna ýmsu
málgagna Sjálfstæðisflokksins
auðveldara fyrir með að valda
verkefnum sinum, svo og að
kynna áhugafólki þessi mál.
Námskeiðsstjóri verður Sigrún
Stefánsdóttir, ritstjóri islendings
á Akureyri. Auk hennar vinna að
undirbúningi námskeiðsins Ingvi
Hrafn Jónsson, blaðamaður,
Friðrik Sophusson og Markús Örn
Antonsson. Starfsmaður nám-
skeiðsins verður Jón Ormur
Halldórsson, framkvæmdastjóri
S.U.S.
Á föstudaginn var efnt til mótmælafundar gegn fyrirhugaðri
málmblendisverksmiðju í Hvalfirði. Eins og sést á þessari mynd
var fundurinn fámennur.
Þegar Ijósmyndari Mbl. var við myndatöku á Lækjartorgi þegar
fundurinn fór fram, vék sér að honum gömul kona, sem þar átti
leið um og spurði hvað um væri að ræða. Það er mótmælafundur,
svaraði ljósmyndarinn. Hverju er nú verið að mótmæla, spurði
konan. Málmblendisverksmiðju f Hvalfirði, svaraði Ijósm. — Nú,
já, er verið að mótmæla helv... verksmiðjunni, sem hann Magnús
Kjartansson er að reyna að koma yfir okkur, sagði gamla konan
og gekk á braut.
Mínni þátttaka
ferðum en oft
Fámennur mótmælafundur
Ljósmynd Ól.K.M.
SVO virðist, sem minni þátttaka
verði f páskaferðum að þessu
sinni en oft áður, og er þá einkum
átt við ferðir, sem er beint suður
á bóginn. Nú verður t.d. aðeins
ein ferð til Mallorca um páskana
og engin ferð til Costa del Sol.
Eflaust hefur það einhver áhrif,
að páskarnir eru mjög snemma að
þessu sinni og fólk treystir því
ekki, að hlýtt sé orðið á Spáni.
Aðalstraumurinn virðist beinast
til Kanarfeyja og þar verða um
páskana hátt i 500 manns á
vegum Flugleiða og eitthvað
álíka á vegum Ferðaskrifstof-
unnar Sunnu. Þá verða einnig
sérstakar ferðir innalands eins og
til Akureyrar og Húsavíkur, en
það eru skfða- og skemmtiferðir.
Við höfðum samband við ferða-
skrifstofurnar fyrir helgina og
spurðumst fyrir um páskaferð-
irnar.
Guðni Þórðarson hjá Sunnu
sagði, að hjá þeim beindist
straumurinn til Kanaríeyja og
sérstök ferð yrði farin þangað
þann 22. marz, en auk þess er
Sunna með fastar Kanaríeyja-
Sveinn Benediktsson:
Dylgjur 1 garð yfirvalda, banka og fram-
leiðenda vegna verðlags loðnuafurða
MEIRI rangfærslur um verðlag á
loðnumjöli og loðnulýsi hafa
verið hafðar í frammi að undan-
förnu, en nokkurn tima áður og er
þá langt til jafnað.
Á siðustu þremur árum hafa
orðið meiri og sneggri breytingar
á verðlagi loðnuafurðanna en
áður. Hafa þessar sveiflur haft
mjög óheillavænlegar afleiðingar
hér á landi, sökum þess hve loðn-
an og vinnsla hennar er orðin
mikilvæg fyrir afkomu landsins,
einkum þegar haft er í huga að
flestir aðrir fiskstofnar hér við
land hafa i mörg ár farið hrað-
minnkandi vegna ofveiði.
Allt of margir hafa gengið upp í
þeirri dul, að unnt væri að nota
,,hagnaðinn“ af mikilli skamm-
vinnri verðhækkun á þessum vör-
um til hverskonar framkvæmda
og eyðslu, löngu eftir að verðið er
fallið og orðið um geigvænlegan
hallarekstur að ræða.
Verð á loðnumjöli
Þjóðhagsstofnunin taldi i
skýrslu sinni dags. 16. febrúar s.l.
að búið væri að selja 37.000 lestir
af loðnumjöli á $ 4,24 fyrir eggja-
hvítueiningu í tonni cif. Gert er
ráð fyrir framleiðslu á 25.500
tonnum til þessa tíma og sé því
búið að selja um 11.500 af fram-
leiðslunni eftir 16. febrúar 1975,
en áætluð framleiðsla frá 16.
febrúar sé 39.500 tonn á $
3,85—4,08 fyrir eggjahvítuein-
ingu í tonni.
Verðið á loðnumjöli hefur enn
farið hríðlækkandi frá því að
skýrsla Þjóðhagsstofnunarinnar
var samin. Síðustu sölur á loðnu-
mjöli hafa farið niður í $
3,40—3,50 einingin til Finnlands
með afhendingu i júní — ágúst í
sumar meó greiðslu upp i 67%
eggjahvítu. Til Póllands hafa
verið seld 5000 tonn fob á $ 3,10
einingin greitt upp í 67% og til
Þýskalands 3000 tonn á $ 3,25
einingin cif greitt upp í 68%.
Ur Norglobal hefur tvisvar
sinnum verió selt loðnumjöl cif
Hamborg, i fyrra skiptió 8000
tonn á $ 3,77 fyrir eggjahvítuein-
inguna greiðanlegt upp í 67% og í
síðara sinnið 4000 tonn á $ 3,21
fyrir eininguna.
Þá skal þess getið að á árinu
1973 komst eggjahvítueiningin i
mjölinu upp í $ 10,20. Verðlagsráð
sjávarútvegsins áætlaói við
verðákvörðun 20. jan. 1974, að
fást myndu $ 9,50 fyrir tonnið,
þótt komið væri í ljós, að aðal-
markaðslandið, Pólland, vildi þá
ekki greiða hærra verð fyrir ein-
inguna en $ 6,50—7,50. Verðið
kolféll siðar á árinu 1974 og náði
ekki helming þess sem Verðlags-
ráð sjávarútvegsins hafði áætlað
það 20. jan. 1974.
Vegna stóraukins tilkostnaðar
við vinnsluna, sem fylgdi í kjölfar
olíukreppunnar, hækkunar á
loðnuverðinu til bræðslu, stór-
hækkaðs kaupgjalds, viðhalds-
kostnaðar og annarra reksturs-
vara, urðu flestar verksmiójurnar
fyrir svo miklu tapi, að þær höfðu
ekki bolmagn til þess að mæta
þeim skuldum sem á þeim hvíldu.
Meðal annarra skulda verksmiðj-
anna s.l. haust voru skuldir vegna
ferskloðnunnar. Námu þessar
skuldir við útgerðarmenn eina
saman þá um 60 milljónum króna
og eru þær ennþá ógreiddar að
verulegu leyti.
Fyrir viku seldu Perúmenn til
Vestur-Þýzkalands um 100.000
tonn af ansjóvetumjöli til afhend-
ingar cif Hamborg á $ 3,08 eggja-
hvitueininguna. Afskipun hefst í
apríl n.k. og varir til marz 1976.
Verö á loðnulýsi
Samkvæmt fyrrgreindri skýrslu
Þjóðhagsstofnunarinnar námu
fyrirframsölur á loðnulýsi, vegna
vertíðarinnar 1975, 14.750
tonnum og meóaltalsverð á tonni
$510. Áætlar stofnunin, að fram-
leiðslan fram til 15. febrúar nemi
10.500 tonnum. Frá 16. febr.
áætlar hún að framleidd verði
11.150 tonn og verðið muni verða
$ 454 _ 473 á þeim 6.900 tonnum, !
sem eftir sé að selja. í þessum 1
mánuði (marz) hefur verið selt
frá verksmiðjunum um 2.700 tonn
á $340—360 tonnið cif og auk
þess 750 tonn frá Norglobal á $
350 tonnið cif. Afhending á þessu
lýsi fer fram, að mestu leyti, í
þessum mánuði.
Vegna hins lága verðs á loðnu-
afurðunum var ákveðið að fórna
allri væntanlegri áætlaðri inn-
stæðu f verðjöfnunarsjóði loðnu-
mjöls og loðnulýsis, að upphæð
rúmum 300 milljónum króna, f
því skyni að hækka verðið svo að
unnt yrði að stunda veiðarnar.
Framhald á bls. 47.
2—3 milljón
króna tjón
á loðnunót
Faxaborgar
LOÐNUNÖT loðnuskipsins Faxa-
borgar varð fyrir miklum
skemmdum s.l. miðvikudag er
nótin festist f hraunbotni eftir að
óklárt varð á spilí skipsins. Fest-
ist hún 1 botni á tæplega 40 faðma
dýpi og ekki reyndist unnt að
snurpa eðlilega. Er hér um að
ræða 2—3 millj. kr. tjón að sögn
Ingólfs Theódórssonar netagerð-
armeistara f Vestmannaeyjum,
en nótin er nú f viðgerð hjá Neta-
gerð Ingólfs.
Þetta átti sér stað inn og vestur
af Eyjum, en Ingólfur kvað þetta
með stærri óhöppum í sambandi
við rifriidi nóta. Netagerðin
Ingólfur lánaði Faxaborginni nót
á meðan viðgerð fer fram, en
áætlað er að henni ljúku nú um
helgina. „Við reynum aó lána
nætur á meðan stórviðgerðir fara
fram,“ sagði Ingólfur, „ef þeir
vilja þiggja það, en það gerum við
til þess að þeir þurfi ekki að
liggja í landi á meðan viðgerð fer
fram. Við gerum eins og við get-
um fyrir flotann."
ípáska
áður
ferðir. — Það verða eitthvaó á
þriðja hundrað manns frá okkur á
Kanaríeyjum um páskana.
Hann sagði, að minni eftirspurn
væri eftir ferðum til Mallorca og
Spánar en oft áður, sennilega
vegna þess að páskarnir væru
óvenjulega snemma í ár. Ekki
verða þó flugvélar Air Viking
verkefnalausar um páskana, því
önnur vél félagsins fer í leiguflug
fyrir danska Vestur-Indíafélagið
til Karabíska hafsins.
Örn Steinsen hjá Utsýn lét
okkur í té þær upplýsingar, að þar
væri búið aó selja 50—100 sæti í
báðar ferðir Flugleiða til Kanarí-
eyja. Þá yrði einnig páskaferð til
Kenya, sem að vísu væri ekki fjöl-
sótt.
Utsýn hefur nú tekið upp þá
nýjung að efna til skíðaferðar til
Húsavíkur um páskana. Er hér
um 5 daga ferð að ræða og kostar
hún aðeins 12 þúsund kr. Dvalið
verður á nýja hótelinu á Húsavík,
en þaðan eru aðeins 200 metrar að
skíðalyftunni. Ýmsar skemmtanir
verða á Húsavik um páskana.
Gyða Sveinsdóttir hjá Ferða-
miðstöðinni sagði þegar við rædd-
um við hana, að ferð færi frá
þeim til Túnis þann 26. marz og
væri það 18 daga ferð, um
London. Ekki væri enn vitað með
vissu hve margir tækju þátt í
þessari ferð. Þá seldi Ferðamið-
stöðin í ferðir Flugleiða til
Kanaríeyja um páskana og nú
væri uppselt í þær ferðir. Enn-
fremur væri skíðaferð til Kitz-
búhl í Austurriki á dagskrá.
Þá sagði hún, aó því væri ekki
að neita, að eftirspurn eftir utan-
landsferðum væri miklu dræmari
heldur en i fyrra.
Hjá Ferðafélagi íslands fengum
við þær upplýsingar, að á vegum
félagsins yrði farnar tvær ferðir í
Þórsmörk um páskana, önnur í 5
daga, hin í þrjá. Þegar Kafa 30
manns pantað pláss í lengri ferð-
i.na, en eitthvað færri i þá styttri.
Þá verður Ferðafélagið með 6
eins dags ferðir um páskana.
Urval verður með sérstaka ferð
til Mallorca um páskana, sagði
Framhald á bls. 47.