Morgunblaðið - 16.03.1975, Síða 3
MORGUNBLAÐIÐ, SUNNUDAGUR 16. MARZ 1975
3
SIGURBJQRN EINARSSON BISKUP:
Fórn á föstu
Fasta er fornt og nýtt heiti á þeim
árstíma, sem nú stenduryfir. Flestir
vita, að þetta nafn á vikunum sjö fyrir
páska er dregið af venjum, sem menn
tömdu sér á þessum tíma áður fyrri.
Menn neituðu sér um eitt og annað,
drógu úr neyzlu sinni, lögðu á sig
nokkra sjálfsafneitun.
Þetta er gamalt í kirkjunni og á rætur
í Biblíunni. Jesús fastaði á stundum,
þ.e. neytti lítils eða einskis matar.
Hann gerði ráð fyrir, að lærisveinar
hans gerðu hið sama, er svo bæri
undir Hann tengir saman bæn og
föstu, bendir m.ö.o. á það, sem
margir fleiri hafa vitað og reynt,
að einbeitt íhugun og bæn á góða og
holla samleið með bindindissemi,
föstu.
Tíminn frá öskudegi til páska er
sérstaklega helgaður minningunni
um píslarferil frelsarans. Þegar kristn-
ir menn hugleiða þaðefni, spyrja þeir
sjálfa sig, hvað þeir leggi á sig hans
vegna, hvers þeir meti sitt eigið lif og
aðra menn i Ijósi þess, sem hann
lagði á sig í kærleika sínum. Það er
fjarri því að vera langsótt að minna
sig á þessa spurningu m.a. með því
að gangast af frjálsum vilja undir
nokkurn sjálfsaga, breyta t.d. eitt-
hvaðtil um neyzluvenjur. Lífiðer
meira en fæðan. Og allur þroski krefst
þess, að menn hafi vald á hneigðum
sinum. Hver íþróttamaður veit, að
hann geturekki náðárangri nema
hann „leiki líkama sinn hart og geri
hann að þræli sínum", eins og Páll
postuli kemst að orði. Listamenn vita
þetta líka. Trúmönnum er hið sama
Ijóst, þó að þeir séu ekki að keppa
eftir „forgengilegum sigursveig", svo
aftur sé vitnað í Pál, sem tók líkingar
af keppni manna i leik og list, þegar
hann var að benda á hina æðstu
Íþrótt og dýrustu list, ræktun hugar-
farsins í fylgd með Kristi og í sam-
félagi við hann.
Föstuhald á forna visu hefur horfið.
En hugsunin að baki er í gildi. Og
gildi hennar hefur orðið mörgum Ijós-
ara á síðari árum en áður. í fyrsta lagi
er það orðið Ijóst, að nægtirnar, svo
þakkar verðar sem þæreru, reynast
því aðeins heilnæmar, að menn kunni
sér hóf. Þau hin sterku bein, sem þarf
til þess að þola góða daga, eru sá
veigur viljans, sá innri styrkur, sem
leggur hollar hömlur á lífskröfur og
lífsvenjur. Menn hafa uppgötvaðað
það eru til velmegunarsjúkdómar,
bæði líkamlegir og andlegir. Læknar
verða oft að gefa ströng fyrirmæli um
mataræði og margir þurfa að leggja
harðar hömlur á sig til þess að varð-
veita heilsu sína eða vinna upp
heilsutap vegna ógætilegrar neyzlu.
í öðru lagi — og það er ennþá
þyngra á metum — er það orðið
öllum bert, að nægtirnar, sem vér
njótum, hafa að baki dimman
skugga. Aðrir líða skort. Við þann veg
framfara, hagvaxtar, batnandi lífs-
kjara, sem vér höfum gengið að
undanförnu, er krökkt af hungruðum
mönnum, vannærðum, vanheilum,
börnum og fullorðnum, sem eiga sér
veika bjargarvon eða enga, ef ekki
berst hjálp úr heimi nægtanna. Þessi
skuggi dylst ekki. Má ekki dyljast. Því
síður sem hann kann að birta mynd-
ina af því, sem vor eigin börn gætu
átt í vændum, ef mannkyn lætursér
ekki skiljast, að það verður sameigin-
lega að snúast við þessari ógn,
saman að axla þær byrðar, sem skort-
urinn veldur.
Þessi staðreynd hefur á síðustu
árum vakið menn til umhugsunar um
tímabært erindi föstunnar. Kristin
kirkja gengur hvarvetna fram fyrir
skjöldu í því að vekja og hvetja til
virkra aðgerða, samstilltra átaka til
þess að forð'a þvf að hungrið breiðist
út. Hún gengst fyrir margháttaðri
aðstoð við vanþróaðar þjóðir. Og hún
er jafnan á verði og reiðubúin til
hjálpar, þegar neyð dynur yfir. Þetta
er líknarstarf að sjálfsögðtfrunnið í því
skyni að grynna einhvers staðar djúp
hörmunganna. En þessi starfsemi er
líka hugsuðsem áminning: Þú, sem
ert mettur, mundu þá, sem svelta.
Hjálparstofnun íslenzku kirkjunnar
á þessu tvíþætta hlutverki að gegna
með vorri þjóð. Þjóðin hefur metið
tilveru hennar og viðleitni og sýnt
henni tiltrú. Frá fyrsta fari hefur
Hjálparstofnun kirkjunnar talið eðli-
legt, að menn minntust þess sérstak-
lega á föstunni, að sultur sverfur að
svo mörgum á þeirri jörð, sem allir
eiga saman. Einnig að þessu sinni er
eftir því leitað, að menn fórni fáeinum
munnbitum af eigin borði til þess að
létta nauðir einhvers, sem býr við
algera örbirgð. Og ofurlítill afsláttur
af munaði nokkurn tima gæti bjargað
mörgum, sem svelta hálfu og heilu
hungri, ef andvirðinu væri varið til
þess. Um það býður Hjálparstofnun
kirkjunnar meðalgöngu sína.
Ein vikan í sjöviknaföstu hefur
hlotið nafnið fórnarvika. Fórn er stórt
orð. Þeir menn hafa verið til, sem
hafa fórnað eigin hag, þægindum,
áliti, lífinu sjálfu fyrir aðra menn, af
kærleika til Krists, hans, sem færði
fórnina mestu og lagði þyngstu
áherzlu á það, að hann líður sjálfur í
öllum þeim, sem eiga bágt. Þeir eru
líka til, sem fórna miklu fyrir lítið:
Góðri samvizku fyrir lítinn ávinning,
friði við Guð og menn fyrir metnaðar
sakir, heilsu sinni og lífsláni fyrir
skammvinna nautn.
Fórnarvikan fer ekki fram á stórar
fórnir. En þess er vænzt, að hún
skírskoti til margra um þaðað leggja
fram einhvern skerf til þess að seðja
hungraða. Og yfirskrift hennar er nú
semáðurorð Biblíunnar (Jes. 58):
„Sú fasta, sem Guði likar, er að leysa
fjötra rangsleitninnar, láta rakna
bönd oksins, gefa frjálsa hina hrjáðu
og sundurbrjóta sérhvert ok. Það er,
að þú miðlir hinum hungruðu af
brauði þínu, hýsir bágstadda, hælis-
lausa menn."
Sigurbjorn Einarsson.
Þau syngja í Messías
Einsöngvararnir, sem
koma fram meö Pólyfónkórn-
um og kammerhljómsveit undir
stjórn Ingólfs Guðbrandssonar
vegna flutnings óratóríunnar
„Messías“ eftir G.F. Hándel,
eru ekki valdir af lakari endan-
um. Þrjú þeirra koma frá Bret-
landi einungis til aó taka þátt i
þessum flutningi og njóta þau
öll mikils álits og viðurkenning-
ar i heimalandi sinu og víðs
vegar á meginlandi Evrópu, þar
sem þau hafa hlotið lofsamlega
dóma. Fjórði einsöngvarinn er
einnig brezkur að uppruna, hin
góðkunna söngkona, Ruth L.
Magnússon, sem tónleikagest-
um hér er að góðu kunn fyrir-
þátttöku sina í flutningi fjölda
meiri háttar tónverka hér á
seinni árum, meðal annars með
Pólyfónkórnum, og mun óþarfi
að kynna hana hér nánar.
Sópranaríurnar i ,,Messíasi“
eru meðal hins fegursta, sem
samið hefur verið fyrir sópran-
rödd, t.d hin þekkta aría „I
know that my redeemer
Framhald á bls. 16
Neil Mackie
Janet Price.
Glynn Davenport.
Fe rða skrif stof a n
FERÐAAÆTLUN KOMIN
KENYA
SKIÐAFERÐ
5 daga ferð til
HÚSAVÍKUR
26 marz,
flugferðir, gisting
m/morgunverði
á einu bezta
hóteli landsins,
HÓTEL HÚSAVÍK
1. flokks aðstaða,
fríar skíðalyftur,
frí skíðakennsla,
kvöldvökur.
Verð aðeins
kr. 12.000,-
Kaupmannah
ÓDÝRAR
FERÐIR
PÁSKAFERO
Vika Safari
Vika við Indlandshaf
2 dagar í Nairobi
Fyrstaflokks
aðbúnaður
Brottför 22. marz.
HANNOVER
SÝNINGIN
LONDON
Ódýrar vikuferðir:
Marz: 16 22
April 5. 12 19 26
Mai: 10. 24
Verðfrá kr. 30.400.-
með viku gistingu og
morgunverði.
ÓDÝRAR FERÐIR
15. marz „19th
Scandinavian
Fashion week '75''
22. og 26. marz
Flug, gisting og morg-
unverður.
Verð frá kr. 33.700.
Brottför
1 5. april
6 dagar.
AUKAFERO
25. marz (1 vika)
TJÆREBORG EINKAUMBOÐ Á ÍSLANDI
AMERICAN EXPRESS EINKAUMBOÐ Á ÍSLANDI
COSTA r GULLNA COSTA
DEL SOL STRÖNDIN BRAVA
TORREMOLINOS BENALMADENA LIGNANO LLORET DE MAR Fyrsta brottför:
FUENGIROLA Fyrsta brottför: 2. júní
Fýrsta brottför: 1 7. mai Verð frá
1 8 mai Verð með 1. kr 34.500.
Verð með 1 flokks gistingu 2 vikur í ibúð
flokks gistingu í 1 9 daga frá Hótel m/fullu
í 2 vikur, frá kr 39.500 - fæði verð frá
kr 38.500,- kr 41.000.
V J J T-. ■ - V