Morgunblaðið - 16.03.1975, Síða 10

Morgunblaðið - 16.03.1975, Síða 10
10 MORGUNBLAÐIÐ, SUNNUDAGUR 16. MARZ 1975 Franskar litografíur Fyrir tæpu ári, opnuðu frakkar bókasafn aó Laufásvegi 12 hér í borg. Það er þvi ung stofnun og varla hægt að segja, að hún hafi slitið barnsskónum. Safnið hefur samt sífellt verið að aukast að bókakosti og ekki verður annað sagt en að vel horfi, ef framhaldið verður í samræmi vió byrjunina. En það er meira en lesmálið, sem fengíð hefur inni í þessari nýju stofnun. Þarna hafa verið sýndar kvikmyndir, fyrirlestrahald hefur einníg átt sér þar stað, og nú hefur verið opnuð þar önnur list- sýning á frönskum litografíum. Þótt hér sé um svo unga stofnun að ræða, sem raun ber vitni, gera þeir, sem þekkja til franskrar menningar, sér vonir um, að nú sé sú stund upprunnin, að vænta megi nánari kynna og sambands við franskar listir, bæði ritað mál og myndlist, svo að aðeins tveir þættir hennar séu nefndir. Eins og flestir vita, er frönsk hefð i listum ein af undirstöðum menningar í Evrópu, og ég held, að mér sé óhætt að fullyrða, að því miður höfum við hér á Islandi verið nokkuð afskiptir í kynnum við þessa merkilegu þjóð. Það hefur hingað til ekki verið mikið gert af því að kynna það besta sem frakkar eiga í fórum sinum, og líklegast halda margir hér á Islandi, aðkoníakiðog skuttogar ar séu það einasta, er frakkar hafi lagt heimsmenningunríi til. Það má einnig til tíðinda teijast, að fyrir ári var hér kvikmyndavika frönsk og nú nýlega er lokió ann- arri slikri, sem ég held, að margir hafi haft ánægju af. Þar fengúm við að sjá margt, sem varla hefði komið fyrir okkar augu, ef ekki Frá Tallin Nú er skákmótinu mikla 1 Tallin lokið og þótt úrslitin hafi þegar birzt f blööum ætla ég að rekja þau hér: 1. Paul Keres (Sovétr.) 10,5 V. 2.—3. Friðrik Ólafsson og Boris Spassky 9,5 v., 4.—5. D. Bron- stein (Sovétr.) og V. Hort (Tékkósl.) 9 v., 6. A. Gipslis (Sovétr.) 8,5 v., 7.-9. W. Lomhardy (U.S.A.) I Nei (Sovétr.) og Marovic (Júgósl.) 8 v., 10.—11. M. Taimanov (Sovétr.) ogEspig (A.-Þýzkal.) 7,5 v., 12.—13. L. Lengyel (Ungv.l.) og Rytov (Sovétr.) 5,5, v., 14.—15. Rantanen (Finnl.) og Kjarner (Sovétr.) 5 v. og 16. Hernandez (Kúba) 4 v. Um frammistöðu Friðriks eftir JON Þ. ÞOR Ólafssonar í þessu móti hefur svo margt verið rætt og ritað að það væri að bera í bakkafullan lækinn að fara að endurtaka eitthvað af því hér. Ég vil hins vegar ekki láta hjá líða að óska Fríðriki til hamingju með árangurinn og láta í ljós þá von, að þetta sé aðeins upphafið að öðru meira. Sigur Páls Keres hlýtur að vekja aðdáun og gleði allra sannra skákunnenda. Keres hefur sýnt með þessu, að hann er enn í fullu fjöri þótt aldurinn færist yfir hann nokkuð svo. Frammistaða þeirra Spasskys, Bronsteins og Hort kemur engan veginn á óvart en aftur á móti er árangur stórmeistarans Gipslis mjög athyglisverður, en hann hefur átt heldur erfitt upp- dráttar um skeið. Sama er um Nei að segja, fyrirfram hefði maður áætlað að Taimanov myndi verða fyrir ofan þá báða. Taimanov er hins vegar aug- ljóslega langt frá sínu bezta um þessar mundir. Enn hefur mér ekki tekizt að koma höndum yfir neina af skákum Friðriks frá mótinu, en hér kemur ein skák frá Tallin. Hvítt: D. Bronstein Svart: Ju. Rantanen Katalónsk byrjun 1. Rf3 — d5, 2. c4 — e6, 3. g3 — Rf6, 4. Bg2 — Be7, 5. 0—0 — 0—0, (Hér gat svartur brugðið sér út í Rétibyrjun með 5. — d4, en Rantanen kýs katalónska byrjun). 6. d4 — Rbd7, (Annar möguleiki var hér 6. — dxc4, ásamt c5). 7. Dc2 — c6, 8. Bf4 — b6, 9. Rbd2 — Bb7, 10. e4 (Hér er einnig Ieikið 10. e3). 10. — dxe4, 11. Rxe4 — Rxe4, 12. Dxe4 — Rf6, (Til greina kom einnig 12. — Dc8, ásamt c5). 13. De2 — c5, 14. Hadl — cxd4, 15. Rxd4 — Dc8, 16. b3 — Bxg2, 17. Kxg2 — Db7+, 18. Df3+. — I)xf3, 19. Kxf3 — Hfc8, (Hér var sennilega bezt að leika 19. — Hfe8 og svara 20. Rc6 með Bf8. Híns vegar mátti svartur ékki leika 19. — Hfd8 vegna 20. Rc6 — He8, 21. g4). 20. g4! (Góður leikur, sem tryggir hvítum varanlega yfirburði. Svartur lendir nú í mjög erfiðri aðstöðu, þar sem menn hans ná aldrei að vinna saman. Þetta notfærir Bronstein sér á mjög skemmtilegan hátt). 20. — a6, 21. g5 — Re8, 22. a4 — Ha7, 23. h4 — Hb7, 24. Hd3 — Hc5, 25. Hel — Hd7, 26. Hedl — g6, (Eftir 26. — e5, 27. Rf5 — Hxd3 + , 28. Hxd3 — Bf8, 29. Hd8 vinnur hvítur og sama gildir um 28. — exf4, 29. Rxe7+ — Kf8 30. Rd5). 27. Re2! — Hxd3 + , 28. Hxd3 — b5, 29. cxb5 — axb5, 30. a5 (Gegn þessu peði er svartur varnarlaus). 30. — Hc6, 31. Hd7 — Kf8, 32. Hb7 — b4, 33. Hb8 — Bc5, 34. Rg3! Nú getur ekkert hindrað hvíta rtddarann í að komast til f6 og þá er svartur varnarlaus. Rantanen tók því þann kost að gefast upp. Mynd eftir E. Pignon (nr. 10). hefði notið aðstoðar frá sendiráði frakka hérlendis. I bókasafninu við Laufásveg getur nú að líta sýningu á verkum 47 þekktra listamanna, sem til- heyra þeim hópi, er kallaður er á fagmáli myndlistarmanna um all- an heim „Parísarskólinn". Þetta hugtak þýðir einfaldlega, að þeir listamenn, sem falla undir þetta heiti, hafi unnið í París að list sinni um langan aldur, en ekki hitt, að þeir séu endilega fæddir í París eða hafi stundað þar nám. Þannig eiga margir verk á þessari sýningu, sem ekki eru franskir að uppruna, en starfaó hafa og búið í Frakklandi, flestir meginhluta ævi sinnar. Þessi sýning er úrtak af því, sem hefur verið aó gerast í myndlist í Frakklandi, síðan síð- ustu heimsstyrjöld lauk, og auð- sjáanlega eru þessi verk til þess valin, að sem breiðast yfirlit fáist, en það skal tekið fram strax, að hér er ekki um neina heildar- mynd að ræða og ekki heldur sér- stakt úrval. Er auðsjáanlega farin sú leið að leitast við að gefa hug- Myndllst eftir VALTY PÉTURSSON mynd um hluta af því, sem einna mesta athygli hefur vakió á þessu sviði síðustu áratugi. „Parísar- skólinn1' er svo merkilegt fyrir- bæri, að ein sýning sem þessi hefur enga möguleika á að gefa heildarmynd af því sem þar hefur gerst á úndanförnum áratugúm, enda mun önnur sýning af líku tagi vera i gangb og vonandi fáum við að sjá hana, þegar þar að kemur. Það skal því engan furða, að á þessa sýningu vantar mikið af listamönnum, sem vakið hafa verulega athygli á þessu tímabili, en ég held ég megi fullyrða, að flestir þeir listámenn, sem þar eiga verk séu þekktir um víða veröld, og sumir þeírra teljast til meistara vorra tíma, eins og t.d. Coeteau, Dufy, Hayter, Lam, Lurcat, Magnelli, Manessier, Ray, Singier og Zadkine. Ég nefni aðeins örfá nöfh, en það mætti minnast á hérumbil alla sýnendur og segja sitthvað um hvern og einn. En aó mínu áliti hefur slik upptalning enga þýðingu hér, og sleppi ég henni þess vegna. Ein eða tvær litografískar myndir gefa að sjálfsögðu mjög takmarkaða hugmynd um list hvers og eins af þessum lista- mönnum. En samt mætti segja, að hér væri um einn þátt í listsköpun þeirra að ræða. Allflest þessi verk eru til orðin á hefðbundinn hátt, hvað tækni viðvíkur, og það er ekki laust við, að maður sakni nokkuð, aó ekki skuli vera meira um nýja tækni að ræða. En frakk- ar eru vanafastir og skemmtilega íhaldsamir og nútímalegir í senn, eins og þessi sýning sannar. Per- sónulega sakna ég þess að ekki skuli vera á sýningunni fleiri myndir eftir hvern listamann og þar með sterkari mynd af því, sem þessir menn hafa lagt til mála. Það er einn verulegur galli á þessari sýningu, og það er, hve leiðinlega er gengið frá sjálfum verkunum. Bæði er, að innrömm- un er langt frá því að sæma lista- verkunum og eins, að sum þessara verka eru orðin þvæld og jafnvel óhrein. Þetta er hvergi gott og dregur heildarsvipinn niður, þannig að verkin fá hvergi notið sín. Grafík er sérlega viðkvæm, hvað þetta snertir, og ég er viss um, að hið stóra ríki, Frakkland hefur vel efni á að ganga betur frá þessum annars ágætu lista- verkum. Mikill fengur er að fyrir okkur hér á íslandi að fá slíkar sýningar sem þessar, og ég fagna því, að nú virðist það fara í vöxt, að stórveld- in sendi okkur sýnishorn af myndlist sinni. Ég hafði mikla ánægju af að skoða þessi verk, og það kom svolítið við mínar róman- tísku taugar að sjá listaverk eftir þá menn, sem einna mest komu við sögu á þeim árum, er ég dvaldi í París. En ég vil taka það mjög skýrt fram, að þessi Sýning gefur ekki nema mjög takmarkaða hug- mynd um raunverulegt framlag þess hóps, er hér á í hlut, til þróunar myndlistar á vesturlönd- um og jafnvel víðar seinustu ára- tugi. Ég vonast til, að fólk notfæri sér að kynnast þessum listamönn- um, en bókasafnið er aðeins opið frá kl. 16 daglega. Þetta er góð byrjun við kynn- ingu á franskri menningu, og ég vona, að áframhald verði á því merka starfi, sem hafið er. Sembaltónleikar Efnisskrá: Q Girolamo Frescobaldi Toccata settima Gagliarda, I—V □ Francois Couperin Sixieme Ordre Q J.S. Bach Ensk svíta nr. 3 í g-moll □ Domenico Scar- latti Þrjár sónötur í D- dúr Rita mætti langt mál, bæði um tónskáldin og þau verk sem Helga Ingólfsdóttir lék með miklum glæsibrag á tónleikum Tónlistarfélagsins s.l. laugar- dag (8. marz). Á sama tíma og við Islendingar vorúm í óða önn, að eta, skóbæta og sníða úr skinnhandritaforða fyrri alda, þá voru silkiklæddir menn og konur í Evrópu að leika tóna- flúr á skrautlega málaða sem- bala, tónaflúr, sem yrði íslend- ingum óskiljanlegt þar til þeir lærðu að ganga á dönskum skóm og þyrftu ekki að stela sér snærisspotta. Nærri f jórum öld- um seinna eignast Islendingar sinn semballeikara, þessi undarlega þjóð, sambland höfðingjadjarfra beltara og lítilþægra stórskálda, sem nýverið hafa eignast snæri og lært að ganga á dönskum skóm. Án þess að skynja timamuninn hlýðum við á hljómþýða og skrautléga tónlist, sem fær sér- stakt inntak I hraðfleygu og hávaðasömu samfélagi nú- tímans. Það fer vel á að vitna til orða sem höfð eru eftir Couperin í efnisskrá: „Ég unní því meir sem snertir mig djúpt, en hinu er vekur furðu mina." Undirritaður var djúpt snortinn en einnig undrandi á Tónllst eftir JON ÁSGEIRSSON tækni og þekkingu ein- leikarans. Helga Ingólfsdóttir er mikil listakona og gefum gaum að starfi hennar í fram- tíðinni. Jón Asgeirsson

x

Morgunblaðið

Beinleiðis leinki

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.