Morgunblaðið - 16.03.1975, Side 14
14
MORGUNBLAÐIÐ, SUNNUDAGUR 16. MARZ 1975
t pásu, — Pétur ásamt gömlum vini og samspilara Þórarni Olafssyni
pfanóleikara.
Svfinn Kjell Janson og Ole
Kock Hansen frá Danmörku.
hvergi afdrep að fá auk þess sem
Pétur hafði aðeins hálftíma hlé
frá spilamennskunni með Nord-
jazz. Varð því að nokkurs konar
samkomulagi milli Péturs og
Slagsíðunnar að hann svaraði
spurningunum í gegnum tromm-
urnar enda lét Pétur að því liggja
að sá háttur væri sér næst skapi.
Af skiljanlegum ástæðum verða
þau svör ekki túlkuð á prenti
enda verða orð harla léttvæg í
samanburði við það sem þar kom
fram. Þeir sem heyrðu Pétur og
sáu á tónleikum Nordjazz skilja
sjálfsagt hvað Slagsíðan á við.
Hinir verða að láta sér nægja að
geta i eyðurnar og skoða með-
fylgjandi myndir sem teknar voru
í Tjarnarbúð umrætt kvöld.
Að dómi Slagsíðunnar var
heimsókn Nordjazz-kvintettsins
afar ánægjuleg og kærkomin i
fremur fábreytt tónlistarlíf hér á
landi. Kvintettinn flutti með sér
ferskleika og í leik þeirra félaga
þóttist Slagsíðan greina ýmsa þá
strauma sem leikið hafa um jazz-
og popptónlist á Vesturlöndum á
undanförnum árum. Það er leiður
siður okkar íslendinga að vera i
tíma og ótima að gera gæðaúttekt
á einstaklingum sérstaklega í tón-
list þar sem heildin skiptir ef til
vill mestu máli. Slíkt gæðamat
ætti að vera óþarft í sambandi við
leik Nordjazz-kvintettsins þar
sem valinn maður er í hverri
Pétnr
Östlund
&
\ordja/z
Nils P. Noren frá Noregi.
Pekka Pyory frá Finnlandi.
stöðu. Þó getur Slagsíðan ekki
orða bundist yfir bassaleikaran-
um Kjell Janson frá Svíþjóð.
Minnist Slagsíðan þess ekki að
hafa nokkurn tíma heyrt eða séð
snjallari mann á það hljóðfæri.
En nóg um það, — þökk sé þeim
félögum í Nordjazz fyrir heim-
sóknina og N.O.M.U.S. fyrir að
hafa gefið okkur kost á svo ágæt-
um kvöldstundum sem tónleikar
kvintettsins voru.
sv.g.
Tjan-
ing á
trommn-
settið
— „ ... Pétur Östlund kom inn f
þetta ekki löngu seinna og hann
hafði mjög þroskandi áhrif á okk-
ur. Hann kenndi okkur t.d. að
gera mun á góðri og slæmri mús-
ík og ég tel mig hafa notið góðs af
hans áhrifum allt fram á þennan
dag...“
(Gunnar Þórðarson
á Slagsíðunni 16.2. ’75)
— „ ... sem tónlistarmaður
hafði Pétur mikil áhrif á mig og
ég iærði mikið af honum. Hann
var á miklu breiðara sviði ...
Öðmenn breyttust líka mikið eft-
ir að hann kom, fengu mikiu
meiri breidd og okkur fór mikið
fram ...“
(Jóhann G. Jóhannsson
á Slagsíðunni 4.8. ’74)
Þessi ummæli segja ef til vill
meíra um Pétur Östlund og þátt
hans í íslensku tónlistarlífi en
nokkuð annað. Þegar á unga aldri
skipaði Pétur sér á bekk með
fremstu tónlistarmönnum lands-
ins, enda var honum tónlistin í
blóð borin og hann hafði til að
bera hæfileika sem fáum eru
gefnir. En þótt flestir viður-
kenndu hæfileika og kunnáttu
Péturs á trommurnar fór það ein-
hvern veginn svo, að hann naut
sín aldrei fyliilega á meðan hann
lék hér heima. Er það haft fyrir
satt, að hann hafi á tímabili verið
alvarlega að hugsa um að leggja
hljóðfæraleik á hilluna og fara til
sjós og segir það sína sögu um
stöðu hljómlistarmanna hér á
landi og er vissulega umhugsun-
arefni út af fyrir sig. Leið Péturs
hlaut að liggja út fyrir landstein-
ana, úr danshúsaþjarkinu og
hrepparígnum hér heima í um-
hverfi sem gerði honum kleift að
þroska hæfileika sína og leika þá
tónlist sem hugur hans stefndi til.
Þeim sem fylgst höfðu með ferli
Péturs kom því ekkert á óvart er
hann ákvað að halda utan til Sví-
þjóðar i ágústmánuði 1969. Vafa-
laust hefur Pétur átt góða daga í
Svíþjóð, — innan um' tónlistar-
menn með svipuð viðhorf til tón-
listarinnar og hann sjálfur en auk
þess að hafa starfað með þekktum
jazzleikurum þar í landi hefur
hann stundað kennslu við músík-
akademíuna í Stokkhólmi.
Eins og kunnugt er skipar Pét-
ur sæti trommuleikara í Nordjazz-
kvintettinum og er kvintettinn
heimsótti landið nú nýverið hugð-
ist Slagsíðan ná tali af kappanum
enda viðbúið að hann hefði frá
ýmsu að segja. Af viðtali gat þó
ekki orðið og var það bæói, að
tími Péturs var naumur og svo
hitt, að hann kvaðst lítt vera hrif-
inn af viðtölum yfirleitt. Slagsíð-
unni tókst þó að fá Pétur til að
mæla sér mót við sig i Tjarnarbúð
þar sem lokatónleikar kvintetts-
ins hér á landi voru haldnir. í
Tjarnarbúð reyndist hins vegar
enginn grundvöllur fyrir samræð-
um, — húsið var yfirfullt og
Tveir trommarar ræðast við, — Pétur og Engilbert Jensen.