Morgunblaðið - 16.03.1975, Page 44
44
MORGUNBLAÐIÐ, SUNNUDAGUR 16. MARZ 1975
Piltur og stúlka hsæ
og leit framan í Gróu, eins og hún ætlaði að sjá inn í
brjóstið á henni, en gat ekki séð þar annað en
einskæra trúmennsku og einlægni.
Þú mátt reiða þig upp á mig, góöa min, því þó
aldrei hefðir þú hlynnt neinu góðu að mér, sem þú
oft og margfaldlega hefur gjört, þá á hann, sem nú
liggur í gröfinni, það að mér, að,ég reyndist þér ekki
verr en aðrir í því litla, sem ég megna, eða hvað er
það, gæzkan mín?
Það er að koma bréfinu því arna yfir að Hóli, svo
lftið á beri, og taka við svarinu, og hérna er skild-
ingur undir það. — Sigríður rétti þá að henni bréfió
og spesíu með.
Þaó er svo lítið, og sér er nú hver ósköpin! Þú
hefur það af einhverjum þínum að vera svo smátæk,
elskan mín! Þetta er nú of mikió, sagði Gróa og
kyssti Sigríði stundarlöngum kossi.
Ég þarf ekki að minna þig á að geta ekki um það
við neinn hérna á heimilinu, Gróa mín.
Ég! óekkí; ekki hún Gróa litla; vertu öldungis
óhrædd um það, gæzkan mín! Ég er enginn skyn-
skiptingur, og það, sem einu sinni er komið i hend-
urnar á mér, það skal enginn þaðan draga, þó það
væri kóngurinn; og þagað get ég yfir því, sem mér er
trúað fyrir, þó ég sé kjöftug; ég held þaö varði engan
um það, þótt eitthvað meinleysi sé á millum ykkar
Indrióa, held ég; en þar er maðurinn.
í þessu kom Ingveldur inn, og var Gróa fljót að
stinga bréfinu á sig og sneri ræðunni allt í einu, eins
og þær hefðu verió að tala um eitthvað annað. Gróa
HÖGNI HREKKVÍSI
Náðu í hjálp, bjálfi.
dvaldi í Sigríðartungu fram eftir deginum, en þó
skemur en hún átti venju til. Sigríður þóttist hafa
komið vel ár sinni fyrir borð um bréfsendinguna; en
svo liðu margir dagar, að ekkert svar fékk hún frá
Ingibjörgu. Loksins kom Gróa aftur fram að Tungu,
og spurði Sigríður hana, hvernig farið hefði um
bréfið; kvaðst Gróa hafa farið með það daginn eftir
og fengið Ingibjörgu það sjálfri i einrúmi; hefði hún
lesið það og skellihlegið upp yfir sig og kastað því á
búrhilluna, rétt eins og hún skeytti ekkert um það;
og ekki hefði hún beðið sig að taka aftur neitt svar;
sagðist hún þó hafa ámálgað það við hana. Þessar
fréttir sagði Gróa Sigríði hálfgrátandi, og hafði
Sigríður enga orsök til að efast um, að þær væru
sannar; en óhlutvandir menn, sem lögðu þaó í vana
sinn að færa allt á verri veg fyrir Gróu, mæltu það,
að hún einhvern tíma löngu síðar hefði átt að sleppa
því við góða kunningjakonu sína, að þegar þeir, sem
Sagan af kóngsdóttur
og svarta bola
„Komi nú þokan, kolsvört og stríð,
svo kóngssonur sjái ekki hvert ég ríð“.
Aftur var hún öll á burtu, og ekki gat konungs-
sonur vitað, hvað af henni hefói orðið, hann fór
langar leiðir og spurðist fyrir um þetta land, sem
hún hafði sagst vera frá en þegar enginn gat sagt
honum hvar þaó var, varð hann að láta við svo búiö
standa.
Næsta sunnudag átti einhver að fara með greióu
til kóngssonar. — Katrín bað um aö fá að fara, en
hinar minntu hana á, hvernig farió hefði fyrir henni
áöur, og snupruðu hana fyrir aó hún væri að reyna
að koma sér í mjúkinn hjá konungssyni, eins svört
og ljót og hún væri og í tréstakk. En hún lét sig ekki,
fyrr en hún fékk að fara með greiðuna til konungs-
sonarins. Þegar hún kom upp stigann, skrölti í
tréstakknum, og konungssonur kom út, reif af
Katrínu greiðuna og henti henni framan í hana
öskuvondur.
Síðan fór konungssonur til kirkjunnar, og Katrin
bað líka um að fá aó fara, en aftur var hún spurð,
hvaö hún vildi þar, svo óhrein og illa búin og hefði
ekki föt, sem hún gæti látið nokkurn mann sjá sig í,
það gæti vel verið að konungssonur og eitthvert
annað stórmenni fengju að sjá hana þar við kirkj-
una, og það yrði bara til þess að slíkt fólk reiddist og
kæmist í illt skap, en Katrín sagði að svoleiðis fólk
hefði sjálfsagt nóg að horfa á annað en sig, og ekki
hætti hún aó biðja, fyrr en henni var leyft að fara.
Nú fór það eins og í bæði skiftin áður, hún fór að
ffta&tnorgunkoffinu
Aldraðir
fugla-
vinir
vekja
athygii
1 smábæ einum á Bret-
landi var fyrir 40 árum
komið upp fuglaspítala
fyrir villta fugla. Það
voru tvær systur sem
áttu hugmyndina, á sín-
um tíma, að því að koma
upp griólandi fyrir villta
fugla sem urðu fyrir
slysi eða óhappi. Seinna
tóku svo við þessu
félagssamtök sem komu
upp þessum fuglaspítala.
En nú er svo komið að
fjárhagsvandræði eru að
sigla fuglaspítalanum í
strand. Spítali þessi kom
mjög við sögu fyrir
nokkrum árum er stórt
olfuskip Torrey Canyon,
strandaói við Bretlands-
strendur. Þá drap olían
frá þessu skipi mikinn
fjölda sjófugla, — en
miklum f jölda var einnig
bjargað, og kom þessi
fuglaspítali í góðar þarf-
ir. Systurnar sem fyrir
40 árum áttu þessa hug-
mynd eru nú komnar
yfir áttrætt. Einhverjir
hefðu talió ófært fyrir
svo aldraðar konur að
standa í þessu. En því er
ekki til að dreifa. Þær
hafa beitt sér fyrir því
að fram fari almenn f jár-
söfnun til þess að bjarga
spítalanum og þær ætla
ekki að hætta fyrr en
50.000 sterlingspunda
markinu er náð. Hefur
málefnið vakið athygli í
Bretlandi og víóar
herma blaðafregnir.
Heyrðu! Það er ekki
tengdamóðir þín sem er
á dyrabjöllunni.