Morgunblaðið - 24.05.1975, Síða 33
MORGUNBLAÐIÐ, LAUGARDAGUR 24. MAl 1975
33
VELVAKAIMIDI
Velvakandi svarar t stma 10-100
kt. 10.30 — 11.30. fré mánudegi
til föstúdags
Q Portúgal
og Þjódviljinn
Birna Magnúsdóttir hringdi
og bað okkur fyrir eftirfarandi:
„Um fátt er nú meira fjallað i
fréttum en uppivöðslu
kommúnista í Portúgal. Morgun-
blaðið flutti ýtarlega frétt um það
hvernig kommúnistar sölsuðu
undir sig blað jafnaðarmanna í
Portúgal, Rebublica, og höfðu þar
með náð yfirráðum yfir öllum
f jölmiðlum í þessu landi.
Þegar ég hafði lokið við að lesa
fréttina í Mogganum datt mér í
hug, að fróðlegt gæti verið að sjá
hvernig Þjóðviljinn færi að þvi að
koma orðum að þessu mjög svo
óþægilega máli.
En ég þurfti ekki að gera mér
grillur út af þvi. Þrátt fyrir gaum-
gæfilega leit komst ég að þvi, að á
þetta var hreinlega ekki minnzt i
Þjóðviljarmm. Fljótleg afgreiðsla
og auðvitað afar þægileg fyrir
Þjóðviljann.
En hvernig nokkrum manni
dettur í hug að hafa þetta blað að
leiðarljósi er mér hulið.
t leiðinni langar mig bara til að
benda á það, að kommúnistar í
Portúgal fengu aðeins um 17%
atkvæða i kosningum, sein
haldnar voru þar nýlega, og eru
þá ekki aðeins talin atkvæði
þeirra, sem kusu svæsnasta
kommaflokkinn, heldur einnig
þeirra flokka, sem eru þeim hand-
gengnir að einverju leyti.
Jafnaðarmenn fengu 38% at-
kvæða og eru Iangfjölmennasti
flokkurinn. Miðflokkar fengu yfir
20 af hundraði, þannig að öllum
má ljóst vera hvers almenningur í
Portúgal raunverulega óskar.
En það er bara ekki nóg að vilja
og óska þar sem kommúnistar
hafa náð einhverjum teljandi
áhrifum. Það er þvi miður ekki
annað en timaspursmál hvenær
Portúgal verður algjört
kommúnistariki, ef svo fer sem
nú horfir.
0 Kommúnistar
hafa meira
fylgi á íslandi
en í Portúgal
I sambandi við þetta er vert að
veita því athygli, að hér á íslandi
hafa kommúmistar mun meira
fylgi en skoðanabræður þeirra i
Portúgal. Þeir hafa yfir 20%,
þannig að það má víst teljast
mesta mildi, að þeir skuli ekki
hafa meiri áhrif hér en raun er á.
Ef þeir hefðu yfirráð yfir vopnum
eins og þeir i Portúgal, þá er ekki
gott að segja hvernig fara myndi.
Hins vegar veit maður náttúr-
lega ekki nema þeir kunni að hafa
eitthvað af vopnum. Vopnaleysi
— llann var með bréf . . .
— Já. En hvað stóð i því bréfi '
Ég heyrði ekki betur en hún
andvarpaði.
Þá hallaði Margit Holt sér
skyndilega fram. Ljósin spegi-
uðust í blárri regnkápunni og
mjúkt hárið var eins og geisla-
baugur unt andlit hennar.
— Segðu það bara! Mig getið
þið ekki sært meira en þið hafið
þegar gert og mér finnst að
Christer eigi rétt á að fá að vita
sannleikann um ykkur ba-ði.
Ofurslinn hristi argur og óró-
legur höfuðið.
— Þegar Margit tekur sig til,
skyldi maður ætla að ég hefði
verið henni ótrúr hvern dag f öllu
hjónabandi okkar, en ég sver við
guð, að ég hef hvorki verið henni
ótrúr í athöfnum né hugsun sfðan
við giftum okkur. Að ég var ást-
fanginn áður en við giftum
okkur, meira að segja mjög ást-
fanginn af Elisabetu ætti ekki að
geta sært nokkra heilbrigða
manneskju, ef málin cru metin af
skynsemi.
Ég sá glampa i augum Margit
sem gerði mig hrædda, svo tryll-
ingsieg var afbrýðiscmin, sem
speglaðist f svip hcnnar. En áður
en hún gat nokkuð sagt tðk Elisa-
eða réttara sagt sprengjuefnis-
skortur virtist svo sem ekki
flækjast fyrir þeim, sem voru að
sprengja hér uppi í Hvalfirði um
árið. Stórveldi kommúnismans
hefur i mörgum löndum staðið að
skæruliðastarfsemi og ótrúlegt,
að það reyni ekki að hafa ein-
hverja slika tilburði í frammi hér
á íslandi, sem virðist vera þeim
mjög girnilegt.
Það hefði annars verið gaman
að sjá ofan í þennan fræga sildar-
kassa, sem smyglað var úr
rússnesku skipi á sendiráð Rússa
hér um daginn.“
Velvakanda finnst að það sé nú
farið að hitna svo í kolunum að
varla sé hægt að tala um „kalda
stríðið" lengur.
0 Veiðivargar
í Skorradal
Steini Böðvars skrifar:
„Það er 'að verða vorlegt enda
er búið að fagna sumri. Far-
fuglarnir eru að tinast til dalanna
og söngur þeirra lætur vel í eyr-
um.
Svo koma aðrir farfuglar, sem
þó eru hér staðbundnir en færa
sig til eftir árstíðum. A ég hér við
fólk, sem á sér sumarbústaði til
syeita á friðsælum stöðum. Ég hef
að nokkru leyti verið í nálægð við
bústaði þessa fólks, sem hefur þar
aðsetur um helgar og sumt er þar
í sumarfríi sinu. Ekki lái ég nein-
um þótt hann vilji njóta hvildar í
hreina loftinu, laus við skarkala
og skvaldur, það er í alla staði
skiljanlegt.
Areiðanlega er þarna um að
ræða ágætisfólk að mestu leyti og
sumir eru gamlir kunningjar
inanns og gamlir grannar, sem
maður er búinn að reyna að öllu
góðu í mörg ár.
En það er hér eins og viða þegar
fjölgar, þá slæðast með margir
svartir sauðir, sem ekki hafa
hneigð til að koma fram eins og
mönnum sæmir.
Viða við Skorradalsvatn eru
menn með net og veiða sér til
gagns og gamans. Það hefur borið
töluvert á þvi, að sumt fólk hafi
ekki virt þann eignarrétt, sem
menn hafa á sínum löndum. Það
keyrir á vélbátum yfir netin, þótt
sýnt sé með duflum hvar þau
liggja. fyrir utan það að hver og
einn veit, að enginn hefur rétt til
að spilla veiði fyrir öðrum. Það er
ekki nóg með það, að fólk sé með
veiðarfæri á milli netanna, heldur
dregur það veiðarfærin yfir net-
in, ýmist rifur þau eða slítur
veiðarfærin, svo að spónar og
önglar verða eftir í netunuin.
Svo langt gengur þessi yfir-
gangur, að sumir fara á bátum
yfir i annarra lönd og veiða á
stangir úr landi. Hér er ekki
frekár um að ræða unglinga en
fullorðna menn. Þó ætti maður að
skilja betur, ef svo væri, — maður
er kærulausari á þeim árum.
Það kemur oft fyrir, að inaður
kemur að fullorðnum mönnum,
sem stunda svona iðju. Frá einum
bænum við vatnið var netið hirt
með öllu saman á siðasta sumri.
Ég ætla ekki að telja upp fleiri
skemmdir, sem orðið hafa þótt af
nógu sé að taka.
Margir sem bústaði eiga við
Skorradalsvatn, hafa leyfi land-
eigenda til þess að veiða fyrir
landi viðkomandi. Fjöldinn lætur
sér það nægja en svo eru þeir,
sem ekki þekkja merkin. Landeig-
endur, sem leyfin veita, hvorki
geta né gera neitt til þess að hafa
hemil á þessu fólki, en það getur
ekki farið fyrir ofan garð og
■ neðan hjá þeim hvernig þetta fólk
hagar sér. Hraðbátana á að banna
á vötnum þar sein fuglalif er frið-
laust fyrir þessum þeytingi, enda
er slíkt sums staðar gert.
Svo er nú sumt af þessu fólki
við þá vinnu, að því væri beinlínis
hollt að taka i árar, fyrir utan það
að sigling er íþrótt.
Ég vil nú fara þess á leit við
þessa fáu granna mina, sem hafa
stundum gert mér gramt i geði, að
þeir hætti þessari áreitni. Þá
verður þetta gott. Ég er svo
óvanur nágrannaríg.
Steini Böövars.“
Það er von, að Steini sé ergileg-
ur, og við óskuin honum og sveit-
ungum hans þess, að sökudólgarn-
ir hagi sér betur eftirleiðis.
Hins vegar viljum við benda
Steina á það, að það er víðar
hreint loft en i sveitinni. Hér i
Reykjavík er þetta fina, heil-
næma loft, sein allir erlendir
borgarbúar öfunda okkur Reyk-
víkinga af.
HÖGNI HREKKVÍ3I
Amma! Hann er hér! — bíður eftir yógaæfingunni
Styrkur til náms
í talkennslu
Menntamálaráðuneytlð hefur I hyggju að veita á þessu ári styrk handa
kennara sem vill sérhæfa sig í talkennslu vangefinna. Styrkfjárhæðin
nemur allt að 400.000.- krónum. Sú kvöð fylgir styrknum að
kennarinn starfi a.m.k. þrjú ár að námi loknu við talkenns[u í
stofnunum fyrir vangefna.
Umsóknir skulu berast menntamálaráðuneytinu fyrir 20. jún! n.k.,
ásamt upplýsingum um menntun og fyrri störf.
Menntamálaráðuneytið,
20. ma! 1975.
Bandariskar MILLER álraf-
suðuvélar og rafsuðuspennar
væntanlegir um mánaðarmótin
mai/júní.
Talið við eigendur MILLER rafsuðu-
tækja og gerið verðsamanburð!
Iðnaðarvörur
Kleppsveg 150, Reykjavík. Póst-
hólf 4040, sími 86375.
Fiskiskip
Höfum til sölu fiskiskip af eftirfarandi stærðum.
Stálskip:
29, 75, 76, 103, 104, 105, 1 15, 1 19, 125, 134, 146, 148, 176,
192, 193, 203, 207, 208, 218, 228, 229,
Tréskip:
1 1, 20, 29, 34, 37, 38, 39, 42, 43, 44, 48, 50. 51, 53, 56, 57,
60, 62, 63, 64, 65, 66, 67, 68, 71, 72, 73, 74, 75, 80, 81, 82,
83, 84, 85, 89, 92, 94, 100, 101, 102, 103, 104, 144.
Landsamband ísl. Útvegsmanna
Skipasala — Skipaleiga,
Sími 16650.
Dagur Hársim
Í/LAND/KEPPNI
Hárgreiðsla Hárskurður
Sunnudaginn 25. mai
ki. 11.00 til 22.00
ÍÞRÓTTAHÚSIÐ
SELTJARNARNESI
Vatn
Blandað
Klór
KISILL.
Lækjargata 6b
Reykjavík
simi 15960
Klór-
blöndunar-
tæki
(jektor)
UTGERDARMENN
MATVÆLAIDNADUR OD FRVSTIHÚS