Morgunblaðið - 13.06.1975, Page 1
36 SIÐUR
131. tbl. 62. árg. FÖSTUDAGUR 13. JÚNl 1975 Prentsmiðja Morgunblaðsins.
Harðar
aðgerðir
stjórnar
Wilsons
í aðsigi
Ljósmynd Ól.K.M.
Laugardalslauginni i gær-l
KARL GÚSTAF SVlAKONUNGUR fékk sér sundsprett á meðal reykviskra borgara
morgun. — Sjá frásögn og fleiri myndir frá ferðum konungs í gær á bls. 16.
Indira áfrýjar dómnum
Sjá grein um
Indiru Gandhi á bls. 15
□
□
0 INDLAND stóð f dag frammi
fyrir alvarlegustu stjórnarskrár-
krcppu Iandsins frá því það hlaut
sjálfstæði er Indira Gandhi, for-
sætisráðherra neitaði að iáta af
völdum þrátt fyrir dóm þann sem
dómari í Allahabad kvað upp í I
morgun, þar sem hún er fundin
sek um tvö af fimm ákæruatrið-
um um ólöglega kosningabaráttu
í þingkosningunum árið 1971.
Samkvæmt dómnum er hún svipt
réttindum til að gegna opinber-
um trúnaðarstöðum eða taka þátt
f kosningum til ársins 1981. Dóm-
arinn veitti forsætisráðherranum
hins vegar 20 daga frest áður en
bannið skellur á, til þess að hún
Fiskverðsdeilan
í Færeyjum leyst
Þórshöfn 12. júnf, frá fréttaritara Mbl.,
Jogvan Arge.
FÆREYSK fiskiskip, sem veiða á
heimamiðum, geta nú aftur land-
að afla sínum í færeyskar
vinnslustöðvar. Landsstjórn Fær-
eyja og samband fiskimanna,
„Meginfélag útróðrarmanna",
náðu síðdegis samkomulagi um
hækkun verðs á nokkrum fiskteg-
undum.
Færeyskir fiskibátar hafa
undanfarna viku lokað höfninni f
Þórshöfn en í kvöld voru bátarnir
fjarlægðir eftir að samkomulagið
hafði náðst og landsstjórnin og
samband fiskimanna höfðu orðið
ásátt um fyrirkomulag frekari
viðræðna. Landsstjórnin gerðf
það að algerri kröfu um áfram-
hald viðræðna að fiskibátarnir
yrðu fjarlægðir úr hafnarmynn-
inu i Þórshöfn.
Andrúmsloftið í Þórshöfn hef-
ur verið þrungið spennu undan-
farna daga. Fyrst lokuðu fiski-
mennirnir höfninni og síðan
lokuðu þeir leiðurn frá Þórshöfn
til annarra staða á Straumey.
Síðastnefndu aðgerðunum var
hætt á sunnudaginn. A mánudag
fóru fimm fagfélög í Þórshöfn í
samúðarverkfall með fiskimönn-
um og á þriðjudaginn lokuðu
fiskimennirnir innganginum að
fimm skrifstofubyggingum í Þórs-
höfn, m.a. hjá bönkum og útflutn-
ingssamtökum iðnaðarins.
A þriðjudagsmorguninn, áður
Franihald á bls. 20
geti áfrýjað dómnum til hæsta-
réttar Indlands.
0 Indira Gandhi mun að sögn
stuðningsmanna hennar þegar í
stað áfrýja dómnum, og um leið
sækja um framlengingu á frest-
inum svo að hún geti verið áfram
í embætti unz málið er afgreitt
hjá hæstarétti sem verður ekki
fyrr en eftir a.m.k. nokkra
mánuði. Frú Gandhi sagði
skömmu eftir dómsuppkvaðning-
una, er allt að 2000 stuðnings-
menn hcnnar þyrptust að húsi
hennar í Nýju Delhí, að með
stuðningi þjóðarinnar hopaði hún
hvergi og berðist áfram í mörg-
um, ókomnum kosningum.
Skyndifundur ráðherra hennar
og Iciðtoga flokks hennar,
Kongressflokksins, lýsti einnig
yfir eindrcgnu trausti á frú
Gandhi og hvatt i hana til að vera f
embætti unz áfrýjunin yrði tekin
fyrir.
0 En þó að stuðningsyfirlýsing-
um og skeytum rigndi yfir frú
Gandhi vfðs vegar að af Indlandi
var ekki sfður mikill þrýstingur
úr gagnstæðri átt, þ.e. frá stjórn-
arandstöðuflokkunum, til að
knýja fram afsögn forsætisráð-
herrans. I um tveggja km fjar-
lægð frá liúsi frú Gandhi stofn-
uðu andstæðingar hennar til mót-
mæla og hrópuðu „Spilltur for-
sætisráðherra verður að segja af
sér“.
Indira Gandhi var dæmd af Jag
Framhald á bls. 20
London 12. júni — Reuter.
DENIS Healy, fjármálaráðhorra
Bretlands, sagði í harðorðri ræðu
f neðri málstofu brezka þingsins í
dag, að stjórn Vcrkamannaflokks-
ins myndi á næstu vikum ákveða
strangar efnahagsaðgerðir sem
skera eiga óðaverðbólguna í land-
inu niður um helming á cinu ári.
A sama tíma féll verðgildi punds-
ins niður í nýja metlægð á gjald-
eyrismörkuðum, eða úr 25,9% f
gær í 26,5% rýrnun. Sfðar um
daginn rétti pundið hins vegar
aðeins úr sér og fór upp f 26,2%
rýrnun verðgildis miðað við árið
1971. Harold Wilson, forsætisráð-
herra, kvaddi ráðherra sína til
fundar að sveitasetri sfnu á
morgun til að ræða aðgerðir til að
stöðva verðbólguna og seðja fjár-
festingarhungrið innan brezka
iðnaðarins. Gert er ráð fyrir að
tölur sem birtar verða á morgun,
föstudag, muni sýna að vcrðbólg-
an I Bretlandi sfðasta ár hafi
numið 25%.
t ræðu sinni i neðri málstofunni
bað Healy um samvinnu við hin
valdamiklu verkalýðsfélög lands-
ins og við atvinnurekendur.
Healy hefur ítrekað hvatt til hóf-
semi í kaupkröfum af hálfu
verkalýðsins, og talið er að á
fundum ríkisstjórnarinnar og
verkalýðsfélaganna siðustu daga
hafi verið gerðar tilraunir til að
ákveða nýjar viðmiðanir fyrir
kaupkröfur sem Alþýðusam-
Framhald á bls. 20
Bandalag spænskra
andófsflokka myndað
Madrid 12. júní—NTB
FJÖRTAN bönnuð stjórnmála-
samtök á Spáni tilkynntu f dag að
þau hefðu myndað bandalag mið-
og vinstri flokka, sem einnig yrði
opið öðrum lýðræðislegum stjórn-
málasamtökum. Bandalagið
mynda samtök kristilcgra demó-
krata, sósfalista og
vinstri-róttækra, en spánski
kommúnistaflokkurinn á ekki að-
ild að þvf. Bandalaginu mun
ætlað að mynda sterka breiðfylk-
ingu til að knýja fram úrbætur á
Spáni, en æ meir hefur að undan-
Franihald á bls. 20
Formaður rannsóknarnefndar fulltrúadeildarinnar:
Þagði yfir CIA-upplýsingum
og neyddist til að segja af sér
Washington 12. júní.
Reuter — AP.
0 FORMAÐUR rannsóknar-
ncfndar fulltrúadeildar Banda-
rfkjaþings, sem fjallar um leyni-
þjónustustarfsemi f Bandaríkj-
unum, Lucien Nedzi, neyddist í
dag til að segja af sér formennsk-
unni vegna ásakana um að hann
hefði fyrir ári sfðan fengið upp-
lýsingar um hugsanlega aðild
bandarfsku leyniþjónustunnar,
CIA, að morðfyrirætlununum, en
haldið þeim leyndum. Nedzi, sem
er demókrati, var sakaður af
flokksmönnum sfnum í nefndinni
um að hafa virt að vettugi þau
gögn sem honum bárust sem for-
manni undirnefndar hermála-
nefndar deildarinnar. Hinar
áköfu deilur f deildinni vegna
þessara ásakana lciddu til þess,
að flokksmenn Nedzis f ncfndinni
stofnuðu án samráðs við liann sér-
staka undirnefnd 10 þingmanna
til að rannsakaCIA sérstaklega.
0 Nedzi sagði þá af sér, og tjáði
fréttamönnum, að nefndin hefði
svipt hann öllum völdum með þvi
að stofna undirnefnd undir for-
mennsku annars manns. Hins
vegar brá svo við, að rcpúblfkana-
þingmennirnir 3, sem sæti eiga í
hinni nýju undirnefnd, ákváðu að
mæta ekki á fund hennar i dag
vegna afsagnar Nedzis. A þessum
fundi var mættur til yfirheyrslu
William Colby, yfirmaður CIA,
Framhald á bls. 20
Nedzi t.v. sagði af sér; Rocke-
fellerskýrslan um CIA t.h.