Morgunblaðið - 13.06.1975, Blaðsíða 27
MORGUNBLAÐIÐ, FÖSTUDAGUR 13. JÚNl 1975
27
„Aldan” álykt-
ar um síldveið-
ar við landið
Eftirfarandi ályktun var sanj-
þykkt á framhaldsaðalfundi Skip-
stjóra- og stýrimannafélagsins
Öldunnar 13. mai sl.:
„Eftir áralangt hlé á síldveiðum
með nót við Island vegna hættu á
eyðingu íslenskra sfldarstofna að
áliti fiskifræðinga okkar, er nú
svo komið að þeir álíta hættulaust
að nótaveiðar verði leyfðar og
síldarstofninn verði nýttur að tak-
mörkuðu leyti.
Er eðlilegt og sjálfsagt að þessu
sé gaumur gefinn, ef það mætti
verða til aðstoðar, og / eða upp-
bótar á aðra þætti sjávarútvegs-
ins. Leggja ber áherslu á að nýt-
ing aflans miðist eingöngu við
matvælaöflun til manneldis.
Astæða er til að líta aftur og
fara í engu óðslega hvað varðar
þesar veiðar að minnsta kosti til
að byrja með, og menn sætti sig
við það aflamagn sem rætt hefur
verið um að veitt yrði á þessu ári.
Líta ber á að markaðir okkar fyrir
þessar afurðir hafa að sjálfsögðu
farið úr skorðum, og gæti tekið
tima að vinna þá upp að nýju.
Nauðsynlegt er að hafa í huga
við leyfisveitingar til þessara
veiða nú, að um nokkra stjórnun
verði að ræða svo sem takmarkað-
ur bátafjöldi og eða aflamagn á
bát (i ferð) svo ekki skapist þær
aðstæður að aflinn fari i gúanó en
nýttist ekki til manneldis.
Við teljum sjálfsagt og eðlilegt,
að skip, sem á undanförnum árum
hafa stundað síldveiðar í Norður-
sjó, verði látin ganga fyrir með
leyfisveitingar.
Um tvær leiðir er helst að velja
til að sæmilega takist til.
1. Að ísa síldina í kassa um borð
í veiðiskipi, flytja hana þannig í
land til verkunarstöðvar, og að
hver verkunarstöð hafi ekki fleiri
en 2—3 báta.
Að hausskera síldina og salta
um borð í veiðiskipi, flytja hana
saltaða til verkunarstöðvar, þar
sem hún er yfirfarin og lagfærð
til útflutnings.
I hvoru tilfellinu sem um er
rætt, yrði um að ræða löggiltar
verkunarstöðvar. Nauðsynlegt er
að viðurkenndar verkunarstöðvar
taki við aflanum til úrvinnslu.
Leggja ber áherslu á, að fylgst
verði með veiðunum, og smásild-
arveiði algjörlega bönnuð.
Þá var eftirfarandi tillaga sam-
þykkt á sama fundi.
Aðalfundur Skipstjóra- og stýri-
mannafélags „öldunnar“ beinir
þeim eindregnu tilmælum til Haf-
rannsóknastofnunarinnar, aö
fram fari könnun á loðnuveiði
siðsumars við Vestur- og Norður-
land.“
(Fréttatilkynning.)
Veiðileyfi
Lax- og silungsveiðileyfi til sölu á vatnasvæði á
Norðurlandi. Á vatnasvæðinu eru ár og vötn.
Veiðihús er á staðnum og bátar á vötnunum.
Teljum heppilegt fyrir hópa t.d. starfsmanna-
félög. Tilboð sendist Mbl. merkt: „Veiðilefyi —
6976" fyrir 1 9. júní.
Sænsku sófasettin
nýkomin
klædd riffluðu flaueli
5 litir verð mjög hagstætt
Kommóður
úr furu eða
bæsaðar brúnar
og grænar.
verð mjög
hagstætt.
OPIÐ TIL KL. 10 í KVÖLD OG
TIL 12 Á HÁDEGI Á MORGUN
Vörumarkaðurinn hí.
Ármúla 1A. Húsgagna- og heimilisd. S-86-112
Matvörudeild S-86-111. Vefnaðarv.d. S-86-113
r ®SKODA~
SÖLUSÝNING
Kynnum SKODA 1975 á
Snæfellsnesi
Á Hellissandi 14. júní (laugard.) frá kl.
1 0.00—1 3.00 við félagsheimilið Röst.
Á HELLISSANDI 14. JÚNÍ (LAUGARD.) frá kl.
10.00—13.00
Á ÓLAFSVÍK 14. JÚNÍ (LAUGARD) frá kl.
1 5.00 — 1 9.00 við Bensínafgreiðslu B.P.
f STYKKISHÓLMI 15. JÚNÍ (SUNNUD.) frá kl.
1 4.00— 1 8.00 við Bensínafgreiðsluna.
í GRUNDARFIRÐI 16. JÚNÍ (MÁNUD.) frá kl.
1 0.00—1 5.00 við Hótel Fell.
TÉKKNESKA BIFREIÐAUMBOÐIÐ Á ÍSLAND! H/F
AUOBREKKU 44-46 KÓPAVOGI SlMI 42600
Nú eru komnir TRÉKLOSSAR sem njóta
mestra vinsælda erlendis. Mokkaskinnsklossa
köllum við þá, þeir eru úr mjúku ósviknu yfir-
leðri sem nefnt er hanskaskinn. Það fer vel
með fæturnar að ganga á tréklossum, sérstak-
lega yfir sumarið. Gangið við hjá GÍSLA skó-
smið og spyrjið hann.
GÍSLIFERDINANDSSON Skósmiður
LÆKJARGÖTU 6- SÍMI 20937 • REYKJAVÍK
Bankastræti 9 — sími 11811
Fataverzlun fyrir
DÖMUR&HERRA
PÓSTSENDUM SAMDÆGURS
Nýkomið
í dömudeild
Danskir þunnir
kjólar
Kaki kjólar
Sumarblússur
Riffluð flauelspils
með vösum
Mjó leðurbelti
Nýkomið
í herradeild
Grófriffluð
flauelsföt
Slétt flauelsföt
Myndabolir
Þunnar
rúllukragapeysur
jr • •