Morgunblaðið - 13.06.1975, Page 2
2
MORGUNBLAÐIÐ, FÖSTUDAGUR 13. JUNl 1975
Málið upplýst
— segir Seðlabanki um sölu
leigubifreiðar hjá Rœsi
Morgunblaðinu hefur borizt
eftirfarandi fréttatilkynning frá
Seðlabankanum:
Á vegum Seðlabankans, á
grundvelli laga um verðtryggingu
fjárskuldbindinga nr. 71/1966,
hefur farið fram athugun á láns-
kjörum, er fyrirtækið Ræsír h.f.,
Reykjavik, veitti kaupanda leigu-
bifreiðar í nóvember 1973. Bif-
reiðin var keypt og flutt inn frá
Vestur-Þýzkalandi með sex
mánaða greiðslufresti að 8/10
kaupverðs, skv. þeim reglum, sem
giltu um kaup leigubifreiða.
Kaupandi bifreiðarinnar gaf út
skuldabréf til umboðsins i vestur-
þýzkum mörkum í formi endur-
láns til lengri tíma og með hærri
fjárhæð en nam hinu erlendaláni
og var mismuninum varið skv.
Framhald á bls. 20
Dómsmálaráðunegtið:
Nefnd vinnur að endur-
skoðun dómstólakerfis
MORGUNBLAÐINU hefur borizt
eftirfarandi fréttatilkynning frá
dóms- og kirkjumálaráðuneytinu:
Vegna umræðna í fjölmiðlum
nú undanfarið, um nauðsyn á
endurbótum á löggjöf um með-
ferð dómsmála, telu. ráðuneytið
rétt að vekja athygli á þvi, að
dómsmálaráðherra skipaði hinn
7. október 1972 nefnd til að
„endurskoða dómstólakerfi lands-
ins á héraðsdómsstiginu og til að
kanna og gera tillögur um, hvern-
ig breyta mætti reglum um máls-
meðferð i héraði til þess að af-
greiðsla mála yrði hraðari". I
nefndina voru skipaðir: Björn
Sveinbjörnsson, þáverandi hæsta-
réttarlögmaður en nú hæsta-
réttardómari, Björn Fr. Björns-
son sýslumaðir, áður formaður
Dómarafélags Islands, Sigurgeir
Jónsson bæjarfógeti, þáverandi
formaður Dómarafélags Islands
og Þór Vilhjámsson prófessor. —
Frá skipun og verkefni nefndar-
innar var skýrt á sínum tima. Var
augljóst, að verkefni nefndarinn-
ar var mjög umfangsmikið og yrði
ekki lokið á skömmum tíma. Þess
má geta, að nefndinni hefur á
starfstima sinum verið falin at-
hugun á ýmsum minni háttar
lagabreytingum, sem að hafa bor-
ið á lagasviði því, sem hún fjallar
um, og hafa sumar verið lögfest-
ar.
Nefndin hefur unnið mikið
undirbúningsstarf að höfuðverk-
efni sínu, og er tillagna að vænta
frá henni síðar á þessu ári.
Ær bar fjórum lömbum
Eystra-GeldinKaholti 12. júní.
FÉLAGSHEIMILIÐ Arnes í
Gnúpverjahreppi var opnað til
veitingareksturs á þessu sumri 1.
júnf s.I. Verður þar veitingarekst-
ur eins og undanfarin sumur og
aðstaða til að taka á móti bæði
stórum og smáum hópum. En sé
um stóra hópa þarf að panta meó
nokkrum fyrirvara.
Mikill kvíði er í mönnum vegna
yfirvofandi verkfalla, þar sem
mjólkur framleiðsla er nú í há-
marki og hætt við að stöðvun
mjólkurflutninga hafi geig-
vænleg áhrif á fjárhagsafkomu
bænda.
Sauðburði er að mestu lokið en
hin kalda veðrátta og grasleysið
hafa valdið miklum erfiðleikum
og kostnaði. Að öðru leyti hefur
sauðburður gengið vel. Þá bar það
til tiðinda að siðasta ærin, sem
bar í Steinsholti, átti fjögur lömb,
sem öll lifa. Þetta hefur ekki hent
áður hér i sveitinni.
— Jón.
ERU ÞEIR
NORÐURA
Þegar við höfðum samband
við veiðihúsið við Norðurá var
okkur tjáð, að þar væru komnir
142 laxar á land og mikill lax
væri I ánni. Stærsti laxinn, sem
veiðzt hefur, er 20 pund.
LAXA 1 KJÖS
Jón Erlendsson, veiðivörður
við Laxá í Kjós, sagói I samtali
við þáttinn í gær „að góð veiði
væri í ánni. Fyrsta daginn, sem
veiði var leyfð, fengust 24 lax-
ar, þann næsta 17 laxar og um
hádegi i gær voru komnir 10
laxar á land. Stærsti laxinn,
sem dreginn hefur verið á land,
er 18.5 pund og hann fékk Þór-
arinn Sigþórsson, tannlæknir,
og Hallgrimur Dalberg, ráðu-
neytisstjóri, fékk einn 18
punda fyrsta daginn. Laxinn
hefur eingöngu verið veiddur á
maðk.
Að sögn Jóns er nú gott vatn I
ánni og fiskurinn hefur gengið
upp eftir allri Laxá og einnig
Bugðu og hefur fiskur fengizt á
efstu veiðistöðunum. Þetta
þakka menn laxastiganum, sem
komst snemma í notkun að
þessu sinni.
10 stengur eru leyfðar á dag i
Laxá i Kjós.
GRlMSA I BORGARFIRÐI
Veiði byrjaði I Grimsá i
Borgarfirði I gærmorgun. Jó-
hann Sigurðsson i veiðihúsinu
sagði í samtali við þáttinn, að
byrjað hefði verið með 4 steng-
Framhald á bls. 20
— Þessi var að fá’ann.
Ib Wessman og Viðar Ottesen standa við veiziuborðið á veitingahúsinu Nausti sfðdegis f gær, en þá var
ailt að verða tiibúið fyrir veizlu Svfakonungs um kvöldið. Til veizlunnar hafði konungur flutt með sér
gulli sleginn silfurborðbúnað, sem sést á myndinni. (Ljósm. Mbi. Br. h.)
60-80 millj. kr. í útflutn-
ingsbætur á nautakjöt
RlKIÐ greiðir 190 krónur f út-
flutningsbætur á hvert kfló þess
nautakjöts, sem flutt er út til
Hollands aðallega og neytendur
þar kaupa á milli 20 og 40 krónur
kflóið. A sama tfma greiðum við
heimamenn milli 330 og 380
krónur á kflóið f heildsölu, og
sfðan á smásalan eftir að fá sitt,
eins og kom fram f Morgunblað-
ínu f gær.
Þegar Morgunblaðið spurðist
nánar fyrir um þessar útflutn-
ingsbætur í landbúnaðarráðu-
neytinu benti Guðmundur Sig-
þórsson, deildarjtjóri, á i þessu
sambandi að ríkið greiddi meira
en 200 krónur í niðurgreiðslur á
dilkakjöt, en eins og kunnugt er
þá er nautakjötið ekki greitt
niður.
Þá upplýsti Guðmundur að
nautakjötið, sem flutt væri út og
var 357 tonn á sl. verðlagsári,
væri ekki nema 3—4% af dilka-
kjötsneyzlunni. Utflutnings-
bæturnar væru því ekki nema
óverulegt brot af niðurgreiðslum
dilkakjöts en næmu þó 60—80
milljónum króna á ári miðað við
að útflutningurinn nú yrði á
bilinu 300 til 400 tonn.
Astæðuna fyrir því að offram-
leiðslu gætti nú á nautakjöti kvað
Guðmundur m.a. vera hinar
miklu niðurgreiðslur á kinda-
kjöti, sem komu til á síðasta ári en
hið lága verð á því hefði veikt
mjög samkeppnisaðstöðu nauta-
kjötsins. Kjötið, sem flutt er út, er
aðallega af 2—3 ára kálfum. Að
sögn Guðmundar var hér á árun-
um 1966—68 flutt nokkuð út af
kýrkjöti en samfara fækkun bú-
stofns lagðist sá útflutningur af.
A siðustu árum hefur aftur á móti
geldneytastofninn vaxið töluvert
og mætti einnig rekja ástæður
offramleiðslunnar til þess. Guð-
mundur kvað hins vegar erfitt að
Framhald á bls. 20
Iðnaðarútflutningurinn:
V erðmætaaukningin
619 millj. á sl. ári
HEILDARUTFLUTNINGUR
iðnaðarvara á si. ári varð að verð-
mæti um 7.027 milljónir króna
sem er 15,9% aukning frá árinu á
undan en það ár nam útflutn-
ingurinn 6.061 milljónum króna.
Utflutningur áls nam 4,788
milijónum króna og jókst um 7%
frá árinu 1973. Hins vegar nam
útflutningur iðnaðarvara án áls
2.238 milljónum króna og hefur
aukizt um 38,2% frá árinu á und-
an.
Hlutur iðnaðarvara í heildarút-
flutningi landsmanna var á árinu
Sigurður búinn
að landa tvisvar
í Norglobal
NÓTASKIPIÐ Sigurður hefur nú,
svo vitað sé, landað tveimur
loðnuförmum f verksmiðjuskipið
Norglobai við Nýfundnaland. I
annað skiptið landaði skipið 200
lestum, en ekki er vitað hve
mikill aflinn var I seinnaskiptið.
Sigurður Einarsson hjá Isfelli
h.f. sagði í samtali við Morgun-
blaðið, að verið gæti að skipið
væri búið að Ianda oftar, en oft
væri erfitt að fá fréttir af skipinu.
Hann sagði, að 7 norsk loðnuskip
yrðu á þessum slóðum i sumar og
væru öll komin. Því yrðu það 8
skip, sem myndu landa í Nor-
global.
1974 21.37% en var 23.29% árið á
undan, og minnkaði þannig nokk-
uð á árinu miðað við 1973. Stafar
minnkunin af sveiflu í hlutdeild
áls i heildarútflutningi iðnaðar-
vara. Hlutdeild iðnaðarútflutn-
ings án áls jókst hins vegar úr
6.23% árið 1973 í 6.81 % árið 1974.
Verðmæti útflutnings ullarvöru
er nú orðið tæpar 770 milljónir
króna en var 506 milljónir árið á
undan. Mest er aukningin á út-
flutningi ullarbands og lopa.
Mjög athyglisverð aukning varð á
árinu i útflutningi á fiskilínum og
köðlum eða úr 8,9 milljónum I
59.7 milljónir, en á sama tíma
jókst magnið úr 41.5 tonnum í
166.2 tonn, að því er segir í árs-
skýrslu útflutningsmiðstöðvar
iðnaðarins fyrir sl. ár.
Þar kemur eirinig fram að
þróun útflutnings iðnaðarvara án
áls hefur verið hagstæð undan-
farin ár og verðmætaaukningin
aukizt stöðugt og mest á árinu
1974 miðað við gengi íslenzku
krónunnar á hverjum tima.
Heildarverðmætið var þannig á
árinu 1969 samtals um 452
milljónir króna en 1970 var verð-
mætið 661 millj. og jókst þannig
um 209 milljónir. Árið 1971 jókst
það um 228 milljónir i 889
milljónir króna, árið eftir um 275
milljónir og heildarverðmætið fór
í 1.165 milljónir króna, árið 1973
jókst það um 455 millj. og fór í
1.620 milljónir króna og i fyrra
jókst það um 619 milljónir og var
þá heildarverðmætið 2.239 millj.
króna.
Drengur varð fyrir
bíl og fótbrotnaði
SEX ára drengur varð fyrir bíl í
Hvassaleiti um klukkan 18 i gær.
Drengurinn var fluttur á slysa-
deild Borgarspitalans til
rannsóknar og sfðan lagður inn á
spftalann. Reyndist hann hafa
fótbrotnað.
Þá urðu tveir mjög harðir
árekstrar í Reykjavik siðdegis í
gær. Fyrri áreksturinn varð á
mótum Elliðavogar og gömlu
Suðurlandsbrautarinnar. Tveir
fólksbilar lentu þá saman af mikl-
um krafti. Þrennt var flutt á
slysadeildina en ekki munu
meiðsli hafa verið alvarleg. Þá
varð einnig hörkuárekstur á mót-
um Flókagötu og Gunnarsbrautar
milli tveggja fólksbifreiða. öku-
mennirnir voru einir í bilunum
og sluppu þeir án meiðsla en
bílarnir eru mikið skemmdir.